Morgunblaðið - 08.01.1985, Page 15

Morgunblaðið - 08.01.1985, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JANUAR 1985 15 Texti: Hallur Hallsson. Myndir: RAX Á vesturhluta Jan Mayen hafast um 25 Norðmenn við I búðum sín- um. um Norðurhöf vísbendingar um að minnsta kosti þrjú eldgos. Hið fyrsta var á dögum hollenskra hvalfangara á 15. öld. Þeir stund- uðu hvalveiðar og höfðu bæki- stöðvar sínar á Jan Mayen. Frá þeim eru sagnir um eldgos. Árið 1732 hafði Anderson, borg- meistari í Hamborg, eftir sæ- farendum að eldbjarmi hefði sést frá eyjunni. Árið 1818 skýrði Scor- esby yngri frá eldbjarma sem hann hafði séð frá hlíðum Bjarn- arfjalls og fylgdi því öskufall. Það var á sama stað í Bjarnarfjalli og eldgosið 1732.“ — Eru einhver tengsl milli eld- virkni á Jan Mayen og íslandi? „Jan Mayen hefur myndast á sama tímabili og ísland og eld- virknin á Jan Mayen er í tengslum við úthafshrygginn, það er Reykjaneshrygginn, sem gengur gegnum fsland, norður um Þing- eyjarsýslu og um Kolbeinsey, hinn svokallaða Kolbeinseyjarhrygg. Jan Mayen er jaðarsvæði, svipað og eldfjallasvæðið á Suðurlandi um Heimaey, og tengslin eru óbein. Hins vegar er Jan Mayen í fjór- um veigamiklum atriðum keimlík Snæfellsnesi. Efnafræðileg sam- setning bergsins, tíðni eldgosa, framleiðni eldgosa, það er magn hrauns sem upp kemur og lands- lag bera sterkan svip af Snæ- fellsnesi. Jan Mayen er nánast spegilmynd af Snæfellsnesi. En á rekbeltunum á Norðurlandi og Reykjanesi er eldvirknin meiri, hraunmagn meira og oftar gýs auk þess að samsetning bergs er með allt öðrum hætti." — Er nokkru hægt að spá um framhald gossins? „Nei, í raun og veru ekki. Þetta gos getur allt eins dáið út eins og að færast í aukana eða verða langt. Til þess vitum við allt of lítið um eldvirkni á Jan Mayen. En Bjarnarfjall er nyrsta eldfjall í veröldinni, sem nær upp úr sjó. Gosið nú er heldur norðar en gosið 1970, þannig að við getum sagt, að þetta eldgos sé hið nyrsta sem mannlegt auga hefur séð. Af Bouvet-öya hinni norsku í Suðurhöfum „Og þó Bjarnarfjall sé eina eld- fjalliö á Norðurlöndum utan ís- lands er það ekki hið eina undir norskum fána. Eldfjallaeyjan Bouvet-öya, sem liggur langt suð- vestur undan ströndum S-Afríku, er norskt landsvæði. Franskur skipstjóri kom fyrstur að eyjunni en Norðmenn köstuðu eign sinni á hana. Bouvet-öya er þakin snjó að langmestum hluta, ekkert undir- lendi er þar og eyjan sæbrött, al- gerlega óbyggileg. Ég skrifaði I samvinnu við tvo Norðmenn og Dana ritgerð um jarðfræði og bergfræði eyjunnar fyrir nokkrum árum,“ sagði Páll Imsland að síð- ustu. Við komum inn yfir Melrakka- sléttu um hálffimmleytið og lent- um á Akureyri skömmu síðar til að taka eldsneyti. Laust fyrir klukkan hálfsjö I gærkvöldi lent- um við á Reykjavíkurflugvelli. Liðlega sjö tíma flug norður til Jan Mayen var að baki. Jarðeldamir á Jan Mayen: Ekki ástæða til að flytja Norðmenn brott frá Jan Mayen ObIÓ, 7. jinúar. Frá fréttaritara MbL Jan Erik Lauré. FLUTNINGUR þeirra 25 Norð- manna, sem hafazt við á Jan Ma- yen, er enn ekki tímabær vegna eldgossins í eldfjallinu Beeren- berg. Varðskipið Senja var þrátt fyrir það sent til Jan Mayen og var væntanlegt þangað um miðnætti og átti það að vera til taks, ef eld- virknin í fjallinu ykist og nauðsyn bærí til að flytja Norðmennina á brott Það er fjarskiptadeild norska hersins sem rekur stöðina á Jan Mayen, þar sem Norðmennirnir 25 starfa. Norðmennirnir eru rólegir þrátt fyrir tíða jarð- skálfta að undanförnu og elds- umbrotin. Gosið sást ekki I gær frá stöðinni, sem er í um þriggja kílómetra fjarlægð frá eldstöðv- unum, en bjarminn var sýni- legur. Síðast gaus Bjarnarfjall i septembermánuði 1970 og voru þá 39 Norðmenn fluttir úr eynni, eftir að fjallshlíðin rifnaði upp á fjórum stöðum og gosmökkurinn náði 5 kilómetra hæð. Áður en eldsumbrot hófust hafði orðið vart 60 til 70 jarð- skálftakippa á klukkustund. Vis- indamenn segja að ekki sé ljóst hvort jarðskálftamir standi í beinu sambandi við eldsumbrot- in eða stafi frá Norður-Atlants- hafshryggnum, sem er mjög virkt jarðskjálftasvæði. Ef jarðskálftarnir standa hins veg- ar i sambandi við eldsumbrotin, er ástandið mun alvarlegra, samkvæmt upplýsingum Hilm- ars Bungum, jarðskálftafræð- ings í skjálftastöðinni „Norsar" utan við Osló. Mjög tíðir skjálftar mælast á Atlantshafshryggnum og þeirra verður oft vart á Jan Mayen. „Við getum þvi ekki staðhæft hver séu upptök skjálftanna, fyrr en nánari upplýsingar liggja fyrir frá Jan Mayen," sagði Bungum. Norsar-stöðin mældi sjálftana og reyndust þeir vera 5 stig á Richtersskala, en það er nokkuð minni styrkleiki en kom fram á mælum á Jan Mayen. í Norsar-stöðinni eru þó mun betri mælitæki en til eru á Jan Mayen, þótt fjarlægðin frá upptökunum sé mjög mismun- andi. Jarðskálftavirknin á Jan May- en um helgina er mjög svipuð þeirri hrinu, sem varð á árinu 1972, en þá mældust um 1.000 litlir jarðskjálftar á klukku- stund. Morgunblaðið/Júltus Á þessari mynd má sjá hvar iðnaöarmenn eru að vinna við að leggja niður keilubrautirnar í hinni nýju íþróttamiðstöð sem er að rísa í öskjuhlíðinni. Styttist í að hægt verði að keila í Öskjuhlíð hægt sé að panta fasta tíma. Þjálfaðir leiðbeinendur verða á staðnum strax í upphafi og munu þeir leiðbeina fólki. Nefhjól brotnaði NÚ STYTTISr í það að hægt verði að leika „keilu" I hinni nýju og glæsilegu íþróttamiðstöð sem er að rísa í Öskjuhlíð. Senn fer fyrsta áfanga byggingarinnar að ljúka, en í honum verða 12 keilubrautir. Nú er unnið dag og nótt við framkvæmdir og gert er ráð fyrir því að opnað verði um næstu mánaðamóL I þessum áfanga verður líka um að ræða ýmsa aðra starfsemi svo sem „billiard" o.fl. Svo virðist sem mikill áhugi sé fyrir keiluíþrótt- inni því að sífellt eru að berast fyrirspurnir um staðinn og hvar NEFHJÓL eins hreyfíls kennsluflug- vélar, TF-OU, brotnaði og lét undan í lendingu vélarinnar á Reykjavíkur- flugvelli skömmu eftir hádegi sl. föstudag. Skrúfa vélarinnar barðist í brautina við lendinguna og skemmd- ist lítillega. Engin slys urðu á fólki. í vélinni voru þrír menn: flugkennari, flugnemi og einn farþegi. „Þetta var sárasaklaust og einfalt óhapp,“ sagði Pétur Einarsson, flugmálastjóri, í samtali við blm. Mbl. „Flugmaðurinn hefur gefið sína skýrslu og hún fer sina venju- legu leið.“ Við getum haldið tyrir þig KKm konunglegar veislur hvar sem er og bvenær sem er og iaHGBl gestafjöldinn skiptir engu máli. Ef þú þarft aö halda 10 manna veislur eöa 1.000 manna risosamkomur gœtifyrsti leikurinn veriö símtcd til matreiöslusn illinganna í Veitingahöllinni Þeir eru sér- frœöingar í oö útbúa konunglegar krœsingar hvort sern erfyrir hópa sem mæta á staöinn (aö vísu ráöum viö ekki alveg viö 1.000) eöa viljafá sent heim í eigin haUir. ÞaÖ skiptir okkur ekki öllu máli hve margir gestimir eru viö tryggjum alltaf sömu gæöin. Hringdu í 33272 og fyrr en varír ertu kominn í sælkeraheim Veitmgahallarínnar og Hallagarðsins fyrir hreint almúgaverð. wiölliri, u í Húsi verslunarinnar vid Kringlumýrarbraut ^mmmmm mmmmmmmm

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.