Morgunblaðið - 17.02.1985, Page 2
2 B
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 1985
Jazzhátíð í Reykjavík um næstu helgi:
Tíu af fremstu
nútímajazzleik-
urum Evrópu
mæta til leiks
Margir helstu tónlistarmenn í
evrópskum nútímajazzi munu
koma fram á jazzhátíð, sem haldin
verður í Reykjavík um næstu helgi,
dagana 22. og 23. febrúar, í Félags-
stofnun stúdenta.
Það eru hljómplötuútgáfan
Gramm og Ulli Blobel Koncert-
buro, sem skipulagt hafa þessa
jazzhátíð í sameiningu og hefur
undirbúningur hennar staðið i
rúmlega hálft ár. Hafa Goethe
Institut í Þýskalandi, Plo Hel-
vetia f Sviss og aðrar menning-
arstofnanir viðkomandi landa
veitt styrki til hátíðarinnar.
Að því er aðstandendur hátíð-
arinnar tjáðu blm. eiga tónlist-
armennirnir tíu, sem leika munu
á tónleikunum í Félagsstofnun
stúdenta nk. föstudag og laug-
ardag, það sameiginlegt að vera
brautryðjendur í þeirri stefnu
evrópskrar jazztónlistar, sem
kennd er við frjálsan jazz eða
spuna og á upphaf sitt að rekja
miðbiks 7. áratugarins. Hefur
allt þetta tónlistarfólk hlotið
viðurkenningu á alþjóðavett-
vangi og haldið tónleika vítt og
breitt um heiminn, svo sem í
Japan, Ástralíu og austan-
tjaldslöndunum, á Indlandi og
upp á síðkastið hefur það í aukn-
um mæli haslað sér völl í fæð-
ingarlandi jazzins, Bandaríkjun-
um.
Aðstandendur jazzhátíðarinn-
ar gátu þess einnig, að hún hefði
þegar vakið töluverða athygli
erlendis, fréttir af henni hefðu
birst í öllum helstu jazztímarit-
um á meginlandinu og þýska
stórblaðið Die Welt hefði birt ít-
arlegar fréttir af henni fyrir
skömmu. Þá er vitað að talsverð-
Trommu- og slagverksleikarinn
Han Bennik kemur frá Hollandi.
ur hópur útlendinga mun koma
sérstaklega hingað á hátíðina.
Tónlistarmennirnir sem sækja
Islendinga heim að þessu sinni
eru: Irene Schweizer, píanóleik-
ari frá Sviss, Han Bennik,
trommu- og slagverksleikari frá
Hollandi, Fred van Hove, píanó-
leikari frá Belgíu, Evan Parker,
saxófónleikari frá Englandi og
Ulrich Gumpert, píanóleikari frá
Austur-Þýzkalandi. Frá Vestur-
Þýskalandi koma svo trompet-
leikarinn Heinz Becker, píanó-
leikarinn Alexander von
Schlippenbach, trommuleikar-
inn Paul Lovens, saóafón- og
Píanóleikarinn Alexander von Schlippenbach kemur frá Vestur-I>ýzka-
landi
klarinettleikarinn Peter Brötz-
mann og bassaleikarinn Peter
Kowald.
Þeir tveir síðastnefndu koma
hingað beint eftir tónleika í
Carnegie Hall í New York og er
það í fyrsta sinn, sem þýskir
jazzleikarar leika í því fræga
Þau hafa unnið að undirbúningi
jazzhátíðarinnar. F.v.: Árni
Óskarsson, bókmenntafræðingur,
Ásmundur Jónsson í Gramminu,
Coletta Burling, yfirmaður Goete
Institut á íslandi, og Örn Þórisson.
húsi. Þau Brötzmann, Kowald og
Schweizer eru íslendingum
reyndar að góðu kunn, því þau
hafa öll haldið tónleika hér á
landi áður og fengu þá afar góða
dóma íslenskra tónlistargagn-
rýnenda.
Dagskrá jazzhátíðarinnar
verður sem hér segir:
Föstudagurinn 22. febrúar, kl.
21.00:
Fred van Hove - einleikur.
Heinz Becker, Irene Schweiz-
er, Peter Kowald og Paul
Lovens - kvartett.
Peter Brötzmann, Han Benn-
ik - dúett.
Laugardagurinn 23. febrúar, kl.
21.00:
Ulrich Gumpert - einleikur.
Axexander von Schlippenb-
ach, Evan Parker og Paul
Lovens - tríé.
Irene Schweizer - einleikur.
Frekari upplýsingar um jazzhá-
tíðina má fá í Gramminu, Lauga-
vegi 17, og þar verður einnig for-
sala aðgöngumiða.
s Kr.
Sjónval, Kirkjustræti 8. Sími 22600.
Kr.firf
510
Kr. >0rí
3.500
Sendum í póstkröfu