Morgunblaðið - 12.02.1985, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1985
„atti hund, en hann. oildi CÚdreX
ktCc letj farrvxr hjá* lConunmi roinr\i "
Maðurinn minn er í kvennastússi.
Mest undrast ég hvað það er sem
konan sér við hann!
Hefst nú útvarpsleikritið „King
Kong“!
HÖGNI HREKKVÍSI
„ ég VEIT þó Ef?T eÁL5KOTlN l HONUM, SN-- ■"
ÍTi.t' á
m1 ir i'i.í’g.í
É JÍ^ ^ Í I iUH
Eflum orgelsjóð
Hallgrímskirkju
Baldvin Þ. Kristjánsson skrifar:
Háttvirti Velvakandi!
Ég vona að þér sé ekki óljúft
að birta nokkur orð til mótvægis
við ástæðulaust og hvimleitt agg
út í menningarlegt framfaramál,
sem birzt hefur að undanförnu í
dálkum þinum.
Guð forði mér frá að segja
nokkuð, sem dregið gæti úr kær-
leiksríkri hvatningu góðra
manna til lausnar á „heimsins
kvöl og nauð“, nær og fjær. En
þegar sjálfsagt vel meint hvatn-
ing til góðra verka gengur út á
að níða og hleypa illum anda inn
í fagurt og gott, sem aðrir eru að
gera, er ég ekki með og fæ jafn-
vel ekki orða bundizt.
Þetta er sagt af því gefna til-
efni, að hvað eftir annað hafa á
þessum vettvangi heyrzt nei-
kvæðar leiðindaraddir í garð
fjársöfnunar þeirrar, sem nú
stendur yfir fyrir orgelsjóð Hall-
grímskirkju.
Það er nefnilega mikill mis-
skilningur að hugsanlegt sé að
beina frjálsum framlögum
áhugasamra manna um kaup á
verðugu hljóðfæri í Hallgríms-
kirkju til einhvers annars,
hverju nafni sem nefnist, hversu
gott og þarft sem það væri, eins
og t.d. hjálpar í Eþíópíu, at-
hvarfs fyrir fíkniefnaneytendur
eða hvers annars, sem hjarta-
gott fólk getur látið sér detta í
hug. Svona út í loftið án raunsæ-
is og raka — segjandi sem svo í
það óendanlega: það er nær að
gera þetta heldur en hitt. Það er
nefnilega oftast hægt að byggja
upp án þess að rífa niður.
Það er annars furðuleg árátta
viðkomandi fólks að þurfa endi-
lega að hafna i andstöðu við um-
talaðan orgelsjóð, þegar hugur
er leiddur að því, sem í sjálfu sér
væri full þörf á að styðja. Rétt
eins og hvergi annars staðar í
landinu sé fé að finna. Það liggur
þó víða, fáum eða engum til
gagns, en mörgum til skaða og
jafnvel skammar. En nóg um
það!
Nei, góðir hálsar! Gerum ann-
að, meira og betra en að láta
fjáröflun til orgelsjóðs Hall-
grímskirkju í friði, að ég ekki
tali um það óskiljanlega óþurft-
arverk að reyna að bregða fyrir
hana fæti: Eflum sjóðinn og
styrkjum sem mest við megum!
Gleymum þarfyrir engum góð-
um og þakkarverðum líknar-
verkum. Tökum undir með Tóm-
asi: „Syng Guði dýrð, syng
Drottni þökk, vor þjóð.“ Og ger-
um það ekki í framtíðinni án
voldugs undirleiks, já heilags og
leiðandi tónaflóðs frá viðeigandi
og verðugu orgeli Hallgríms-
kirkju, þessarar væntanlegu höf-
uðkirkju þjóðarinnar allrar.
„Músíkin er ein af fegurstu og
dásamlegustu gjöfum Guðs,“
sagði Lúter.
Bréfritari telur að það sé mikill mis-
skilningur að hugsanlegt sé að beina
frjálsum framlögum áhugasamra
manna um kaup á kirkjuorgelinu til
einhvers annars.
Sultarlaun
hins opinbera
Velvakandi!
Vilduð þér gjöra svo vel að birta
eftirfarandi:
Nú, þegar fara að hefjast æf-
ingar í Þjóðleikhúsinu á Grímu-
dansleiknum eftir Verdi, sem ætl-
unin er að færa upp á næsta leik-
ári með fyrsta flokks söngvurum í
aðalhlutverkum, vil ég ekki láta
Þessir hringdu ... Of ITlÍkÍð
fyrir rafmagn
A-2 hringdi:
Ég bý í 14 ára gömlu fjölbýl-
ishúsi og um daginn kemur það
upp úr kafinu að í 14 ár höfum
við greitt rafmagn eftir taxta
sem kallast mannvirkjagerð og
er 50% hærri en venja er að
greiða.
Nú spyr ég Rafmagnsveitu
Reykjavíkur að því hvort að ár
og öld geti liðið án þess að Raf-
magnsveitan taki þetta ákveðna
verkefni út, þ.e. að rafmagns-
lögnin í húsinu sé yfirfarin og
verkið fært yfir á A-l-taxtann,
sem er hinn rétti, almenni heim-
ilistaxti? Geta liðið 14 ár þangað
til, eða jafnvel ár og öld, og á
meðan greiða íbúar sameignar-
innar 50% of háan rafmagns-
reikning? Er rafvirkjameistar-
inn sem lagði rafmagnið í húsið
á sínum tíma algerlega óábyrg-
ur? Hvernig eru lög og reglur í
þessu sambandi?
Bruðlað með
peningana
B.I. hringdi:
Það er þýðingarlaust fyrir
olíuforstjórana að telja okkur al-
menningi trú um að ekki hafi
verið bruðlað með peninga við
byggingar bensínstöðva því það
sér hver heilvita maður. Bens-
ínstöðvar á höfuðborgarsvæðinu
eru alltof margar og íburðar-
miklar og eina samkeppnin milli
hinna þriggja olíufélaga er að
byggja sem íburðarmestar og
flestar bensínstöðvar. Það er til
skammar fyrir þjóðfélagið að
láta þetta viðgangast.
Þá er sú tillaga fráleit sem
kom frá OLÍS um að útgerðin
færi að reka sitt eigið olíudreif-
ingarkerfi. í því fælist ekkert
nema aukakostnaður sem þýddi
ekkert nema hreina afturför.
Hér þyrfti að umbylta olíudreif-
ingarkerfinu til að mynda er
bensín og olíuverð hér langtum
hærra en það þyrfti að vefa.
Takk fyrir
jólagjöfina
6273-4574 hringdi:
Ég átti yndislega stund úti á
sjó um jólin á skipinu Hvalvík.
Vil ég fyrir hönd allrar áhafnar-
innar þakka Kvenfélaginu
Hrönn kærlega fyrir jólagjöfina
sem það færði okkur.
Þó að þakkirnar séu síðbúnar
þá vona ég að þær sýni hug
áhafnarinnar á Hvalvíkinni.
hjá líða að geta þess, hvað öðrum
söngvurum og dönsurum í þessum
væntanlega óperuflutningi ríkis-
ins er boðið uppá, hvað snertir
laun, ef verða mætti öðrum ríkis-
þegnum til íhugunar, sem líka eru
skikkaðir á sultarlaun hins opin-
bera.
Kvöldæfingar — samlestur á
nótum og söngur — 150 krónur.
Sviðsæfingar — kvöld- og helgar-
vinna — 300 krónur. Sýningar —
500 krónur.
Nú langar mig að spyrja úthlut-
unarnefndina, háttvirta meðlimi
fj ármálaráðuneytisins:
Mynduð þér treysta yður til að
mæta í rullu á leiksviði, afskver-
aðir og huggulegir, kvöld eftir
kvö}d, eftir langan vinnudag — og
BROSA framan í áhorfendaskar-
ann útí sal — fyrir 50 krónur á
tímann?
Um leið vil ég geta þess, að
kjarninn í Þjóðleikhússkórnum er
af gamla skólanum — hefur greitt
hvern söngtima í sínu námi úr eig-
in vasa og hefur að baki margra
ára reynslu á leiksviði.
Á vinnukonufrídaginn
fimmtudaginn 7. febrúar 1985
Guðrún Jacobsen
Hvaða vítamín
skal velja?
Húsmóðir skrifar:
Ég hef alltaf gefið börnunum
mínum lýsi og vítamín yfir vetr-
artímann og við hjónin höfum líka
tekið þetta. Ég held að þetta hafi
gert okkur öllum gott, því við
verðum næstum aldrei veik. Svo
vantar víst einhver efni í íslenska
matinn.
Gallinn er bara sá, að það fást
svo margar vítamíntegundir að ég
veit ekki hvað ég á að velja. Ég vil
spyrja doktor Jón óttar Ragnars-
son hvaða vítamínpillur eru best-
ar. Var ekki einhver samanburður
á þessu í Mogganum í fyrra eða
hitteðfyrra?