Morgunblaðið - 04.01.1985, Blaðsíða 30
I
I
I
I
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1985
Syngjandi
landsliðs-
kvartett
Ástarbréf
Beethovens
á uppboð
Bréf frá Ludwig van
Beethoven til konu sem
haldið er að hafi verið stóra
ástin í lífi hans verður selt á
uppboði í London í mai
næstkomandi. Þá mun mál-
verk af tónskáldinu einnig
verða til sölu. Beethoven sem
kvæntist ekki, var kenndur
við margt kvenfólk, en í bréf-
um og dagbókum talaði hann
um að hafa einungis elskað
eina stúlku, en aldrei hefur
verið hægt að sanna hver
hún var. Bréfið, sem á upp-
boðinu verður, var ritað í
Vínarborg hinn 6. febrúar
árið 1816.
Framan af desembermán-
uði voru íslenzku lands-
liðsmennirnir í handknatt-
leik í sviðsljósinu. Upp úr
miðjum mánuðinum, er jóla-
sveinarnir tíndust hver af öð-
rum i bæinn, máttu hand-
boltakapparnir gjöra svo vel
að víkja af sviðinu. Þeir hafa
síðustu tvær vikurnar látið
sér nægja að kasta boltanum
í æfingasölum, en rauð-
klæddu kallarnir úr fjöllun-
um hafa sungið og trallað
fyrir vini sína um allt land.
Fjórmenningarnir
á myndinni sýndu
þó eitt kvöld skömmu
fyrir jól að þeim er
fleira til lista lagt en að
keppa í handbolta. Þá tróðu
þeir upp í veitingahúsinu
Safarí og sungu nokkur jóla-
lög. Markvörðurinn Einar
Þorvarðarson úr Val, stór-
skytturnar Þorbergur Aðal-
steinsson, Víkingi, og Krist-
ján Arason, FH, og línumað-
urinn úr FH, Þorgils óttar
Mathiesen, syngja af innlifun
á myndinni og var gerður
góður rómur að frammistöði
landsliðskvartettsins.
fclk í
fréttum
HJÓNIN HILMAR OG GUÐBJÖRG
„Við erum með
græna fingur“
að þarf eflaust mikinn kjark
til að taka sig upp eftir ára-
tuga búsetu á sama stað úti á
landi og flytja í bæinn og setja á
stofn fyrirtæki. Þetta gerðu þau
hjón Hilmar Magnússon og Guð-
björg Kristjánsdóttir þó fyrir
skömmu, er þau fluttust frá
Laugarási í Biskupstungum þar
sem þau hafa rekið um 20 ára
skeið garðyrkjustöðina Ekru.
Þau reka nú hér í borginni garð-
yrkjustöðina Valsgarð við
Suðurlandsbraut. Það var þó
ekki þetta sem vakti eingöngu
forvitni blm., heldur auglýsing
sem hljómaði tíðum i útvarpinu
fyrir jólin og var eitthvað á
þessa leið: „Við erum með græna
fingur...”
Blm. leit inn hjá þeim hjónum
og spurði hvað þau hefðu átt við
með þessari setningu.
— Konunni minni datt þetta í
hug, sagði Hilmar, en foreldrar
hennar ráku garðyrkjustöð í
Hveragerði og þetta var alltaf
sagt við móður hennar að hún
hefði grænar hendur og átti þá
að vera hól, því henni gekk svo
vel að rækta. Við fjölskyldan
höfum alla tíð verið við garð-
yrkjustörf og erum hér starfandi
núna, konan mín, ég, dóttir og
tengdasonur, en einn sonur
okkar rekur svo garðyrkjustöð í
Hveragerði. Okkur hefur um ár-
in gengið vel að rækta, svo okkur
fannst þetta snjöll setning.
Þetta hljómar einnig dálítið
öðruvísi og það er ágætt, því við
vorum hrædd við að kafna í öllu
auglýsingaflóðinu með annað
venjulegt nafn á garðyrkjustöð.
Ætlunin er nefnilega að breyta
Valgarðsnafninu í Grænar hend-
ur.
— Hvernig vildi það til að þið
ákveðið eftir öll þessi ár að
flytja suður?
— Við hjónin vorum orðin tvö
í kotinu, börnin uppkomin og
farin og svo dó hundurinn okkar
i vor, þannig að þetta var ágætis
hugmynd að prófa núna eitthvað
nýtt. Það eru auðvitað viðbrigði
að koma suður úr rólegheitunum
fyrir austan, en við kunnum
bara ljómandi vel við þetta.
Reyndar erum við ekki alveg
flutt ennþá, en það er stefnan.
Guðbjörg Kristjánsdóttir, Hilmar Magnússon, Jóhanna Hilmarsdóttir og Einar Gunnarsson.
Jane Fonda síborðandi
Jane Fonda segist hafa verið haldin örvæntingu í 23 ár vegna ofáts. Hún
heldur því fram að hún hafi belgt sig út af mat 15 til 20 sinnum á dag og
verið síborðandi. Fonda, sem nú er 47 ára og þekktur fulltrúi þeirra er
stunda líkamsrækt, segir ennfremur að á þessu skeiði í lífi hennar hafi
hún tæmt ísskápinn þegar þannig lá á henni og hún hafi lítið annað
hugsað um en mat daginn út og daginn inn. „Þetta er hlutur er líkja má
við alkóhólisma og sem maður verður háður,“ var haft eftir henni í
viðtali, sem birtist í bandarísku tímariti nýlega. Það var frá 12 ára aldri
sem hún þjáðist af þessu ofáti og til 35 ára aldurs eða þegar hún varð
ófrísk að seinna barni sínu, Troy.
COSPER
en»