Morgunblaðið - 14.12.1984, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 14.12.1984, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1984 67 byggja upp spennu meðal áhorf- enda. Persónulega fannst mér það takast bara nokkuð vel. Angus er nú alltaf sami gamli góði Angus og ætla ég ekki að eyða fleiri orð- um í hann, enda óþarfi. En það sem virðist hafa farið mest fyrir hjartað á Finnboga er að Brian hafi ekki talað nóg á milli laga og vitnar í mælsku Dav- id Lee Roth. Brian veit að áhorf- endurnir koma einungis til að hlusta á og njóta Rock’n’Roll-tón- listar sem þeir spila, en ekki á eitthvert kjaftæði eins og hjá David Lee Roth. Fyrir minn smekk hefðu hljóm- leikar AC/DC á Donington ekki getað orðið mikið betri. Nú er ég orðinn 12 sinnum meiri aðdáandi, en ég var fyrir hljómleikana. En hvað um það. Dæmi nú hver fyrir sig. ÁRMANN KK &NAHSSON ur hirt egg og dún, svo ég sé að höfundurinn hefur kynnt sér þetta allt saman rækilega, það eykur gildi sögunnar. Hugmynd- in er ágæt. Og það sem mér fannst sérstaklega gott sálfræði- lega er, að báðir strákarnir finna til geigs, fá óljóst hugboð: Óli þegar hann er kominn ofan í veggbekkinn og Maggi þegar hann horfir niður í gíginn. Ein- mitt þannig er það í sjálfum veruleikanum. Sögulokin er Bogga gamla birtist að nýju og hjalar við blessaða fuglana sína í æðar- varpinu og syngur með þeim, eru „lyrisk" og falleg. Þorsteinn Stefánsson rithöfundur, Kaupmannahöfn. Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli ki. 11 og 12, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orða- skipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða tii að beina þvi til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. Frábær barnabók Velvakandi Morgunblaðsins! Ég er ekki vanur að senda bréf í lesendadálka ísl. dagblaða, en nú ætla ég að bregða út af venj- unni. Nýlega barst mér í hendur barnabók Ármanns Kr. Einars- sonar í ræningjahöndum. Ég byrjaði strax að lesa bókina við morgunverðarborðið og gat ekki sleppt henni fyrr en ég hafði lok- ið sögunni. Mér finnst sagan af- bragðs góð. Mál og efni einfalt og eðlilegt, en þeim mun sterkara og meira heillandi. Ég hefi sjálfur sem ungur pilt- RR BYGGINGAVÖRUR HE NMhyl 2. AnuiMholu Sámi 887447 og SuðurUixtahraut 4. Sbm 33331 Mörgblöó med einni áskrift! Metabo Endlng-Krattur-örvggi þá má verslunin leggja 20% á vör- una. Mig langar að beina þeirri spurningu til fjármálaráðherra hvort nauðsynlegt sé að okra svona á fólki. Ef maður fer út í búð og kaupir eitt sjónvarpstæki, borgar maður tvö. Líklegast myndi ríkið hagnast jafn mikið, þó þessi tollur yrði lækkaður, því þá hefðu fleiri efni á að kaupa sér þessi tæki. Mér er sagt að myndbandstæki kosti um 14.000 krónur í Þýska- landi. Ég er í raun og veru ekkert hissa á því, þó þeir sem eru í að- stöðu til að smygla svona tækjum geri það. Ríkið býður upp á slíkt með þessu okri. Það væri fróðlegt ef gerð yrði verðkönnun á myndbandstækjum í Evrópu til þess að sjá hvernig við káemum út í þeim samanburði. Leggjum fram- lög í landssöfnun kirkjunnar Séra Örn Bárður Jónsson hringdi: Ég vil lýsa ánægju minni með hve Hjálparstofnun kirkjunnar bregst stórhuga við neyðarkallinu frá Eþíópíu með því að senda þangað íslenska flugvél með hjálpargögn og hjúkrunarfólk. En þetta tekst auðvitað ekki nema við öll stöndum saman og leggjum til framlög í landssöfnun kirkjunnar. Með slíkri sendingu er um leið tryg&f að bjálpin kemst örugglega til skila. Við eigum öll að samein- ast um að þetta átak geti orðið að veruleika. Styðjum orgel- sjóö Hallgríms- kirkju Sigríður Ólafsdóttir hringdi: Ég hringi vegna bréfs sem birt- ist í Velvakanda 7. desember sl. Þar er verið að benda fólki á að styðja ekki söfnun í orgelsjóð Hallgrímskirkju. Ég er ósammála þessu og tel að fólk, sem vill safna í sjóði til styrktar kirkjumálum, megi gera það í friði. Hallgríms- kirkja er þjóðartákn Íslendinga og hver einasti íslendingur ætti að vera jákvæður með hvað sem gert er fyrir þá kirkju. Hún er byggð í minningu Hallgríms Péturssonar sem ég tel vera trúarlegt þjóðar- tákn Islendinga, þar sem Passíu- sálmar hans o.fl. hefur verið þýtt á fjölmargar þjóðtungur. Hitt er annað mál, að allar björgunarsveitir á íslandi eiga allt gott skilið og veit ég ekki um neinn, sem neitar aðstoð við þær. Eins tek ég undir það að þessar sveitir eiga að vera skattfrjálsar. Að síðustu vil ég benda á að bækur eiga enn rétt á sér, þrátt fyrir að einhver samdráttur virð- ist hafa verið í bókaútgáfu að und- anförnu. Mér finnst bækur vera besta gjöfin sem maður gefur fólki. Leiöiö börnin yfir götuna Ein í umferðinni hringdi: Ég varð fyrir óhugnanlegri reynslu um daginn. Ég var stödd i bíl mínum við rautt ljós á horni Klapparstígs og Laugavegs. Ég tek þá af tilviljun eftir konu sem stóð á gangstéttinni. Hún var með barn á snjóþotu. Þegar grænt ljós kom á móti mér ók ég hægt af stað. En þá var konan að fara yfir Laugaveginn á gangbrautinni og er komin framhjá bílnum. Ég sá hana, en ekki barnið á snjóþotunni. Hefði ég ekki tekið eftir því áður að hún var ekki ein á ferð, er ekki að sökum að spyrja. Ég vil benda fólki á að börn á snjóþotum sjást ekki úr bíl, ef þau eru beint fyrir framan hann. Ég vona að fólk geri sér grein fyrir þeirri hættu sem þessu fylgir og leiði börn sín yfir götuna í stað þess að draga þau yfir á snjóþotu. Spyr sá sem ekki veit Fávís spyr: { fyrsta lagi langar mig að spyrjast fyrir um hvað líði drætti í happdrætti Harmonikkuunn- enda. Fyrst átti að draga hinn 15. október, en því var frestað til 15. nóvember. Hvenær verður vinn- ingaskrá birt? I öðru lagi langar mig að spyrja hver hafi leyfi til þess að skipa svo fyrir að til Islands séu send kjarn- orkuvopn, ef ríkisstjórn íslands er því mótfallin? Spyr sá sem ekki veit. Börn hafa rétt á aö sitja f strætó Tvær í Reykjavík hringdu: Okkur langar til að koma því á framfæri að börn og unglingar hafa líka rétt á að sitja í strætó. Börn eru oft með þungar töskur, en það er alltaf talið sjálfsagt að þau standi. Oft kemur fyrir að fullorðnir segja börnum að standa upp fyrir sér. En okkur finnst þetta ekki réttlátt og teljum þau hafa jafnan rétt á að sitja. Það profun borgar sig að líta inn Hilleröö hornsófi Hvergi nokkurs staðar er meira úrval af sófasettum, kannski eru gerðirnar fleiri en hundrað. Og verðin t.d. af hornsófum á bilinu 18 þús. — 118 þúa. Við eigum allskon- ar skápa í Ijósu og dökku undir grasj- urnar þínar og þvi ekki að fá sár 3 þús. kr. skáp undir 100 þús. kr. tæki. I svefnsófa deildinni okkar er núna ágastt úrval af sófum sem hægt er að breikka í 120 cm og allt upp í 160 cm. r Tegund Anna Við erum að taka heim í dag síðustu sendinguna af þess- um rúmum, sem viö fáum fyrir jól. Verðið eru sérlega hagstætt eins og áður. Breiddir 90 cm og 140 cm. HÚS6ACNABÖLLIN BlLDSHÖFÐA 20 -110 REYKJAVÍK * 91-81199 og 81410
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.