Morgunblaðið - 17.01.1985, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1985
51
VELVAKANDI
SVARAR í SfMA
10100 KL 11-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Matur og áfengir drykkir
Friðrik Einarsson skrifar:
Eftir nýjustu fréttum að dæma
virðist nú eiga að gera alvöru úr
því að banna a.m.k. sumum gilda-
skálum að veita áfengi drykki,
nema matur sé framreiddur með.
Mér kemur í hug atvik frá Svíþjóð,
en þangað sækjum við fyrirmynd-
ir um ýmsar reglur og uppákomur,
og oft um það sem síst skyldi,
enda eru Svíar fullir fordóma og
alls kyns fáránlegra hugmynda.
Það eru líklega um 20 ár síðan
við hjónin vorum stödd í Malmö.
Ég keypti þar föt, og meðan verið
var að ganga frá þeim fórum við
út á götu. Það var mjög heitt í
veðri og okkur tók að þyrsta. Við
fórum inn á veitingastað og hugð-
umst fá okkur ölglas. í Ijós kom að
við urðum að taka mat með, þótt
við værum ekki svöng, bara þyrst.
Við kunnum þessu ekki vel, enda
vorum við að koma frá Danmörku,
þar sem yfirleitt ríkir heilbrigður
hugsunarháttur. Eftir nokkrar
bollaleggingar var okkur bent á,
að við þyrftum raunar aðeins að fá
okkur brauðsneið með ölinu.
Brauðsneiðin mætti vera svo ódýr,
að litlu skipti, þótt við skildum
Sambandsleysi
Inga Sigurðardóttir kom að máli
við Velvakanda og bað um að birt
yrði eftirfarandi:
Mig langar til að biðja hjónin
Ásgeir Guðnason og konu hans,
Bryndisi, að hafa við mig samband
við tækifæri, en ég hef ekki getað
haft upp á heimilisfangi þeirra né
símanúmeri hér fyrir sunnan.
Símanúmer mitt er: 24857.
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að
skrifa þættinum um hvaöeina, sem
hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga
til föstudaga, ef þeir koma þvi ekki
við að skrifa. Meðal efnis, sem vel
er þegið, eru ábendingar og orða-
skipti, fyrirspurnir og frásagnir,
auk pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn,
nafnnúmer og heimilisfðng verða
að fylgja öllu efni til þáttarins, þó
að höfundar óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina þvf til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, aö þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér I
dálkunum.
Enn um
Dallas
Ein 13 ira hringdi:
Því er Dallas ekki sýnt lengur í
sjónvarpinu? Ekki eru allir svo
efnaðir að eiga myndbönd og
heima hjá mér t.d., þar sem til er
myndband, er ekki hægt að sýna
Dallas-þættina, þar sem þeir eru
frá allt öðru kerfi en tækið okkar
Skemmtiþætti
fyrr á kvöldin
Helga hringdi:
Ég á skyldfólk í Hafnarbúðum
og þar kvarta vistmenn gjarnan
yfir því hve léttir þættir sjón-
varpsins eru sýndir seint á kvöld-
in.
Væri nú ekki nær að hafa af-
þreyingarþætti og skemmtiefni
fyrr á kvöldin svo að eldra fólkið
missi ekki iðulega af þeim, en það
fer oftast snemma í háttinn.
hana eftir á diskinum. Við vorum
ekki skyldug til að ljúka „matn-
um“. Við fengum okkur brauð-
sneið og skildum eftir, en drukk-
um ölið.
Fyrir allmörgum árum vorum
við á læknaþingi í Falstebo i
Suður-Svíþjóð. Að þingi loknu
komum við okkur saman um að
dvelja í nokkra daga á hótelinu
með góðum vinum frá Danmörku.
Dag nokkurn fórum við inn í bæ-
inn, en þetta er smábær. Við snér-
um okkur að tveimur eldri
mönnum á götu og spurðum til
vegar að áfengiseinkasölunni i
bænum: Systembolaget. Þeir litu
steinhissa hvor á annan. „System-
bolaget! Det vet vi inte.“ Síðan
spurði annar hinn: „Veist þú nokk-
uð hvar Systemet er?“ „Nei. En
fyrir nokkrum árum var það held
ég ...“ og nefndi götu. Svona var
yfirdrepskapurinn mikill. Og
hræsnin. Kannski hafa þeir nú
ekki farið oftar í „Systemet" en
svo sem einu sinni á ári.
Þetta minnir raunar á hræsnina
og yfirdrepsskapinn hér. Mér
finnst ekki fara mikið fyrir mót-
mælum bindindismanna við því að
Friðrik furðar sig i því að bindindis-
menn amist lítið út í „bjórlíkið“ en
mótmæla hins vegar harðlega að
ósvikið öl sé selt hér.
sullað sé saman brennivín og öli
og það selt og kallað „bjórlíki". En
ef minnst er á að hafa ósvikið öl á
boðstólum ætla þeir vitlausir að
verða.
Bréfritari álítur að Bjarni Friðriksson hefði átt skilinn titilinn
íþróttamaður ársins 1984.
Rangt val
RJS. skrifar:
Hvernig skyldi standa á því að við kjósum Ásgeir Sigurvinsson
sem íþróttamann ársins 1984? Ásgeir er atvinnumaður og vinnur sín
ágætu afreksverk fyrst og fremst fyrir Þjóðverja, en ekki Islendinga.
Er annars ekki verið að kjósa íþróttamann íslands?
Að mínu mati hefði Bjarni Friðriksson, júdókappi, átt að hljóta
titilinn. Hann vann til bronsverðlauna á ólympíuleikunum sl. sumar
fyrir f slands hönd og hefur staðið sig með ólíkindum vel í sinni grein.
Bjarni, þú ert minn íþróttamaður ársins 1984, eins og svo margra
annarra.
Fræöslu-
fundur
Muniö fræöslufundinn í félagsheimilinu viö Bústaða-
veg í kvöld kl. 20.30.
Járninganámskeið
Fer fram 22.-26. janúar. Kennari: Eyjólfur ísólfsson.
Þátttaka tilkynnist á skrifstofunni.
c
Fræðslunefndin.
03^ SIG6A MlCsGl £ vLVtftAH
06 Rf) L0KUH
BIРɣ FÉLHGRNR
.RP RISR OR SÆTl
Rafreiknir hf. kynnir:
LAUN
Launabókhald fyrir smátölvur
Hentar öllum fyrirtækjum sem vilja
tölvuvæöa launaútreikninga.
Kynning veröur haldin laugardaginn 19.1.
’85 aö Smiöjuvegi 14C, Kópavogi, kl.
1—6. Sama hús og Höggdeyfir.
Helstu útsölustaöir:
Atlantis,
Skrifstofuvélar,
Örtölvutækni,
Gísli J. Johnsen,
Tölvutæki, Akureyri.
Rafreiknir hf.,
Höggdeyfishúsinu,
Smiöjuvegi 14C,
sími 79611,
Kópavogi.
APPLE-DRIF
Sértilboð
Viö höfum gert samning viö CUMANA Ltd í Bretlandi
um afslátt af hinum vinsælu Cumana AS 100 disk-
ettudrifum fyrir Apple II+ og //e tölvur.
Viö getum nú boöið þau á: kr. 5.200.- (gengi 15.1. ’85)
Þetta tilboð er háö því, aö þú pantir diskettudrif
símleiöis, eöa á annan hátt, fyrir 30. janúar, 1985.
Drifin veröa siöan afhent um miðjan febrúar.
Einstakt tækifæri fyrir skóla og einstaklinga sem
vilja eignast ódýrt og vandaö drif.
SMITH &
NORLAND HF.,
Nóatúni 4, 105 Reykjavík.
Símar 28300 (verslun)
og 28322 (skrifstofa).
06 VOTTH HINUM
LÁTNR VIRPIN6U
SÍNH MEÐ EINNHR
MÍNÚTU PÖ6N,