Morgunblaðið - 17.01.1985, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1985
Ólympíumeistaramir
að líkindum til Eyja!
• Bragi Björnsson
Bragi í ÍR
FRAMARINN Bragi Björnsson
sem lék meö 1. deildarliði fé-
lagsins á síðastliðnu keppn-
istímabili, hefur ákveðiö að
ganga í 4. deildarlið ÍR. Hefur
hann tilkynnt félagaskipti þar
að lútandi. Bragi sem er mið-
vallarieíkmaöur tók þátt í 12 af
18 leikjum Fram í fyrrasumar í
1. deildinni.
STJÓRN HSÍ hefur ákveðið að
einn landsleikja íslendinga við
Ólympíumeistara Júgóslava í
handknattleik í febrúar fari fram í
Vestmannaeyjum, verði þess
nokkur kostur.
„Viö vorum búnir aö ákveöa
þetta en síöan kom babb í bátinn,“
sagöi Rósmundur Jónsson, stjórn-
armaöur HSÍ í samtali viö blm.
Mbl. í gær. Þannig er mál meö
vexti aö síöasta áætlunartlug
Flugleiöa fer til Eyja kl. 16 á virkum
dögum — þannig aö Ijóst er aö
ekki veröur hægt aö fljúga áætlun-
arvél félagsins, en það ætti aö
liggja fyrir í dag hvort Flugleiöir
geta fariö aukaferö til Eyja með
landsliöiö — og beöiö eftir þvi, því
„þaö er útilokaö fyrir okkur aö
leika í Eyjum ef viö komumst ekki
meö liðin til Reykjavíkur aftur
sama kvöld," eins og Rósmundur
sagöi.
Rósmundur benti réttilega á aö
aldrei er hægt aö treysta veöri á
þessum árstíma þó blíöa hafi veriö
undanfariö — og yröi ekki hægt
aö fara til Eyja vegna veöurs yröi
leikurinn spilaöur einhvers staöar
á suöurlandi. „Viö höfum ekki tal-
aö viö neina í sambandi viö þaö,
en mér dettur t.d. Keflavík í hug —
einnig Mosfellssveit, Digranes j
Kópavogi og Hafnarfjöröur," sagöi
Rósmundur.
Einn landsleikur i handknattleik
heur fariö fram í Vestmannaeyjum
til þessa — ieikur islands og Dan-
merkur fyrir 10 árum síöan. Akur-
eyringar sóttu um, eins og Eyja-
menn, aö fá einn Júgóslavaleikj-
anna til sín, en af því veröur ekki.
Júgóslavarnir mæta islending-
um 12. og 14. febrúar í Laugar-
dalshöll en miövikudaginn 13.
febrúar í Eyjum, ef svo fer sem
horfir.
Jabbar og Erving
Frá Gunnari Valgeirssyni, fréttamanni Morgunblaösins í Bandarikjunum, og AP.
Bandaríski körfuknattleiks-
maðurinn Kareem Abdui-Jabbar
hefur ákveðið að leika annað
keppnistímabil með Los Angeles
Er hættulegt
að skalla knött?
PRÓFESSOR í læknavísindum
telur að það skaði heilann hjá
atvinnumönnum í knattspyrnu
að skalla boltann svo mikiö sem
raun ber vitni.
Grein sem birtist í tímariti Al-
þjóða knattspyrnusambandsins
hefur vakiö mikla athygli. Greinin
er skrifuö af prófessor Vojin
Smodlaka sem er prófessor í
læknavísindum viö bandarískan
háskóla. Greinin ber yfirskriftina
„Athyglisverðar hugleiöingar um
heilaskemmdir".
i greininni segir meöal annars
aö í atvinnumennsku í knatt-
spyrnu, er skallaö aö meöaltali
fimm sinnum í hverjum leik, sem
mun veröa 5250 skallar eöa högg
á höfuöiö á 15 ára ferli knatt-
spyrnumanns. Bolti sem er 396
til 453 grönn aö þyngd getur gef-
iö gífurlegt högg þegar hann er
skallaöur af miklum krafti.
Dr. Smodlaka vildi meina aö
þaö ætti aö verja mikiu meiri
tíma í aö rannsaka þetta nánar,
og vildi aö knattspyrnuymenn
hugleiddu þetta mál og mundu
læra aö skalla boltann meö meiri
varfærni.
• Hættuleg iðja ... ?
Lakers í NBA-deildinni í Banda-
ríkjunum.
Körfuknattleiksmaöurinn Kar-
eem Abdul-Jabbar, sem hefur
skoraö fleiri stig en nokkur annar
maður í Bandaríkjunum, skrifaöi
undir samning viö Los Angeles
Lakers í síöustu viku. Samningur-
inn er til eins árs til viöbótar hjá
Lakers. Abdul-Jabbar, sem verður
38 ára í apríl, sagöist hætta aö
spila eftir aö þessi nýi samningur
rennur út á næsta ári. Hann veröur
fyrsti körfuknattieiksmaöurinn til
aö leika 17 keppnistímabil í NBA-
deildinni, næsta ár veröur hans 10.
með Lakers. Abdul-Jabbar er einn
tekjuhæsti körfuboltamaöurinn í
NBA-deildinni, hann mun hafa um
1,5. milljónir dollara í tekjur á
þessu ári, reiknaö er meö aö hann
hafi um 2 milljónir dollara á því
næsta.
Hann hefur skoraö 32.300 stig í
NBA-deildinni síöan hann byrjaöi
fyrir 16 árum og er þaö met.
Önnur þekkt kempa í banda-
ríska körfuboltanum, Julius Erving
hjá Philadelphia 76ers, hefur fram-
lengt samning sinn. Hann er 35 ára
og hyggst leika eitt ár enn meö
liöinu. Erving fær rúmlega eina
milljón fyrir þennan eins árs samn-
ing sem hann geröi.
Körfuknattleikur
Einn leikur verður í kvöld í úr-
valsdeildinni í körfuknattleik. ÍS
og Njarövík leika í íþróttahúsi
Kennaraskólans og hefst leíkur-
inn kl. 20.15.
„30 dagar í Mexíkó“
Alþjóðaknattspyrnusambandiö
kom saman á föstudag, og var
þar ákveðin dagskrá heimsmeist-
arakeppninnar í knattspyrnu,
sem fer fram í Mexíkó á næsta
ári.
Þaö veröa 24 liö sem keppa i
Mexíkó, og veröa leiknir 52 leikir í
níu borgum. Fyrsti leikurinn veröur
31. maí á næsta ári, og veröa þaö
italir sem hefja titilvörn sína.
Úrslitaleikur kepninnar veröur svo
29. júní.
Bæöi opnunar- og úrslitaleikur-
inn veröa spilaöir á Aztec-leik-
vanginum í Mexíkóborg sem tekur
110.000 þúsund áhorfendur í sæti.
Þaö veröur breyting frá því sem
var á Spáni 1982, aö nú leika öll lið
sem eru í sama riöli á sama tíma,
þannig aö þaö á enginn aö vita um
úrslit í hinum leikjunum fyrirfram.
Eins og fram kom á Spáni er liö
Vestur-Þjóöverja og Austurríkis
léku í riölakeppninni, vissu þeir
fyrir leikinn ,ivaö nægöi þeim til aö
komast í úrslit og þurftu því ekki
aö leika af fullri getu. En meö
þessu nýja fyrirkomulagi veröa öli
liöin aö berjast til þrautar.
íþróttir á fjórum síðum
í dag: 52, 53, 54, og 55
Getrauna- spá MBL. I Sunday Mirror Sunday People Sunday Eapreaa I I ■s • I Sunday Telegraph SAMTALS
1 X 2
Chelsea — Arsenal 1 1 X 2 1 X 3 2 1
Ipswich — West Ham X X 1 2 X 2 1 3 2
Liverpool — Norwich 1 1 1 1 1 1 6 0 0
Nott’m For. — Sheff. Wed. 2 X 1 X X 1 2 3 1
Stoke — Luton 1 2 1 X 2 X 2 2 2
Tottenham — Everton 2 X X 1 X X 1 4
Watford — Man. Utd. 1 1 0 0
Barnsley — Grimsby 1 1 X 1 1 X 4 2 0
Middlesbr. — Portsmouth 2 X 2 X X 2 0 3 3
Oxford — Huddersfield 1 1 1 1 1 1 6 0 0
Sheff. Utd. — Wolves 1 1 X 1 1 X 4 2 0
Shrewsbury — Fulham 1 1 X 2 X X 2 3 1
Leikur Watford og Manchester United fer fram á sunnudag og því
spáðu ensku sunnudagsblöðin ekki um úrslit hans. Við höfum hins
vegar gert þaö. Leikurinn gildir á seðli íslenskra getrauna þó ekki fari
hann fram fyrr en degi seinna en aðrir leikir.
Boniek til Spanar og
Laudrup til Juventus?
STJÓRNULIÐIÖ Juventus á Ítalíu
vill selja Pólverjann Zbigniew
Boniek og fá til sín danska lands-
liðsmanninn Michael Laudrup.
Juventus keytpi Michael Laud-
rup 1983 en leigöi hann síöan til
Lazio í Róm. Þaö mega aöeins
tveir útlendingar í hverju liöi á ít-
alíu. Þess vegna var Laudrup
Hnífjafnt i
1. deild kvenna
MIKIL barátta er í 1. deild kvenna
í körfuknattleik milli KR og
Hauka. Staðan er nú þessi:
KR 9 7 2 429—352 14
Haukar 9 7 2 369—333 14
ÍS 9 4 5 401—340 8
ÍR 9 4 5 318—336 8
Njarövík 8 0 8 211—377 0
leigður til Lazio, þar sem ekki var
pláss fyrir hann í liöi Juventus. Þar
voru fyrir stjörnurnar Michel Platini
frá Frakklandi og Zbignew Boniek
frá Póllandi.
Nú er þaö vitaö aö Boniek er
efstur á óskalista Real Madrid á
Spáni og vilja forráöamenn félags-
ins aö hann komi í staö Ulrich Stie-
like, Vestur-Þjóöverjans sem leikiö
hefur meö Real Madrid. Ef þetta
dæmi gengur upp hjá Juventus og
Real Madrid þá fer Laudrup aftur
til Juventus.
Félögin á italíu hafa gert meö
sér samning um aö bannaö sé aö
fá nýja útlendinga fyrr en 1986. En
þau geta aftur á mótí skipt á leik-
mönnum innbyröis.
Michael Laudrup er 20 ára og
hefur leikiö 21 landsleik fyrir
Danmörku.