Morgunblaðið - 17.02.1985, Qupperneq 16
16 B
MOftGUNBLAÐIÐ, SUNNÍIDAGUR 17. FEBRÚAR 1985
GRAFIK
Þeir eru löngu hættir að fremja
tónsmíðar á krossviðarplötur og
málningarlok og hafa snúið sér að
þróaðri vinnuaðferðum. Um nýj-
ustu breiðskífuna þeirra segir
hljómplötugagnrýnandi Mbl.
12.02. að hún sé „eitthvert mest
lýsandi dæmið um það hve fram-
bærilegt íslenskt popp/rokk er í
dag, þrátt fyrir bölsýnishjal úr
öllum áttum".
Gamia græna húsið
sem stóð við fjörukambinn á ísafirði og sungið er
um í smellinum „Húsið og ég“, hefur varla órað fyrir
því að það ætti eftir að lenda á vinsældalista ann-
arra en veðra og vinda fyrir vestan.
Bjartar vonir vakna ótt
og títt í tónlistar-
heiminum, en oft aðeins
til þess að lognast út af
jafnóðum. Stundum
verður þó vonarneistinn
að velgengni og þá er
gaman að lifa hjá við-
komandi tónlistar-
mönnum, að ekki sé tal-
að um þá, sem alltaf
höfðu trú á því að ein-
mitt þessi tiltekna
hljómsveit gæti gert það
gott, bara ef hún fengi
„cjéns“.
knyndin febt
í
hvers og eins
Spjallað við hluta hljómsveitarinnar Grafík
Það hefur t.d. áreiðanlega ekki
komið Isfirðingum neitt á óvart
þegar nafnið Grafík fór að fikra
sig upp eftir vinsældalistunum og
skífan „Get ég tekið cjéns?“ kom
út með hæsta stigatölu í vali tíu
dæguriagagagnrýnenda á bestu ís-
lensku breiðskífunni á liðnu ári.
Hjá mörgum dægurskríbent-
anna þýddi nafnið Grafík líka ým-
ist „bjartasta vonin“ eða „besta
lagið“, þegar reikningar síðasta
árs voru gerðir upp og öldur ljós-
vakans létu ekki sitt eftir liggja,
hlustendur hömpuðu hinum graf-
ísku tónsmíðum óspart. Og það áð-
ur en bylgjur rásar 2 fóru að ná
vestur á firði, þar sem hljómsveit-
in Grafík var stofnuð vorið ’81.
„Get ég tekið cjéns“ er þriðja
platan sem hljómsveitin sendir
frá sér og Grafík er því engin
nýgræðingur í tónlistarheiminum,
þó að ræturnar liggi utan Reykja-
víkur.
Það þótti því ekki úr vegi að
spjalla við nokkra þeirra sem
sveitina skipa og fá þá til að kort-
leggja tilveru hennar fyrir lesend-
ur, að einhverju marki a.m.k.
Kjarnann í Grafík skipa nú þeir
Helgi Björnsson, söngvari, Rúnar
Þórisson, gítarleikari, og Rafn
Jónsson, trommuleikari. Auk
þeirra leika þeir Haraldur Þor-
steinsson og Styrmir Sigurðsson á
bassa og hljómborð með hljóm-
sveitinni um þessar mundir og oft
kalla þeir líka til liðs við sig saxó-
fónleikarann Einar Braga og Ab-
dullah, sem leikur á hin ýmsu
ásláttarhljóðfæri og á, eins og
nafnið bendir til, ættir sínar að
rekja til framandi stranda.