Morgunblaðið - 17.01.1985, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1985
Tækni-
byltingin
Þeir eru oft býsna skemmtileg-
ir þættirnir af Nýjustu taekni
og vísindum. Leikmaðurinn verður
margs vísari af kynnum við þá
framvarðarsveit mannkynsins er
vísindamenn skipa. Það er ekki
ónýtt að ylja sér við þekkingar-
l'læðurnar úr ofni þessara manna,
er lýsa mannkyninu fram á veg.
Það er huggun harmi gegn að vita
af þúsundum manna og kvenna
um heim allan er leggja nótt við
dag í þeirri von að þoka mannkyn-
inu til betra lífs. Sá dagur hlýtur
að renna upp er fáfræðin og
mannvonskan bíða skipbrot á
bjargi vísindanna og þekkingar-
innar. Mér virðast teikn á lofti er
benda til þess að þessa dagana séu
að setjast á æðstu valdastóla
menn er hafa hinn vísindalega
skilning á tilverunni. Sýnist mér
að þar fari fremstur í flokki hinn
sviphreini leiðtogi Indverja, Rajiv
Gandhi. Þegar sá ágæti maður var
nýlega spurður í vikuritinu Time
(14. jan.) hver væru þau stefnumið
er hann setti helst á oddinn svar-
aðann: Menntunin er númer eitt.
En með menntun á ég ekki ein-
göngu við starf skólanna. Ég á líka
við menntun starfsmanna stjórn-
kerfisins, iðnframleiðslunnar og
hinna ýmsu hópa úti í samfélag-
inu og atvinnulífinu. Athyglisverð
yfirlýsing leiðtoga eins fjölmenn-
asta ríkis þriðja heimsins.
Hér norðurfrá
Hér norðurfrá, í dvergríkinu ts-
landi, virðast mér einnig sestir á
valdastóla jafnaldrar Gandhis er
hugsa á svipuðum nótum. í þeirra
hópi eru Steingrímur Hermanns-
son, Þorsteinn Pálsson, Kjartan
Jóhannsson, Ásmundur Stefáns-
son og Magnús Gunnarsson. Mér
hefur heyrst á yfirlýsingum þess-
ara manna að þeir vilji móta
stefnuna til lengri tíma og byggja
ákvarðanatöku á traustum grunni
rannsókna. Hér kveður við nýjan
tón í íslenskum stjórnmálum, því
fyrri tíðar sjórnmálamenn hér-
lendir stjórnuðu nú meira eftir
eyranu en niðurstöðum vísinda-
manna. Frægt dæmi um slíkan
vinnuhátt er þegar stjórnmála-
menn gáfu skít í þær niðurstöður
fiskifræðinga er birtust í „svörtu
skýrslunni*. Einnig má minna á
viðbrögð stjórnmálamanna við
varnaðarorðum jarðfræðinganna
á Kröflusvæðinu.
Nýr heimur
Við íslendingar höfum hingað
til spjarað okkur í krafti happa og
glappa-aðferðarinnar. Verðbólgu-
fárið er til marks um þá aðferð. I
skjóli þess slömpuðust ýmsir í
gegn um lífsins ólgusjó, þótt mörg
fleytan hafi nú steytt á skeri. En
nú viljum við snúa við blaðinu,
undir forystu vísindalega þenkj-
andi stjórnmálamanna, og koma
skikkan á hlutina. Þá bregður svo
við að vér stöndum frammi fyrir
vandamáli vísindalegrar ættar.
Hér á ég við fjarskiptabyltinguna
sem hæglega getur valdið „and-
legri gengisfellingu" verði ekki
markvisst og vísindalega unnið að
framgangi hennar. Þetta efni var
rætt í prýðisgóðum umræðuþætti
Ingva Hrafns Jónssonar er hann
nefndi Boða ný útvarpslög dögun
fjölmiðlabyltingar á íslandi? Þessi
sjónvarpsþáttur var nýstárlegur
að því leyti að þar var kvenfólk í
meirihluta. Ég ætla annars ekki
frekar að ræða efni þessa þriðju-
dagsþáttar, tel þar nóg að gert, en
vil bara minna á hið alkunna orð-
tak: Aðgát skal höfð í nærveru
sálar.
ólafur M.
Jóhannesson.
ÚTYARP / S JÓN VARP
■■■■ í kvöld flytur
an oo útvarpið Betl-
” araóperuna eft-
ir John Gay. Þýðandi er
Sverrir Hólmarsson og
þýðandi söngtexta er
Böðvar Guðmundsson.
Herra Peachum er
virðulegur kaupsýslumað-
ur, sem hagnast á því að
kaupa þýfi af þjófum og
selja þá svo í hendur vinar
síns Lockit lögreglustjóra
þegar þeir eru ekki lengur
nægilega arðbærir. En
dag einn kemur babb í
bátinn þegar Pollý dóttir
hans tilkynnir foreldrum
sínum að hún hyggist
ganga að eiga MacHeath
kaptein sem móðir hennar
telur einn skemmtilegasta
mann í stigamannastétt.
Slíkt hjónaband álítur
herra Peachum ganga
þvert á viðskiptalega
hagsmuni sína og ekki
batnar ástandið þegar á
daginn kemur að Mac-
Heath hefur verið í tygj-
um við Lúsí dóttur Lock-
its.
Betlaraóperan var
frumflutt í London árið
1728. Hún var samin við
vinsæl dægurlög og al-
þýðutónlist samtímans og
skopstældi óperur Hánd-
Betlaraóperan
eftir John Gay
els sem voru mjög í tísku
um þær mundir. í upp-
töku þeirri sem útvarpið
flytur í kvöld er tónlistin
hins vegar færð nær nú-
tímanum og hefur Atli
Heimir Sveinsson valið,
samið og útsett lögin, auk
þess sem hann stjórnar
flutningi þeirra. Leik-
stjóri Betlaraóperunnar
er Hrafn Gunnlaugsson.
Alla tæknivinnu önnuðust
Bjarni Rúnar Bjarnason
og Hreinn Valdimarsson.
Sérstaklega skal bent á
að Betlaraóperan er tekin
upp og flutt í stereo. Er
Hrafn Gunnlaugsson er
leikstjóri óperunnar.
Atli Heimir Sveinsson
valdi, samdi og útsetti lögin
við Betlaraóperuna og
stjórnar flutningi þeirra.
hún fyrsta meiriháttar
leiklistarupptaka sem út-
varpið flytur með þeirri
tækni.
í helstu hlutverkum
eru: Róbert Arnfinnsson,
Þuríður Pálsdóttir, Guð-
mundur Jónsson, Harald
G. Haraldsson, Sigrún
Hjálmtýsdóttir og Sigrún
Edda Björnsdóttir. Aðrir
leikendur eru: Helgi
Björnsson, Emil Gunnar
Guðmundsson, Karl Ág-
úst Úlfsson, Þórhallur
Sigurðsson, Edda Þórar-
insdóttir, Sigurjóna
Sverrisdóttir, Ása Svav-
arsdóttir, Kristín Ólafs-
dóttir, María Sigurðar-
dóttir og Pétur Einarsson.
Undirleik annaðist Sin-
fóníuhljómsveit íslands
undir stjórn Atla Heimis
Sveinssonar. Aðrir hljóð-
færaleikarar eru: Guð-
mundur Ingólfsson, Björn
Thoroddsen, Skúli Sverr-
isson, Reynir Sigurðsson,
Þórir Baldursson, Guð-
mundur Steingrímsson,
Jóhann G. Jóhannsson,
Graham Smith, Rúnar
Þórisson, Örn Jónsson,
Rafn Jónsson, Hjörtur
Howser, Þorleifur Gísla-
son, Jón Sigurðsson og
Árni Áskelsson.
ÚTVARP
FIMMTUDAGUR
17. janúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
A virkum degi. 7.25 Leiktimi.
7.55 Daglegt mál. Endurt.
þáttur Sigurðar G. Tómas-
sonar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veöurfregnir.
Morgunorö: — Sigurjón
Heiöarsson talar.
9.00 Fréttir.
94)5 Morgunstund barnanna:
„Elsku barn". Andrés Ind-
riöason endar lestur sögu
sinnar (9).
9420 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.). Tónleikar.
11.00 „Ég man þá tlð"
Lög frá liðnum árum. Um-
sjón: Hermann Ragnar Stef-
ánsson.
11.30 „Sagt hefur það verið"
Hjálmar Arnason og Magnús
Glslason sjá um þátt af Suö-
urnesjum.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12J0 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
1320 Barnagaman. Umsjón:
Ólafur Haukur Slmonarson.
(ROVAK).
13.30 Tónleikar.
14.00 „Þættir af kristniboðum
um vlöa veröld" eftir Clar-
ence Hall.
„Töfralæknirinn á Amas-
onfljóti". Leo Halliwell og
báturinn hans. Astráöur Sig-
ursteindórsson les þýöingu
slna (12).
14.30 A frlvaktinni
Þóra Marteinsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
1530 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16J0 Sfödegistónleikar
a. Sellósónata nr. 5 I D-dúr
op. 102 eftir Ludwig van
Beethoven. Mstislav Rostr-
opovitsj og Svjatoslav Rikht-
er leika.
b. Kvartett I D-dúr op. 23
eftir Antonln Dvofak.
Flæmski planókvartettinn
leikur.
17.10 Slðdegisútvarp
Tilkynningar
18A5 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
Daglegt mál. Siguröur G.
Tómasson flytur þáttinn.
19.50 „Höföalag að hraö-
braut"
19.15 A döfinni.
Umsjónarmaöur Karl Sig-
tryggsson.
Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
19.25 Krakkarnir I hverfinu.
5. Forslðufréttin.
Kanadlskur myndaflokkur I
þrettán þáttum, um atvik I llfi
nokkurra borgarbarna.
Þýðandi Kristrún Þórðar-
dóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Kastljós.
Elln Pálsdóttir Flygenring les
Ijóö eftir Þóru Jónsdóttur.
20.00 Leikrit: „Betlaraóperan"
eftir John Gay
Þýðandi: Sverrir Hólmars-
son. Þýðandi söngtexta:
Bððvar Guðmundsson. Tón-
list: Atli Heimir Sveinsson
valdi og samdi. Leikstjóri:
Hrafn Gunnlaugsson. Leik-
endur: Róbert Arnfinnsson,
Guömundur Jónsson, Harald
G. Haralds, Þórhallur Slg-
urðsson, Emil Gunnar Guö-
mundsson, Helgi Björnsson,
Karl Agúst Úlfsson, Hrafn
Gunnlaugsson, Þurlöur
Pálsdóttir, Sigrún Hjálmtýs-
dóttir, Sigrún Edda Björns-
dóttir, Edda Þórarinsdóttir,
Sigurjóna Sverrisdóttir, Asa
Svavarsdóttir, Kristln Ólafs-
dóttir, Marfa Sigurðardóttir
og Pétur Einarsson.
Undirleik annast Sinfónlu-
Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður Sigrún Stef-
ánsdóttir.
21.10 Skonrokk.
Umsjónarmenn: Haraldur
Þorsteinsson og Tómas
Bjarnason.
21.40 Hláturinn lengir Iffið.
Tlundi þáttur.
Breskur myndaflokkur I
þrettán þáttum um gaman-
semi og gamanleikara I fjöl-
miölum fyrr og slöar.
Þýöandi Guöni Kolbeinsson.
22.10 Niagara.
hljómsveit Islands undir
stjórn Atla Heimis Sveins-
sonar. Aörir hljóðfæraleikar-
ar eru: Guðmundur Ingólfs-
son, Björn Thoroddsen, Skúli
Sverrisson, Reynir Sigurðs-
son, Þórir Baldursson, Guð-
mundur Steingrlmsson, Jó-
hann G. Jóhannson, Gra-
ham Smith, Rúnar Þórisson,
Orn Jónsson, Rafn Jónsson,
Hjörtur Howser, Þorleifur
Gfslason. Jón Sigurösson og
Arni Askelsson.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
72 35 „Draumar I orðum"
Anna Ólatsdóttir Björnsson
sér um þáttinn. Lesari: Slg-
urður G. Tómasson.
23.00 Múslkvaka
Umsjón: Oddur Björnsson.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Bandarlsk blómynd frá
1952.
Leikstjóri Henry Hathaway.
Aöalhlutverk: Joseph Cott-
en, Jean Peters, Marilyn
Monroe og Don Wilson.
Myndin gerist við Niagara-
fossa. Fögur en viðsjál kona
situr á svikráöum viö eigin-
mann sinn. Ung hjón á ferö
viö fossana dragast inn I erj-
ur þeirra sem eiga eftir aö
kosta mannsllf.
Þýðandi Jón O. Edwald.
23.35 Fréttir I dagskrárlok.
FIMMTUDAGUR
17. janúar
10.00-12.00 Morgunþátt-
ur
Stjórnendur: Kristján Sigur-
jónsson og Sigurður Sverr-
isson.
14.00—15.00 Dægurflugur
Stjórnandi: Leópold Sveins-
son.
15.00—16.00 Otroönar slóöir
Kristileg popptónlist.
Stjórnendur: Andri Már Ing-
ólfsson og Halldór Lárusson
16.00—17.00 Jazzþáttur
Stjórnandi: Vernharður Linn-
et.
17410—18.00 Gullöldin
Lög frá 7. áratugnum.
Stjórnandi: Þorgeir Ast-
valdsson.
Hlé
20.00—21.00 Vinsældalistl
hlustenda rásar 2
Top 10.
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
21.00—22.00 Nú má ég!
Gestir I stúdlói velja lögin.
Stjórnandi: Ragnheiöur Dav-
lösdóttir.
22.00—23.00 Rökkurtónar
Stjórnandi: Svavar Gests.
23.00—24.00 Sðngleikir
Rocky Horror Picture
Show/Grease
Stjórnandi: Jón Ólafsson.
SJÓNVARP
FÖSTUDAGUR
18. janúar