Morgunblaðið - 12.02.1985, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1985
A KAFII SNJO
Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum, að veturinn hefur verið harður í Bandaríkjunum og er þessi mynd
gott dæmi um það. Hún er ekki tekin í Norðurríkjunum eins og ætla mætti, heldur í Kaliforníu, þar sem
venjulega er sól og blíða allan ársins hring.
Mengele á faralds-
fæti í S-Ameríku
London, 11. febrúar. AP.
DR. JOSEF Mengele er á stöðugum ferðalögum um nokkur ríki í Suður-
Ameríku og lætur ferðaskrifstofu í Paraguay sem er undir stjórn gamals
nazistaforingja sjá um ferðalögin, að því er Sunday Times sagði um helgina.
Sunday Times sagði að Mengele
dveldist þó einkum í Paraguay og
væri í skógarhýsi sínu lengstum,
en stundum þó í einkabústað á
herstöð sem væri vandlega gætt
einhvers staðar í landinu. Hann
hefur einnig sézt í grennd við
sumarhöll Alfreds Stroessner for-
seta og þess á milli bregður hann
Kalt hjá
Norðmönnum
Osló, 11. febrúar. AP.
MESTA frost var í Osló um helg-
ina í nítján ár, eða 24,9 stig. Áður
hafði mælzt mest frost í Ósló í
febrúar 1966 eða 25 stig, og var
það mesti kuldi þar síðan 1893, er
einn dag mældust 25,2 stig.
sér svo til Argentínu og Brazilíu.
Sunday Times sagði að Mengele
virtist ekki gera neitt sérstakt til
að dyljast né vera í felum og ýmsir
hefðu borið að þeir hefðu séð hann
annað veifið og síðast nú alveg
nýlega.
Hörð orð Jaruzelskis
um Bandaríkiastjórn
Nýju Delhí, II. febniir. AP. WW WW
JARUZELSKI hershöfðingi hinn pólski kom í opinbera heimsókn til Ind-
lands í dag og mun fljótlega eiga fund með Rajiv Gandhy og fleiri ráða-
mönnum í Indlandi. Hann gaf „The Indian Times“ kost á viðtali þar sem
hann dró ekkert undan. Hann fór hörðum orðum um samskipti Pólverja og
Bandaríkjanna, sagði Bandaríkjastjórn hafa reynt að einangra Pólland efna-
hags- og stjórnmálalega allar götur síðan 1981, en það hefði hins vegar
mistekist hrapallega.
„Bandaríkjastjórn hefur verið
að slaka á klónni í ýmsum málum,
en það er ekkert annað en sýndar-
mennska og varðar einungis auka-
mál, allt er við það sama í aðal-
málum. Með sér hafa Bandaríkja-
menn fengið ýmsar aðrar þjóðir
Vesturlanda, en ýmsar þeirra hafa
verið að sjá ljósið og vitleysuna í
þessu öllu saman í seinni tíð,“
sagði hershöfðinginn og bætti við
að auk þessa styddi Bandaríkja-
stjórn við bakið á ýmsum öfgahóp-
um sem ynnu að þvi að bola stjórn
sinni frá völdum.
Jaruzelski sagði jafnframt, að
það væru Bandaríkjamenn sjálfir
sem væru nú sem óðast að ein-
angrast vegna harðlínustefnu
sinnar þar sem óraunsæin réði
ríkjum. Hann benti á heimsóknir
aðstoðarutanrikisráðherra Bret-
lands, forsætisráðherra Grikk-
lands og utanríkisráðherra Aust-
urrikis, Finnlands og Ítalíu máli
sínu til fulltingis. Sagði hershöfð-
inginn að samskipti Póllands og
Bandaríkjanna hefur ekki verið
jafn slæm síðan 1919, er stjórn-
málaslit urðu.
Sprengiárás við landamæri
Líbanons vekur ugg í ísrael
Tel Avnr, 11. febrúar. AP. CmJ
. febrúar. AP.
SHIMON Peres, forsætisráðherra
ísraels sagði á fundi með hollenzk-
um gyðingum, sem eru í heimsókn í
Tel Aviv, að loftárásir ísraela á
skæruliðastöðvar PLO í Líbanon á
sunnudag og mánudag hefðu verið
nauðsynleg fyrirbyggjandi ráðstöfun
til að sýna fram á að ísraelar létu
ekki árásir á hermenn sína afskipta-
lausa.
Árás ísraela var gerð eftir að
tvær sprengjur sprungu skammt
frá Metulla við landamæri Líban-
ons og ísraels. Þrír létu lífið og
nokkrir særðust. Atburðurinn við
Metulla er litinn alvarlegum aug-
um í ísrael, þar sem ísraelar hafa
í nokkur ár haft mjög stranga
gæzlu á þeim slóðum og Gæða-
gerði er þar í grenndini, en það
var eina leiðin fær og leyfð milli
landanna áður en ísraelar réðust
inn í Líbanon. ísraelska útvarpið
sagði, að sprengjuárásin í Metulla
væri einn alvarlegasti atburður-
inn um langar tíðir og sýndi svo
ekki væri um villzt, að skæruliðar
væru að færa sig upp á skaftið á
þessum slóðum. Talið er að ísrael-
ar muni eftir þennan atburð herða
mjög gæzlu þarna og ef til vill
hægja enn á brottflutningi og til-
færslu herja sinna í Suður-Líban-
on.
Um helgina sneru heim til ísra-
els, sex menn, þrír gyðingar og
þrír Arabar, sem höfðu farið til
Túnis og rætt við Yassir Arafat.
Ritskoðari ísraelska hersins lét
óátalið að fréttaritari AP sendi
frá sér frásögn um málið og telst
það óvenjulegt. Mennirnir sögðu
að Arafat vildi óumdeilanlega að
samkomulag yrði gert við ísraela,
svo fremi Palestínumönnum væri
tryggður mannsæmandi réttur í
landi sínu. Til mótmælaaðgerða
kom við Ben Gurion-flugstöðina
eftir að fréttist að mennirnir
hefðu rætt við Arafat.
Þá segir í fréttum frá ísrael um
helgina, að israelska stjórnin sé
nú að íhuga að arabiskir borgar-
stjórar verði settir í embætti í
fjórum bæjum á Vesturbakkan-
um. Gæti sú skipan mála leitt til
að ögn meiri kyrrð yrði á þeim
slóðum. ísraelar ráku borgar-
stjóra frá þessum bæjum úr störf-
um fyrir nokkrum árum og sögðu
að þeir væru grunaðir um stuðn-
ing við PLO.
Hafez Assad, forseti Sýrlands.
Sýrland:
Assad kjörinn
með 99,97 %
Itamaskus. II. febrúsr. AP.
HAFEZ Assad, forseti Sýrlands var
endurkjörinn forseti næsta sjö ára
kjörtímabil og fékk 99,97 prósent at-
kvæða. Forsetinn var einn í kjöri.
Talsmaður stjórnarinnar í Damask-
us sagði frá þessum „glæsilega
árangri“ eins og hann orðaði það.
Hann sagði að aðeins 376 manns
hefðu greitt atkvæði gegn forsetan-
Assad, sem er 54 ára, komst til
valda í Sýrlandi árið 1970 og var
kjörinn forseti árið eftir og siðan
endurkosinn árið 1978. Hann var
þá einn í kjöri eins og nú. Þá fékk
hann 99,6 prósent atkvæða og
sagði talsmaður stjórnarinnar, að
atkvæðaaukningin nú sýndi
hversu Assad væri elskaður og
virtur af löndum sínum.
„Stefna ekki að öðru
en heimsyfirráðum
— segir fyrram háttsettur Sovétmaður um leiðtogana í Kreml
U
Síberíuflug án viðkomu
Moskvu, 11. febrúar. AP.
SOVÉSK yfirvöld hafa veitt japanska flugfélaginu JAL heimild til að fljúga
án viðkomu yfir Síberíu á leiðinni milli Japans og Evrópu, og tekur heimildin
gildi í aprflmánuði 1986, að því er talsmenn JAL í Moskvu sögðu í dag,
mánudag.
New York, 11. febrúar. AP.
ARKADY Shevchenko, sem var háttsettur, sovéskur sendimaður þegar hann
baðst hælis í Bandaríkjunum árið 1978, segir í væntanlegri bók sinni, að tvö
helstu markmið Sovétmanna með njósnunum séu að komast yfir háþróaðan
tæknibúnað og greiða götu hryðjuverkamanna.
Flugfélagið fær að fara fjórar
ferðir í viku hverri og er þetta í
fyrsta skipti sem Sovétmenn leyfa
erlendu flugfélagi að fljúga yfir
Síberíu án viðkomu í Sovétríkjun-
um.
Yfirmaður JAL í Moskvu, Tak-
esaburo Yamamoto, kvað ferða-
tímann mundu styttast um tvo til
þrjá tíma með því að fljúga beint
frá Japan til Evrópu. Með því að
stansa í Moskvu tekur ferðin um
15 klukkustundir.
Félagið mun einnig halda uppi
áætlunarflugi á þessari leið með
viðkomu í Moskvu, eins og verið
hefur.
í tímaritinu Time, dagsett 18.
febrúar, eru birtir útdrættir úr
bók Shevchenkos, „Snúið baki við
Moskvu", og kemur þar fram, að
rúmlega helmingur 700 Sovét-
manna í New York sé njósnarar
eða á snærum KGB, sovésku leyni-
þjónustunnar.
Shevchenko segir um einn þess-
ara njósnara, sem vann fyrir sov-
ésku senidnefndina hjá Samein-
uðu þjóðunum og var rekinn frá
Bandaríkjunum árið 1969, að hann
hafi verið gagntekinn af þeirri
hugmynd að eyðileggja raforku-
kerfið í New York. Um bygg-
ingarnar í New York sagði þessi
maður einu sinni: „Þær virðast svo
sterkar, svo miklar, en í raun eru
þær aðeins spilaborg. Nokkrar
sprengjur á réttum stöðum og far-
vel Frans."
„Sovétmann þjálfa hryðju-
verkamenn í Sovétríkjunum og
annars staðar og markmiðið með
því er að valda óvissu og ókyrrð
meðal þeirra þjóða þar sem stöð-
ugleiki ríkir og að auka á ringul-
reiðina í þriðja heiminum,“ segir
Shevchenko.
Shevchenko fer hörðum orðum
um forystuliðið í Kreml og há-
stéttina, sem hann tilheyrði áður
sjálfur. Á sínum tíma var hann
einkaráðgjafi Andrei Gromykos,
utanríkisráðherra Sovétríkjanna,
og hann segist hafa séð „hræsnina
og spillinguna", sem einkenndu
sovésku leiðtogana.
„Þeir höfðu meira að segja
bandamenn sína í flimtingum,
sögðu um þá ósmekklega brandara
og voru ekkert að fara í felur með,
að þeir ætluðu sér ekki að leyfa
neitt frelsi í bandalagslöndunum.
Þeir stefna ekki að öðru en heims-
yfirráðum, eru hinir sönnu heims-
valdasinnar, þótt þeir noti það orð
sem skammaryrði um aðra,“ segir
Shevchenko í bók sinni.