Morgunblaðið - 17.01.1985, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 17.01.1985, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1986 25 Skýring fundin á skógardauðanum? Súra regnið margfaldar eyðileggjandi áhrif ósonsins segir vestur-þýskur vísindamaður Washington, 16. janúar. AP. VESTUR-ÞÝSKUR vísindamaður telur sig hafa komist að því hvers vegna skógarnir í landi hans eru ad deyja. I»aó er vegna þess, að súra rigningin marglaldar áhrif ósonsins, sem löngu er vitaó, að veldur skemmdum á trjám og plöntum. Kenningar eða uppgötvanir vestur-þýska visindamannsins Reinhards Hutl, sem er prófessor við háskólann í Freiburg, hafa vakið mikla athygli í heimalandi hans og erlendis og ekki síst í Bandaríkjunum þar sem vísinda- menn hafa leitað með logandi ljósi að sönnun þess, að það sé mengun- in, súra rigningin, sem sé að drepa skógana. í Vestur-Þýskalandi hafa farið fram miklar rannsóknir á þessu og öðrum þræði í þeim tilgangi að telja stjórnina á að setja ný lög um varnir við brenni- steinstvísýrlingi í andrúmsloftinu og um útblástur bifreiða. Reinhard Hutl segir, að honum og samstarfsmönnum hans hafi tekist að framkalla í tilraunastof- Dorchester Hotel í London, sem nú er orðið eign soldánsins af Brunei. Soldán kaupir Dorchester Hotel London, 16. janúar. AF. KITT glæsilegasta hótel Lundúna, Dorchester Hotel, hefur verið selt soldáninum af Brunei. Skýrði talsmaður hótelsins frá þessu í dag. Kkki var greint frá kaupverðinu, en talið er, að það hafi verið talsvert yfir 40 millj. pund, sem var það verð, er hótelhringurinn Kegent International Hotels Co. keypti hótelið á í júlí sl. Soldáninn olíuauðugi, sem hefur alltaf lausa íbúð fyrir sig á þessu glæsihóteli, hafði gert mörg kauptilboð í það á undan- förnum mánuðum. Fór svo að lokum, að ekki var unnt að hafna tilboði hans. Gert er ráð fyrir því, að auk kaupverðsins muni 20 millj. pundum verða varið til endur- bóta á hótelinu. Það var byggt 1931 og í því eru 285 herbergi. Herbergi fyrir einn kostar þar 85 pund á sólarhring, en íbúðirn- ar, sem eru 72, kosta allt að 500 pund á sólarhring. Alls er þar gistirými fyrir 420 manns og 600 starfsmann eiga að sjá um, að gestum hótelsins líði sem bezt. Wilfred Martens, forsætisráð- herra Belgíu, sagði á fundi með fréttamönnum í Boston í gær, að ákvörðun yrði tekin í þessu máli í Belgíu „fyrir marzlok". „Það verð- ur gerð tímaáætlun," sagði Mart- ens ennfremur og „um hana verð- ur samið við bandamenn okkar í NATO.“ „Þessi tímaáætlun samrýmist alveg áætlunum NATO um udd- um nákvæmlega sömu skemmd- irnar á trjám og orðið hafa í þýsku skógunum. Það kom í ljós, að þeg- ar óson í því magni, sem það gerist mest í þýsku skógunum, er látið verka á tré í nokkrar stundir á dag í nokkra daga þá skemmast „sum- ir vefjanna", einkum í blöðum og barri. „Ýmis nauðsynleg næringarefni leysast út um skemmda vefi en þegar súra rigningin kemur til sögunnar eykst næringarefnatap- ið um allan helming," sagði Hutl, sem bætti því við, að skaðinn á trjánum færi eftir því um hvaða næringarefni sneyddist fyrst og það væri aftur háð því hvaða nær- ingarefni vantaði helst í jarðveg- inn. Richard Ayres, formaður bandarískra umhverfisverndar- samtaka, sagði um kenningu Hutls, að hún væri stórmerkileg og einkum fyrir það, að með henni fengist skýring á þeim undarleg- heitum, að á sjúkum skógarsvæð- um væri mjög mismunandi hvaða næringarefni vantaði. Á þessu hefðu menn enga skýringu kunnað til þessa og talsmenn stóriðnaöar- ins því notað þessi afbrigðilegheit sem röksemd gegn mengunarvörn- um. Hutl sagði, að ef ekki væri fyrir ósonið gætu vestur-þýsku skóg- arnir þolað 30 sinnum meiri sýru i rigningarvatni en nú væri algengt en hann vildi ekki svara því hvort nauðsynlegra væri að draga úr sýrustiginu eða ósoninu. Dauður og deyjandi skógur í Tékkóslóvakíu. Hvergi er ástandið alvar- legra en í Austur-Kvrópu enda mengunarvarnir þar í lágmarki. Martens, forsætisráðherra Belgíu: Ákvörðun tekin fyrir marzlok um uppsetningu stýriflauganna Wa.shington, 16. jan. Al*. BANDAKÍKJASTJOKN gerir ráð fyrir því, að Belgía standi við skuldbind- ingar sínar við NATO um að setja upp hjá sér stýrifiaugar í marz, eins og áformað hafði verið. Var þetta haft eftir embættismönnum bandarísku stjórnarinnar í dag. setningu stýriflauganna,“ sagði Alan Romberg, talsmaður banda- ríska utanríkisráðuneytisins, i dag. Stuðningsflokkar Martens í belgísku stjórninni, sem er sam- steypustjórn, hrósuðu honum í gær fyrir þau ummæli, sem höfð voru eftir honum. En einn af leið- togum stjórnarandstöðunnar lýsti þeim sem „kosningabragði". TOPPmerkin í íkíóavörum Einar Ólafsson og Gotlfleb Konráðsson keppendur í skíðagöngu á heimsmeistara- mótinu í Seefeld, nota FISCHER skíði og ADIDAS gönguskíðaskó og bindingar. Við óskum þeim velfarnaðar í erfiðri keppni. i SKIÐASAMBAND . ISLANDS adidas ^ ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA m FALKINN 105 REYKJAVÍK SUÐURLANDSBRAUT 8 - SÍMI 91-84670

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.