Morgunblaðið - 04.01.1985, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.01.1985, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1985 Símamynd/AP. Móðir Teresa í Eþíópíu Medal þeirra mörgu sem lagt hafa hönd á plóginn við hjálparstarfið á hungur- og þurrkasvæðunum í Eþíópíu er Móðir Teresa sem hlotið hefur Nóbelsverðlaun fyrir líknarstörf. Á meðfylgjandi mynd er hún í flóttamannabúð- um í Jijiga og gantast við lítið barn sem tekist hefur að bjarga. Borgar Union Carbide 350 milljarða í skaðabætur? Nýiu Delhí, 3. ianúar. AP. BANDARISKUR lögfreðingur, John McAuley, sem hefur verið að meta heilsutjón þeirra sem urðu fyrir eitr- uninni í Bhopal á dögunum, hefur sagt að forysta Union Carbide-sam- steypunnar, sem er eigandi efna- verksmiðjunnar sem eiturgasið lak úr, mætti búast við því að þurfa að reiða fram þter hestu skaðabetur Bretland: sem um getur í Bandaríkjunum, allt að 350 milljarða dollara. McAuley hefur verið að störfum í Bhopal í tiu daga, en hann er ekki fulltrúi allra þeirra sem urðu eitrinu að bráð. Skaðabótakröf- urnar verða reknar í bandarískum réttarsölum og bandarískir lög- fræðingar munu fara með umboð margra hinna indversku fórnar- lamba. McAuley sagði að allt að 200.000 manns hefðu annað hvort látið lífið eða beðið meira og minna varanlegt heilsutjón. Yfir- völd í Madhya Pradesh-riki þar sem Bhopal er eru þó ekki hrifin af því og segja bandarísku lög- fræðingana „handbendi Union Carbide og útsendara þeirra". Ind- verska ríkið mun sjálft vera að undirbúa sameiginlega kröfu fyrir fórnarlömbin. Fimmtán börn biðu bana í sprengingu Bugkok, 3. janúar. AP. FIMMTÁN skólabörn á aldrinum 10—12 ára biðu bana og 21 slasaðist þegar handsprengja sprakk í skóla í Norður-Thailandi. Einn nemandinn hafði fundið handsprengjuna á akri nokkrum, en missti hana þegar hann og leikfélag- ar hans höfðu leikið sér með hana, í þann mund er þeir fóru inn í skól- ann. Arne Treholt Noregur: Treholt í áframhaldandi varðhaldi SAKADÓMUR Óslóborgar hefur úr- skurðað Arne Treholt, sem grunaður er um njósnir, í áframhaldandi geslu- varðhald. Skal það standa í átta vikur, eða þar til mál hans kemur fyrir rétt hinn 25. febrúar nk. Arne Treholt hafði krafist þess að verða látinn laus, og fór hann fram á umhugsunarfrest til þess að taka af- stöðu til úrskurðarins. Veður víða um heim Akureyri 7 skýjað Amsterdam ±2 skýjað Aþena 11 heiðskírt Barcelona 8 léttskýjað Berlin -4 skýjað Brussel 3 snjðkoma Chicago -i-10 heiðskirt Dublin 5 heiðakírt Feneyjar 2 heiðskírt Frankfurt 0 skýjað Genf 0 snjókoma Helsinki +7 heiöskírt Hong Kong 22 heiöskírt Jerúsalem 9 skýjaö Kaupmannahöfn +3 heiðskírt Las Palmas 20 skýjaö Líssabon 11 akýjað London 4 skýjaö Loa Angeles 22 hsiöskirt Luxemborg 44 skýjaö Malaga 16 skýjaö Mallorca 11 skýjaö Miami 25 skýjaö Montreal 47 heióskírt Moskva 44 skýjaö New York 14 skýjaö Osló 4« heiöskírt París 4 skýjaö Peking 1 heiðskirt Reykjavik 7 rigning Rio de Jeneiro 31 skýjaó Rómaborg 7 skýjaö Stokkhóimur 42 skýjaö Sydney 26 heióskirt Tókýð 6 skýjaö Vinarborg 44 snjókoma bórshöln 2 skýjaö Kinnock í verkfalls- vörslu við kolanámu London, 3. janúar. AP. NEIL Kinnock, leiðtogi breska Verkamannaflokksins, gekk í dag til liðs við 40 verkfallsverði samtaka kolunámumanna við Celynen- námuna í Islwyn-héraði í suðurhluta Wales. Þetta er í fyrsta sinn frá því hið umdeilda verkfall námumanna hófst fyrir níu mánuðum að Kinn- ock slæst i hóp verkfallsvarða, sem eru að reyna að hindra að fé- lagar þeirra komi til starfa, en hann hefur mjög verið hvattur til þess af róttækum vinstrisinnum í Verkamannaflokknum. Skoðana- kannanir benda hins vegar til þess að verkfallið hafi dregið úr fylgi flokksins. Um þrjátíu námumenn gátu gengið til starfa sinna í Celynen þrátt fyrir verkfallsvörsluna og nutu þeir til þess atfylgis hóps lögreglumanna. Islwyn er kjördæmi Kinnocks, sem sjálfur er sonur kolanámu- manns. Að sögn talsmanns ríkisreknu kolanámanna sneru 235 námu- menn, sem verið hafa í verkfalli, til vinnu í dag og hafa þá 635 verk- fallsmenn komið til starfa eftir að vinna hófst að nýju eftir hátíðirn- ar. Fyrir jól voru um 70 þúsund námumenn að störfum, en samtals eru námumenn 189 þúsund. AP-mynd. Kambódíumenn á flótta fra heimalandi sínu til Thailands. Myndin var tekin nokkrum dögum eftir árás Víetnama á flóttamannabúðirnar í Rithisen. Breska ríkisbókasafnið: Rithisen í Kambódíu: Verður senn að taka peninga fyrir útlánin Víetnamar hröktu skæruliða á brott Bangkok, 3. janúar. AP. STÓRSKOTALIÐI Víetnama, sem ráða nú Rithisen-flóttamannab- úðunum í Kambódíu, sem eru rétt við landamæri Thailands, tókst í dag að verjast árás skæruliða Þjóðfrelsishreyfíngar khmera (KPNLF) á búðirnar og hrekja þá á brott. Lundúnaborg, 3. janúar. AP. EITT elsta og fregasta almenn- ingsbókasafn veraldar, breska ríkisbókasafnið í Lundúnum, hef- ur haft þá sérstöóu öll sín 225 ár, aó það hefur ekki kostað viðskipta- vinina grenan eyri að fá bekur að láni. Nú er öldin önnur og á þessu ári geti farið svo að breyting til hins verra hvað varðar viðskipta- vini, en til hins betra hvað varðar rekstraraðilann verði ofan á. Forstöðumaður safnsins, Fredrick Dainton, laumaði þess- um tiðindum næstum kæruleys- islega að er hann las upp skýrsl- ur safnsins á árlegum blaða- mannafundi í ársbyrjun. „það verður dimmur dagur er við neyðumst til að krefjast greiðslu og þá verðum við sokkn- ir svo djúpt að við nemum við botninn. En sannast sagna sjá- um við ekki fram úr vandræðum okkar með öðrum leiðum og því gætum við hreinlega neyðst til að taka möguleikann til athug- unar,“ sagði Dainton við frétta- mennina sem voru saman komn- ir. Dainton svaraði síðan spurn- ingum fréttamanna í fundarlok á þá leið, að viðskiptavinir safns- ins hefðu ekkert að óttast á þessu nýja ári, hins vegar væri hugsanlegt að breyting yrði á hlutunum á árinu 1986. Engar fregnir hafa borist um mannfall f þessum átökum. í Rithisen-búðunum, sem Víet- namar hertóku á jóladag, bjuggu um 62 þúsund manns, sem nú hafa flúið til Thailands. Skæruliðar KPNLF, sem ásamt öðrum skæru- liðahópi andkommúnista hafa myndað útlagastjórn með Rauðu khmerunum, hafa höfuðstöðvar sínar í flóttamannabúðum í Amp- il, sem er 20 km fyrir norðan búð- irnar. Er ekki talið ólíklegt að Víetnamar hyggist sæta lagi og ráðast einnig á þær búðir innan skamms. Flest fólk, sem þar hefur búið, um 23.500 manns, hefur af þeim sökum yfirgefið búðinar og leitað skjóls innan landamæra Thailands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.