Morgunblaðið - 14.12.1984, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1984
29
Karl Sæmundsson
„Hefur gífurlega hag-
ræðingu í för með sér“
segja Karl Sæmundsson og Örn Pet-
ersen vidskiptavinir tölvubankans
RÚMUR mánuður er nú liðinn frá
því að Iðnaðarbankinn tók í þjón-
ustu sína tölvubanka og eru
korthafar nú alls átta hundruð.
Fyrstu tveir tölvubankarnir voru
sem kunnugt er settir upp í and-
dyri bankans í Lækjargötu og í
útibúinu í Hafnarfirði, en fyn.
hugað er að setja upp slíka tölvu-
banka á fleiri afgreiðslustöðum
bankans á næstunni.
Helgi Már Haraldsson, deildar-
stjóri innlána í Iðnaðarbankanum,
sagði að sífellt bættist við um-
sóknir um lykilkort en afgreiðsla
þeirra tekur að meðaltali þrjá
daga. Sagði Helgi að eftir áramót
yrðu settir upp tölvubankar í
Grensásútibúi og á Akureyri og í
febrúar er fyrirhugað að bæta við
tölvubankann þannig að við-
skiptavinir geti einnig lagt inn
peninga með lykilkortum sínum.
Síðar á árinu er svo áætlað að
auka þjónustu tölvubankans enn
meir þannig að viðskiptavinir geti
aflað sér upplýsinga um stöðu
reikninga, vaxtakjör, gengið
o.s.frv.
Blaðamaður leit við í Iðnaðar-
bankanum i Lækjargötu síðla
dags í vikunni og rakst þar á tvo
viðskiptavini tölvubankans sem
voru að taka út af reikingum sin-
um. Voru þeir inntir álits á þess-
ari nýjung bankans.
„Losna við að bíða eftir
afgreiðslu þegar ösin er
mikil í bankanum“
Karl Sæmundsson, ellilifeyris-
þegi, kvaðst hafa skipt við Iðnað-
arbankann frá stofnun hans.
„Auðvitað fékk ég mér svo lykil-
kort um leið og tölvubankinn var
tekinn í notkun," sagði Karl. „Ég
kann sérlega vel við þetta fyrir-
komulag þó að ég sé nú almennt
litið gefinn fyrir tölvur. Þetta er
afar handhægt fyrir fólk sem ekki
kemst í banka á venjulegum
opnunartíma auk þess sem af-
greiðsla tölvubankans tekur mun
mun skemmri tíma. Ég notfæri
mér mér t.d. tölvubankann óspart
á daginn, þó að afgreiðslan sé
opinn því þannig losna ég alveg
við að biða í langri röð eftir af-
greiðslu þegar ösin er mikil. Svo
ég tali nú ekki um þægindin þegar
að einnig verður hægt að leggja
inn á reikninga sina í tölvubank-
anum.
Þó að tölvan sé ekki eins hlýleg
i viðmóti og afgreiðslufólk bank-
anna þá verður því ekki neitað að
þessi nýjung Iðnaðarbankans er
til mikillar hagræðingar fyrir
viðskiptavini hans,“ sagði Karl
Sæmundsson.
„Starfa í verslun og átti því
erfítt með að ná í banka“
Örn Petersen, verslunarstjóri,
kvaðst hafa byrjað að skipta við
Iðnaðarbankann fyrir tveimur ár-
um og fékk hann sér lykilkort að
tölvubankanum skömmu eftir að
hann var opnaður. „Tðlvubankinn
kemur sér afar vel fyrir mig þar
sem vinn ég í verslun og hef sjald-
an tök á að komast í banka. Nú er
sá höfuðverkur úr sögunni að
þurfa að þeytast í hádeginu í
bankann þegar mest er ösin og all-
ur matartíminn fer í það að bíða
eftir afgreiðslu. Nú kem ég bara
við í tölvubankanum að lokinni
vinnu og tek út eftir þðrfum.
Tölvubankinn kemur sér líka afar
vel í jólaösinni þegar verslanir eru
opnar fram á kvöld og aldrei gefst
ráðrúm til að skreppa frá.
Allir mínir vinnufélagar hafa
nú farið að mínu fordæmi og feng-
ið sér lykilkort og því þurfum við
ekki lengur að velta vöngum yfir
því hverjir geti farið frá í hádeg-
inu í það og það skiptið til að fara
í banka. Ég veit að ég á ekki síður
eftir að notfæra mér þá þjónustu
tölvubankans þegar einnig verður
hægt að leggja inn peninga með
lykilkortunum," sagði örn Peter-
sen.
Jólakveðjur í útvarpi IMON
ÚTVARP IMON, sem er útvarp ís- farin.
lendingafélagsins i Malmö og Kveðjurnar verða lesnar i út-
nágrenni, gefur fólki kost á að varpinu sunnudaginn 23. desem-
senda jólakveðjur til ættingja og ber milli kl. 20.30 og 21.30.
vina fyrir þessi jól eins og undan-
KRISTJÁn
SIGGEIRSSOn HE
LAUGAVEG113, REYKJAVÍK, SÍMI 25870
Tölvunámskeið
MS-DOS námskeið
Þriöjudaginn 19. desember nk. veröur haldiö
tveggja daga námskeið um MS-DOS stýrikerfiö
fyrir notendur WANG PC tölvurnar. Kennt veröur
fyrir hádegi báöa dagana í kennslustofu aö Sætúni
8, 4. hæö.
Helstu efnisatriöi sem tekin veröa fyrir eru þessi:
Kynning á stýrikerfum og MS-DOS.
Helstu hlutar MS-DOS og útfærsla á WANG PC.
Uppbygging skráa.
Skipanir og hjálparforrit í MS-DOS.
Lotuvinnsla.
Skjáritinn PCEDIT
Sérhæföar aðgerðir og notkun prentara.
Ýmis heilræöi.
Leiöbeinandur veröa kerfisfræöingar tölvudeildar
HT.
Notendur WANG PC og aörir þeir sem áhuga hafa,
eru hvattir til aö skrá sig sem fyrst hjá Guörúnu
Magnúsdóttur í Tölvudeild. Síminn er 27500.
Heimilistækl hf
TÖLyUDEILD S/ETÚNI8 - SÍMI27500
(WANG
JÓLA-
TILBOÐ
DviMnr
SKÍDASKÓM
SKÁTABÚDIN
Snorrabraut 60 simi 12045