Morgunblaðið - 04.01.1985, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 04.01.1985, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1985 29 Þór Sandholt Kveðjuorð Feddur 26. október 1964 Dáinn 26. desember 1984 Á kveðjustundum leitar hugur- inn til liðins tíma og þeir sem mörgum kynnast hljóta líka að kveðja marga. Surnir skilja lítið eftir í endurminningunni, aðrir mikið. Þór J. Sandholt var einn þeirra æskumanna sem trauðla gleym- ast. Því sárara — og óskiljanlegra — er að hann skyldi hrifinn brott af okkar tilverusviði nú án nokk- urra skynsamlegra raka og þrátt fyrir alla getu læknavísinda til að hafa áhrif á starfsemi mannslík- amans. En það stafar birtu frá kynnunum af honum og við mis- sinn kann sú hugsun að leita á hvort það er ekki, þrátt fyrir allt, betra að eiga bæði endurminning- una og sársaukann en hafa hvor- ugt eignast, ef vilji eftirlifenda mætti ráða á kveðjustundu. Góðir samferðamenn og kærleiksríkir ástvinir eru eitt af því sem gerir mannlifið einhvers virði. Og það er gæfa kennara að kynnast góðu æskufólki. Þór var nemandi minn í Menntaskólanum við Hamrahlíð fyrsta vetur sinn þar. Hann vakti strax athygli fyrir mjög góðar námsgáfur, óvenju mikinn þroska og þar með gott vald á íslensku máli. Ef til vill hentaði honum ekki alltaf að taka ritgerðarefni sömu tökum og aðrir, en tök hans voru traust. Hugur hans stefndi til skáldskapar. Hann orti í skóla- blöð og gaf út fyrstu ljóðabók sína í skóla 1983, Hanastél hugsana minna. Hún benti til þess að hann hefði orðið liðtækur á því sviði. Nú tjáir ekki að tala um það. Ljóðin hans verða ekki ort og aðrir verða að taka á sig þau störf sem hann hefði unnið íslenskri menningu. Þór var í Hamrahlíðarkórnum síðustu árin, ein traustasta stoðin af mörgum traustum. Nú er þar opið skarð og ófyllt sem hann var. Hann tók þátt í Japansferð kórs- ins sl. sumar, ferð sem varð ís- lenskri menningu og norrænum þjóðum til sóma, en kórinn var þar fulltrúi Norðurlanda. Þessi kveðjuorð skulu ekki höfð fleiri. Þau eru aðeins til að þakka góðum nemanda og góðum félaga ljúf kynni á stuttum tíma. En eft- irlifandi ástvinum, unnustu og fjölskyldu, votta ég samúð með þessum fátæklegum orðum mín- um. Árni Böðvarsson „Með hverju orði sem þú lest færistu nær endinum.” Um jólin frétti ég lát Þórs Sandholts, sem var þá nýorðinn tvítugur. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamra- hlíð sl. vor, eftir hálfs fjórða árs nám. í skóla, sem hýsir nokkuð á ann- að þúsund nemendur á ýmsum aldri, fer ekki hjá því að sumir skilja meir eftir en aðrir í hugum samferðamannanna. Þór Sandholt verður löngum í hopi okkar minn- isstæðustu nemenda. Þrátt fyrir erfiðan sjúkleika, sem oft hélt honum frá skóla, sóttist honum námið vel, og hann tók virkan þátt í skólastarfinu á mörgum sviðum. Ég heyrði eftir honum haft að hann hefði í sjúkdómslegu snúið sér að ljóðalestri. Síðan fór hann að yrkja, og á árinu 1983 kom út í Menntaskólanum við Hamrahlíð, á vegum bóksölu skólans, ljóðabók eftir Þór, Hanastél hugsana minna. Þar eru mörg athyglisverð ljóð, vel samin og glöggt hugsuð, meðal annars „Nálgun" sem birt er hér að framan. Það er með ólíkindum hverju Þór Sandholt kom í verk innan skólans, án þess að það bitnaði á námi hans og þrátt fyrir stopula heilsu. Hann var leikari á sviði nemendaleikhúss skólans, starfaði í málfundafélagi, vann í bóksölu o.fl. Að lokum skal þess getið að Þór var í kór Menntaskólans við Hamrahlíð og starfaði í Hamra- hlíðarkórnum eftir að hann brautskráðist, eftir því sem heils- an leyfði. í sumar sem leið tók hann þátt í söngför kórsins til Japan. Framar öðru kom Þór Sandholt mér fyrir sjónir sem drengur góð- ur. Ég votta foreldrum hans, unn- ustu og öðrum ástvinum innilega samúð mína og samstarfsmanna minna í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Örnólfur Thorlacius Fyrir réttu ári áttum við saman góðar stundir í Svignaskarði, skólafélagar úr Menntaskólanum við Hamrahlíð. Þar léku allir við hvern sinn fingur, ekki síst Þór, sem þá var nýbúinn að fá útgefna Ijóðabók sína „Hanastél hugsana minna". Þessi hópur, ásamt nokkrum öðrum, myndaði síðan útskriftarhóp sem átti margar gleðistundir vorönnina 1984. En skjótt skipast veður í lofti. Aðeins tæpu ári seinna kveðjum við fé- laga okkar, skáldið okkar, kórfé- laga, leikara og ræðusnilling, — driffjöður útskriftarhópsins, hinstu kveðju með söknuði. Þór var mjög félagslyndur og virtist hafa mikla þörf fyrir að til- heyra einhverjum ákveðnum hóp. Mannleg samskipti og hópstarf var honum mikils virði og var hann virkur í fleiri hópum en út- skriftarhópnum. Þór var söng- maður mikill og hnyttinn ræðu- maður, meðlimur tenórfélags kórs Menntaskólans við Hamrahlíð og síðar Hamrahlíðarkórsins. Hann var áberandi í félagslífi MH, sér- staklega starfi leiklistarfélagsins. Veturinn 1982—83 sat Þór í rit- nefnd skólablaðsins Beneventum og var mál manna að aldrei fyrr hefði útgáfustarfsemi í MH verið jafn öflug og þann vetur. Síðasta ár sitt í skólanum vann Þór ötul- lega að framgangi mælskulist- arinnar. Hann sat í stjórn málfundafélagsins og var einn þeirra sem skipuðu sigursveit MH-inga í ræðukeppni fram- haldsskólanema. f keppninni við Breiðhyltinga var Þór valinn ræðumaður kvöldsins, ekki að ósekju því hann var mjög vel máli farinn og í ræðupúltinu sameinuð- ust leikrænir hæfileikar, örugg framkoma, rökfesta og frumleg kímni. Það var sama í hverju Þór tók þátt, alltaf var hægt að treysta á atorku hans og einbeitni. Hann vann alltaf af fullum krafti að því verkefni sem fengist var við hverju sinni og fórnaði öllu til að koma því heilu í höfn. Hann var í senn hugmyndaríkur, frumlegur og drífandi framkvæmdamaður. Hann var hreinskilinn og ófeim- inn við að láta skoðanir sínar í ljós en slíkt fólk er oft umdeilt. Þór gat verið hviklyndur, jafnvel upp- stökkur enda mikil tilfinninga- vera, en ekki langrækinn. Ein- lægni og persónulegt viðmót ein- kenndi framkomu hans. Á manna- mótum var Þór hress og kátur, hrókur alls fagnaðar og bar ekki áhyggjur sinar af veikindunum á torg heldur reyndi að leyna þeim eða gleyma þeim með fram- kvæmdaseminni. Fæst okkar gerðu sér sennilega grein fyrir því hversu veikur Þór var fyrr en hann tók að láta á sjá og skörð mynduðust í skólagöngu hans. Hann kvartaði ekki en ef þetta barst í tal sló hann því upp í kaldhæðnislegt grín. Minnisstæð- ur er okkur morgunninn þegar við stúdentsefnin dimitteruðum og hófum þann dag heima hjá Þór, þar sem við nutum gestrisni fjöl- skyldu hans í ríkum mæli, hvorki í fyrsta né síðasta skipti þá önn. Við höfðum útbúið okkur sem Kínverja, m.a. með því að farða okkur gulbrún og varð Þór þá að orði að ekki þyrfti hann að farða sig því andlitslitur hans væri nú þegar vel við hæfi. Varð ýmsum þá bilt við, þó engan hefði grunað að jafn stutt yrði á milli gleði þessa vordags og sorgarinnar nú að hálfu ári liðnu. Við höfum misst góðan vin og hæfileikamann. Þór var góðum gáfum gæddur, fjölhæfur og and- ríkur, skáldhneigður og unni bókmenntum. Hann var vel lesinn og vel að sér um ljóðlist og hóf nám í almennri bókmenntafræði við háskólann í haust en dvaldist þar stutt vegna heilsuleysis. Þór var ritfær í besta lagi hvort sem var í bundnu eða óbundnu máli, en ljóðformið virðist hafa hentað honum betur sem tjáningarform. Hann byrjaði að yrkja 16 ára Fædd 3. júní 1890 Dáin 26. desember 1984 í dag, föstudaginn 4. janúar kl. 10.30, fer fram frá Fossvogskirkju útför Jensínu Sæunnar Jensdóttur sem lést þann 26. desember. Jens- ína var dóttir Jens Guðmundar Jónssonar og seinni konu hans Sæunnar Sigurðardóttur frá Dýrafirði. Foreldrar Jensínu bjuggu fyrst í Arnardal en flutt- ust síðan til Hnífsdals. Jensína Sæunn Jensdóttir er fædd 3. júní 1890 og var því orðin 94 ára er hún lést. Jensína var gift Páli Þórarins- syni, miklum öðlingsmanni. Hann lést 1952. Börn þeirra Páls og Jensínu voru: Guðrún Sólborg, gift Össuri Aðalsteinssyni kaupm., Kristín, gift Þorsteini Hannessyni söngvara, og Erla, gift Eiríki Bjarnasyni augnlækni. En sorgin sótti þau heim. Tvö börn misstu þau ung, Jens tæplega 4ra ára og Erlu ekki ársgamla. Jensína og Páll giftu sig 31. okt. 1920. Þau bjuggu lengi í Hnífsdal eða til 1946 að þau fluttust til Skutulsfjarðar, þar sem Páll vann við rafstöðina til 1951, að þau fluttust til Reykjavíkur. Páll var þá búinn að taka sjúkdóm þann er leiddi hann til dauða. Hann lést 19. janúar 1952. Frá uppvaxtarárum mínum er. ljúft að minnast Páls og Sínu frænku, þangað var gott að koma. Það var líka hægt að heimsækja ömmu og afa (meðan hann lifði) um leið og Sigga systir dvaldi þar líka um tíma. Jensína átti tvær alsystur og allmörg hálfsystkini. Alsysturnar voru: Asgerður, sem var gift Guð- jóni Ólafssyni, þau bjuggu í Hnífsdal. Guðjón lést 1956. Ás- gerður hefur lengst af síðan dval- ist hjá Ólafi syni sínum og tengda- dóttur sinni Filipíu Jónsdóttur sem nú búa á Akranesi. En nú er Ása á Dvalarheimili aldraðra á Akranesi 95 ára. Hin systirin var móðir mín Guðrún Sólborg. Hún dó í spönsku veikinni 1918. Faðir gamall og hafa ljóð hans birst í ljóðabókunum „Hanastél hugsana minna" og „Spegilbrot úr helli“ svo og í dagblöðum og Benevent- um, fyrrnefndu skólablaði Hamra- hlíðinga. Ljóð Þórs bera sannlega vott um gott vald á ljóðforminu, vandvirkni og fágaðan smekk, en umfram allt tilfinninganæmi, ein- lægni og frumleika. Þau eru djúp og margræð án þess að vera tor- ræð og eru gædd þeim einfaldleika sem gefur sönnum listaverkum svo mikið gildi. Þór tókst að yrkja ljóð eins og hann lýsir svo snilld- arlega í „Sköpun II“: Ég vil að ljóð mitt líði áfram eins og spegilmynd sálar minnar á skapadægri þess Ýmist lygnt og lokkandi ólgandi ellegar ísi legið, með síbreytilegum bratta, hugmyndum og hrynjandi. Þó ávallt sjálfu sér samkvæmt og umfram allt skiljanlega blátt áfram. (úr „Hanastél hugsana minna“) í nokkrum ljóðum Þórs kemur hins vegar fram mikill tregi og svartsýni, því hann vissi að hverju stefndi, en líka ótrúlegt baráttu- þrek eins og þessar Ijóðlínur úr kvæðinu „Reisn“ bera vott um: Eitt lítið strá og fölnað stóð sperrt upp úr snjóbreiöunni eins og það vildi segja: minn dó líka af afleiðingum spönsku veikinnar. Við systkinin 4 vorum þá öll ung og var okkur síðar komið fyrir hjá vinum og skyldfólki. Þá var gott að eiga góðar frænkur eins og Sínu og Ásu. Og að leiðarlokum viljum við systkinin þakka Sínu það. Áður en Jensína giftist, er hún var ung stúlka, var hún á ísafirði, var þar í vist hjá Jóhanni Þor- steinssyni. Oft minntist hún á veru sína þar og var gaman að heyra hana segja frá menningarlífi þar í þá tíð. Hún mundi eftir Guðmundi stórskáldi, Hannesi Hafstein og fleirum sem settu svip á bæinn. Á þessum árum lærði hún dönsku og gat vel lesið hana síðan. Þar eign- aðist hún marga trygga vini, sem mátu hana mikils. Seinna var Jensína einnig í vist í Reykjavik á Vesturgötunni hjá Þorsteini Jónssyni járnsmið. Þetta hefur ef- laust verið Sínu góður skóli. Þegar mamma dó kom Jensína blessunin vestur og tók við heimil- inu, 4 ungbörnum. Auk þess voru afi og amma þar líka. Sjálfsagt hefur Jensína haft nokkurt samband við hálfsystkini sín og dóttursonur afa af fyrra hjónabandi Adolf Jakobsson var alinn upp hjá afa og ömmu. Hann drukknaði 12. des. 1924. En minnisstæðust er mér hin mæta kona Sigríður Jensdóttir. Milli þeirra systra var alltaf góð og trygg vinátta. Sína hafði mikið yndi af söng. Ég held að þær syst- ur hafi allar verið mjög söngelsk- ar. Ég man nú ekki mikið eftir móður minni. Þó er eins og greypt í huga minn er hún sat með mig og söng. Þegar maður var einn, eða fáir með Sínu í góðu tómi var oft stutt í sönginn. Það kom eins og af sjálfu sér á milli þess sem hún talaði. Sína var andlega hress fram á það síðasta. Það háði henni mjög að hún lærbrotnaði fyrir Minning: Jensína Sœunn Jensdóttir „Líttu á mig ég lognast ekki út af ég hlæ við geislum vetrarsólarinnar. Líttu á mig og láttu eins bjóddu því byrginn rístu upp, breiddu úr þér og bcrðu höfuðið hátt Sjálfið er þín stærsta eign.“ (úr „Hanastél hugsana minna“) En þrátt fyrir sterkan vilja og mikla lífsgleði varð Þór að kveðja þennan heim eins og svo fjölmarg- ir aðrir ungir listamenn, skáld og tónskáld sem óþarft er að nefna. Þór átti eflaust margt ósagt, en þó skáldferill hans væri stuttur var hann árangursríkur og viljum við enda þessa minningargrein um Þór Sandholt með kvæði hans „Vetrarsýn" um leið og við vottum fjölskyldu Þórs, unnustu hans, Sigþrúði Erlu, og öðrum aðstand- endum okkar dýpstu samúð. Fyrir utan gluggann minn liggur lítill fugl í snjónum. Hann hefur flögrað um og sungið mér lög um vorið, um sumarið, um ástina sína. Nú er hann þagnaður vængir hans hélaðir, fótur hans kalinn hjarta hans frosið í hel. (úr „Hanastél hugsana minna) Útskriftarhópur K, MH vor 1984. nokkrum árum og átti óhægt með gang. Eftir að Sína missti mann sinn dvaldi hún hjá dóttur sinni Guð- rúnu og tengdasyni Össuri Aðal- steinssyni, en seinustu árin var hún á Hrafnistu. Um jól var Sína þó venjulega komin til Gunnu og Össa og þá var stutt í að heim- sækja frænku. „Nú er mamma svo lasin að hún treystir sér ekki,“ sagði Gunna við mig nokkru fyrir jól, „hún hefur verið svo lasin undanfarið." Það var líka stutt í það að hún fengi hvíldina, sem hún var farin að þrá. Þrá að hitta vinina horfnu. Og hún kveið ekki þeirri för. Blessuð sé minning frænku minn- ar og hafi hún þökk fyrir allt sem hún gerði fyrir okkur systkinin. Að síðustu kveðja frá okkur systk- inum og fjölskyldum okkar. Jóakim Pálsson ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. f minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.