Morgunblaðið - 14.12.1984, Blaðsíða 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1984
LISY-ANN NIELSEN VARÐ
NÚMER TVÖ í
FEGURÐARSAMKEPPNI
, Hreppti ferð til
Islands í verðlaun
Ekki alls fyrir löngu fór fram
fegurðarsamkeppni i New
York þar sem stúlkur af skand-
inavískum ættum kepptu um titil-
inn Ungfrú Noregur. Þeir sem sáu
um tilstand og fjármögnuðu
keppnina voru samtökin Scand-
inavian American Business Ass-
ociation. Skilyrði til þátttöku var
m.a. að vera af skandinaviskum
ættum. Stúlkan sem hreppti ann-
að sæti í keppninni var Lisy-Ann
Nielsen og fékk hún m.a. ferð til
íslands í verðlaun frá Flugleiðum.
Er hún var stödd hérlendis fyrir
skömmu ræddi blm. stuttlega við
hana.
— Hvað voruð þið margar stúlk-
urnar sem tókuð þátt í keppninni.
— Við vorum 45 stelpurnar sem
reyndum við þetta og við vorum
allar spurðar spurninga fyrst um
Skandinavíu og siðan farið út i
aðra sálma. í hverri lotu voru ein-
hverjar felldar úr og að lokum
vorum við orðnar tvær eftir sem
drógum um titilinn. Sú sem varð
númer eitt fór til Noregs.
— Ertu í námi eða vinnu?
— Ég hef nýlokið BS-prófi í
„Business Administration" og það
var eiginlega í gegnum þessa
keppni að ég fékk starf, þ.e.a.s. við
norskan banka, „Bergen Bank“, og
þá hjálpar það að ég babla dálitið
bæöi í dönsku og norsku, því móðir
mín er norsk en faöir minn dansk-
ur og ég stundaði nám um tíma í
Danmörku.
— Hvernig list þér á Island?
— Mér finnst ísland ákaflega
heillandi og fallegt land. Það er
svo allt öðruvísi en að vera t.d. í
New York. Hér eru ekki þessar
hrikalegu stóru borgir og fólks-
mergðin. ísland er hreint land og
notalega stórt. Ég hef farið í
nokkrar útsýnisferðir og meðal
annars til Vestmannaeyja sem
heilluðu mig alveg. Svo skrapp ég í
Hollywood og Broadway. Þau eru
ekki af verra taginu diskótekin
hér. Fötin eru líka falleg. Hér er
miklu meira úrval af þvi nýjasta i
tískunni en heima og ég er búin að
þræða verzlanir hér og fata mig
upp. Það sem mér finnst einkenna
íslendinga og Skandinava al-
menna er gestrisni og við Banda-
rikjamenn eigum margt ólært í
þeim efnum. Þetta hefur verið
frábær ferð!
EDDA
ANDRÉSDÓTTIR
Erfitt að finna jafn
góðan samstarfsmann
Flestir hafa veitt því athygli að
í kpnnun Kaupþings nýlega
reyndist samtalsbók Eddu
Andrésdóttur og Auðar Laxness
vera fyrst á lista. Af því tilefni sló
blm. á þráðinn til Eddu og spurði
hvort hún væri ekki lukkuleg með
móttökurnar á bókinni og hvort
þetta væri fyrsta bók hennar.
— Þetta hefur verið mjög
skemmtileg reynsla og það var
einstaklega gaman að kynnast
Auði svona. Við áttum mjög góða
samvinnu og þetta er okkar beggja
Ætlar að giftast tengdamóður sinni
Einn maður, tvær konur. Hann er í rauninni ekkert nýtt í
veraldarsögunni ástarþrihyrningurinn víðkunni. En það
er annað sem er óvenjulegt við þetta mál og það er að eftir að
Alan Monk hafði verið giftur fyrri konu sinni í fimm ár varð
hann ástfanginn af tengdamóður sinni, Val að nafni.
Þau hyggjast nú ganga í það heilaga á næstunni en fólk í
USA er mikið á móti þessu því þetta brýtur í bága við hina
hefðbundnu ímynd hjónabandsins. Fyrri konan, Jeanette, þ.e.
dóttir núverandi unnustu Alans, er ekkert á móti áformum
þessum. Val segir svo frá fyrsta fundi þeirra: „Hann kom heim
með Jeanette yngstu dóttur minni og mér leist ekki illa á hann
þó innst inni hafi maður velt fyrir sér hvort hann væri nógu
góður fyrir hana. Jeanette varð síðan ófrísk, fyrst af strák og
siðan eignaðist hún stúlku. Ég hef alltaf gætt barnanna að
mestu. Mér datt ekki í hug að það væru vandræði í hjónaband-
inu þeirra. Og þegar Bob þáverandi eiginmaður minn benti
mér á það, reyndi ég allt til að þau gætu fundið hvort annað
aftur. En hjónabandið var komið I rúst, og í dag segist Jean-
ette ekki hafa verið tilbúin í hjónaband á þeim tíma.“ Þetta
gerðist á síðasta ári og síðan hefur mikið vatn runnið til
sjávar. Maður Val lést og Alan studdi hana á þeim tíma.
Semsagt, nú stefna tengdasonurinn og tengdamamman i
hjónabandið og eini þrándurinn í götu þeirra er að fá leyfi hjá
yfirvöldum, en þau hafa enn ekki samþykkt ráðahaginn.
bók. Ég hef aldrei áður gert neitt í
líkingu við þetta en hef þó komið
nálægt því að skrifa þvf ég var
blm. á Vísi í ein átta ár og ritstjóri
tímaritsins Hús og híbýli í tvö ár.
— Hvernig vildi það til að þú
fórst út í þetta?
— Ólafur Ragnarsson var rit-
stjórinn minn er ég var á Vísi og
það var í kringum síðustu áramót
að hann vildi að ég skrifaði fyrir
sig viðtalsbók. Ég vildi helst tala
við konu og hugsaði mig vel og
rækilega um. Loksins var það eitt
kvöldið að mér datt þetta í hug og
dreif mig í að tala við Auði.
— Ætlarðu að halda áfram nú
þegar þú ert komin á sporið?
— Ég gæti vel hugsað mér að
gera það, en ég er hrædd um að
það verði erfitt að finna jafn góð-
an samstarfsmann.
— Verðurðu ekki alveg sjóðrík?
— Ég er nú ekki farin að hugsa
út í það. Ég hef aldrei á ævinni
verið rík og óar við þeim ólíklega
möguleika.
— Við hvað starfarðu?
— Ég er forstöðumaður félags-
miðstöðvar í Kópavogi sem ber
nafnið Agnarögn. Það er einnig
nóg að gera í augnablikinu við að
árita bækur.
Almn Monks með núverndi unn-
ustu sinni, Valerie. A myndinni er
með þeim fyrrverandi eiginkona
Alans, Jeanette, sem er dóttir Val.
Þá má sjá barnabörn Val, Stewart
og Shelley Ann, sem eru börn Al-
ans. Flókin fjölskyldumál á þeim
bæ!