Morgunblaðið - 12.02.1985, Blaðsíða 1
64SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
35. tbl. 72. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kosningar í Suður-Kóreu í dag:
Grunsamlegt hvarf
stjórnarandstæðings
Seoui, 11. febrúar. AP.
LÝST var eftir Kim Jeung Soo, ein-
um frambjódanda nýstofnaðs flokks
stjórnarandstæðinga, Hins nýja lýð-
ræðisflokks Kóreu (NKDP), sem
hvarf með grunsamlegum hætti í
næststærstu borg landsins, Pusan, í
gær, ásamt aðstoðarmanni sínum.
Oljóst var hvort hvarf hans á síðasta
degi kosningabaráttunnar kynni að
auka á möguleika nýja flokksins í
þingkosningunum í Suður-Kóreu á
morgun, þriðjudag. Talið er að
flokkur Chun Doo Hwan forseta
haldi örugglega velli.
Kim Jeung Soo er 44 ára þing-
maður, og einn 11 þingmanna, sem
sögðu sig úr Lýðræðisflokki Kóreu
(DKP) í desember og gengu til liðs
við NKDP. Nýtur hann mikilla
vinsælda í kjördæmi sínu í Pusan
og talin öruggur um að hljóta
endurkjör.
Er þetta fyrsta alvarlega atvik-
ið í kosningabaráttunni, sem farið
hefur friðsamlega fram, ef undan
Treholt bauðst
til að gerast
gagnnjósnari
Osló, II. febrúlr. Frí Jan Krik Lauré, fréttaritara Mbl.
AÐEINS nokkrum klukkustundum eftir að Arne Treholt hafði verið
handtekinn, grunaður um njósnir fyrir KGB, sovésku leyniþjónustuna,
bauðst hann til að gerast gagnnjósnari og svipta hulunni af starfsemi
KGB í Noregi. Þessu boði neitaði hins vegar norska leyniþjónustan.
Kom þetta fram í fréttum norska sjónvarpsins.
Þessi frétt hefur ekki fengist Þrándheimi, að Treholt hefði
staðfest og Lasse Quigstad, rík-
issaksóknari, segist harma, að
svona sögur skuli berast út og
skipti þá ekki máli hvort þær eru
sannar eða lognar. Þær séu til
þess eins fallnar að skaða málið,
sem tekið verður fyrir nú á
næstu dögum.
Því hefur áður verið haldið
fram í fjölmiðlum í Noregi, að
Treholt hafi viljað gerast gagn-
njósnari. Nokkrum dögum eftir
handtöku hans á Fornebu-
flugvelli sagði „Adresseavisen" í
reynt að kaupa sig lausan. „Nú
skulum við loksins koma þessum
mönnum í KGB á kné. Eg skal
segja ykkur allt af létta um það,
sem ég veit, og síðan skulum við
saman brjóta þá á bak aftur,"
sagði blaðið, að hefði verið það
fyrsta, sem Treholt sagði eftir
handtökuna.
Ncrsku leyniþjónustumenn-
irnir svöruðu Treholt og sögðu,
að hann hefði átt að koma til
þeirra fyrir tíu árum, þá hefði
málið kannski horft öðruvísi við.
eru skildar líkamsárásir á tvo
frambjóðendur af stuðnings-
mönnum annarra frambjóðenda.
Kim Jeung Soo er frambjóðandi
flokksins, sem fylgismenn tveggja
kunnustu stjórnarandstæðinga
landsins stofnuðu, Kim Dae Jung
og Kim Young Sam. Kim Dae
Jung sneri heim til Seoul á föstu-
dag úr tveggja ára útlegð í Banda-
ríkjunum og var settur strax í
stofufangelsi, sem 13 aðrir hættu-
legustu andstæðingar Chun Doo
Hwan forseta eru einnig í.
Bandarískir fylgismenn Kims
hafa harðlega mótmælt óblíðum
móttökum við komuna til S-Kóreu
og kvartað við bandarísk stjórn-
völd vegna ummæla bandaríska
sendiherrans í Seoul, sem sagði þá
hafa „sóst eftir árekstrum" við
kóreska öryggisverði við komuna
til landsins. Yfirvöld í Washing-
ton hafa mótmælt meðferðinni á
Kim og fylgismönnum hans form-
lega við ráðamenn í Seoul. Jafn-
framt hafa bandarískir fylgis-
menn Kims hvatt Reagan til að
fresta heimsókn Chuns til Wash-
ington, sem fyrirhuguð er í apríl.
Sjá nánar „Efnahagslegar fram-
farir og stöðugleiki helzti styrkur
flokks Chuns“ á bls. 27.
Rútan, sem bresku hermennirnir voru í, gjörónýt eftir árekstur við
tankbifreið, sem leiddi til þess að rútan brann í vítiseldi og 19 farþegar
AP/Símamynd
19 hermenn dóu
í vítiseldi
MUnchen, 11. febrúar. AP.
RIITU, sem m.a. var með 38 meðlimi hljómsveitar brezka flughersins
innanborðs, var ekið aftan á tankbifreið á hraðbraut 30 kílómetra
norður af Miinchen með þeim afleiðingum að 19 farþeganna a.m.k.
brunnu til bana.
Rútan rann aftan á tankbif-
reiðina í hálku sem myndaðist er
eldsneyti lak úr tankbifreiðinni.
Við áreksturinn láku úr tank-
bifreiðinni um 6.000 lítrar af
flugvélaeldsneyti, og á svip-
stundu var rútan umlukin gífur-
legum vítiseldi.
Það kom í veg fyrir enn verra
slys að tankbifreiðin nam staðar
500 metra frá slysstað, ella hefði
hún að öllum líkindum sprungið
í loft upp með 36.000 lítra í tönk-
unum.
Rútan gjöreyðilagðist í eldin-
um og auk hinna látnu slösuðust
24, sumir alvarlega. Flestallir
hinna látnu léku með hljómsveit
brezka flughersins. Sex menn
létu lífið og 56 særðust í 50 bíla
árekstri á sömu hraðbraut í
þoku og snjókomu á laugardag.
Nýjar NATO-flaugar í Belgíu:
Lagt að Martens að
hei ja uppsetningu
Brussel, 11. febrúar. AP.
Samstarfsflokkur flokks Wilfried
Martens forsætisráðherra í ríkis-
AP/Simamynd
Jaruzelski
á bls. 24.
Jaruzelski á Indlandi
hershöfðingi kannar heiðursvörð á flugvellinum í Delhí við komuna til Indlands í gær. Sjá nánar frétt
stjórn hvatti í dag til þess að enginn
dráttur yrði á uppsetningu 48 nýrra
meðaldrægra kjarnaflauga Atlants-
hafsbandalagsins í Belgíu, en á laug-
ardag hvöttu flokksmenn Martens til
þess að uppsetningu flauganna yrði
frestað.
Guy Verhofstadt formaður
flokks hollenzkumælandi hægri
manna, sem kallast Frjálslyndi
flokkurinn, segir í blaðaviðtali að
frestun mundi skaða NATO.
Kveðst hann ekki skilja afstöðu
flokks Martens og að stjórnin verði
að taka af skarið til að styrkja
frekar samningsstöðu vestrænna
ríkja gagnvart Sovétríkjunum.
Ummæli Verhofstadt eru talin
til þess fallin að kynda frekar und-
ir deilur stjórnarflokkanna um
flaugarnar. Stjórnarflokkarnir
tveir, Frjálslyndi flokkurinn og
Kristilegir demókratar, en innan
þeirra eru sérstakir þingflokkar
flæmingja og vallóna, eru ekki á
eitt sáttir. Annar armur flokks
Martens vill fresta uppsetningu
flauganna. Á ráðstefnu flokksins
um helgina hvöttu frönskumælandi
flokksmenn, PSC, til þess að upp-
setningu flauganna yrði ekki frest-
að, en hollenzkumælandi flokks-
menn, CVP, voru á öðru máli.
Martens tók ekki afstöðu í ræðu, en
gaf í skyn að flokkurinn allur yrði
að standa að baki stjórnarákvörð-
un um uppsetningu fyrstu flaug-
anna.
Martens sagði í janúar að hann
mundi tilkynna í marz hvenær yrði
af uppsetningu fyrstu flauganna.
Stjómmálaskýrendur telja að var-
færni flokks Martens í flaugamál-
inu megi rekja til ótta flokks-
manna um fylgishrun í kosningum
í desember nk. til hins flæmska
arms sósialistaflokksins (SP). Leið-
togar SP eru andvígir uppsetningu
flauganna og segjast munu upp-
ræta þær flaugar, sem settar hafa
verið upp, verði flokkurinn í stjórn
eftir kosningar.
Leitað að nýrri
viðræðuleið
London, II. febrúar. AP.
Á TOLETA hundrað námumenn
sneru baki við verkfalli námamanna í
dag. Leitar breska kolafélagið og
bresku launþcgasamtökin nú leiða til
að koma samningaviðræðum deiluað-
ila af stað á ný.