Morgunblaðið - 04.01.1985, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1985
3
Endurgreiðsla á uppsöfnuðum söluskatti:
Fiskvinnsla og útgerð
fá nær 400 milljónir
UPPSAFNAÐUR söluskattur útgeró-
arinnar í landinu verður endurgreidd-
ur á nsstu mánuðum með þv( að taka
hann inn í fiskverðsákvarðanir. f fjár-
lögum fyrir 1985 er gert ráð fyrir að
með þessum hætti verði greiddar til
baka nærrí 400 milljónir króna. Það
er sá söluskattur er útgerðin í landinu
greiddi af ýmiskonar aðfóngum á ný-
liðnu ári.
Samband fiskvinnslustöðvanna
telur að útgerðin eigi ekki að fá allt
þetta fé og er því ekki ólíklegt, skv.
upplýsingum Mbl., að því verði
skipt að einhverju leyti milli fisk-
vinnslu og útgerðar. Soffanías Cec-
ilsson, formaður sambandsins,
sagði í samtali við blm. Morgun-
blaðsins, að af hálfu sambandsins
hefði ekki verið tekin endanleg af-
staða til málsins. „Það má kannski
segja að það skipti ekki höfuðmáli
hvort þetta lendir hjá útgerðinni
eða fiskvinnslunni, þótt þetta fé
hafi aðallega safnast upp gagnvart
vinnslunni,” sagði Soffanias. „Þetta
hefur ekki verið rætt mjög ítarlega
hjá okkur — við erum sammála um
að þessir peningar þurfi að koma til
baka en ekki hvernig ber að skipta
þeim.“
Hulda Valtýsdóttir
kjörin í borgarráð
Ljósm./Gunnar Vigfússon.
Hagstofustjóraskipti
Hallgrímur Snorrason hagfræðingur tók við embætti hagstofustjóra um áramótin af Klemenz
Tryggvasyni, sem gegnt hefur embættinu um áratuga skeið. Myndin er tekin þegar Klemenz
afhenti Hallgrími lyklana að Hagstofunni. Viðstaddur var Matthías Á. Mathiesen viðskipta-
ráðherra.
Á FUNDI borgarstjórnar ( gær fór
fram kosning ( nokkur embætti borg-
arstjórnar, nefndir og ráð vegna
lausnar Markúsar Arnar Antonsson-
ar frá störfum í borgarstjórn.
Páll Gíslason var kjörinn forseti
borgarstjórnar, fyrsti varaforseti
var kjörinn Magnús L. Sveinsson
og Katrín Fjeidsted annar varafor-
seti.
Hulda Valtýsdóttir var kosin í
borgarráð, en það skipa auk Huldu:
Magnús L. Sveinsson, Ingibjörg
Rafnar, Sigurjón Pétursson og
Guðrún Jónsdóttir.
Skipa konur nú meirihluta í ráð-
inu. Magnús L. Sveinsson var kjör-
inn varaformaður borgarráðs á
fundi ráðsins í gær.
Ingibjörg Rafnar var kosin for-
maður félagsmálaráðs og Margrét
Úr borgarstjórn
„Miðað er við að ekki komi
til frekari hækkana á árinu^
— sagði formaður stjórnar dagvista um 20% hækkun
Hulda Valtýsdóttir
S. Einarsdóttir hefur tekið sæti að-
almanns í ráðinu.
Inga Jóna Þórðardóttir
Inga Jóna
Þórðardóttir
formaður Ut-
varpsráðs
INGA Jóna Þórðardóttn við-
skiptafræðingur, hefur verið vkip-
uð formaður útvarpsráðs frá 1.
janúar 1985 að telja í stað Mark-
úsar Arnar Antonssonar, sem tek-
ið hefur við starfi útvarpsstjóra.
GJALDSKRA dagvistarstofnana
borgarinnar hefur verið hækkuð um
20 prósent frá 1. janúar. Var þessi
hækkun samþykkt með 13 atkvæð-
um gegn 6 á fundi borgarstjórnar í
gær.
I máli Ingibjargar Rafnar,
formanns stjórnar dagvista og fé-
lagsmálaráðs, kom fram að
ákvörðun um þessa hækkun hefði
verið tekin eftir ítarlegar umræð-
ur og væri við það miðað að til
frekari hækkana á gjaldskránni
þyrfti ekki að koma á þessu ári ef
verðlagsþróun reyndist nokkuð
stöðug. Sagði hún að gjaldskrá
dagvistarstofnana borgarinnar
væri með þeim lægstu á landinu,
en víða væru þær verulega hærri,
t.d. á Akureyri, í Kópavogi, Garða-
bæ og á Húsavík. Fyrirsjáanleg
væri mikil hækkun á rekstrar-
kostnaði dagvistarstofnana, þar
sem launakostnaður vægi þungt.
Með þessari hækkun væri kostn-
aðarþátttaka foreldra á móti
borginni ekki aukin, heldur lækk-
aði hlutfall foreldra um nokkur
prósent frá síðasta ári.
Borgarfulltrúar Kvennafram-
boðsins og Alþýðubandalagsins
greiddu atkvæði á móti þessari
hækkun, þar sem þeir töldu hana
verulega m.t.t. minnkandi kaup-
máttar. Á meðan laun væru ekki
verðtryggð gætu þeir ekki stutt
hækkun sem sérstaklega bitnaði á
þeim sem lægst hafa launin.
Ingibjörg Rafnar sagði Guðrúnu
Ágústsdóttur, borgarfulltrúa Al-
þýðubandalagsins, hafa stutt
þessa hækkun í félagsmálaráði,
þar sem hún hefði verið ítarlega
rædd í umfjöllun um fjárhags-
áætlun þessa árs. Hefði þessi
hækkun verið samþykkt þar á
þeim forsendum að til frekari
hækkana þyrfti ekki að koma á
árinu.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarfulltrúi kvennaframboðs-
ins, sagði m.a. að þar sem fjár-
hagsstaða borgarinnar væri nokk-
uð góð, væri eðlilegt að hún kæmi
Selfoss:
Dæla sett niður í að-
alholu Hitaveitunnar
ljóst eftir helgi hversu mikið vatn hún gefur
Selfossi, 3. jan. 1985.
í GÆR hófust starfsmcnn Hita-
veitu Selfoss handa við að koma
fyrir dælu í aðalholu hitaveitunnar
sem hrundi saman 26. des. sl. Dæl-
an var tekin upp úr holunni þegar
hrunsins varð vart og holan hefur
ekki verið í sambandi síðan.
Morgunblaðið/Sig. Jónsson.
Starfsmenn Hitaveitu Selfoss vinna að viðgerð á holunni.
Starfsmenn Orkustofnunar komu
austur og gerðu mælingar á hol-
unni, könnuðu dýpt hennar og
lögðu til að dælan yrði sett niður
og kannað hvað holan gæfí mikið
vatn.
Þessi aðalhola hitaveitunnar
er 1830 m djúp, en þegar hún var
boruð varð eftir í henni tappi á
1.100 metra dýpi. Samkvæmt
mælingum starfsmanna Orku-
stofnunar reyndist holan vera
953 metrar og telja þeir að hún
muni gefa nokkurt vatn en
hversu mikið það verður kemur
fyrst í ljós þegar farið verður að
dæla upp úr holunni eftir helgi.
Það sem skapar óvissu með
holuna er að aðalæð hennar er á
1.030 metra dýpi, nokkru meðan
við núverandi botn hennar. Að
sögn Jóns Arnar Arnarsonar
veitustjóra á Selfossi má gera
ráð fyrir að vatnið i holunni
verði mun minna og kaldara, en
holan gaf 50 sekúndulítra af
Borholan og krani, sem notaður er
við að setja dæluna niður við hol-
una. .
80°C heitu vatni áður en hún
hrundi saman. Jón sagði einnig
að sennilegast yrði farið að ráð-
um Orkustofnunarmanna og
holan boruð upp á nýtt strax og
hlýnaði í veðri með vorinu, nema
þær aðstæður sköpuðust sem
kölluðu á aðgerðir strax.
Svör við því fengjust þegar
farið væri að dæla upp úr hol-
unni og sýnt væri að hún gæfi
vatn að gagni.
Sig. Jóns.
til móts við þá erfiðleika sem
steðjuðu að mörgum heimilum, þó
taka þyrfti lán í lok ársins ef á
þyrfti að halda.
Davíð Oddsson, borgarstjóri,
sagði m.a. að öllum væri ljóst að
rúmlega 20% launahækkanir yfir
allt kerfið stæðust ekki. Það væri
veruleiki sem þyrfti að jafna og
væri það að hluta gert með þessari
hækkun, sem væri minni en efni
stæðu til.
Nýtt fyrirtæki
á Akranesi:
Framleiðir
öryggis-
læsingu á
lyfjaskápa
Akrmacai, 3. juóar.
STOFNAÐ hefur verið nýtt fyrirtæki
á Akranesi í þeim tilgangi m.a. að
kaupa einkarétt til framleiðslu og
sölu á öryggislæsingum, sem Jó-
hanncs Pálsson uppfinningamaður
hefur fundið upp. Fyrirtækið ber
nafnið Akrópólis hf.
Öryggislæsing þessi er ætluð til
að nota m.a. á skápa undir lyf og
hættuleg efni.
Eins og kunnugt er hafa tals-
verðar umræður verið um það
vandamál, að börn hafi komist (
lyf og hættuleg efni á heimilum og
hafa jafnvel alvarleg slys hlotizt
af. Þessari læsingu er ætlað að
koma í veg fyrir slíkt.
Uppfinning Jóhannesar hefur
vakið mikla athygli erlendis og
hefur hann aflað einkaleyfa fyrir
uppfinningu sinni í mörgum lönd-
um heims. Helztu hluthafar (
Akrópólis hf. eru: Akraneskaup-
staður, Samtök sveitarfélaga á
Vesturlandi, Stefán Thorarensen
hf., Reykjavík, Sjálfsbjörg, félag
fatlaðra á Akranesi og nágrenni,
SÍBS-deildin á Akranesi, Akra-
nesdeild Rauða krossins ásamt
nokkrum einstaklingum.
Akrópólis hf. hefur gert samn-
ing við verndaðan vinnustað á
Vesturlandi, sem ætlað er að taki
til starfa á Akranesi um mitt ár,
um framleiðslu öryggislæs-
inganna.
JG