Morgunblaðið - 17.01.1985, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 17.01.1985, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1985 Sjóræningjar á Skaganum Tónlistarskólinn á Akranesi setur upp söngleikinn Sjóræningamir frá Pensance eftir Gilbert og Sullivan Hópur skuggalegra náunga og sakleysislegra ungra stúlkna hefur upp á síðkastið sést skjótast inn og út um dyr Bíóhallarinnar á Akranesi, oftast eftir að tekið er að skyggja á Nkaganum. Þessi umgangur um bakdyr Bíó- hallarinnar hefur þó ekki skotið íbúum bæjarins tiltakanlegum skelk í bringu. Þeir vita sem er, að hér eru á ferðinni nemendur Tón- listarskólans á Akranesi, ásamt nokkrum hraustum mönnum úr Karlakór Járnblendiverksmiðjunn- ar, félögum úr kirkjukór staðarins og óteljandi hjálparkokkum. Og þó að sumir góðborgarar á Skaganum séu hárprúðari og úfn- ari á að líta þessa dagana en sam- borgarar þeirra eiga að venjast, er eini „skrekkurinn" sem liggur í loftinu væntanlega örlítill frum- sýningarskrekkur. Ástæðan fyrir öllu tilstandinu er söngleikurinn Sjóræningjarnir frá Pensance, sem Tónlistarskólinn frumsýnir í BíóhöIIinni í kvöld, klukkan 20.30, eftir langar og strangar æfingar. Það er í mikið ráðist að setja upp sýningu áhuga- manna á þessari vinsælu óperu þeirra Gilberts og Sullivans, en þetta er í fyrsta skipti sem hún kemst á fjalirnar á íslensku leik- sviði. Eins og nauðsyn krefur, hefur mikið iið vaskra manna og kvenna lagt nótt við dag til þess að koma sjóræningjaskútunni á flot og þeg- ar Morgunblaðsfólk átti dagstund með hópnum í vikunni, varð ekki annað séð en að téð skúta svifi segl- um þöndum um svið Bíóhallarinn- ar. Þátttakendur í söngleiknum eru rúmlega þrjátíu, auk allra þeirra, sem lagt hafa hönd á plóginn utan sviðs, en allir búningar eru t.d. heimasaumaðir af staðarkonum. Unnur Jensdóttir, söngkona og söngkennari Tónlistarskólans á Akranesi, hefur æft sönginn og er jafnframt undirleikari sýningar- innar, Andrés Sigurvinsson leik- stýrir og Magnús H. Ólafsson, arki- tekt, er framkvæmdastjóri sýn- ingarinnar og yfirhönnuður. „Bíóhöllin var einu sinni af- bragðs tónleikahús," segir Magnús. „En eftir því sem kvikmyndatækn- in batnaði, versnaði hljómburður- inn í húsinu. Því hefur orðið að gera ýmsar breytingar og endur- bætur, m.a. setja upp hljóðdeyfi- plötur og gera nýtt gólf á sviðið og nú held ég, að okkur hafi tekist að Sjóræningi og herforingjadóttir, Hörður Jónsson og Pálína Fanney Skúla- dóttir. ná aftur u.þ.b. tveimur þriðju af upphaflegutn hljómburði í húsinu." „1 þessari sýningu eiga allir að fá að njóta sín,“ segir Jón Karl Ein- arsson, skólastjóri Tónlistarskól- ans og jafnframt sjóræningjakóng- ur í sýningunni. „Það kom ekki til greina að ráða atvinnusöngvara, þá hefði tilgangur sýningarinnar fall- ið um sjálfan sig,“ segir hann. „Þetta er nemendasýning og við höfum veitt okkur það frjálsræði að færa til eitt og eitt einsöngsat- riði svo að allir fái að eiga sín „sóló“. Jón Karl hefur verið skólastjóri Tónlistarskólans sl. sex ár, en skól- inn á þrjátíu ára afmæli í ár. Skólastjórinn kveðst ánægður með þann áhuga, sem ríki á Tónlist- arskólanum meðal bæjarbúa, nú þegar skólinn er að ráðast í stærsta verkefni sitt til þessa, en hann set- ur markið hátt og bætir því við, að takmarkið sé „að Skagamenn fái jafnmikinn áhugi á tónlist og þeir hafa á fótbolta". „Við höfum verið heppin með fólk og haft góðan tíma til æfinga," segir Jón Karl, sem er reyndar einnig þýðandi verksins, ásamt Unni Jensdóttur. Söngæfingar hafa staðið alveg frá haustinu ’83 og segja þau það hafa létt á leikstjór- anum, hvað söngurinn var kominn á góðan rekspöl þegar hann kom til sögunnar. „Svo getur hann Andrés nú líka lokkað fram leik hjá fólki, Hershöfðinginn, Pétur Jónsson. sem aldrei hefði þorað slíkt áður, jafnvel ekki í felum," segir Jón Karl. Nú hefur leikurinn borist niður í Bíóhöll, bæjarbúar tínast inn og taka á sig mynd sjóræningjakónga og -drottninga, eða saklausra smá- meyja og herforingjadætra, án þess að nokkru verði upp ljóstrað um efni leiksins. Leik- og söng- MorgunblaftiS/Bjarni. Slakað á í miðri æfingu. Fremstur krýpur kapteinninn á skútunni, konungur sjóræningjanna og skólastjóri Tónlistarskólans, Jón Karl Einarsson, fyrir aftan hann standa þeir Sveinn Gunnarsson og framkvæmdastjórinn Magnús H. Ólafsson, þá leikstjórinn, Andrés Sigurvinsson, söngstjórinn, Unnur Jensdóttir, Helgi Þórhallsson og Leif Steindal. Nætursöngur umhverfis herforingjann. Þessi tvö ráða ríkjum á skútunni. stjórinn setja sig í stellingar, hvort í sínum enda salarins og pexa góð- látlega um það hvort ráði hverju á sviðinu. Áður en hjólin fara að snúast fyrir alvöru tökum við tali þrjá fulltrúa þess fjölbreytilega hóps, sem hér er saman kominn. „Við erum hér fimm úr hinum heimsfræga Grundartangakór," segir sá sem fyrstur verður fyrir valinu, Helgi Þórhallsson, verk- fræðingur við Járnblendiverk- smiðjuna á Grundatanga, og brosir bakvið myndarlegt sjóræningja- skegg. „Við erum með karlakór við verksmiðjuna og þegar farið var að æfa sjóræningjana bárust boð um að þeir okkar, sem hefðu áhuga á að vera með, gætu fengið að spreyta sig. Mér þótti það fýsilegt og spennandi og var ekki einn um það, þó að hópurinn frá Grundar- tanga hafi nú týnt tölunni frá því sem var í upphafi. Þetta hefur ver- ið mjög sérstök upplifun og andinn góður. En vinnan hefur verið það mikil, að hefði mig rennt grun í það væri ég varla hér í dag. Hún Unnur hefur unnið mikið þrekvirki við þessa sýningu og þó að stundum hafi gripið um sig vonleysi og mann hafi langað að eiga frí, hefur það aldrei staðið lengi. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á söng og hefur orðið til þess að við erum komnir í söngnám, nokkrir úr kórnum," segir Helgi. „Að vísu hef- ur það orðið til þess að maður upp- götvar sér til mikillar skelfingar, að maður kann ekkert að syngja," bætir hann við. „En þetta verkefni hefur verið mér stórkostleg andleg upplyfting og þroskað mig félags- lega,“ segir Helgi Þórhallsson, öðru Byggingarframkvæmd- ir við nýtt mötuneyti Kkppjimsreykjum, 9. janúar. N ÁRIÐ 1984 KVADDI okkur meó sæmilegu veftri en veðurfarslega var ekki eftirsjá í árinu, fyrst með afbrigftum snjóþungt og rigning seinnipart sumars. Þó verftur að vifturkenna góða kafla í vor og haust. Tíðindallitið var hér á síðast- liðnu ári. Þó má geta þess að eins og menn muna lentu tveir breskir ævintýramenn á Eiríksjökli á leið sinni til Grímseyjar. Þeim var þó bjargað á elleftu stundu. Mun þessi leit að mönnunum vera ein sú fjölmennasta sem farin hefur verið fram til þessa. I Reykholti voru hafnar bygg- ingaframkvæmdir við nýtt mötu- neyti og er verið var að grafa fyrir því kom í ljós gufustokkur, senni- lega frá tímum Snorra Sturluson- ar. Nýbyggingin í Reykholti er um 600 mz að grunnflatarmáli og í fyrsta áfanga verður byggður kjallari og ein hæð. Byggingar- verktaki er Guðmundur Samúels- son frá Akranesi en arkitektar eru Helgi og Vilhjálmur Hjálmars- synir frá Teiknistofunni Óðins- torgi. Við barnaskólann á Klepp- járnsreykjum er búið að steypa sökkla undir búningsklefa og íþróttasal. Heitt vatn er nú komið á Grímsstaði, Skáney og Nes og er vatnið mikil búbót fyrir þessa bæi. Garðyrkjubændur eru byrjaðir að undirbúa ræktunina fyrir næsta sumar, útlitið er gott og flestir eru mjög tímanlega, því öll verk hafa Byggingarframkvæmdir í Reykholti unnist vel sökum blíðviðris undan- mönnum árs og friðar á komandi farna daga. árum. Reykdælir óska öllum lands- Fréttaritari

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.