Morgunblaðið - 04.01.1985, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 04.01.1985, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANUAR 1985 Ferðaskrifstofan Úrval: Beint leiguflug á frönsku RMeruna Ferðaskrifstofaii Úrval býður við- skiptavinum sínum f sumar mögu- leika á að ferðast í beinu leiguflugi héðan á frönsku Rívíeruna. Hægt verður að dvelja í bæjunum SL Laur- ent du Var og Juan Les Pins. Þá býður ferðaskrifstofan upp á mögu- leika á gistingu í Cap d’Agde sem er skammt vestan við borgina Mont- pellier. Hér fer á eftir fréttatilkynning frá Ferðaskrifstofunni Úrval: „Ferðaskrifstofan Úrval býður nú íslendingum upp á þá nýjung sumarið 1985 að geta ferðast i beinu leiguflugi á frönsku Rívler- una. Úrval hefur vandað mjög til við valið á gisti- og dvalarstöðum fyrir farþega sína á Rívíerunni. Fyrir valinu urðu tveir litlir bæir, St. Laurent du Var og Juan Les Pins, sem staðsettir eru mitt á milli stórborganna Cannes og Nissa. í Juan Les Pins eru ein- hverjar bestu baðstrendur Riv- íerunnar og bærinn sjálfur, sem er samvaxinn hinum fræga bæ Anti- bes, er ein iðandi mannlifsbrekka. Allt þetta er i göngufæri frá íbúð- arhótelinu Mas de Tanit, sem Úr- val býður farþegum sínum i Juan Les Pins. St. Laurent du Var er lítill, gamall og fallegur bær, um 4 km frá Nissa og þar er íbúðahótel- ið Heliotel Marine sem er frábær- lega staðsett, um 50 m frá strönd- inni og smábátahöfninni. I þessu íbúðahóteli er allt til alls sem ferðamaðurinn þarfnast til að gera fríið sem ánægjulegast. Einnig býður Úrval upp á gist- ingu í Cap d’Agde sem er sumar- leyfisbær skammt suðvestan við borgina Montpellier. Bærinn hef- ur eingöngu verið byggður fyrir orlofsgesti og hefur svo sannar- lega ekkert verið til sparað. Fleiri kílómetrar af sandströnd til sól- baða, Aqualand-skemmtigarður- inn sem er 36000 m’ að stærð, þar sem allt snýst um vatn, vatns- rennibrautir, öldusundlaugar, sprautuverk o.fl. Hér er í boði glæsilegt nýtt ibúðahótel, Al- hambra, þar sem Úrvalsfarþegar Eyjaskeggj- ar fleiri en nokkru sinni eftir gos Vestmannaeyjum, 3. janúar. ÍBÚAR í Vestmannaeyjum eru nú fleiri en nokkru sinni síðan árið 1973 þegar gosið margfræga umbylti allri búsetuþróun á Heimaey á einni nóttu. Ibúar um áramótin voru alls 4.815 og hafði fjölgaö um 71 frá áramótunum á undan. Mikil hreyfing var á fólki i og úr bænum. Þannig fluttu hingað á árinu 278 manns en 274 fluttu úr bænum. Einnig var mikil hreyfing á fólki inn- an bæjarins að þvi er Áki Heinz Haraldsson á bæjar- skrifstofunum sagði i samtali við blm. Morgunblaðsins. Hann sagðist telja að allt að fjórði hver bæjarbúi hefði staðið í einhverjum flutningum á ár- inu. Fæðingum fjölgaði allnokk- uð á árinu, alls fæddust hér 102 börn á árinu 1984, 52 stúlkur og 50 drengir. 35 manns létust árið 1984, sem er mun hærri dánartala en undanfarin ár. - hkj. geta notið alls hins besta sem völ er á. Brottfarir eru: 25. mai — 17 nætur. 12. júní — 21 nótt og á þriggja vikna fresti til 4. september. Auk þessa verður Úrval áfram með sínar vinsælu vikuferðir til Parísar, sem byrja með sérstakri páskaferð 3. apríl og svo tvær sér- stakar skíðaferðir í frönsku Alp- ana, til Couchevel, i dölunum þrem, þann 15. mars og 29. mars. Nær uppbókað er nú i fyrri ferð- ina. Frá sumarlcyfisbænum Cap d’Agde. Þú svalar lestrarjxirf dagsins lans , mpö stórum stat'. _ : súlnasai ^ö^ns c)ans5.ýr>“'"-3 ipikiunum ' Lor? C./P,r Magnusar J sftssss-: ^ssss^ A sgutbergs 09 er la9i« sssajSS"*-® Húsiö OPnaÖ GILDIHF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.