Morgunblaðið - 04.01.1985, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.01.1985, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1985 Draumsýn heilsu- gæslulæknisins — eftir Ingimund Gíslason Gunnar H. Guðmundsson, heilsugæslulæknir, birti grein i Morgunblaðinu 13. desember síð- astliðinn undir fyrirsögninni „Hver eru forgangsverkefni í ís- lenskri heilbrigðisþjónustu?" Ég get ekki látið hjá líða að gera fá- einar athugasemdir við grein þessa, en í stuttu máli er innihald- ið þetta: Veitið meira fjármagni í heimilislækningaþjónustuna og munu þá margir skæðir sjúkdóm- ar, sem okkur hrjá, hverfa og við íslendingar komast á efri ár við góða heilsu. Auðvitað er æskilegt að vel sé búið að heimilislæknum og heilsugæslustöðvum. Það hefur líka verið gert undanfarin ár eins og víða sést úti á landi. Hins vegar er það rangt að „sjúkrahúsbáknið“ hafi stóraukist undanfarna ára- tugi, og síst af öllu hér í Reykja- vík. Fjármagn til sérhæfðrar læknisþjónustu hefur hlutfalls- lega dregist saman og er nú svo komið, að við erum að dragast aft- ur úr nágrannaþjóðum okkar á mörgum sviðum. Eitt þeirra at- Fasteignasala Hverfisgötu 82 22241 - 21015 2ja herbergja: Laugavegur, 85 fm steinhús, miöhæö, bakhús, allt nýtt. v. 1200 þ. Leifsgata, 65 fm 2. hæö, v. 1450 þ. Gullteigur, 45 fm miöhæö, v. 1150 þ. 3ja herbergja: Höfóatún, 102 fm 2. hæö, steinhús, v. 1400 þ. Álfhólsvegur, 80 fm efri hæö, v. 1700 þ. Háaleitísbraut, 95 fm kjallari, sérinng., v. 1850 þ. Geitland, 90 fm jaröhæö, sér- garöur og -svalir, v. 2000 þ. 4ra herbergja: Jörfabakki, 110 fm, v. 2100 þ. Ljósheimar, 105 fm, 1. hæö, v. 2000 þ. Nökkvavogur, 100 fm, m. bíl- skúrsrétti, v. 2300 þ. 5 herbergja: Bugóulækur, 130 fm ásamt bilskúrsrétti. Tvennar svalir, v. 3200 þ. Eínbýtishús: Austurgata Hafn., kjallari, hæö og ris, samt. 170 fm, v. 2900 þ. Seilugrandi, 108 fm einbýlishús frá Húsasmiðjunni, v. 3975 þ. Fjöldi annarra eigna á skrá — Hringiö og leitiö upplýsinga. 22241 — 21015 OpiA frá 9.00—20.30. Friörik Friðriksson lögfr. „Þá er ekki alltaf svo audvelt aö beita forvarn- araögerðum. Á aö koma í veg fyrir reykingar meö algjöru reykinga- banni? A aö halda fitu- efnum í blóöi innan eölilegra marka með því aö banna feitt lamba- kjöt? Hver á aö fylgjast meÖ og framfylgja slíku banni í hinu sjúkdóms- lausa sæluríki?“ riða er skilur þróað þjóðfélag frá vanþróuðu er góð og fullkomin læknisþjónusta. Þó að erfitt sé að mæla árangurinn, er ég þess full- viss að fullkomin læknisþjónusta er ein forsenda „góðrar afkomu þjóðarbúsins" eins og oft er að orði komist. Gunnar leggur mikla áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir. Vissulega eru þær æskilegar og oft áhrifa- miklar. Til að þær nái að gera sitt gagn þurfum við að þekkja orsök og eðli sjúkdóma. Því miður er sú þekking ennþá oft ófullkomin. Þó svo að við þekktum orsök einhvers sjúkdóms, þá er ekki alltaf svo auðvelt að beita forvarnaraðgerð- um. Á að koma í veg fyrir reyk- ingar með algjöru reykingabanni? Á að halda fituefnum í blóði innan eðlilegra marka með því að banna feitt lambakjöt? Hver á að fylgj- ast með og framfylgja slíku banni í hinu sjúkdómslausa sæluríki? Það er nú einu sinni þannig, að fræðsla og áróður dugar oft skammt gegn gömlum venjum og stjórnmálalegum hagsmunum. Forvarnarstarf er heldur ekkert einkamál heilsugæslulækna. Nærtækt dæmi er glákudeildin á St. Jósefsspítala, Landakoti. í grein sinni fjallar Gunnar um hópa fólks. Hann birtir tölulegar upplýsingar og línurit um afdrif fjölda fólks þar sem svo og svo stór hluti hópsins er annað hvort lifandi eða dauður. j starfi læknis er það vandamál ákveðins ein- staklings sem þarf að leysa. Lausnin felst ekki endilega i að lengja líf. Hún getur falist í að bæta líðan, auka starfshæfni eða lina þjáningar. Sjúklingur með erfiðan og hættulegan sjúkdóm er reiðubúinn að verja hárri fjárhæð til að fá einhvern bata. Við slíkar aðstæður er spurningin, hvað sé þjóðhagslega hagkvæmt og hvað ekki ákaflega innantóm og létt- væg. Sem betur fer hefur sjúkling- urinn oftast leyst þau mál með framlagi sínu til sjúkratrygg- ingar. Eitt töfraorð nútímans er frum- heilsugæsla og efling hennar. Það gleymist oft í umræðum, að flestir hinna gömlu heimilislækna voru sérfræðingar á ýmsum sviðum, barnalæknar, kvensjúkdómalækn- ar og meira að segja augnlæknar. Þessir læknar unnu gott starf og oft við erfiðar aðstæður. Sérfræð- ingar munu halda áfram að sinna frumheilsugæslu að einhverju leyti, hvað sem reglugerðarákvæð- um líður. Það starf verður með öðrum hætti en áður var. Það eru neytendurnir, sjúklingarnir, sem munu ráða framvindu þeirra mála. Ekki sjálfskipaðir skrif- finnar, sem telja sig einir vita hvað fólki er fyrir bestu. Ingimundur Gíslason er augnlækn- ir rið Landakotsspítala. Selfoss: Blysför og flugelda- sýning á þrettándanum Selfoni, 2. janúv. EINS OG undanfarin ár mun Ungmennaféiag Selfoss gangast fyrir blysför, álfabrennu og flugeldasýningu á þrettándanum. Þessi uppákoma á þrettánd- anum nýtur mikilla vinsælda hjá bæjarbúum sem hafa fjölmennt í blysförina og síðan fylgst með glæsilegri flugeldasýningu. Flugeldasýningin frá bæjarfé- laginu og nokkrum félögum á staðnum. Þannig hafa allir lagst á eitt um að gera þrettándakvöldið eftirminnilegt fjölskyldukvöld. í ár mun blysförin hefjast við Tryggvaskála kl. 20.00. Gengið verður eftir Austurveginum í fylgd jólasveina og trölla, um Reynivelli og á íþróttavöllinn þar sem kveikt verður í bálkesti. Þeg- ar hann tekur að loga skellur á einhver sú glæsilegasta flugelda- sýning sem sést hefur austan heið- ar eins og göngu- og brennustjór- inn, Guðmundur Ingvarsson, orð- aði það. Guðmundur bað fyrir þau skila- boð til fólks að það gæti komið frá sér drasli í bálköstinn, spýtna- braki og þess háttar, en kartöflu- hýði og þvíumlíkt væri betra að setja í ruslapokana heima við hús. Sig. Jóns. Alkestis í GREIN Ólafs M. Jóhannessonar í Morgunblaðinu 3. janúar um flutn- ing Ríkisútvarpsins á leikritinu Alkestis eftir Efrípídes í þýðingu minni hafa slæðzt anzi slæmar prentvillur inn í textatilvitnun. Með því að texti þessi hefur hvergi birzt á prenti og villurnar liggja ekki í aug- um uppi, langar mig til að biðja blað- ið fyrir leiðréttingu; en Ijóðlínur þær sem um ræðir, eru réttar á þessa leið: Það sé ég nú hvar nálgast bátur einróinn;/ og Karon, dauðra ferju- maður, þrumir þar/ með hönd að árar-hlummi kreppta og brýnir raust/ „Hvað dvelur þig svo lengi? Hafðu hraðan á!“ Eg þakka leiðréttinguna og biðzt afsökunar á þessum hégóma- skap. Helgi Hálfdanarson Flugliðarnir sem voru viðstaddir við skólaslit haustannar. Fjölbrautaskóli Suðurnesja: Ljósmynd/E.G. Hefur útskrifad 77 flugliða Voyum, 2. juúar. Fjölbrautaskóli Suðurnesja er eini skólinn í landinu sem kennir náms- efni til atvinnuflugmannsprófs. Þessi kennsla hófst árið 1978 og hafa alls 77 flugmenn verið útskrif- aðir frá skólanum. Iðnaðarhúsnæði við Fossháls 1500 fm fullbúiö iönaöarhúsnæöi auk 1300 fm byggingaréttar. Góö bíla- stæöi, lóö frágengin. Húsnæöiö veröur laust í jan. nk. Teikningar og allar nánari upplýsingar á skrifstofu Eignamiölunar (ekki í síma). éicnAfTYÐLunin ÞINGHOLTSSTRÆTI 3 SIMI 27711 iffiis f Sðéustjórí; Svorrir Krittinsson Þortorfur Quómundason, iðtum. Unnttsmn Bock hrl., sími 12320 ÞófóMur Halldórtton, tögfr. Námsefni hefur verið valið af fulltrúum frá loftferðaeftirlitinu og kennurum deildarinnar, og miðast við að fullnægja þeim kröf- um sem Alþjóðaflugmálastofnun- in gerir um flugkennslu. Kennarar við deildina eru flest- ir starfandi í fluginu. Að sögn Ing- ólfs Halldórssonar setts skóla- meistara hafa þeir sýnt mikinn dugnað í þessu brautryðjanda- starfi. Fyrsti deildarstjóri var Ottó Tynes flugstjóri, en hann hættir nú kennslu og var honum sérstaklega þakkað við skólaslit. Núverandi deildarstjóri er Hjálm- ar Diego Arnórsson. Við skólaslit haustannar voru 14 flugliðar útskrifaðir. E.G. Álfabrenna á Víðivöllum HesUmannafélagið Fákur gengst fyrir álfabrennu á Félagssvæði Fáks á Víðivöllum á morgun, laugardag, kl. 15.30. Fjölmennur hópur mun ríða um svæðið í fylgd álfakóngs og drottningar, s.s. jólasveinar, grýla, leppalúði, púkar o.fl. Margt verður til gamans gert t.d. verður flugeldum skotið á loft, jólasvein- ar stjórna söng við harmonikku- leik og margt fleira. Veitingar verða í nýja félagsheimilinu sem er í byggingu. Allir velkomnir. (FrétUtilkynning.) VZterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamióill!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.