Morgunblaðið - 04.01.1985, Síða 1
56 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
2. tbl. 72. árg._____________________________________FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1985_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
„Hús mitt nötraði
og jörðin skalf ‘
Teikning af sovézkri stýriflaug,
sem skotið hefur verið frá sov- _
ézkum kafbát. Stýriflaugin, sem
skotið var yfir Norður-Noreg, er
talin hafa farið með nokkru
meiri hraða en hraða hljóðsins
og er það talið skýra, hve stuttan
tíma hún var yfir norsku landi.
AP/Símamynd
Sjónarvottar lýsa sovézku stýri-
flauginni er hún flaug yfir Noreg
HelHÍngfors, Osló og London, 3. jan. AP.
FINNSKIR landamæraverðir héldu f dag uppi ákafri leit í fjallahéruðum
Sama nyrzt í Finnlandi að sovézkri stýriflaug, sem féll þar til jarðar sl.
fostudag. Samkvæmt tilkynningu finnsku landamæravörslunnar heyrðu
Samahjón í norðurhluta landsins mikla sprengingu í sama tíma og stýri-
flaugin hrapaði til jarðar.
Finnskar herþotur voru sendar
á loft er stýriflaugin birtizt á rad-
ar, en flugmennirnir sáu hana
ekki. Leifar flaugarinnar á jörðu
niðri hafa heldur ekki fundizt enn.
Blöð á Norðurlöndum birtu í
dag frásagnir sjónarvotta, sem
sáu stýriflaugina fljúga yfir. „Ég
sá flaugina fljúga yfir hús mitt,“
hefur norska blaðið Verdens Gang
eftir Herman Sotkajaervi, kunn-
um bjarndýraveiðimanni. „Ég
heyrði ofboðslegan hávaða líkt og
við dýnamitsprengingu. Húsið
nötraði og jörðin skalf," sagði
Wilhelm Högre í viðtali við
sænska blaðið Dagens Nyheter, en
hann býr 3 km frá sovézku landa-
mærunum.
Mauno Koivisto Finnlandsfor-
seti sagði í nýársboðskap sínum,
að stýriflaugar yllu „öryggisleysi"
á Norðurlöndum. Skoraði hann á
Varsjárbandalagið og Atlants-
hafsbandalagið að banna þess
konar vopn á Norðurlöndum.
Talsmaður Atlantshafsbanda-
lagsins sagði í dag, að atburðurinn
vekti „verulegan ugg“. „Hjá NATO
lítum við á sérhvert brot Sovét-
ríkjanna á lofthelgi aðildarríkj-
anna alvarlegum augum.“ Það
væri hins vegar formlega í verka-
hring Noregs en ekki bandalagsins
að bera fram mótmæli við Sovét-
ríkin vegna atburðarins.
Sjá nánar forystugrein
Morgunblaðsins á miðopnu.
Varað við of mikilli
bjartsýni um árangur
Vaxandi eftirvænting vegna fyrirhugaðs fundar Shultz og Gromykos
Bílstjóri og tveir bræður séra Jerzys Popieluszkos fylgjast með réttarhöldun-
um yfir morðingjunum fjórum í Toran í gær. Þeir eru talið frá vinstri:
Bflstjórinn, Waldemar Chrostowski og bræðurnir Jozef og Stanislaw Popiel-
uszko.
Pólland:
Aðförin að Popieluszko
var undirbúin fyrirfram
Torun, 3. januar. AP.
PÓLSKI lögregluforinginn Valdemar Chmielewski hélt því fram í dag í
yfirheyrslu, að það hefði aldrei verið ásetningur sinn að drepa séra Jerzy
Popieluszko og kvaðst hafa verið því feginn að tilraun, sem hafði verið gerð
6 dögum áður til þess að ræna prestinum, hefði farið út um þúfur.
Chmielewski varði miklu af
tíma sínum í vitnastúkunni til
þess að lýsa hinni árangurslausu
tilraun til þess að ræna Popiel-
uszko. Þar kom fram, að hann og
félagar hans hefðu haft ótakmark-
að fé til umráða til þess að koma
áformum sínum í framkvæmd.
Hann greindi hins vegar ekki frá
því, hvaðan þetta fé hefði komið.
Þá ítrekaði Chmielewski full-
yrðingar félaga síns, Pekala, um
að yfirmaður þeirra, Piotrowski,
hefði fullvissað þá um, að þeir
nytu stuðnings háttsettra emb-
ættismanna í pólska innanríkis-
ráðuneytinu í aðförinni að Popiel-
uszko. 1 vitnisburði Chmielewskis
kom ennfremur fram, að fundir
höfðu verið haldnir í september og
Washington og Mmkvu. 3. j»n. AP.
GEORGE Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hyggst leggja
áherzlu á hæpið réttmæti ýmissa
radarmannvirkja í Sovétríkjunum,
sem Bandaríkjamenn halda fram að
feli í sér brot á samningi risaveld-
anna frá 1972 um takmarkanir á
kjarnorkuvígbúnaði. Á meðal þess-
ara mannvirkja er risastór radar í
október til undirbúnings aðförinni
að Popieluszko og hefðu þar verið
viðstaddir háttsettir menn innan
pólsku lögreglunnar, þar á meðal
Janusz Drozdz úr hópi yfirmanna
lögreglunnar í Varsjá.
Chmielewski, sem er 29 ára
gamall, stamaði mjög og virtist
afar taugaspenntur á meðan yfir-
heyrslan stóð yfir. Er hlé var gert
leið yfir hann. Læknar, sem rann-
sökuðu hann, töldu óhætt að yfir-
heyra hann áfram í eina klukku-
stund, unz frekari yfirheyrslum í
málinu var frestað síðdegis í dag.
smíðum í Krasnoyarsk í miðhluta
Síberíu.
Samkvæmt framangreindum
samningi voru skorður settar við
vörnum Bandarikjanna og Sovét-
ríkjanna gegn eldflaugavopnum
og var þetta rökstutt með því, að
hugsanlegur árásaraðili yrði
hindraður í að leggja út í kjarn-
orkuvopnaárás, ef land hans sjálfs
réði yfir litlum vörnum gegn stór-
felldri gagnárás. Af þessum sök-
um voru strangar reglur settar um
hvar koma mætti upp radarmann-
virkjum og í hvaða átt starfsemi
þeirra ætti að beinast.
Forsætisnefnd sovézka komm-
únistafiokksins kom saman í dag
til þess að móta endanlega stefnu
Sovétríkjanna í fyrirhuguðum við-
ræðum í Genf. I stjórnarblaðinu
Izvestia var gefið í skyn í dag, að
tækist ekki að koma í veg eða
skjóta á frest vígbúnaðarkapp-
hlaupi úti í geimnum væri jafn-
framt öll von úti um frekari við-
ræður milli risaveldanna í kjölfar
fundarins í Genf.
Mikill fjöldi fréttamanna hvað-
anæva úr heiminum er þegar kom-
inn til Genf til þess að fylgjast
með fundi þeirra Shultz og Grom-
ykos. Bandarísk stjórnvöld létu
þann ugg í ljós fyrr í vikunni, að
með því að beina athyglinni í svo
ríkum mæli að fundinum hefðu
verið vaktar óraunsæjar vonir hja
almenningi í Bandaríkjunum um
mikinn árangur af fundinum í
Genf.
Ef vel tækist gæti fundurinn
leitt til þess, að samkomulag næð-
ist um fyrirkomulag viðræðna um
að draga úr kjarnorkuvopnakapp-
hlaupinu en vart til stórbættra
samskipta og sambúðar risaveld-
anna á stuttum tíma.
Sovézkur
eðlisfræð-
ingur flýr
Chkago, 3. jan. AP.
SOVÉZKUR kjarnorkueólisfræó-
ingur, Artem V. Kulikov, hefur
beóió um hæli sem pólitískur
flóttamaður í Bandaríkjunum.
Hætti hann vió aö snúa heim til
Kovétríkjanna nokkrum mínútum
áóur en hann átti að stíga upp í
flugvél á O’Hare-flugvellinum (
Chicago á leiö til Moskvu 24. des.
sl.
Kulikov, sem er 51 árs gamall,
hafði starfað um langt skeið við
kjarnorkueðlisfræðistofnunina i
Leningrad. Hann var einn af
fjórum sovézkum kjarnorkueðl-
isfræðingum, sem unnið hafa
við Fermilab-rannsóknastöðina
fyrir vestan Chicago.