Morgunblaðið - 08.01.1985, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 08.01.1985, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1985 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 330 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 25 kr. eintakiö. Skipulagsmál Sinfóníu- hljómsveitarinnar Deilur um opinber afskipti af lista- og menningar- málum hafa löngum snúist um það, hvort af skattfé eigi að styrkja slíka starfsemi. Hér á landi hefur niðurstaðan orðið sú, að Sinfóníuhljómsveit, Þjóðleikhús og fleiri máttar- stólpar í menningarlífinu eru alfarið reknir með þeim hætti, að kæmi ekki til opinber fjár- stuðningur legðist reksturinn niður. Auk þess standa opin- berir sjóðir að stuðningi við lista- og menningarstarf sem til er orðið fyrir frumkvæði einstaklinga en er ekki lög- verndað eins og Sinfóníu- hljómsveitin og Þjóðleikhúsið. Morgunblaðið er þeirrar skoðunar, að eðlilegt sé að starfsemi máttarstólpa í menningarlífi sé lögvernduð og staðið að rekstri þeirra með opinberum stuðningi til að hann sé snurðulaus og örugg- ur. Morgunblaðið er hins veg- ar andvígt því að slík starf- semi sé einokuð af ríkinu. Hvað segðu menn ef enginn annar mætti flytja hér sinfón- íska tónlist en ríkið? Eða standa fyrir leiksýningum? Þannig er þessu háttað í út- varpsrekstri og þarf að breyta. Paul Zukofsky, bandarískur fiðluleikari, hljómsveitarstjóri og leiðbeinandi í tónlist, hefur ritað grein um skipulagmál Sinfóníuhljómsveitar íslands sem birtist í Morgunblaðinu á laugardag. Þar tekur hann með málefnalegum hætti á þeim þætti í opinberum rekstri sem er og verður hvimleiðastur og dýrkeyptast- ur hvort heldur litið er til fjár- muna eða listrænnar sköpun- ar eins og í þessu tilviki. Hann segir á einum stað: „Og loka- niðurstaðan í málefnum Sin- fóníuhljómsveitar íslands verður því sú, að 19 manns standa í hring og benda á þann, sem næstur stendur (þetta er ekki mér að kenna heldur honum!).“ Alþingi samþykkti lög um Sinfóníuhljómsveit Islands fyrir tiltölulega skömmu. Eins og jafnan ræddu menn aðal- lega fjárhagslega hlið þeirrar lagasetningar og deildu um fjölda hljóðfæraleikara. Minni athygli beindist að því hvernig að því skuli staðið að ná þeim markmiðum sem að er stefnt með sinfóníuhljómsveit. Paul Zukofsky vekur máls á þessum þætti á þann veg, að hvorki stjórnvöld né þeir sem unna framgangi menningar og tón- listar á íslandi geta látið ábendingar hans lönd og leið. í stuttu máli leggur Paul Zukofsky til, að við stjórn opinbers fyrirtækis eins og Sinfóníuhljómsveit íslands er taki menn sér rekstur einka- fyrirtækja til fyrirmyndar: „Það eru nægilega mörg vel rekin fyrirtæki starfandi hér á landi, til þess að menn ættu að kannast við af eigin raun, hvernig réttu og virku rekstr- arfyrirkomulagi er háttað í reynd," segir hann. Þessa ábendingu rökstyður hann með fullri virðingu fyrir tón- listinni, hljóðfæraleikurum og unnendum menningar. Hún á ekki aðeins við um Sinfóníu- hljómsveitina heldur allan opinberan rekstur hér á landi. Blæbrigðin á Þjóðviljanum Isamtölum manna á meðal um nafnlausar ritstjórn- argreinar blaða er greinilegt að þeim er oft meira kappsmál að vita hver ritaði umrædda grein en að átta sig á því sem í henni stendur. Því hefur verið misjafnlega háttað hér á landi, hvernig að ritstjórn- argreinum er staðið. Morgun- blaðið hefur markvisst og af fastheldni fylgt nafnleynd að þessu leyti. í því felst styrkur blaðsins og staðfesting á þeirri samstöðu sem einkennir og einkennt hefur ritstjórn þess. Því er þetta rifjað upp hér og nú, að ritstjórar Þjóðvilj- ans hafa ákveðið að hefja að nýju að merkja sér forystu- greinar blaðsins. Össur Skarp- héðinsson segir að þessi ákvörðun eigi rætur að rekja til þess „blæbrigðamunar" og jafnvel „skoðanamunar" sem er milli þeirra sem greinarnar rita. Þessari óvenjulegu hreinskilni ritstjóra Þjóðvilj- ans ber að fagna. í henni felst á hinn bóginn að Þjóðviljinn sem slíkur hefur enga skoðun, frekar en önnur blöð sem merkja leiðara höfundi. Ástandið er sem sé þannig á ritstjórn Þjóðviljans að þar hafa menn gefist upp við að láta blaðið hafa skoðun. í Morgunblaðsviðtali segir Össur Skarphéðinsson, að það sé engin „stjórnmálaflækja á bak við þetta“ á Þjóðviljanum. Þau orð skulu e'kki rengd hér og nú. En á bak við þetta er þá önnur flækja sem gerir Þjóð- viljann stefnu- og skoðana- lausan. Ronald Reagan og Andrei Gromyko funda í Hvfta húsinu. Viðræður þeirra á nýliðnu hausti ruddu brautina fyrir viðræðurnar f Genf núna. Viðræðumar í Genf: Vaxandi bjartsýni í alþjóðamálum eftir Arne Œav Brundtland Við áramótin 1983/84 ríkti kuldi í samskiptum Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. Sovétmenn höfðu slitið afvopnunarviðræðunum og á ný varð andrúmsloft kalda stríðs- ins ráðandi í samskiptum austurs og vesturs. Nú um þessi áramót ríkir bjartsýni um árangur í afvopnun- arviðræðum stórveldanna og þar með minnkandi spennu. Stórveld- in hafa ákveðið að ganga að nýju til samningaviðræðna um afvopn- un og munu þær viðræður bæði taka til kjarnorkuvopna og geim- vopna. Þetta felur í sér, að öll þau vandamál sem varða strategísk vopn og meðaldrægar eldflaugar, og upp komu í fyrri viðræðum verða tekin fyrir að nýju og á breiðari grundvelli. Við áramótin 1983/84 heyrðust þær raddir frá ráðamönnum á Vesturlöndum, að engin ástæða væri til að örvænta þó að samn- ingaviðræðurnar hefðu farið út um þúfur því einungis væri um millibilsástand að ræða. Nú hvetja þessar sömu raddir til hóflegrar bjartsýni. Björninn er ekki unn- inn. Þessa dagana er fyrsta skref- ið stigið því nú fara fram í Genf viðræður á milli utanríkisráðherr- anns Andrei Gromyko og George Shultz. Nú fyrst ættu hjólin að fara að snúast í samningaviðræð- unum. Meiri samningsvilji Svo virðist sem meiri samn- ingsvilji ríki nú hjá stjórnvöldum beggja stórveldanna. Ymsar póli- tískar vísbendingar gefa þetta til kynna auk þess sem samningavið- ræðurnar snúast um víðtæka málaflokka. Þá er einnig athygl- isvert að bæði ríkin virðast nú frá- hverf þeirri hugmynd, að unnt sé að sigra í samningaviðræðum á kostnað andstæðingsins. Komið hafa fram vísbendingar frá báðum aðilum sem gefa til kynna, að viðræðurnar fari fram í þægilegra andrúmslofti en verið hefur og kostað verði kapps um að slaka á spennunni sem ríkt hefur í samskiptum ríkjanna. Þetta atriði er mjög mikilvægt ekki síst þegar haft er í huga hve mikil spenna ríkti í fyrri viðræðum. Þá töldu Bandaríkjamenn og aðildarríki NATO að helsta takmark Sovét- manna væri að reka fleyg í sam- starf NATO-ríkja. Sovétmenn lýstu því yfir, að Bandaríkjamenn vildu einungis takmarka áhrif Sovétmanna um heim allan. Svo virðist sem þessi barátta, sem að sjálfsögðu kemur alltaf við sögu í samskiptum stórveldanna, eigi ekki að setja mark sitt á núver- andi samningaviðræður. Þetta at- riði ætti að geta stuðlað að samn- ingum. Áður en verulegar póli- tískar breytingar koma til, verður ástandið í alþjóðamálum aftur að færast í eðlilegt horf og þá aukast möguleikarnir á, að ríkin tvö kom- ist að samkomulagi. Viðræðurnar 1983 f samningaviðræðunum árið 1983 hafði myndast ómælisgjá á milli ríkjanna tveggja vegna þeirra hagsmuna, sem þau þurftu að gæta í viðræðunum. Sovétmenn stefndu fyrst og fremst að því, að tryggja yfirburði sína á sviði nákvæmra og hreyfanlegra kjam- orkuflauga í Evrópu. Þegar það tókst ekki og hafin var uppsetning bandarískra eldflauga í Evrópu slitu Sovétmenn samningaviðræð- unum. í Start-viðræðunum vildu Band- aríkjamenn einbeita sér að þeim vopnabúnaði sem er mikil- vægastur fyrir Sovétríkin, þ.e.a.s. langdrægum eldflaugum sem staðsettar eru á landi. Þessu mót- mæltu Sovétmenn og sögðu Bandaríkjamenn krefjast einhliða afvopnunar. Síðsumars settu Sovétmenn hins vegar fram kröfu sem fól í sér nánast einhliða afvopnun Bandar- íkjamanna þegar þeir fóru fram á viðræður um geimvopn. Á því sviði hafa Bandaríkjamenn for- skot og virðast hafa alla burði til að auka það verulega. Þessi krafa Sovétmanna náði ekki fram að ganga því vitaskuld vildu Bandar- íkjamenn ekki ræða málið á svo takmörkuðum grundvelli. Þróunin 1984 Á því ári sem er nýliðið hefur staðan í samningamálum stór- veldanna breyst að því marki, að báðir aðilar hafa fundið fyrir þeirri spennu, sem fylgir óbreyttu ástandi, sem þar að auki hefur gefið svigrúm til áframhaldandi vigbúnaðarkapphlaups. Árið 1984 ríkti allsherjar taugastríð í af- vopnunarmálum, sem menn bæði í austri og vestri fundu fyrir, þótt með ólíkum hætti væri. Fyrri hluta árs 1984 kom upp

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.