Morgunblaðið - 08.01.1985, Síða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1985
Símamynd/AP.
Forseti egypska þingsins faðmar að sér Rifaat El-Mahgoub leiðtoga kopta
eftir messu á sunnudag, hinnar fyrstu í rúm þrjú ár. Aflétti Hosni Mubarak
forseti hömlum af klerki, sem Sadat forseti greip til á sínum tíma.
Egyptaland:
Leiðtogi kopta
leystur úr haldi
Varaformaður mannréttindaneifndar Evrópuþingsins:
Hvetur til stuðnings við
skæruliða í Afganistan
Kmíró, 7. jmnúmr. AP.
Leiðtogi kopta, kristinna manna í
Egyptalandi, söng í dag messu, þá
fyrstu síðan Anwar heitinn Sadat
dæmdi hann til útlegðar innanlands
árið 1981. í messunni, sem fór fram
á aðfangadegi jóla að koptískum sið,
hvatti hann kristna landa sína til að
„opna hjörtu sín“ fyrir bræðrum
þeirra, múhameðstrúarmönnum.
Þúsundir manna fylltu kirkju
Maríu og Markúsar í miðborg Ka-
író þegar Shenouda páfi III flutti
fyrstu messu sína eftir að Mubar-
ak, forseti, leysti hann úr haldi en
þar hvatti hann kristna menn í
Egyptalandi til að opna hjörtu sín
fyrir bræðrum þeirra, múhameðs-
trúarmönnum, og sagði, að allir
landsmenn væru eitt og sama
holdið.
Sadat dæmdi Shenouda til út-
legðar eða stofufangelsis í klaustri
nokkru í eyðimörkinni eftir að
hann hafði haldið fram réttindum
kristinna manna i Egyptalandi af
mikilli einurð en koptar telja
sjálfa sig vera afkomendur þeirra
manna, sem reistu pýramídana.
Sadat snerist einnig af afli gegn
öðrum sem hann taldi sér hættu-
lega, en mánuði eftir þessar að-
gerðir var hann ráðinn af dögum á
hersýningu. Það þykir vera til
vitnis um betra samkomulag
trúflokkanna í landinu, að Mubar-
ak skyldi leysa páfa kopta úr haldi
enda var fulltrúi forsetans og
múhameðstrúarmanna viðstaddur
messuna.
Islanubad, PakúUn, 7. janúar. AP.
VARAFORMAÐUR mannréttinda-
nefndar Evrópuþingsins hvatti í gær
vestrænar þjóðir og hinn frjálsaheim
til að sjá skæruliðum í Afganistan
fyrir meiri og betri vopnum til að
auðvelda þeim að leysa landið und-
an áþján Sovétmanna.
„Meiri vopn, meiri samstaöa
skæruliða sjálfra og meiri um-
ræða um Afganistan á alþjóða-
vettvangi eru nauðsynleg til að
koma Sovétmönnum burtu frá
landinu," sagði Jean-Francois
Deniau, varaformaður mannrétt-
indanefndar Evrópuþingsins og
fyrrum ráðherra í 'frönsku stjórn-
inni, á blaðamannafundi í Islama-
bad í gær, þá nýkominn frá leyni-
legu ferðalagi um Afganistan.
„Ég kom til Afganistans 27. des-
ember sl. og vildi með því mót-
mæla kúgun Sovétmanna í land-
inu og benda þeim á, að umheim-
urinn hefði enn ekki með öllu
gleymt baráttu afgönsku þjóðar-
innar," sagði Deniau, sem var í níu
Víetnamskt innrásarlið hafði í
kvöld náð á sitt vald þremur fjórðu
hlutum mikilvægs vígvirkis kambód-
ískra skæruliða í einhverri þyngstu
árás í sex ára sögu innrásar Víet-
nama í Kambódíu.
Víetnamar héldu uppi mikilli
stórskotaárás á stöðvar skæruliða
áður en þeir létu til skarar skríða
úr fjórum áttum. í fylkingar-
daga i landinu og fór í fylgd
skæruliða frá einu þorpinu til
annars eftir ógreiðfærum fjallveg-
um. Deniau kvaðst hafa komið til
margra þorpa, sem voru algerlega
í rúst eftir loftárásir Sovétmanna,
en talið er, að þrjár milljónir
manna a.m.k. hafi flúið landið til
Pakistan.
Deniau kvaðst einnig hafa séð
fjöldann allan af brunnum herbíl-
brjósti voru a.m.k. 20 skriðdrekar,
eða fleiri en nokkru sinni áður í
innrásinni. Grönduðu skæruliðar
a.m.k. þremur skriðdrekanna, sem
smíðaðir eru í Sovétríkjunum, og
tveimur M-113 brynvögnum.
Bardagarnir áttu sér stað við
landamæri Thailands og þangað
leituðu nokkrir skæruliða skjóls er
skriðdrekar Vietnama lögðu til at-
lögu. Herir Thailands voru í við-
um, skriðdrekum og öðrum farar-
tækjum og kynnst nýjasta her-
bragði Sovétmanna, smásprengju-
regninu. Er sprengjunum pakkað
saman og skotið úr fallbyssu en
þegar pakkinn kemur niður þá
springur hann og smásprengjurn-
ar dreifast í allar áttir, um 30 tals-
ins á 200 metra svæði. Ef stigið er
á sprengjurnar springa þær og
valda ýmist dauða eða örkumlum.
bragðsstöðu og rúmlega 4.400
óbreyttir thailendingar voru flutt-
ir frá svæöinu er sprengjur
sprungu innan thailenzku landa-
mæranna.
Víetnamar hafa sótt hart fram í
Kambódíu undanfarna daga með
það að markmiði að brjóta and-
spyrnu heimamanna til fullnustu
á bak aftur.
Margrét í lungnaaðgerð
London, 7. janúar. AP.
A sunnudag fjarlægðu læknar sneið úr vinstra lunga Margrétar
Brelaprinses.su, og reyndist æxlið sem numið var á brott góókynja, að
því er fram kom í tilkynningu frá skrifstofu prinsessunnar í dag,
mánudag.
Skurðaðgerðin var fram- fremur, að líðan prinsessunnar
kvæmd á Bromton-spítala í vest- væri góð eftir atvikum og væri
urhluta Lundúnaborgar og kom búist við, að hún færi af spítal-
prinsessan þangað á laugardag anum innan vikutíma.
til þess að gangast undir rann- Prinsessan hafði fundið fyrir
sóknir fyrir aðgerðina. verk í brjósti og átt við öndunar-
í tilkynningunni sagði enn erfiðleika að stríða.
Hörð árás Víetnama
á Kambódíuskæruliða
Ampíl. Kambódiu, 7. janúar. AP.
Listamaðurinn Karl Lagcrfeld hefur i samvinnu við CHLOÉ-safnið i Paris hannað þessi
gullfallegu matar- og kafTtstell „Kalablómið’ sem Hutschenreuther framleiðir úrpostulini
af bestu gerð.
@ SILFURBÚÐIN
Laugavegi 55, Reykjavík Sími 11066