Morgunblaðið - 12.02.1985, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1985
Húsmæður — Aðstoö
Áhugamaöur, sem unnið hefur við matréiöslu árum sam-
an, svo til eingöngu franska, vill gjarnan aðstoða með
fermingarveisluna, heimboðið, eða kannski notalegt
kvöld þar sem húsmóðirin er meðal gesta allan tímann.
Kaldir réttir, heitir réttir, smáréttir. Eldað á staðnum eða
flutt heim. Þrifið á eftir. Séð um innkaup, ef óskað er.
Verö: samkomulag.
Lysthafendur sendi nafn og símanúmer til augld. Mbl.
merkt: „HR — 24“ fyrir mánaðamót febrúar-mars.
Geymiö auglýsinguna.
I
-n
Seltjarivarnes
Vesturbær
Frúar-
leikfimi
Miðvikudaginn 13. febrúar hefst nýtt 5 vikna námskeið í
léttum æfingum fyrir konur á öllum aldri.
Innritun og upplýsingar
í síma 15359 kl. 10—16.
Ballettskóli
Gudbjargar Björgvins
Líþróttahúainu Seltjarnarneai ■
Litla aal
Marmaraflísar
Gátumeistara svarað
Kjarval var ansi sleipur í gát-
um: Tveir bílar leggja af stað sam-
tímis, annar frá Valhöll til
Reykjavíkur, hinn frá BSÍ til
Þingvalla. Sá frá Valhöll ekur á 35
km hraða, en hinn frá BSÍ á 47 km
hraða. Hvað heitir þá 1. vélstjór-
inn á Dettifossi?
Nú hefur það kómíska gerst, að
Gunnlaugur Þórðarson er farinn
að reyna sig í þessari gátutækni:
Málverk er keypt frá Noregi,
merkt nafni Þorvalds Skúlasonar
aftan á rammann. Myndin er bor-
in undir Þorvald. Hann man eftir
að hafa málað hana og merkir
hana. Hver er þá sökudólgurinn?
(Rétta svarið, skyldi það vefjast
fyrir einhverjum er: Björn Th.)
Og þar sem allt er á framfara-
braut, bætir Gunnlaugur við þetta
myndagáta (í langhala sínum i
Mbl. síðastliðinn miðvikudag).
Segir hann þar, að ég þori ekki út
í svoleiðis selskapsleik við sig, því
þá myndi það sannast að umrædd
mynd sé alls ekki af Þorvaldi (né
eftir hann), heldur af Snorra
Arinbjarnar (og eftir hann). Þó ég
sé ekki mikill bógur í opinberum
selskapsleikjum, vil ég samt ekki
valda honum né lesendum blaðs-
ins vonbrigðum með því að vera
stikkfrí í þessu gríni. Og hér er því
myndagátan á móti:
Nr. 1: Fermingarmynd af Þorvaldi
frá árinu 1920; nr. 2: Ljósmynd af
Þorvaldi frá árinu 1928; nr. 3:
Spegilvent mynd af málverkinu
sem Þorvaldur segist hafa málað
af sér 1931 (sem gæti þó verið mis-
minni fyrir 1930 eða ’29, svo sem
ég hef áður látið liggja að), og nr.
4: Mynd af málverkinu sjálfu. Og
nú kemur gátan: Hver er maður-
inn á málverkinu?
Með kveðjum til Gunnlaugs
Þórðarsonar og ósk um góða
skemmtun.
Björn Th Björnsson
Frá hátíðarsamkomunni f tilefni fjörutíu ára afmælis Reykjalundar. Matthías Bjarnason heilbrigðisráðherra heilsar
Oddi Ólafssyni fyrrverandi vfirlækni á Reykjalundi og núverandi stjórnarformanni.
- sterkt náttúruefni
Eigum ávallt fyrirliggjandi mikiö
úrval af ítölskum
marmaraflísum á gólf og veggi.
Reykjalundur fjörutíu ára:
Fjölmenni á hátíðarsamkomu
í tilefni afmælisins
B S.HELGASON HF
HjjL'klnlllHf:
SKEMMUVEGI 48 SlMI 76677
FJÖRUTÍU ára afmæli Reykjalund-
ar var föstudaginn 1. febrúar sl. í
tilefni dagsins var efnt til hátíðar-
samkomu og mættu þar um
230—240 manns.
Matthías Bjarnason heilbrigð-
isráðherra ávarpaði samkomuna í
upphafi, en síðan tók Oddur
Ólafsson fyrrverandi yfirlæknir á
Reykjalundi og núverandi stjórn-
arformaður til máls og rakti sögu
Reykjalundar sl. fjörutíu ár.
Haukur Þórðarson yfirlæknir
lýsti starfsemi Reykjalundar nú
og fjölmargir gestir tóku til máls.
Allar deildir stofnunarinnar
voru opnar og var gestum boðið að
skoða þær að samkomunni lok-
inni. Að síðustu þáðu gestirnir af-
mæliskaffi.
Að sögn Björns Ástmundssonar,
forstjóra Reykjalundar, tókst
samkoman mjög vel og mættu
mun fleiri en búist var við. Hann
sagði að við þessi tímamót hafi
Reykjalundi borist fjölmargar
glæsilegar gjafir, blóm og kveðjur.