Morgunblaðið - 04.01.1985, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1985
Atli Einarsson frá ísafirði samdi við Lokeren fram á vor:
Félagið hefur áhuga á að
framlengja samninginn
ATLI Einarsson, íþróttamaöur
frá Ísafírði, hefur gert at-
vinnusamning fram á vor viö
belgíska 1. deildarfélagið
Lokeren. Atli er fjölhæfur
íþróttamaöur; hefur keppt á
skíöum undanfarin ár jafn-
framt því aö leika knatt-
spyrnu — en hefur nú ákveö-
iö aö taka knattspyrnuna
framyfir.
Atli var um tíma í haust viö æf-
ingar hjá St. Niiklas, ööru 1. deild-
arfélagi í Belgíu, en ekkert varö úr
samningi viö þaö liö. Aö sögn Ein-
ars Vals Kristjánssonar, fööur Atla,
stóöu forráöamenn St. Niiklas ekki
viö gefin loforö og kom Atli því
heim aö æfingatímanum loknum.
Er Atli var kominn til ísafjarðar á
ný höföu forráöamenn Lokeren
samband viö hann, en þeir höföu
fylgst meö honum er hann dvaldi
ytra, og höföu áhuga á aö fá hann
til sín. Buöu þeir honum leigu-
samning fram á vor. Atli fór aftur
utan og gekk frá þeim samningi og
dvelur hjá liöinu fram á voriö.
Hann hefur leikiö meö varaliöinu
aö undanförnu.
Forráöamenn Lokeren hafa sýnt
áhuga á því aö gera lengri samning
viö Atla eftir aö þessu keppnis-
tímabili lýkur.
Eins og áöur segir hefur Atli
keppt á skíöum á undanförnum ár-
um og á síöasta landsmóti, sem
fram fór á Akureyri, varö hann í
öðru sæti í svigi, stórsvigi og alpa-
tvíkeppni. Síöastliöið vor var hann
valinn í landsliös íslands á skíöum.
Liöiö æföi í Kerlingafjöllum í
sumar, en Atli taldi sér ekki fært
fjárhagslega aö fara á fyrstu æf-
inguna, og þaö geröi þaö aö verk-
um, aö sögn fööur hans, aö hann
var ekki lengur inni í myndinni hjá
SKÍ. Eftir þetta ákvaö Atli aö snúa
sér alfariö aö knattspyrnu. Hann
lék meö 2. deildarliöi ÍBÍ í sumar
og stóö sig mjög vel. Atli er 18 ára
aö aldri, og þykir mjög sterkur
framherji.
• Atli Einarsson
Sigurður T.
gengur í FH
SIGURÐUR T. Sigurósson, Ís-
landsmethafinn í stangar-
stökki, hefur gengió úr KR í
FH. FH bættist annar liðsauki
fyrir fáeinum dögum, þar sem
var félagí Sigurðar úr íslenska
landslióinu, Jón Diöriksson,
millivegalengdahlaupari.
Fram Reykja-
víkurmeistari
innanhúss
' FRAM varó Reykjavíkurmeistari í
innanhússknattspyrnu. Fram
sigraói lið KR með sjö mörkum
gegn þremur í úrslitaleiknum. í
hálfleík var staóan 5—1 fyrir
Fram. Fram var betra liðið í leikn-
um og veröskuldaöi sigurinn.
Guðmundur Torfason skoraöi
fjögur af mörkum Fram. Sverrir
Einarsson og Bragi Björnsson
skoruðu sitt markiö hvor. Eitt
markanna var sjálfsmark. Mörk
KR skoruðu Willum Þórsson, Sæ-
bjðrn Guðmundsson og Elías
Guömundsson.
í meistaraflokki karla var leikiö í
tveimur riölum og uröu riðlunum þessi: A-riðill: úrslitin í
Fylkir — KR 5—6
Ármann — Valur 2—11
Víkingur — Fylkir 4—9
KR — Ármann 11—4
Ármann — Víkingur 2—8
Valur — KR 5—5
Fylkir — Armann 12—5
Víkingur — Valur 5—10
KR — Víkingur 14—5
Valur — Fylkir 5—3
B-riðill:
ÍR — Þróttur 4—4
Leiknir — Fram 4—13
Þróttur — Fram 4—10
ÍR — Leiknir 10—3
Leiknir — Þróttur 3—5
Fram — ÍR 8—3
• Guömundur Torfason
Norðmenn unnu
íslendinga
í gærkvöldi
- unglingalandsliðið tapaöi í fyrrakvöld
NORÐMENN sigruðu íslendinga í
vináttulandsleik í körfuknattleik í
Noregi í gærkvöldi, 81:79, eftir aó
staðan hafói veriö 44:41 í leikhléi.
Leikur liðanna var fjörugur og oft
á tiöum vel leikinn.
Valur Ingimundarson skoraði
flest stig islendinga í gær, 29. ívar
Webster, sem þarna lék sinn fyrsta
landsleik fyrir íslands hönd, eftir
aö hann hlaut íslenskan ríkisborg-
ararétt, skoraöi 16 stig og hirti aö
auki 18 fráköst sem er frábær
árangur. Pálmar Sigurösson og
Torfi Magnússon skoruöu átta stig
hvor.
í fyrrakvöld lék ísland gegn
Norðmönnum á Noröurlandamóti
unglingalandsliöa í Svíþjóö. Norö-
menn unnu stórt, 86:69. Staöan í
leikhléi 42:34.
Akureyrarliðin
leika í kvöld
EINN leikur verður í 2. deild
handboltans í kvöld, Akureyrarfé-
lögin KA og Þór mætast í íþrótta-
höllinni fyrir norðan og hefst viö-
ureign þeirra kl. 20.30. Leikurinn
átti að vera á morgun skv. móta-
bók en var færöur fram.
• Akureyrarmeistarar Þórs í meistaraflokki, frá hægri: Sigurbjörn Viöarsson, Bjarni Sveinbjörnsson,
Nói Björnsson, Júlíus Tryggvason, Magnús Helgason og Jónas Róbertsson. Jónas var meiddur og gat
ekki leikið með — en hann stjórnaói liöinu í mótinu.
Þórsarar sigruðu í
meistaraflokki karla
ÞÓRSARAR sigruðu í meistara-
flokki karla á Akureyrarmótinu í
innanhússknattspyrnu, sem
fram fór milli jóla og nýárs í
íþróttahöllinni. KA og Þór sigr-
uðu bæöi lið Vasks í meistara-
flokki karla, og Þór sigraöi síð-
an KA 2:1 í hreinum úrslitaleik.
Þór sigraöi alls í 12 leikjum á
Akureyrarmótinu, KA sigraöi í 9
leikjum.
Mótiö stóö yfir í tvo daga,
föstudag 28. og laugardag 29.
desember.
KA sigraöi í A-liöi 6. flokks,
3:1, Þór sigraöi 1:0 í B-liöinu og
KA 4:0 í C-liöinu. Þór sigraöi 5:2
í A-liöi 5. flokks, KA 4:1 í B-liöinu
og í C-liði 5. flokks sigraöi Þór
4:2.
í 4. flokki voru einnig þrjú liö,
KA vann A-liöiö 2:1, B-liöiö einn-
ig 2:1 og Þór vann C-liöið 5:4.
Þór vann síöan 3. flokk A 3:1.
Þór vann 3. flokk B 6:5 og KA
vann 3. flokk C 4:1. KA vann í 1.
flokki, en þar voru þrjú lið, KA,
Þór og Vaskur. KA sigraði Vask
6:4, Þór vann Vask 6:2 og KA
sigraöi síöan Þór 5:3. í meistara-
flokki kvenna sigraöi KA í A-liö-
inu eftir framlengingu, 5:4, en
Þór vann B-liöiö 5:2.
í yngri fiokki kvenna sigraöi
Þór þrefalt; 1:0 í A-liðinu, 3:0 í
B-liöinu og 2:0 i C-liöinu. í eldri
flokki, Old Boys, sigraöi KA 6:2.
í meistaraflokki karla var um
mikla baráttu aö ræöa. Þór átti
aö leika viö Vask á föstudags-
kvöld, en leiknum varö aö fresta
þar sem Höllin fór aö leka! Á
laugardag léku því bæöi Þór og
KA viö Vask áöur en þau lið
mættust. KA sigraöi Vask 7:4 og
og áöur sagöi sigraöi Þór svo KA
2:1 í úrslitaleiknum.
Ekki fór verölaunaafhending
fram eins og til stóð af óviöráö-
anlegum ástæöum, og veröur
haldin sérstök uppskeruhátíö á
vegum Knattspyrnuráös Akur-
eyrar þar sem verölaun veröa af-
hent.
• Nói Björnsson, fyrirliöi Þórs, skorar fyrra mark liós síns í leikn-
um gegn KA.