Morgunblaðið - 04.01.1985, Side 26
26
MORGUNBLADIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÖAR 1985
+
Maöurinn minn, sonur og faöir,
INGIBERGUR KRISTJÁNSSON,
andaöist 18. desember I Landspftalanum. Útförin hefur fariö fram.
Þökkum auösýnda samúö.
Auöbjörg Ingimarsdóttir,
Kristjón Júlfusson,
Sólveig Ingibsrgsdóttir,
Arnþór Ingibergsson,
Geirlaug Ingibergsdóttir,
tengdabörn og barnabörn.
t
Systir min,
ODDNÝ GUNNHILDUR GUDMUNDSDÓTTIR
kennari,
frá Hóli á Langanesi,
lést af slysförum 2. janúar sl.
Kveöjuathöfn fer fram frá Raufarhaf narkirk ju laugardaginn 5. janúar
kl. 14.00. Jaröarförin veröur auglýst siöar.
Gunnar Guömundsson.
+
HÖGNI HALLDÓRSSON,
Langholtsvegi 145,
lést i Landspitalanum 28. desember.
Fanny Egilson,
Guörún og Charles Ansiau,
Chriatine Ansiau,
Caterhine Ansiau,
Chantal Ansiau,
Erta Egileon og Skarphéöinn Loftason.
+
Eiginmaöur minn,
EINAR BENEDIKTSSON
lyfsali,
Heiöarbrún 12, Hverageröi,
andaöist i Borgarspitalanum 2. janúar.
Fyrir hönd barna okkar,
Anna Guölaug Ólafsdóttir.
+
Eiginkona min, móöir okkar, tengdamóöir og amma,
HULDA VICTORSDÓTTIR,
lést i Landspitalanum 2. janúar sl.
Anton Sigurösson,
Anna Eygió Antonsdóttir, Hallsteinn Sverrisson,
Erna Björk Antonadóttir, Siguröur Sveinsson,
Eygló Björk Ólafsdóttir, Anton Sigurösson,
Anna Hulda Siguröardóttir.
+
Okkar elskulegi faöir, tengdafaöir og afi,
ÁGÚST ELÍSSON,
andaöist aö heimili sinu, Njálsgötu 49, aöfaranótt 2. janúar.
Þórdis K. Ágústdóttir,
Kolbeinn Koibeinsson
og börn.
+
Eiginkona min,
HREFNA HJÖRLEIFSDÓTTIR,
Sjafnargötu 10,
Reykjavik,
lést í Landspitalanum laugardaginn 29. desember.
Haraldur Ólafsson.
+
Bróöir minn,
MARKÚ8JÓNSSON
frá Rauðsbakka,
sem lést aö heimili sinu Steinum, Austur-Eyjafjallahreppi, 28.
desember, veröur jarösunginn frá Eyvindarhólakirkju, laugar-
daginn 5. janúar kl. 14.00.
Jónína Jónsdóttir.
Minning:
Zophonías Péturg-
son forseti NLFÍ
Við, sem komin erum á hin efri
árin, megum þrátt horfa á sam-
ferðarmennina, einkum jafnaldr-
ana, hverfa okkur af jarðvistar-
sviðinu, hvern af öðrum. Guð-
mundur skólaskáld lýsir þessu
svo:
„Sumarblíðu sólskinsvorin
saman gengu þeir og ég,
vinir mínir — allir, allir
eins og skuggar liðu þeir
inn í rökkurhljóðar hallir;
hallir dauðans — einn og tveir
einn — og — tveir.“
Á þriðja í jólum, 27. des. sl.,
hvarf af sjónarsviðinu Zophonfas
Pétursson, fyrrum deildarstjóri
hjá Tryggingastofnun rikisins.
Hann var af mörgum að góðu
þekktur þaðan og naut almennra
vinsælda. Aðrir, og þar á meðal
við hjón, þekktu hann af samneyti;
kynntust annarri hlið þessa sér-
stæða manns, og eiga frá þeim
kynnum dýrmætar og ógleyman-
legar minningar.
Persónuleg kynni okkar Zoph-
oníasar hófust ekki fyrr en 1972,
en síðan höfum við átt talsvert
saman að sælda og notið vináttu
hans og hugljúfra eiginleika. Og
það er í tilefni af þeim samveru-
stundum, sem ég skrifa þessar lín-
ur. Hvort tveggja er, að lífsferill
Zophoníasar á ytra borði er mörg-
um kunnur, enda aðgengilegur i
opinberum æviskrám, auk þess
sem aðrir og kunnugri menn
Zophoníasi frá fyrri tíð hljóta að
minnast hans. En víða kom hann
við sögu.
Eftir því sem ég kynntist Zoph-
oníasi Péturssyni nánar, því Ijós-
ari grein gerði ég mér fyrir sérleik
hans og hástæðu lífsviðhorfi á
þeirri óvenjulegu þroskabraut ein-
farans, sem hann valdi sér og
fórnaði miklu til að feta sem
lengst, m.a. með ferðum og náms-
og starfsdvöl í Austurlöndum nær
og fjær. Og samhygð hans með
samferðarmönnunum olli því að
hann gerði sér far um að leyfa
öðrum að slást í fylgd með sér um
lengri eða skemmri tíma og njóta
gleði og lífsfyllingar eftir því sem
aðstæður leyfðu og þeir voru
mennirnir til. Allt var það af óeig-
ingirni, alúð og kærleika gert.
f fullan áratug hélt Zophonías
og nokkrir traustir félagar hans
uppi yoga-fræðslu vestur á Snæ-
fellsnesi — stað, sem hann hafði
miklar mætur á til andlegrar upp-
byggingar eftir þeim þroskaleið-
um, er hann taldi sig hafa fundið
sem „raunsönnu gæðin". Þar
byggði hann hin síðari árin fjöl-
skyldu sinni og vinum „hvíldar- og
kærleikans hús“ — Álfafell — þar
sem margir nutu góðra og gefandi
stunda. En áminnzt „gæði“ var að
vísu ekki öll að finna innan
spjalda Biblíunnar. Víðar var að
hans dómi
„vizkan hin sanna og lifandi innblásin list
lifsferill manna, er tilbiðja Búddha og Krist."
Það leyndi sér þó aldrei, að hinn
síðarnefndi — „meistari meistar-
anna“ — stóð bæði Búddha og öll-
um öðrum meisturum ofar, þegar
Zophonías „minntist þess, er hann
fegurst og dýrðlegast fann“. Hann
gat því áfram heilshugar tekið
undir orð Grétars Fells:
„Það var mér löngum sem þögn yfir dag-
anna gný
það var mér söngur án orða ... “
Ég veit ég má segja, að við öll —
ekki ókristnara fólk en gengur og
gerist — sem sóttum sumarskóla
yoga-bræðralagsins á Arnarstapa
í fleiri eða færri skipti undir
handleiðslu og leiðsögn Zophoní-
asar, munum ætíð geyma þakklát-
um huga allar þær hugvekjandi
fræðslustundir. Og ég veit fyrir
víst að þá og þar í fátæklegum
salarkynnum hins mishelga fé-
lagsheimilis „Snæfells" á Stapa
áttu margir „augnablik helguð af
himinsins náð“. I fræðslu, andleg-
um og líkamlegum æfingum —
hugleiðslu og bæn undir fagurri
músík, leiddi Zophonías hugi
okkar og hjörtu í hæðir — „ofar
dagsins eldi, já ofar heimsins sól“.
Zophonías var á sínum beztu
stundum frábær fræðari og fyrir-
lesari, sem jós ótæpt af brunni
þekkingar sinnar og vizku. Og það
var engu líkara en að hann þá
hæfist í hærra veldi, enda maður-
inn gæddur dulrænum hæfileikum
og hvarf stundum sjálfum sér og
þessum heimi, fór sálförum og
skynjaði „gegnum holt og hæðir“,
þótt hann ekki beinlínis „sæi“. Ég
fyrir mitt leyti efa ekki dulrænt
og óskýranlegt samband Zophoní-
asar við æðri þroskaverur í marg-
slungnum og óskilgreinanlegum
heimi andans.
Slíkum kynnum, sem ég hef hér
reynt að gefa lítillega í skyn, er
ekki unnt að gleyma. Þau vaka f
vitundinni, og bein og óbein áhrif
þeirra seytla óaflátlega inn í hug
manns og hjarta.
Og einu vildi ég undir ríkjandi
kringumstæðum sízt gleyma:
Þessi áminntu ár — (því Zophoní-
as gleymdi okkur nemendum sín-
um ekki heldur að vetrinum, þegar
samkomur þessa umrædda hóps
voru stundum reglubundnar og
alltíðar) — stóð hann ekki einn að
verki. Glæsileg eiginkona hans,
Stella Gunnur Sigurðardóttir frá
Aðalvík, einnig næm og gædd dul-
rænum hæfileikum, var honum
aðdáanlega samstiga og stóð þétt
við hlið hans í blíðu og stríðu.
Ekki sízt var þetta áberandi sein-
ustu mánuði, vikur og daga, þegar
banvænn sjúkdómur herjaði hart
á hann, en lífskrafturinn samt svo
mikill, að sjúklingurinn svo að
segja reis beint upp af sjúkrabeði
sínum til að takast á hendur um-
fangsmikla fararstjórn fjölmenns
hóps félaga sinna úr Frímúrara-
reglunni til Egyptalands og ísrael,
Landsins helga, í m.a. víðtækri
leit að Ijósi og sannleika.
Af þvi ég sjálfur á ekki betri,
kveð ég vin minn og bróður með
orðum skálds og andans manns til
annars leitandi anda:
„Útsýnisfagurri
undralanda
ertu á strönd staddur,
og til mikilla
morgunverka
efalaust ertu kvaddur."
Ég veit honum mun vinnast þau
vel.
Baldvin Þ. Kristjánsson
Foringi „Edda-Group“ og kær
br. Zophonías Pétursson er fallinn
í valinn. Hann andaðist að morgni
27. des. ’84 á Landspítalanum, eft-
ir stutta en þunga legu.
Vinir og ferðafélagar lúta höfði
í þögulli virðingu og eftirsjá. Upp
í huga minn leita, eins og ósjálf-
rátt, hinar fögru Ijóðlínur úr píla-
grímssöngnum úr „Tannháuser",
eftir R. Wagner.
„Nú hýmar geð, ég sé heim inn í daginn,
í himindýrð lít ég bláfjallasalinn.”
Þessi vinur okkar og ferðagarp-
ur hefur nú lagt frá sér staf sinn
um stund og lagt upp I för sína á
drottins fund. Við sem eftir stönd-
um og kveðjum góðan félaga og
samferðamann, njótum nú ekki
lengur leiðsagnar óvenjulegs pers-
ónuleika og fjölfróðs manns.
Margs er að minnast, bæði inn-
an þess félagsskapar sem við vor-
um í, svo og þeirra mörgu hóp-
ferða til fjarlægra landa er Zóph-
ónías stuðlaði að og stóð fyrir. Ég
minnist þess, hversu ánægjulegra
þær stundir voru, þegr hann kall-
aði hópinn eða réttara sagt hóp-
ana saman til skrafs og ráðagerða
í sambandi við fyrirhugaðar ferð-
ir. Allt var, þá þegar, frá hans
hendi svo þrautskipulagt og undir-
búið, að sjaldan þurfti miklu að
breyta.
Ekki var síður skemmtilegt, er
menn hittust aftur heima að vel
heppnuðu ferðalagi loknu, með
myndasýningar o.fl. Allt þetta féll
í góðan jarðveg og tengdi okkur
enn sterkari vináttuböndum.
Zophonías var að sjálfsögðu
sjálfkjörinn foringi hópsins á slík-
um ferðalögum, sem hann skipu-
lagði og stjórnaði með reisn. Það
var unun að hlusta á nær ótæm-
andi fróðleik hans og frásagnar-
gleði. Á skýran og skemmtilegan
máta leiddi hann áheyrendur sína
inn í töfraheimforn Egypta eða
Grikkja, er við á ferðum okkar um
þessi lönd, gengum um hin fornu
musteri eða musterisrústir. Eða
þá að hann rakti sögu Gyðinga, er
farið var um byggðir ísraels, svo
að staðir og stund urðu okkur
ferðafélögunum miklu meira lif-
andi og ógleymanleg en ella. Ég
minnist þess, að stundum kom það
fyrir að hann tók fram í fyrir leið-
sögumönnunum í lýsingum þeirra
þegar honum blöskraði söguleg
vanþekking þeirra, og var umhug-
að um að við fengjum sem besta
fræðslu um þá staði sem hópurinn
var staddur á.
Fyrir allt þetta og svo margt
annað, sem þessi glaðlyndi og fé-
lagslyndi maður auðgaði anda
okkar með, erum við honum af
hjarta þakklát. Ég held að í raun
hafi Zophonías Pétursson verið
bæði dulspekingur og fræðari,
þannig kom hann mér að minnsta
kosti fyrir sjónir. Hann vildi
kenna okkur og öðrum að finna
sjálfa okkur, finna út hvernig við
værum, hvað við vildum, ekki vera
það, sem aðrir vilja að maður
væri, heldur vera við sjálf, — þá
fyrst myndum við skilja gleðina.
Ekki vil ég skiljast svo við þessa
fátæklegu kveðju okkar til hans að
ég minnist ekki á góðgirni hans og
nærfærni við þá, er höllum fæti
stóðu í lífsbaráttunni, en þar stóð
raunar elskuleg kona hans, Stella
Sigurðardóttir, dyggilega við hlið
hans. Það var ekki ófáum sem þau
hjónin réttu hjálparhönd á ferð-
um þeirra til Egyptalands. Slíkt
hugarþel vermir og gleður.
Ánnars, held ég að ég megi
segja, að Zophonías var ekki fyrir
að flíka tilfinningum sínum, gat
jafnvel á stundum verið snöggur
upp á manninn, en undir niðri sló
milt og gott hjarta, sem ég held að
ekkert mátti aumt sjá.
Um Zophonías eiga vissuleg
þessar ljóðlínur Stefáns G. vel við.
Hreifur fram á síðustu stund
hann um mein sitt þagði.
Faldisína opnu und,
undir glöðu bragði.
Og nú, er leiðir skiljast um
stund, þökkum við hóparnir í
„Edda-Group“ samfylgdina og
leiðsögnina og biðjum mætum br.
Guðs blessunar á þeim leiðum,
sem hann nú hefur lagt út á.
Stellu, eftirlifandi konu hans, og
öðru skyldfólki, vottum við samúð
og óskum þeim styrks í söknuði
þeirra, minnug þess að
„senn dvínar nóttin
og dimman flýr,
og dagur ljómar í austri nýr.“