Morgunblaðið - 04.01.1985, Side 40
HIEKKURIHBMSKEÐJU
bóling ®J
favi e*t
faáfr (yiu*uz%!
FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
SÍS undir smásjá skattrannsóknarstjóra:
Hálf milljón dollara ekki
skilað sér til landsins
ÞAU BÍÐA róleg eftir farangrinum
sínum á Reykjavíkurflu(rvelli í gær-
kvóld — búin að fljúga með Boeing
727 þotu frá Akureyri til Keflavíkur
og ferðast með rútubfl til höfuðborg-
arinnar. Veðurskilyrði leyfðu flug á
alla áætlunarstaði Flugleiða í gær að
Vestmannaeyjum frátöldum. Yfirvof-
andi flugvélaskortur olli því, að sam-
eina varð nokkrar ferðir frá Akureyri
til Reykjavíkur í tvær ferðir með þot-
unni.
Morgunblaðið/RAX
— tvöfalt reikningakerfi á
kaffikaupum frá Brazilíu
UMFANGSMIKIL rannsókn á bókhaldi Sambands íslenskra samvinnufé-
l«ga og dótturfyrirtækisins Kafflbrennslu Akureyrar hf., sem framleiðir
Bragakaffl, hefur leitt í Ijós, að endurgreiðslur opinberra kafflsala í Brazilíu
fyrir sölu á kaffl á árunum 1979, 1980 og 1981 höfnuðu í sjóðum Sambands-
ins en ekki kafflbrennslunnar. Rannsókn á vegum skattrannsóknarstjóra er
nú lokið en gjaldeyriseftirlit Seðlabankans kannar enn hvað orðið hefur um
hálfa milljón Bandaríkjadala (jafnvirði tæplega 20,3 millj. ísl. kr.), sem ekki
hafa skilað sér til íslenskra gjaldeyrisyflrvalda.
Samkvæmt upplýsingum Morg- raun varð á. Þegar þetta kom í ljós
unblaðsins framvísaði Sambandið
reikningum án þess afsláttar, sem
sölufyrirtækið í Brazilíu veitti, er
fengnar voru gjaldeyrisyfirfærslur
til að borga fyrir kaffið. Munaði þar
45—50%, eins og sést best á því að
yfirfært var fyrir samtals 16 millj-
ónir dollara (jafnvirði tæpl. 650
milljóna króna á gengi dagsins) en i
raun ekki greidd nema hálf ellefta
milljón dala. Mismunurinn, 5,5
milljónir dala (223 millj.), hafnaði í
sjóðum SÍS en var endurgreiddur
Kaffibrennslu Akureyrar hf. að
langmestu leyti þegar rannsóknin
stóð sem hæst á sl. ári. Enn hefur
Sambandið ekki endurgreitt dótt-
urfyrirtæki sínu á Akureyri allan
vaxtakostnað, sem kaffibrennslan
hafði af því að fá ekki afsláttinn sér
til góða.
Viðskipti þessi annaðist skrif-
stofa SÍS f London, sem á umrædd-
um tíma heyrði beint undir Erlend
Einarsson, forstjóra Sambandsins.
Kaffið var keypt í gegnum Nordisk
Andelsforbund (NAF), innkaupa-
samband samvinnufélaga á Norður-
löndum, sem Sambandið hefur um-
boð fyrir og Erlendur Einarsson er
jttjórnarmaður í. Samkvæmt upp-
lýsingum Mbl. munu þessi viðskipti
hafa farið fram þannig, að brazil-
iska sölufyrirtækið veitir kaupend-
um afslátt. Þannig hafi til dæmis
verið keypt kaffi fyrir 200 dollara
og af því hafi helmingurinn verið
reiknaður í afslátt eða bónus á
næstu kaup. Þá hafi verið keypt
fyrir 300 dollara en til góða var
bónus upp á 100 og því hafi komið
reikningur til skrifstofu SÍS í Lond-
on fyrir 300 dali að frátöldum áður-
nefndum 100. Nýr 300 dala reikn-
ingur hafi verið sendur heim til ís-
lands og yfirfærður gjaldeyrir eftir
honum en mismunurinn verið færð-
ur sem afsláttur og umboðslaun í
bækur Sambandsins. Sömuleiðis
mun hafa komið í Ijós, að reikn-
ingar hafi verið hækkaðir með um-
boðslaunum — þ.e. umboðslaunum
hafi verið bætt ofan á reikninga.
Forstöðumaður skrifstofu SlS í
London, Sigurður Á. Sigurðsson,
vildi í gær ekki tjá sig um málið.
Mbl. tókst ekki að ná í Erlend Ein-
arsson, forstjóra, eða Val Arnþórs-
son, stjórnarformann SÍS og Kaffi-
brennslu Akureyrar hf. Hjalti
Pálsson, framkvæmdastjóri versl-
unardeildar Sambandsins, sem
annast öll innkaup, sagði í gær-
kvöld að ekkihefði verið ljóst á sín-
um tíma hversu mikill afsláttur
fengist — það hefði getað tekið
nokkra mánuði að sjá hversu mikils
virði hann væri vegna þess hve inn-
kaupin hefðu verið stopul. „Við
vissum eiginlega ekki hvað var að
gerast, við héldum að þessi bónus
yrði miklu minni,“ sagði hann. „Það
var raunar öllum ljóst, að þarna var
að myndast fjármagn en við héld-
um að það myndi flæða undan og að
það myndi gerast miklu fyrr en
fórum við að velta fyrir okkur hver
væri réttur hvers — okkar sem um-
boðsmanns og Kaffibrennslu Akur-
eyrar hf. sem kaupanda — og kom-
umst að þeirri niðurstöðu, að það
væri kaffibrennslan, sem ætti þetta
fé. Því hefur það verið greitt þang-
að. Það hefur enginn einstaklingur
hagnast á þessu, þetta mál er alls
ekki þannig vaxið.“
I DV í gær var haft eftir Sigurði
Jóhannessyni, forstöðumanni
Gjaldeyriseftirlits Seðlabankans,
að hann reiknaði með að þegar at-
hugun eftirlitsins væri lokið yrði
málið sent ríkissaksóknara til með-
ferðar.
Heimílislæknar krefjast
160 % hækkun á gjaldskrá
„ÞAÐ ER einungis farið fram á það
í kröfugerð okkar, að kjör okkar
verði gerð svipuð og annarra lækna í
landinu, en eins og nú horflr er allt
útlit fyrir að róttækar aðgerðir þurfl
að koma til, til að þessar réttmætu
kröfur okkar nái fram að ganga,“
sagði Gunnar Ingi Gunnarsson,
heilsugæslulæknir í samtali við
Morgunblaðið, en hann er í fyrir-
svari fyrir kjararáði heimilis- og
heilsugæslulækna í samningavið-
ræðum þeirra við ríkisvaldið.
Heimilis- og heilsugæslulæknar
gera kröfu um að gjaldskrá hækki
um 160%, en um það hafi hún
rýrnað frá því 1962—63 miðað við
önnur laun í landinu, og færð til
samræmis við gjaldskrá fyrir sér-
fræðislæknishjálp. í öðru lagi að
kostnaður heimilislækna vegna
rekstrar stofu þrefaldist og verði
60 þúsund í stað 20 þúsunda og
félagskjör þeirra verði færð til
samræmis við kjör annarra
lækna. í þriðja lagi að greiðslur
vegna gæsluvakta heilsugæslu-
lækna verði þrefaldaðar, en þær
séu % af því sem greitt sé fyrir
gæsluvaktir á sjúkrahúsum og
fyrir því sé engin frambærileg
ástæða.
Gjald samkvæmt núverandi
gjaldskrá heimilislæknis á stofu
fyrir viðtal og skoðun er 90 krón-
ur. Þar af greiðir sjúklingurinn 75
Magnús Gamalíels-
son á Ólafsfirði látinn
MAGNÚS Gamalíelsson, útgerðar-
maður á Ólafsflrði, lést í fyrrinótt á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
eftir nokkurra mánaða sjúkdóms-
legu, 85 ára að aldri. Magnús stofn-
aði og hefur í áratugi, síðustu árin
með aðstoð sona sinna, rekið fyrir-
tæki í útgerð og flskvinnslu á Ólafs-
flrði sem nú er stærsta atvinnufyrir-
tækið á staðnum, og jafnframt eitt
stærsta sjávarútvegsfyrirtækið í
einkaeigu á Norðurlandi.
Magnús fæddist þann 7. október
1899 á Hraunum í Austur-Fljót-
um, Skagafjarðarsýslu. Foreldrar
hans voru Gamalíel Friðfinnsson
trésmiður frá Hvammi í Hjaltadal
og kona hans, Helga Sigurlaug
Grímsdóttir. Magnús var formað-
ur á bátum frá Ólafsfirði 1923—33
og hefur stundað útgerð frá 1928
ásamt fiskverkun. Hefur einnig
staðið að útgerð og fiskvinnslu
með öðrum, rak meðal annars
fiskvinnslu- og síldarsöltunarstöð-
var og sá um byggingu Hraðfrysti-
húss ólafsfjarðar hf. sem hann
var framkvæmdastjóri fyrir
fyrstu árin. Magnús lét smíða
fVrsta stálfiskiskipið, Sigurbjörgu
OF-1, í Slippstöðinni á Akureyri
og síðar skuttogara með sama
nafni, en hefur alls látið smiða 4
fiskiskip þar.
Magnús var einn af forgöngu-
mönnum stofnunar rafveitu í
Ólafsfirði og fyrsti formaður
stjórnar hennar. Hann var vara-
bæjarfulltrúi og formaður hafnar-
nefndar um árabil. Átti sæti í
stjórn Vélbátatryggingar Eyja-
fjarðar og stjórn Sparisjóðs Ólafs-
fjarðar. Kjörinn heiðursborgari
Ólafsfjarðarkaupstaðar 25. apríl
1977.
Magnús Gamalíelsson
Árið 1928 kvæntist Magnús eft-
irlifandi eiginkonu sinni, Guð-
finnu Pálsdóttur frá Ulugastöðum
í Fljótum, sem fædd er 21. júnl
1904. Þau eignuðust 5 börn.
krónur, en sjúkrasamlagið 15
krónur, samkvæmt reglugerð heil-
brigðismálaráðherra. Gjaldið, ef
krafan næði fram að ganga, yrði
því 234 krónur í stað 90 króna.
Heimilis- og heilsugæslulæknar
íhuga fjöldauppsagnir og sagði
Gunnar að komið hefði fram við
könnun meðal heilsugæslulækna
vilji meirihluta þeirra til upp-
sagna, en óljóst væri um heimilis-
lækna. Þó væri ljóst að margir
meðal þeirra væru til með að segja
upp samningi sínum við rikisvald-
ið.
Lúðvík Ólafsson, settur borgar-
læknir, sagði að ef af uppsögnum
heimilislækna yrði myndi það
fljótlega leiða til neyðarástands.
Svipaðar aðgerðir lækna hafa ver-
ið í gangi í Finnlandi og i Dan-
mörku.
Um er að ræða þrjá samninga
milli heimilis- og heilsugæslu-
lækna og ríkisvaldsins, almennan
gjaldskrársamning, sem hefur
verið laus frá því 1. mars 1984,
sérsamning heimilislækna sem
starfa utan heilsugæslustöðva, en
gildistíma hans lauk nú um ára-
mótin, og sérsamning lækna sem
starfa á heilsugæslustöðvum, en
hann verður laus 1. mars 1985 og
eru þeir læknar einnig félagar í
Bandalagi háskólamanna.
„Við höfum aldrei verið þrýsti-
hópur og það er ef til vill ástæðan
fyrir því hvernig komið er, en við
sjáum okkur einfaldlega ekki ann-
að fært en kanna vilja félags-
manna okkar til uppsagna," sagði
Gunnar ennfremur.