Morgunblaðið - 08.01.1985, Qupperneq 1
56 SÍÐUR MEÐ 12 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
STOFNAÐ 1913
5. tbl. 72. árg.________________________________ ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Fundur Shultz og Gromyko:
Morgunbladið/RAX
Fréttabann gefur von-
ir um að árangur verði
Genf, 7. janúar. Frá Önnu Bjarnadóttur.
fréttaritara Mbl. AP.
Eina vísbendingin um árangur í sex
klukkustunda viðræðum George
Shultz utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna og Andrei Gromyko utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna var léttlyndi
þeirra í upphafi seinni viðneðufund-
arins og í móttöku að fundunum
loknum. Eina augljósa samkomulag-
ið á fundunum virðist vera samstaða
um að leka ekki til fjölmiðla fréttum
af viðræðunum, þar sem hætt var við
fyrirhugaðan fund bandarískra full-
trúa með fréttamönnum eftir fund-
ina í dag. Boðaður hafði verið fundur
af þessu tagi, eins og venja er, en er
Hundruð
katta
krókna
Rómaborg, 7. jinúar. AP.
Flækingskettir, hin óopinberu
gæludýr Rómaborgar, féllu í
hundruðatali í óvæntum hríðarbyl
um helgina. Drápust kettirnir af
vosbúð í fylgsnum sínum, sem er
að finna í mörgum frægustu
mannvirkjum borgarinnar.
Talið er að 50 þúsund flæk-
ingskettir reiki um Rómaborg
og óttast menn að fjöldi þeirra
eigi eftir að hrynja niður þar
sem efnaskipti katta hægjast
hættulega mikið í frosti.
Sjá nánar: „Vestur-Evrópa í
greipum kuldans" á bls. 20
á daginn leið var hann afboðaður.
Varð þetta til að auka á vonir um að
árangur kynni að nást af fundunum.
Sovézkir fjölmiðlar fjölluðu ekki
um viðræðurnar eða sögðu frá
fundunum sem slíkum, heldur
héldu uppteknum hætti og endur-
birtu afstöðu Sovétmanna til
áframhaldandi viðræðna, þar sem
hart var deilt á stjórn Ronalds
Reagan og ítrekað að áform henn-
ar um smfði geimvopna stæðu i
vegi samkomulags um takmörkun
vígbúnaðar.
Við komuna til Genfar sögðust
Shultz og Gromyko vona að fundir
þeirra myndu leiða til frekari
samningafunda stórveldanna um
afvopnunarmál. Báðir kváðust í
friðarferð og tekið var eftir því að
Gromyko sagði aðeins að afstýra
yrði vopnakapphlaupi í geimnum
en gerði það ekki að skilyrði fyrir
frekari viðræðum, eins og aðrir
sovézkir leiðtogar hafa gert að
undanförnu. Evrópskir leiðtogar
og bandarískir binda miklar vonir
við Genfarviðræðurnar, en þar er
vonast til að samkomulag náist um
skipulag frekari funda, takmark
þeirra og stefnu. Bandarískur full-
trúi sagði það mikinn árangur ef
viðræður Shultz og Gromyko
leiddu til nýrra viðræðna um
fækkun kjarnavopna.
Konstantin Chernenko forseti
Sovétríkjanna sagði Sovétmenn
reiðubúna til „tafarlausra og skel-
eggra“ aðgerða til að stöðva vfg-
búnaðarkapphlaup stórveldanna,
en skilyrði væri að Bandaríkja-
menn hættu við smiði geimvopna.
Búist er við að Reagan haldi blaða-
mannafund á miðvikudag og skýri
frá niðurstöðu Genfarviðræðn-
anna.
Sjá nánar: „l'tanríkisráðherrarn-
ir léttir á brún eftir fyrstu
fundina,“ á bls. 18
Gos í
Bjarnar-
fjalli á
Jan Mayen
Eldgos hófst í hlíðum Bjarn-
arfjalls á nyrsta odda Jan May-
en á sunnudag. Er Morgun-
blaðsmenn flugu þar yfir laust
eftir hádegi í gær var gosið ekki
mikið, eldvirkni var í um 500
metra langri gígaröð og rann
hraun í sjó. Gosmökkurinn steig
upp í um eitt þúsund metra hæð.
Ekki er fyrirhugað að fiytja 25
starfsmenn norskrar veðurat-
hugunarstöðvar á brott, en eftir-
litsskip hefur verið sent á vett-
vang.
Sjá nánar á blaðsíðum
14 og 15.
Toran, 7. janúir. AP.
Leynilögreglumaður, einn sakborninganna, sem ákærður er fyrir morðið á
Jerzy Popieluszko, hélt því fram við yfirheyrzlur að Wladyslaw Ciaston,
yfirmaður leynilögreglunnar og tveggja stjörnu hershöfðingi, hefði verið
samþykkur og stutt áformin um að ræna prestinum.
Lögreglumaðurinn, Waldemar
Chmielewski, dró hins vegar fyrri
ummæli til baka í dag, sagðist að-
eins hafa ályktað að Ciaston hefði
verið ráðabrugginu samþykkur og
að yfirmaður sinn, Adam Pietr-
uszka, hefði ekki nefnt nafn Ciast-
on við þremenningana, eins og
hann hafði áður sagt. Aðeins var
leyft að skýra frá því í dag að Ci-
aston hefði verið sagður í vitorði
með morðingjunum, en Chmiel-
ewski hélt því fram í fyrri viku.
Chmielewski sagðist saklaus af
sakargiftum í ákæruskjali, sagðist
einungis hafa framkvæmt skipan-
ir yfirmanna sinna. „Tilgangurinn
var að veikja og koma á ringulreið
1 neðanjarðarhreyfingu Sam-
stöðu,“ sagði Chmielewski, en
Popieluszko var ákafur stuðnings-
maður hinna frjálsu verkalýðsfé-
laga, sem upprætt voru með her-
lögum.
Chmielewski lýsti fundum til-
ræðismanna með sínum næsta yf-
irmanni, Adam Pietruszka, sem
sakaður er um að hafa hvatt til
morðsins. Meðan á þeim stóð
hringdi Pietruszka margsinnis til
yfirmanna sinna og ráðfærði sig
við þá um ránsáformin, að sögn
Chmielewski.