Morgunblaðið - 14.12.1984, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1984
13
Tré og tungutak
Bókmenntír
Jóhann Hjálmarsson
Kristján Karlsson:
Kvædi 84.
Almenna bókafélagiö 1984.
„Snertu mig ljós sem lifir",
yrkir Kristján Karlsson í ljóðinu
Snertu mig ljós í Kvæði 84. Það
er orðið áliðið og sá sem talar í
ljóðinu æðrast. „Þungt logn þétt-
ist í myrkur" og
itfjaðrirnar þagna, það fölnar
fjórlitur páfugl hugans
ljósin á engi og eyrum
Páfugl hugans er djarfleg
mynd á þessum stað, ekki síst
þegar framhaldið er um fjar-
læga á sem blikar „afskipt/ -
uppsrettu ljóssins/ ranghverfa
rökkurs og hugar". En hún á eft-
ir að falla yfir andlit og hverfa
hljóðlaust í myrkrið. Þá er
snertingin ein eftir.
Hugur og veruleiki takast hér
á. „Snertu mig ljós sem lifir",
verður ákall.
Eins og í fleirum ljóðum
Kristjáns Karlssonar er það
frumleiki hans sem gefur okkur
hér hlutdeild í reynslu sem er í
senn einföld og flókin. Merking
ljóða Kristjáns liggur ekki alltaf
í augum uppi. En það er unnt að
ganga inn i þau og koma sér
fyrir í þeim eins og húsi. Það má
til dæmis velta lengi vöngum yf-
ir Bréfi:
Fyrir gafli hússins
stendur tré
hér fellur föl
í morgun bar telpa
steina að rótum trésins
grá hávaxin kona
er tréð og silfruð
frá hvirfli til ilja
nema svartar
glitrandi rendur laufsins
skera sig úr
fyrir utan tungutak hennar.
Grafið hennar milda harða hjarta
hér, undir rótum trésins.
Það sem í fyrstu vekur athygli
er hin skýra mynd eða myndir:
gafl húss, tré, föl, telpa með
steina, grá hávaxin kona sem er
silfrað tréð, svartar rendur
laufsins. En skyndilega víkur
ljóðið að tungutaki. Og að lokum
er talað um hjarta sem er í senn
milt og hart. Telpan, tréð og
konan verða eitt. Það er hið
óvænta orð tungutak, andstæða
náttúrumyndanna sem ljær ljóð-
inu vængi. Og svo vitanlega
lokalínurnar tvær.
Ég spái því að þetta ljóð muni
leita á marga sem kynnast því.
Kristján Karlsson beitir
myndmáli á alveg sérstakan
hátt. En annað sem einkennir
ljóð hans er hrynjandi, aídrei
fyrirhafnarlaus og sjálfsögð, en
stundum þess eðlis að hún skipar
hlutunum í nýtt samhengi:
„Dauf fyrirmynd og líking lífs/ -
er lampinn; borðið hvítt og
bert/ er upphaf ljóðsins; ljósið
deyr/ við líking dagsins ófull-
gert.“
Endurtekningar er skáldið
ekki hrætt við, enda eru þær rík-
ur þáttur formsins sem er bæði
Kristján Karlsson
frjálst og bundið. Stuðlasetningu
og rím fer Kristján Karlsson vel
með, bregður oft á leik, en notar
aldrei slíkt að tilefnislausu.
Segja má að Kristján Karls-
son sé á ný innhverfari í Kvæð-
um 84 en í New York (1983). En
þetta segir ekki alla sögu. Það
sem einkennt hefur skáldskap
Kristjáns Karlssonar frá upp-
hafi er endurskoðun fornra
sanninda og nýrra. Hann hefur
kappkostað að nálgast yrkisefni
sín, oft hversdagsleg á yfirborði,
frá nýrri hlið. Sjaldan tekst hon-
um þetta betur en í ljóðum um
menn og eru þess mörg dæmi í
nýju bókinni: ljóð um Sighvat,
Dylan Thomas, Tómas Guð-
mundsson og Einar Benedikts-
son. Ég er ekki enn farinn að ná
mér eftir ljóðið um Tómas,
Skuggann á grasinu, þar sem ort
er um planka. Svo ágengt að
setja slíkt orð inn í ljóð um fag-
urkerann Tómas, en segir
kannski meira en flest annað um
það sem hann var ekki. En
Kristjáni leyfist þetta því að
hver hefur kennt okkur betur að
sjá Tómas í réttu ljósi en einmitt
hann?
í Kvæði 84 eru nokkur ljóð
sem hljóta að teljast meðal
merkari ljóða Kristjáns Karls-
sonar. Ég nefni auk ljóðaflokks-
ins Guðríður á vori ljóð eins og
Fornt herbergi við sjó, Hvít
krukka, Um afræktan veg og La
Belle Dame Qui Bégaie.
Vissulega má setja stimpil
eins og heimspeki á ljóðagerð
Kristjáns Karlssonar. En með
þeim fyrirvara að í heimspeki
getur búið ákaflega rík tilfinn-
ing.
Það er aftur á móti vissulega
fagnaðarefni að svona vitsmuna-
leg ljóð skuli ort á fslandi. Og
vonandi fjölgar þeim sem kunna
að meta þau.
Jólaéiafimar írá
Hei niil istajk jum
Sinclair Spcctrum 48 K.
Pínulölvan. Ótrúlega
fullkomin tölva bæði fyrir
leiki, nám og vinnu.
Verð kr. 6.990.-
Ljósormurinn hefur
klemmu á öðrum endanum,
Ijósaperu á hinum, með
gorm á milli og gefurfrá
sér Ijós þegar honum er
stungið I samband við
rafmagn.
Verð kr. 575.-
Allsherjargrillið
frá Philips
Grillar samlokur, bakar
vöfflur, afþýðir, grillar kjöt,
heldur heitu o.sfrv. Dœma-
laust dugleg eldhúshjálp.
Verð frá kr. 5.680-
Utvarpsklukkur
frá Philips
Morgunhanann frá Philips
þekkja flestir. Hann er
bœði útvarp og
vekjaraklukka í einu tæki.
LW, MW og FM bylgjur.
Verð frá kr. 3.143.-
BráWTrístir frá Philips
eru með 8 mismunandi
stillingum, eftir því hvort
þú vilt hafa brauðið mikið
eða lítið ristað.
Verð frá kr. 1.554.-
Rafmagnsrak -
vélar
frá Philips
Þessi rafmagns-
rakvél er tilvalinn
fulltrúi fyrir hinar
velþekktu Philips
rakvélar. Hún er
þriggja kamba með
bartskera og stillan-
legum kömbum. Hún er
nett og fer vel í hendi.
Verð frá kr. 4.314.-
Gufustraujárn frá Philips
Laufléttir krumpueyðar
sem strauja með eða án
gufu. Hitna fljótt og eru
stillanleg fyrir hvers kyns
efni.
Verð frá kr. 2.247.-
Philips kassettutæki.
Ódýru mono kassettutœkin
standa fyrir sínu.
Verð frá kr. 4.787,-
Kaffívélar frá Philips
Þær fást í nokkrum
gerðum og stærðum sem
allar eiga það sameiginlegt
að laga úrvals kaffi.
Verð frá kr. 2.708 -
Teinagrill
frá Philips
snúast um
element, sem
grillar matinn
fljótt og vel.
Grillið er
auðvelt í hreins _____
og fer vel á matborði.
Verð kr. 2.864.
Útvarpstæki frá Philips
fyrir rafhlöður, 220 volt
eða hvort tveggja. Mikið
úrval. LW, MW og FM
bylgjur.
Verð fis kr. 1.780.-
Ryksuga frá Philips
gæðaryksuga með 1000 W
mótor, sjálfvirkri snúruvindu
og 360° snúningshaus.
Verð frá kr. 6.51
50%*
Philips Maxim með
hnoðara, blandara,
þeytara, grænmetiskvörn,
hakkavél og skálum.
Verð kr. 6.463.-
Philips
solariumlampinn
til heimilisnota.
Verð kr. 9.719.-
Kassettutæki
fyrir tölvur.
Ödýru Philips kassetlu
tækin eru tilvalin fyrir
Sinclair tölvurnar.
Verð kr. 4.841.-
Handþeytarar
Ifrá Philips
' með og án stands.
Þriggja og fimm hraða.
Þeytir, hrœrir og hnoðar.
Verð frá kr. 1.257.-
Steríó ferðatæki
Úrval öflugra Philips
sterríótækja. Kassettutæki
og sambyggt kassettu- og
útvarpstækimeð LW, MW
og FM bylgjum.
Verð frá kr. 7.233.-
Grillofnar frá Philips.
/ þeim er einnig hægt að
baka. Þeir eru sjálfhreins-
andi og fyrirferðarlitlir.
Verð frá kr. 4.485.-
. / j
I Hnifabrýnin frá
I Philips
Rafmagnsbrýnin
" hvessa
bitlaus eggvopn, hnífa,
skœri asfrv. Gott mál.
Straujárn frá Philips
éru afar létt og meðfærileg
Verð frá kr. 1.155.-
Heyrnatólin frá Philips.
Tilvalin jólagjöf handa
unga fólkinu í fjölskyld-
unni. Heyrnatólin stýra
tónlistinni á réttan stað.
Verð frá kr. 72
Vasadiskó fnTPhilips
Þó segulbandið sé lltið
þá minnka gæðin ekki.
Dúndur hljómur fyrir
fótgangandi og aðra sem
vilja hreyfanlegan
tónlistarflutning.
Verð frá kr. 3.135.-
Djúpsteikingarpottur
frá Philips.
Tilvalinn fyrir frönsku
kartöflurnar, fískinn,
kjúklingana. laukhringina,
camembertinn, rækjurnar,
hörpufiskinn og allt hitt.
Verð kr. 4.775.-
ihf
Hafnarstræti 3 — 20455 Sætúni 8 — 15655