Morgunblaðið - 08.01.1985, Side 36
36
MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1985
fclk í
fréttum
William prins stal senunni frá litla bróður
Elísabet Englandsdrottning kynnti nýjasta barnabarnið sitt, Harry, í sjónvarpinu um jólin. William, eldra
barnabarnið, átti að sitja stillt og rólegt meðan á upptökunni stóð, en hann vildi miklu heldur hjálpa
sjónvarpsfólkinu og syngja fyrir áhorfendur: „I just called to say I love you“, og leika hund. Þannig að William
stal senunni í þaö skiptið frá litla bróður sem sat stilltur allan tímann í skírnarkjólnum í fanginu á mömmu
sinni.
JÓNlNA BENEDIKTSDÓTTIR
„Að eignast
hamingjuna
í stað þess að horfa á hana“
að kannast flestir við Jónínu
Benediktsdóttur, a.m.k. rödd
hennar, en hún lærði íþróttafræði
við Mc-Gill í Kanada á sínum tíma
kom heim og varð kunn m.a. af
leikfimiþáttum í morgunútvarpi.
Það hefur ekki mikið borið á Jón-
ínu undanfarið í líkamsræktinni
þar sem hún varð nýlega móðir en
blm. leit við hjá henni til að for-
vitnast um hvað væri framundan.
— Fyrst og fremst er ég nátt-
úrulega húsmóðir núna. Ég var að
eiga mitt fyrsta barn fyrir þremur
mánuðum, Jóhönnu Klöru. Það
verður því aðalverkefni okkar
næstu árin að ala hana sómasam-
lega upp. Ég er i ársleyfi frá
kennslu í æfingadeild kennara-
háskólans en byrja von bráðar í
æfingastöðinni Engihjalla aftur.
Ég ætla að kennar þar Jane
Konda-leikfimi fyrir barnshafandi
konur, aerobic og fleira. Éinnig
mun ég sinna þar ráðgjöf þar sem
ég leiðbeini fólki um hvaða leik-
fimi eða líkamsrækt hæfir því
best.
Það er ýmislegt fleira í deigl-
unni. Þegar maðurinn minn lýkur
sínu námi hér heima í læknisfræði
stefnir hugurinn út í framhalds-
nám og ég er jafnvel að hugsa um
að breyta til og skella mér í fjöl-
miðlafræði. En þetta er hlutur
sem verður bara að koma í ljós
þegar þar að kemur.
— Hvernig var að taka við
morgunútvarpinu eftir öll þessi ár
Valdimars og Magnúsar?
— Það var erfitt í byrjun, því
þeir voru góðir og búnir að vera
lengi. Svo kem ég ung stelpa með
nýjar róttækar hugmyndir og
vildi fara að breyta hlutunum! En
þetta var nú skemmtilegt samt.
— Er margt fólk með þér í æf-
ingunum?
— Nei, það er nú misjafnt hvað
mér gengur vel að fá fólk upp í
útvarp klukkan rúmlega sjö á
morgnana. Stundum hjálpa þau
mér í morgunútvarpinu María og
Stefán.
— Finnst þér ekki að hugsun
fólks hafi breyst gagnvart lík-
amsrækt undanfarið?
— Jú mikil ósköp. Þetta er al-
Isabella Rossellini
Isabella Rossellini dóttír
Ingrid Bergman er ein hæst
launaóa tyrirsæta heims. Ný-
lega birtist viðtal við hana í
bandarísku tímariti undir yfir-
skriftinni „Þekktar konur sem
hafa allt til alls“, og var birt
mynd af Isabellu ásamt dótt-
urinni Elektru Ingrid.
Dynasty-
bók
komin út
Ekki alls fyrir löngu
var gefin út Dyn-
asty-bók sem banda-
ríska bókaforlagið
Doubleday gefur út.
Þar er hægt að lesa í
smáatriðum allt sem
viðkemur Carrington-
fjölskyldunni góð-
kunnu.
Flökkusauðir
Jón Sveinbjarnarson bóndi í Miðskála undir
Eyjafjöllum kom á ritstjórn Morgunblaðsins
með þessa mynd af tveimur flökkusauðum, sem
hann átti. Hann kvað þessar kindur hafa verið
harðduglegar en illviðráðanlegar. Fyrst fundust
þær á hólsheiði undir Eyjafjöllum í fyrravor, en
sluppu síðan úr girðingu, en fundust aftur um
veturinn í háhömrum á Seljavöllum, eigi langt
frá Seljavatnslaug. Þeir sem fundu sauðina voru
rétar Óskarsson bóndi á Seljavöllum, Eyþór
Gunnarsson á Moldnúpi, Ingi Einarsson bóndi í
Varmahlíð og Jón Sveinbjarnarson í Miðskála. Á
myndinni eru þeir Jón Sveinbjarnarson og Eyþór
Einarsson á Moidnúpi, ráðsmaður í Miðskála,
með sauðina góðu.
Lengstu
buxur í heimi
eða hvað?
Margs konar tilþrif
voru sýnd á fimm
ára afmælishátíð Hildi-
branda í Eyjum milli jóla
og nýárs, en á myndinni
er formaður félagsins
Ásbjörn Garðarsson, að
kynna fyrsta atriði
skemmtunarinnar í sam-
komuhúsi Vestmanna-
eyja.
Ljósm. Mbl. Sigurgeir.