Morgunblaðið - 04.01.1985, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1985
------------I Kína:
19
Á 5 ára afmæli innrásar Rússa í Afganistan
íranir komast á snoðir
um fúlgu íranskeisara
Lundúnum, 3. janúar. AP.
BKESKA dagblaðið Daily
Mail greindi frá því fyrr í
vikunni, að íranskir ráða-
menn hefðu fyrir tilviljun
frétt af tilvist bankahólfs í
Sviss sem var í eigu fyrrum
íranskeisarans heitins. Segir
blaðið útsendara Khomeinis
erkiklerks hafa farið fyrir
skömmu til Ziirich í þeim er-
indagjörðum að leysa fjár-
munina sem þar er að finna
út. I»að mun hafa gengið
brösulega.
Hér er um miklar upphæðir
að ræða og keisarinn er talinn
hafa látið opna reikninginn ein-
hvern tíma laust fyrir árið 1978.
Resha l’alavi fyrrum íranskeisari.
Segir blaðið upphæðina nema
270 milljónum dollara og telja
Iranir peningunum vel varið í
stríðsreksturinn gegn írak. Hef-
ur breska blaðið eftir heimilda-
mönnum sínum, að írönsk
stjórnvöld líti svo á að þau séu
hinn rétti eigandi fúlgunnar,
ýmsir ættingjar keisarans séu
hins vegar á öðru máli þó ekki
hafi þeir tækifæri eða aðstöðu
til að leysa aurana út.
Er ekki ólíklegt að málavafst-
ur verði í kjölfarið á hinni
óvæntu uppgötvun íranstjórn-
arinnar og í frétt blaðsins er
gefið í skyn að Svisslendingar
séu lítið hrifnir af því að eiga
kannski í vændum einhverjar
hefndaraðgerðir í líki hryðju-
verka.
Bardagar á landamær-
um Kína og Víetnam
Tókýó, 3. janúar. AP.
STJÓRNVÖLD í Hanoi, höfuðstað
Víetnam, greindu frá því í dag, að
víetnamskar hersveitir hefðu drepið
400 kínverska hermenn og hrundið
um leið innrásartilraun Kínverja inn
í landið. Á þetta að hafa átt sér stað
dagana 21. til 25. desember.
Yfirvöld í Peking hafa ekki tjáð
sig um atburðina, en síðustu árin
hafa margar ásakanir í sama dúr
dunið á deiluaðilum og ef marka
má allt, hafa þúsundir fallið síðan
árið 1979 er Kína og Víetnam áttu
í stuttu en blóði drifnu landa-
mærastríði. Víetnamar segja nú,
að kínverskar hersveitir hafi ráð-
ist á ákveðið svæði og náð þar
fótfestu á víetnömsku landsvæði,
en síðan hafi heimamenn hafið
mikla gagnsókn sem valdið hafi
miklu manntjóni i röðum Kín-
verja.
Fjórtán sovéskir gyðingar:
Mannréttindi verði
rædd á Genfarfundi
Moftkvu, 3. janúar. AP.
FJÓRTÁN sovéskir gyðingar, sem
ekki hafa fengið leyfi til að flytja frá
heimalandi sínu, hafa sent frá sér
áskorun þar sem Gromyko, utanrík-
isráðherra Sovétrikjanna, og Shultz,
utanríkisráðherra Kandaríkjanna,
eru hvattir til að raeða mann-
réttindamál á fundi þeirra, sem
hefst í Genf í næstu viku.
Ónafngreindur maður, sem
hafði samband við vestræna
fréttamenn í Moskvu, sagði að
bréf þessa efnis hefði verið sent í
utanríkisráðuneytið í Moskvu og
til ræðismanns Bandarikjanna í
Leningrad.
Maðurinn sagði að það væri
skoðun hópsins að mannréttinda-
mál flokkuðust undir öryggismál
og því væri eðlilegt að ræða þau á
Genfarfundinum. Hann sagði að
ef sovésk stjórnvöld leyfðu gyðing-
um að fara óáreittum úr landi
væri það stórt skref fram á við til
að bæta sambúð og efla traust
milli rikja heims.
Rithöfundum lofað
auknu olnbogarými
Peking, 4. janúar. AP.
KÍNVERSKUM rithöfundum sem haldið hefur verið í listrænni spennitreyju
frá því í hreinsununum 1957, hefur nú verið lofað auknu tjáningarfrelsi, auk
þess sem þeim hefur verið sagt að þeir verði ekki framar leiksoppar stjórn-
málanna.
Hu Qili, sem sæti á í stjórn-
málanefnd kommúnistaflokksins,
tilkynnti þetta á laugardag, við
upphaf átta daga landsþings kín-
versku rithöfundasamtakanna.
Frásagnir af þinginu birtust í
kínverskum blöðum á sunnudag.
Hu sagði, að rithöfundar yrðu
að vera meðvitaðir um þjóðfé-
lagslega ábyrgð sína og vinna á
móti kapítalisma og landeigenda-
stefnu; slíkt væri enda í samræmi
við hefðbundna stefnu flokksins.
En hann kvað embættismenn
hafa gengið allt of langt í að
stimpla einstaka höfunda og fella
dóma yfir verkum þeirra án þess
að vera færir um að skilja það
starf sem að baki lægi. „Kínversk-
ir rithöfundar eru góðir, og flokk-
urinn og þjóðin bera fullt traust
til þeirra,“ sagði Hu við þátttak-
endur á ráðstefnunni, en hana
sitja um 800 rithöfundar.
Bandaríkin:
Sérkennileg
hjónavígsla
Peoria, Illinois, 3. janúar. AP.
MARK Songer vildi að faðir hans væri viðstaddur þegar hann gengi í
það heilaga en þá kom það babb í bátinn, að faðir hans lést á jóladag.
Songer og heitmey hans gáfust þó ekki upp við svo búið hcldur létu þau
prestinn gefa sig saman við opna ki
„Ég veit ekki hvers vegna mér
datt þetta í hug,“ sagði Songer.
„Pabba þótti mjög vænt um kon-
una mína og foreldrum mínum
fannst skipta miklu, að við
gengjum í hjónaband." Mark
Songer og kona hans bjuggu
saman í óvígðri sambúð í átta ár.
Presturinn, sem gaf brúðhjón-
in saman, sagði, að vígslan hefði
verið ósköp venjuleg en við-
staddir hana voru 18 vinir og
venslamenn. Brúðguminn var í
bláum fötum, brúðurin í ljós-
bláum og William Songer, fjöl-
skyldufaðirinn, var í svörtum
jakkafötum í kistunni.
„Ég er viss um, að hann hefði
kunnað að meta þetta,“ sagði
presturinn. „Hann hafði svo
skemmtilega kímnigáfu."
frá og með 1. janúar 1985
INNLÁN: NAFNVEXTIR: ARSAvOXTUN:
Almennar sparisjóðsbækur 24,00% 24,00%
3ja mán. sparireikn. m. uppsögn 27,00% 28,80%
6 mán. sparireikn. m. uppsögn 30,00% 32,25%
6 mán. innlánsskírteini 30,00% 32,30%
12 mán. sparireikn. m. uppsögn 32,00% 34,60%
Sér-Bók 30,00% + 3X2,00%
Lifeyrisbók 31,00%
Verðtryggðir reikningar:
3ja mánaða 4,00%
6 mánaða 6,50%
Stjörnureikningar - æska 8,00%
Stjörnureikningar - atdraðlr 8,00%
3ja stjörnu reikningar 9,00%
Hlaupareiknlngar 16,00%
Ávisanareikningar 22,00%
Innlendlr gjaldey risreikningar:
Innstæður i Bandaríkjadollurum 9,50%
Innstæður Isterlingspundum 9,50%
Innstæður í dönskum krónum 9,50%
Innstæður I v-þýskum mörkum 4,00%
ÚTLÁN:
Hlaupareikningar 32,00%
Almennir víxlar 31,00%
Viðsklptavfxlar 32,00%
Skuldabréfalán 34,00% 36,90%
Verðtryggð skuldabréfalán:
- lánstlmi allt að 2’A ár- 4,00%
- lánstimi minnst 2'A ár - 5,00%
Endurseljanleg lán 24,00%
Dráttarvextir skv. tilk. Seðlabanka (sl.
Framanskráð ákvæði eru breytileg án fyrirvara, skv. ákvörðun banka-
ráðs Alþýðubankans hf., eða Seðlabanka (slands þar sem við á.
Við gerum vel vió okkar folk
Alþýðubankinn hf.
Laugavegi 31 sími 28700 Útibú Suðurlandsbraut 30 simi 82911