Morgunblaðið - 04.01.1985, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1985
Þörf
áminning
Tvær allskuggalegar myndir
rötuðu á skjáinn síðastliðið mið-
vikudagskvöld, sú fyrri úr dýra-
ríkinu. Lýsti hún næturbardúsi
ýmissa villtra dýra á Bretlands-
eyjum. Var oft mikill handagang-
ur í öskjunni er uglur sporðrenndu
músum, og rebbi nartaði í stél-
fjaðrir hænsna, að ekki sé talað
am vatnabifurinn er sýndi sjón-
varpsgestum hvernin skal snæða
rotnandi frosk.
Síðari myndin lýsti inn í ríki
manna, hvurning æðsta skepna
jarðarinnar hagar sér gagnvart
þeim einstaklingum sömu tegund-
ar er hún álítur sér óæðri. Nefnd-
ist mynd þessi: Harmleikurinn í
Varsjá, bresk heimildarmynd er
tekur fyrir uppreisn Varsjárbúa
gegn hernámsliði nasista haustið
1944. Er næsta átakanlegt að sjá
vesalings Pólverjana, hjálpar-
lausa í blóðhrammi aríanna, en
skammt frá rússneskt herlið er
hefst lítt að, enda taldi Stalín upp-
reisnina ... verk brjálæðinga. Til
marks um þessa afstöðu sína,
sendi Stalín smávægileg hjálpar-
gögn til borgarinnar flugleiðis, en
gætti þess að gögnin væru hvergi
fest í fallhlífarskerma, þannig að
þau kæmust óskemmd til jarðar.
Bretar og Bandaríkjamenn veittu
uppreisnarmönnunum nokkra
hjálp, en þó brugðust Bretar þá er
þeir voru beðnir að senda pólskt
fallhlífarlið. Kusu þeir fremur að
senda það til Arnhem í þeirri von
að ná brúnum yfir Rín.
Lýsandi dœmi
Mér fannst mynd þessi sýna
eins og í hnotskurn, hina lánlausu
stöðu Pólverja í heimi hér. Eða
eins og einn viðmælandinn orðaði
það í þættinum um Varsjárupp-
reisnina ... við erum og höfum
lengi verið eins og mús milli
tveggja katta. í augnablikinu er
kötturinn af austrænni ætt, sá
hinn sami og hafði brugðist þeim í
Varsjárgettóinu, enda þjónaði það
hagsmunum hans á þeim tíma að
veikja Pólsku andspymuhreyfing-
una, sem var afvopnuð af Rauða
hernum þá hann hélt loks inn i
Pólland, enda var svo komið á
Yalta-fundinum í febrúar 1945, að
fulltrúar pólsku útlagastjórnar-
innar sem höfðu stýrt andspyrn-
unni gegn Þjóðverjum og fulltrúar
neðanjarðarhreyfingarinnar sáust
hvergi, en til taks var ríkisstjórn
hiiðholl Stalín. Miskunnarlaus
leikur, enda hvað má ein mús sín,
þá kettir af ætt Stalíns og Hitlers,
rétta fram bióðhramminn.
Von fyrir hrjáða þjóð
En greinum við ekki einmitt í
þessum leik, lífsvon pólsku þjóðar-
innar sem gerir vonlausa uppreisn
gegn ægilegu herafli 1944, og held-
ur út í 63 daga, og nú fjörutíu
árum síðar er enn gerð uppreisn
gegn erlendu valdi, við næsta
vonlausar aðsætður. En það gerir
ekkert til því pólska þjóðin virðist
ekki kunna að beygja bak sitt til
langframa, né gerast feitur þjónn,
og slíkt fólk mun á endanum sigr-
ast á aðstæðunum. Nú og svo má
líka gefa gaum að því, að aðstæður
eru breyttar frá því Stalín var og
hét, eða eins og júgóslavneski and-
ófsmaðurinn Milovan Djilas orðar
það í Newsweek-viðtali (sept.
1975): „Stalínisminn eins og nas-
isminn, lifði á þjóðernislegum
hugsjónaloga sem nú er slokknað-
ur. Líttu bara á ungliðahreyf-
ingarnar i dag, á skriffinnanna
sem stýra kommúnistaflokkunum.
Tími hugsjónaeldsins bjarta er
liðinn í gervallri Evrópu." En hef-
ir ekki nýr logi tekið við?
ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / S JÓN VARP
Mikið berst af bréfum
í „Pósthólfið"
í
Valdís Gunnarsdóttir um-
sjónarmaður „Pósthólfs-
sem bárust fyrir jól og
milli jóla og nýárs.
Pósthólfið er tveggja
tima langur þáttur og er
hann á dagskrá rásar 2 á
hverjum föstudegi.
Torfí Jónsson umsjónar-
maður þáttarins.
Bertil Guve í hlutverki Alexanders.
Fanný og Alexander
— lokaþáttur
Fjórði og sið-
00 25 asti þáttur
4**5 sænsku sjón-
varpsmyndarinnar Fanný
og Alexander er á dagskrá
sjónvarpsins í kvöld.
í myndinni er lýst lífi
Ekdahl-fjölskyldunnar;
aldraðri ekkju, þremur
sonum hennar og fjöl-
skyldum þeirra.
í fyrstu þremur þáttum
myndarinnar var sagt frá
því hve þessi fjölskylda
var náin og mikill kær-
leikur ríkti i samskiptum
fjölskyldumeðlimanna.
Fanný og Alexander alast
upp við mikið ástriki for-
eldra sinna og jafnframt
fær ímyndunarafl þeirra
að njóta sín i rikum mæli,
enda foreldarnir báðir
leikarar. En faðir þeirra
deyr og hefur það mikil
áhrif á börnin. Ári eftir
dauða hans giftist móðir
þeirra biskupi staðarins
og verður það til þess að
líf þeirra gerbreytist.
Biskupinn er mjög strang-
ur, sérstaklega við Alex-
ander, og hjá honum er
enga ástúð að finna. í
þættinum í kvöld má bú-
ast við að til tíðinda dragi.
Leikstjóri er Ingmar
Bergman, en með hlut-
verk þeirra Fannýjar og
Alexanders fara þau
Pernilla Allwin og Bertil
Guve.
1 dag verður
HOO þátturinn
— „Pósthólfið" í
umsjá Valdísar Gunn-
arsdóttur á dagskrá rásar
2. í þættinum verða lesin
bréf frá hlustendum og
spiluð óskalög þeirra
ásamt annarri tónlist.
Oft hefur Valdís einnig
fengið til sín gesti í þátt-
inn, en svo verður þó ekki
að þessu sinni og verður
hann því aðallega helgað-
ur tónlistinni.
í síðasta þætti tilkynnti
Valdís hlustendum að tek-
in yrði upp sú nýbreytni
að lesa kveðjur til fólks
sem heldur upp á ein-
hvern merkisatburð á út-
sendingardaginn svo sem
stórafmæli, brúðkaups-
afmæli og eitthvað þess-
háttar. Þeir sem ætla að
senda slíka kveðju geta
skrifað þættinum.
Að sögn Valdísar berst
mikið af bréfum og hefur
enn ekki verið unnt að
sinna öllum þeim bréfum
Það er svo margt
að minnast á
■■^B Þáttur Torfa
| A 45 Jónssonar „Það
A ” er svo margt að
minnast á“ er á dagskrá
útvarpsins í dag. í þætti
þessum verður fjallað um
Einar E. Sæmundsen
skógarvörð, en þessi ljóð-
lína, sem er nafn þáttar-
ins, er einmitt úr kvæði
eftir hann.
Lesið verður úr grein
eftir Pétur Pétursson þul,
sem birtist í Morgunblað-
inu árið 1982 og fjallaði
um Einar. Þá verður les-
inn hluti úr grein eftir
Einar E. Sæmundsen sem
birtist í Eimreiðinni árið
1921.
Að lokum verður lesið
úr bókinni Undir tindum
eftir Böðvar Magnússon
hreppstjóra á Laugar-
vatni, en þar er Einars
minnst í kaflanum Gleði-
menn. Þeir Böðvar og Ein-
ar voru miklir vinir og
barst Böðvari fregnin af
andláti Einars þegar
hann var að ljúka við
þennan kafla.
Lesari með Torfa er
dóttir hans Hlín.
ÚTVARP
FÖSTUDAGUR
4. janúar
7.00 Veöurfregnír. Fréttir.
Bæn. Á virkum degi. 7.25
Leikfimi. 7.55 Daglegt mál.
Endurt. þáttur Siguröar G.
Tómassonar frá kvöldinu áö-
ur.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veðurtregnir.
Morgunorö — Hafdls Hann-
esdóttir talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Umsjón: Sigrún Sigurðar-
dóttir. (RÚVAK)
9J0 Tilkynningar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöur-
fregnir. Forustugr. dagbl
(útdr.). Tónfeikar.
10.45 .Þaö er svo margt aö
minnast á"
Torfi Jónsson sér um þátt-
inn.
11.15 Morguntónleikar
12.00 Dagskrá. Tónteikar. Til-
kynningar.
12^0 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
14.00 „Þættir af kristniboöum
um vlöa verðld" eftir Clar-
ence Hall. „Týndi dalurinn".
Meöal Danla á Nýju Guineu.
Astráður Sigursteindórsson
les þýöingu slna.
14.30 A léttu nótunum
Tónlist úr ýmsum áttum.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veöurfregnir.
16.20 Slðdegistónleikar
a. Planókonsert nr. 1 (C-dúr
op. 11 eftir Carl Maria von
Weber; Marla Littauer og
Sinfónluhljómsveitin I Ham-
borg leika; Siegfried Köhler
stj.
b. Sellókonsert I Es-dúr op.
107 eftir Dmitri Sjostakovitsj.
Milos Sadlo og Tékkneska
fllharmonlusveitin leika; Kar-
el Ancerl stj.
17.10 Slðdegisútvarp
Tilkynningar.
19.15 A döfinni. Umsjónarmaö-
ur Karl Sigtryggsson. Kynnir
Birna Hrólfsdóttir.
19.25. Krakkarnir I hverfinu. 3.
Inga flytur I hverfið. Kana-
diskur myndaflokkur I prett-
án þáttum, um atvik I llfi
nokkurra borgarbarna. Þýö-
andi Kristrún Þórðardóttir.
19J0 Fréttaágrip á táknmáli.
18j45 Veöurtregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynn-
ingar.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra
Björg Thoroddsen kynnir.
20.40 Kvöldvaka
a. Annáll ársins 1884. Sig-
uröur Kristinsson tekur sam-
an ettir fornum dagbókum af
Austurlandi.
b. Frá safnamðnnum.
Skuggahverfi ( Reykjavlk.
Salvör Jónsdóttir segir frá.
c. Þrjár skyggnar konur á
Austurlandi. Helga Einars-
dóttir les úr bókinni
„Skyggnir Islendingar" eftir
20.00 Fréttir og veöur.
20J0 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Kastljós. Þáttur um inn-
lend málefni.
21.10 Skonrokk
Umsjónarmenn: Anna Hin-
riksdóttir og Anna Kristln
Hjartardóttir.
21Æ5 Hláturinn lengir llfiö.
Breskur myndaflokkur I
Oskar Clausen. Umsjón:
Helga Agústsdóttir.
21.30 Hljómbotn
Tónlistarþáttur I umsjón Páls
Hannessonar og Vals Páls-
sonar.
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orö kvöldsins.
22-35 Djassþáttur — Tómas
Einarsson.
23.15 A sveitalinunni
Umsjón: Hilda Torfadóttir.
(RUVAK)
24.00 Sinfóniuhljómsveit fs-
lands leikur lög úr amerlsk-
um söngleikjum á tónleikum
I Háskólabfói 22. nóv. sl.
Stjórnandi: Robert Hender-
þrettán þáttum um gaman-
semi og gamanleikara I fjöl-
miðlum fyrr og slöar. Þýö-
andi Guöni Kolbeinsson.
y> 25 Fanny og Alexander.
Slðasti hluti. Sænsk fram-
haldsmynd I fjórum hlutum
ettir Ingmar Bergman. ÞýÖ-
andi Jóhanna Þráinsdóttir.
23.50 Fréttir I dagskrárlok.
son. Einsöngvari: Thomas
Carley. Kynnir Jón Múli
Arnason. (Slðari hluti.)
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá rás 2 til kl.
03.00.
FÖSTUDAGUR
4. janúar
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Páll Þorsteins-
son og Sigurður Sverrisson.
14.00—16.00 Pósthólfiö
Lesin bréf frá hlustendum og
spiluö óskalög þeirra ásamt
annarri léttri tónlist.
Stjórnandi: Valdis Gunnars-
dóttir.
164»—17.00 Listapopp
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
17.00—18.00 Léttir sprettir
Stjórnandi: Jón Ölafsson.
23.15—03.00 Næturvaktin
Stjórnendur: Vignir Sveins-
son og Þorgeir Astvaldsson.
Rásirnar samtengdar aö lok-
inni dagskrá rásar 1.
SJÓNVARP
FÖSTUDAGUR
4. janúar