Morgunblaðið - 04.01.1985, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1985
Brennur og flug-
eldar á þrettándanum
VEGNA óvedurs í gamlárskvöld
varð að hstta við að kveikja í flest-
um brennum í Reykjavík, enda lagði
lögreglan bann við slíku vegna
hsttu á slysum og tjóni á mannvirkj-
um.
Að sögn Bjarka Elíassonar yfir-
lögregluþjóns verður kveikt í þess-
um brennum á þrettándanum nk.
sunnudag. Eru allar líkur á því að
þrettándinn verði með líflegasta
móti að þessu sinni, því að sögn
Bjarka hættu margir við að skjóta
upp flugeldum á gamlárskvöld
vegna veðurofsans og hyggjast
gera það á þrettándanum.
Raufarhöfn:
Roskin kona
lést í bílslysi
Kauruborn. 4. jaanar.
BANASLYS varð í umferðinni
hér á Raufarhöfn í gærkveldi, er
roskin kona, Oddný Guö-
mundsdóttir, varð fyrir bifreið.
Náttmyrkur var og snjólaust,
svo að myrkur var mikið og var
Oddný dökkklædd. Hún lézt
skömmu eftir slysið.
Enginn læknir var hér á
staðnum, er slysið varð og
heldur ekki hjúkrunarkona.
Læknir var sóttur frá Kópa-
skeri, en konan lézt skömmu
eftir að hann kom.
Oddný Guðmundsdóttir
fæddist 15. febrúar 1908 og var
því tæplega 77 ára. Hún var
þjóðkunn kona, var höfundur
nokkurra skáldsagna og hafði
m.a. skrifað reglulega pistla í
dagblaðið Tímann og síðar i
NT. — Helgi
Vörur með
söluskatti
hækka um 0,4 %
Bensínlítrinn
hækkaði í 25,90 kr.
UM áramótin hækkaði söluskatt-
ur um '/2% úr 23,5% i 24% Við
þetta hækka þær vörur sem sölu-
skattur er lagður á um 0,4%
Söluskattur er ekki lagður á mat-
vörur og ýmis þjónusta er einnig
undanþegin söluskatti.
Bensínlítrinn hækkaði um 10
aura, úr 25,80 i 25,90. Raftæki
sem kostaði 10 þúsund krónur
fyrir áramót hækkar um 40
krónur og kostar nú 10.040 kr.
og bifreið sem kostaði 500 þús-
und kr. hækkar um rúmar 2
þúsund krónur og kostar nú
502 þúsund krónur svo dæmi
séu tekin.
Oddný Guðmundsdóttir
Nigel Watson leikur einn í sýningunni.
Velskt ferðaleikhús
sýnir á Kjarvalsstöðum
DAGANA 6.—14. janúar nk. mun
velska ferðaleikhúsið Theatr Tali-
esin sýna á Kjarvalsstöðum leik-
verkið Stargazer sem byggir á nýj-
ustu endursögninni á ensku á hinu
sígilda indverska verki Panchat-
antra eftir Ramsay Wood { bók
hans Kalila & Dimna. Ferðaleik-
húsið sem hingað er komið fyrir
milligöngu Alþýðuleikhússins sam-
anstendur af tveimur mönnum,
Stuart Coz og Nigel Watson, og
hafa þeir fært verkið i leiksviðs-
búning.
Theatr Taliesin-ferðaleikhúsið
er með höfuðstöðvar í Cardiff í
Wales og hefur sýnt Stargazer í
93 skipti í Englandi, Wales og
Skotlandi. Á fundi sem forráða-
menn Alþýðuleikhúsins héldu
með blaðamönnum i vikunni, að
viðstöddum þeim Cox og Wat-
son, kom m.a. fram að markmið
leikhússins er að bjóða upp á
vönduð listræn leikverk og jafn-
framt ná til breiðs hóps áhorf-
enda. Watson leikur einn og í
verkinu Stargazer fer hann með
35 ólík hlutverk. Kvaðst hann
myndu reyna að flytja hér nokk-
ur atriði á íslensku, en hann var
eitt sinn búsettur á íslandi i
fímm ár. Er þetta í fyrsta sinn
sem ferðaleikhúsið sýnir Star-
gazer utan Stóra-Bretlands.
Fyrsta uppfærsla tvímenning-
anna á Stargazer var ætluð fyrir
börn en síðar breyttu þeir henni
fyrir fullorðna. Sögðu þeir félag-
ar að verkið væri sigilt og fjall-
aði um allt milli himins og jarð-
ar, trúmál, stjórnmál o.fl., en
væri fyrst og fremst með gam-
ansömu sniði.
Munu sögur Ramsey Wodd
fyrst hafa verið skráðar fyrir
hartnær 2.000 árum og hafa ver-
ið endursagðar hvað eftir annað
í gegnum tíðina. Var Panchat-
antra, sem nú er að mestu
óþekkt á Vesturlöndum, haft þar
i hávegum á 19. öldinni.
Theatr Taliesin verður með
sex sýningar í Kjarvalssal dag-
ana 6., 9., 10., 11., 12. og 13. janú-
ar. Hefjast sýningarnar allar kl.
20.30.
Hafnargjöld
hækka um 30 %
HAFNARSTJÓRN Reykjavíkur
hefur samþykkt að frá og með 4.
janúar 1985 skuli gjöld fyrir þjón-
ustu hafnarinnar hækka um tæp-
lega 30% frá gildandi gjaldskrám,
sem tóku gildi 1. febrúar sl. Um er
að ræða gjöld fyrir hafnsögu- og
dráttarbáta, festar, vatn, vigtun,
legugjald fyrir trillur, kranagjald
og hafnsögugjald.
Formaður Sjálfstæðisflokksins um boðaðar efnahagsaðgerðir:
Þolum ekki áframhaldandi
stríðsátök eða kollsteypur
í meginatriöum samþykkur tillögunum um stjórnskipunarbreytingar
ÞORS'l'KINN Pálsson, formaður
Sjáifstæðisflokksina, segir, að eng-
um þurfi að koma á óvart að „taka
þurfi í taumana" f efnahagsmálum,
eins og máhim sé komið. Þá segist
hann í meginatriðum vera samþykk-
ur framkomnum tillögum um breyt-
ingar á stjórnskipun, sem skýrt var
frá í Mbl. í gær, en tillögurnar segir
hann ekki hafa verið afgreiddar af
hálfu Sjálfstæðisflokksins.
Þorsteinn var spurður álits á yf-
irlýsingum forsætisráðherra um
að vænta mætti ákvarðana um
nýjar aðgerðir í efnahagsmálum
alveg á næstunni, jafnvel fyrir
samkomudag Alþingis, eftir jóla-
leyfí þingmanna, 28 janúar nk.
Þorsteinn tiltók þrjú meginatriði
sem hann sagði brýn i þeim að-
gerðum, sem nú væru til umfjöll-
unar innan stjórnarliðsins. Hann
sagði: „1 fyrsta lagi er að undirbúa
jarðveginn fyrir lausn kjarasamn-
inga, þannig að unnt verði að
treysta kaupmátt ráðstöfunar-
tekna og ná þvi fram með friðsam-
legum hætti. Við þolum hvorki
áframhaldandi stríðsátök né held-
ur slíkar kollsteypur, sem teknar
voru á síðasta ári.
í annan stað þarf að tryggja þaö
að þau áform sem uppi hafa verið
um að hleypa nýju lifi í atvinnu-
starfsemina og auka framleiðnina
fari að sjá dagsins ljós. Og i þríðja
lagi þarf að gera þær aðhaldsað-
gerðir sem geta dugað til þess að
hemja verðbólguna, sem nú geng-
ur býsna hratt upp á við aftur."
Þorsteinn var spurður hvaða leiðir
hann teldi helst færar til þess.
Hann svaraði: „Það eru ýmsar
leiðir í þeim efnum og þetta erum
við að ræða á þessu stigi.“
Um timasetningu aðgerðanna
sagði formaður Sjálfstæðisflokks-
ins: „Ég er enginn spámaður i
þeim efnum. Aðalatriðið er að
menn taki þessi verkefni alvarleg-
um tökum og freisti þess að ná
saman um skynsamlega stefnu-
mörkun til þess að snúa gangi
mála í rétta átt.“
Aramóta-
ró ( Frið-
arhöfn
ÞETTA er höfnin í Vest-
mannaeyjum, lífæð Eyj-
anna. Venjulega iðar hér
allt af lífi og fjöri en um
áramótin var allt kyrrt og
hljótt. Togarar og bátar
voru í höfn og frystihúsin
lokuð.
BÉMéé
Morgunblaðið/SÍKurReir
Þorsteinn var að lokum spurður
hvert álit hans væri á framkomn-
um tillögum nefndar sem skipuð
var til að endurskoða stjórnskip-
unina og skýrt var frá á baksíðu
Mbl. í gær. Hann sagði störf þeirr-
ar nefndar sem gekk frá tillögun-
um lið i vfðtækari áformum um
margskonar breytingar í stjórn-
kerfinu. Nefndin hefði yfirfarið
þessar tillögur í ljósi umræðna
eftir að þær hefðu fyrst komið
fram. „Ég vænti þess að um þær
geti orðið samstaða," sagði þann.
„Auðvitað er það svo að sitt sýnist
hverjum í þessu efni og þarna er
meira um skipulag og stjórnun-
arhætti að ræða en stjórnmál."
Hann kvaðst í stórum dráttum
vera fylgjandi tillögunum eins og
þær lægju fyrir en auðvitað hefðu
verið ýmsir agnúar á, sem ræddir
hefðu verið. Hann sagði tillögur
þessar ekki endanlega afgreiddar
af hálfu Sjálfstæðisflokksins.