Morgunblaðið - 17.01.1985, Page 3
3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1985
Bændur fá verð-
laun fyrir að
slátra ungkálfum
— Til að hamla gegn offramleiðslu á nautakjöti
LandbúnaðarráAherra hefur
staðfest þá samþykkt Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins að
greiða bændum 1.000 krónur
verðlaun úr Kjarnfóðursjóði
fyrir hvern ungkálf sem þeir
slátra. Er þetta gert til að hamla
gegn offramleiðslu á nautgripa-
kjöti.
Talið er að geldneytum hafi
fjölgað um 12% frá fyrra ári og
ásettum kálfum um 10% þannig
að útlit er fyrir verulega
offramleiðslu á nautakjöti á
næstu árum. Samþykkt Fram-
leiðsluráðs er svohljóðandi:
„Vegna of mikils framboðs af
ungneytakjöti á síðustu mánuð-
um, þykir Framleiðsluráði
nauðsynlegt og brýnt að koma á
meira jafnvægi í framboði og
eftirspurn á nautakjöti. Fram-
leiðsluráð ákveður því að
áskildu samþykki landbúnaðar-
ráðherra að greiða bændum úr
Kjarnfóðursjóði kr. 1.000 fyrir
hvern ungkálf, sem þeir slátra
áður en kálfarnir ná 30 kg. fall-
þunga. Greiðslan verði innt af
hendi mánaðarlega til slátur-
leyfishafa samkvæmt slátur-
skýrslum. Ákvörðun þessi gildir
frá og með 1. janúar.
Fjórir sækja
stjórastöðu í
15. JANÚAR sl. rann út umsóknar-
frestur um stöðu skólastjóra við
hinn nýja grunnskóla í Grafarvogi í
Reykjavík.
Samkvæmt upplýsingum Ragn-
ars Júlíussonar, formanns
fræðsluráðs, sóttu um stöðuna þau
Arnfinnur Jónsson skólastjóri
Fellaskóla í Reykjavík, Eggert
Valur Þorkelsson kennari á Hvols-
velli, Sigurður Hólm Þorsteinsson
skólastjóri Þjálfunarskóla ríkisins
um skóla-
Grafarvogi
og Lena Rist kennari við Hóla-
brekkuskóla í Reykjavík.
Fræðsluráð mun væntanlega
gera tillögu til menntamálaráð-
herra um veitingu stöðunnar á
fundi nk. mánudag, en staðan
verður veitt frá 1. júní nk. og verð-
ur væntanlegum skólastjóra gert
að fylgjast með og vera til ráðu-
neytis varðandi undirbúning hins
nýja skóla frá þeim tíma sem hon-
um verður veitt staðan.
Morgunblaðið/Árni Sæberg.
í gær var unnið að viðgerð á húsnæði Skífunnar, en tjónið er talið vera á annað hundrað þúsund króna.
*
Atta rúður brotnar í húsnæði Skífunnar:
„Ógnvekjandi atburðiru
Segir Jón Ólafsson, forstjóri Skífunnar. Haft hefur verið
í hótunum við stjórnarmenn í félagi rétthafa myndbanda
„ÞETTA eru ognvekjandi atburðir. Haft hefur venð i hotunum við félaga i
samtökum rétthafa myndbanda og nú eru rúður brotnar í fyrirtæki mínu á
tveimur stöðum í bænum. Ofbeldisverk sem þetta hafa verið óþekkt hér á
landi," sagði Jón Ólafsson, forstjóri Skífunnar hf. en fjórar rúður voru í
fyrrinótt brotnar í myndbandaleigu Skífunnar í Borgartúni og aðrar fjórar í
húsnæði fyrirtækisins á Laugavegi. Aðfaranótt þriðjudagsins var ein rúða
brotin í Skífunni í Borgartúni.
, „Fyrir um viku síðan gekk ég í
Félag rétthafa myndbanda á Is-
landi og var kosin í stjórn samtak-
anna. Við höfum að undanförnu
farið í myndbandaleigur til þess að
kanna hvort myndbönd, sem við
höfum umboð fyrir, séu þar á boð-
stólum. Ég held að samhengi hljóti
að vera þarna í milli, að einhver
eigendi myndbandaleigu hafi verið
að verki,“ sagði Jón Ólafsson.
Samtök rétthafa myndbanda á
íslandi hafa að undanförnu kært
ólöglega leigu á myndböndum í
nokkrum myndabandaleigum.
Rannsóknarlögregla ríkisins hefur
haft þessi mál til rannsóknar. Lagt
hefur verið hald á hundruð mynd-
banda. Á einni myndbandaleigunni
var lagt hald á liðlega 200 mynd-
bönd.
„Menn hafa um áraraðir komist
upp með að brjóta lögin hér á landi.
Þá á ég við að hafa á boðstólum
ólögleg myndbönd. Við höfum að
undanförnu gert átak til þess að
koma í veg fyrir þessi lögbrot.
Hugsanlegt er að einhver eigandi
myndbandaleigu eða tengdur þess-
um viðskiptum telji sér ógnað. Lík-
legt þykir að slíkir hafi verið að
verki, en ég vil taka skýrt fram að
margir eigendur myndbandaleiga
eru miklir ágætismenn, en eins og
alltaf eru fáir sem bregða skugga
á,“ sagði Friðbert Pálson, formaður
samtaka rétthafa myndbanda í
samtali við Mbl.
„Mér hefur verið hótað af eig-
anda myndbandaleigu. Sagt að ef ég
léti sjá mig á tiltekinni leigu, þá
biði mín kylfa þar. Þá var því hótað
að fjölskylda mín, kona mín og
börn, gætu orðið fyrir skakkaföll-
Um. Þetta er óhugnanlegt," sagði
Friðbert.
í höndiuuuri
Ætlir þú að ávaxta fé þitt í lengri eða skemmri tíma
er þér óhætt að setjast niður, loka eyrunum fyrir öllum gyllibtððum og bera saman kjör og öryggi
á sparitjármarkaðnum. Niðurstaðan verður áreiðanlega sú að þú velur
spariskírteini ríkissjóðs að því loknu og stendur upp með pálmann í hönduniibi.
Verðtryggö spariskírteini
meö 7% vöxtum. Innleysanleg
eftir 3 ár.
Verötryjg»ð spariskírteini
Verötryg»ö spariskírteini
með 6.71 % vöxtum sem greiðast til 18 mánaða með vöxtum sem
misserislega. Innleysanleg
eftir 5 ár.
eru meðaltal vaxta
viðskiptabankanna á 6 mán.
verðtr. reikn.
+ 50% VAXTAAUKA.
Gei%iítr\ggð spariskírteini
með vöxtum til 5 ára.
ENGIR LEYNDIR VARNAGLAR - ENGIR LAUSIR ENDAR
HREINIR OG KLÁRIR SKILMÁLAR MEÐ MEIRI ÁVÖXTUN OG FULLKOMNU ÖRYGGI.
Sölustaóir eru:
Seölabanki íslands. viöskiptabankamir, sparisjóöir og nokkrir veröbréfasalar.
RJKJSSJOÐUR ISLANDS