Morgunblaðið - 12.02.1985, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1985
51
Ljósmynd Flugleiðir/Lennart Carlen
Tómas Á. Tómasson sendiherra opnaði íslandskynningu Flugleiða og Holi-
day Inn í Lúxemborg. Ásamt honum eru á myndinni Helga Norland, Erla
Karlsdóttir, Susette Carlen og Birgir Karlsson.
SHARP
Námskeið í meðferð og
matreiðslu í örbylgjuofnum
Fimmtudagana 14. febrúar, 21. febrúar og
28. febrúar kl. 20 í verzluninni aö Hverfis-
götu 103.
Stjórnandi námskeiöanna er
Jenný Sigurðardóttir hússtjórn-
arkennari. Þátttaka tilkynnist í
síma 17244.
íslandskynning
í Luxemborg
HINN 6. febrúar sl. hófst á Hotel
Holiday Inn í Lúxemborg íslands-
kynning sem Flugleiðir og Holiday
Inn standa fyrir. Kynningin er undir
heitinu „Taste of Iceland“ og í
henni Uka þátt ýmis fyrirtæki og
stofnanir frá fslandi.
Tómas Tómasson ambassador
fslands í Lúxemborg opnaði kynn-
inguna en að því loknu voru sýnd-
ar íslenskar tískuvörur en flug-
freyjur og flugþjónar Flugleiða
auk þess sem þau sáu um kynn-
ingu á þeim vörum sem útstillt er
á hótelinu. íslandskynningin
stendur til 24. febrúar og þangað
til leiks Haukur Morthens og
hljómsveit hans fyrir dansi á
hverju kvöldi á Holiday Inn. Við
opnunina voru um 300 manns.
„Búðirnar breyttust
úr þögulli drauga-
borg í lifandi þorp“
Úr bréfi frá Sigríði Guðmundsdótt-
ur hjúkrunarfræðingi í Eþíópíu
RAUÐA krossi ísiands barst nýlega
bréf frá Sigríði Guðmundsdóttur,
hjúkrunarfræðingi, en hún hefur
undanfarna mánuði dvalið við hjálp-
arstarf í Eþíópíu. Hluti úr bréfi Sig-
ríðar fer hér á eftir:
„ ... í hungursneyð sem þessari
verða mörg börn munaðarlaus. Ég
sá um þau í Bati. Þau eru á aldrin-
um 2—14 ára. Þegar þau koma til
okkar svöng og allslaus eru þau
eymdin uppmáluð. Nokkur þeirra
eru dáin og er mér nær að halda
að þau hafi dáið ur vonleysi og
óöryggi. Það er því mikilvægt að
veita þessum börnum ást og um-
hyggju.
Mínar bestu stundir voru þegar
ég eyddi síðasta hálftímanum í
vinnunni á hverjum degi til þess
að leika við þessi börn og þegar ég
fór á kvöldin út í búðirnar tií þess
að koma þeim í ró. Nú eru 30 mun-
aðarlaus börn í Bati.
Námskeið um
skipulagn-
ingu vinnu
Á VEGUM Kvenréttindafélags ís-
lands verður í dag endurtekið
námskeið þar sem Sigríður Snæv-
arr, sendiráðunautur, fjallaði um
ýmsar aðferðir til að skipuleggja
vinnu og stjórna tíma. Námskeiðið
var fyrst haldið fyrir viku og var
þá fullskipað. Námskeiðið hefst
klukkan 1” að Haliveigarstúöuiii.
Fyrir nokkru voru 45 börn flutt
til Addis á nýtt heimili fyrir mun-
aðarlaus börn. Það er rétt fyrir
utan Addis í fallegu umhverfi. Við
Maggi (Magnús Hallgrímsson,
verkfræðingur, sem einnig starfar
í Eþiópiu á vegum RKt) fórum i
heimsókn til þeirra og urðu miklir
fagnaðarfundir þegar ég hitti þau
aftur. Sérstaklega þegar ég hitti
Muhammed Sigga. Það er 3 ára
snáði sem við fundum umkomu-
lausan í Bati. Hann gat lítið talað
og vissi ekki hvað hann hét. Þá
ákvað ég að kalla hann Mu-
hammed. En það var ekki nóg því
fólk hér fær eftirnafn eftir skírn-
arnafni föður eins og heima á ís-
landi. Og þar sem ég reyndist vera
nánasti „ættingi" barnsins fannst
samstarfsfólki mínu tilvalið að
hann bæri mitt nafn svo blessað
barnið þarf að bera nafnið mitt til
æviloka.
Það var mjög ánægjulegt að sjá
börnin heilbrigð og ánægð en það
sorglega er að heimilið á við fjár-
hagsörðugleika að stríöa og getur
ekki tekið við fleiri börnum ..."
í sama bréfi segir Sigríður
ennfremur:
„ k þessum 11 vikum sem ég
var í Bati sá ég miklar breytingar
í búðunum. Þær breyttust úr þög-
ulli draugaborg í lifandi þorp. Nú
eru um 23.000 manns þar.
Um miðjan desember fórum við
að sjá verulegan árangur. Ástæð-
an er sú að við fengum nógan mat
til úthlutunar og nóg af teppum og
tjöldum ... Hæst fór dánartalan
uppí 120 á dag, mest börn, en er nú
kormn níCar i 20—„0 3 uog."
HLJOMBÆR
HLJOM*HEIMILIS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103
NÚERANN
ENN Á NORÐAN
og Húsgagnahöllin áBíldshöíða er stútíull ai norðanvörum.
Góðum vörum á góðu verði, sem íjúka út jaínharðan.
Á BOÐSTÓLUM:
Sport- og gallabuxur, úlpur, mittisstakkar, skyrtur, sokkar,
margs konar bamaíatnaður og innQuttir skór.
ENNFREMUR:
Prjónajakkar, peysur, vettlingar, treílar, húíur og legghlííar.
LÍKA:
Mokkaíatnaður margs konar á góðu verði, herra- og dömujakkar,
kápur og írakkar og mokkalúífur, h úíur og skór á böm og íullorðna.
ÞAR AÐ AUKI:
Teppagœrur, trippahúðir og leður til heimasaums.
EINNIG: _
Teppabútar, áklœði, gluggatjöld, buxnaeíni, kjólaeíni
og gullíalleg ullarteppi á kostakjörum.
OG AUÐVTTAÐ:
Gam, meðal annars í stórhespum,
loðband og lopi.
Strœtisvagnateiðii:
Frá Hlemmtoigi: Leið 10
Frá Lœkjaigötu: Leið 15
OP'5- lf^dag * —
V/SA
*mEsmimiA*
SAMBANDSVERKSMIÐJANNA Á AKUREW