Morgunblaðið - 17.02.1985, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 1985
B 23
Elizabath og Ríchard Burton áatlanginn á
fyrri giftingardaginn. Þau giftu sig aftur
siöar eftir aö hafa fengiö skilnað.
Síðasti eiginmaður leikkonunnar, John Myndin er tekin á meöan þau voru trúlofuö, Victor
Warner. Luna og Elizabeth.
Elizabeth í kvikmyndinni Suddenly Last Elizabeth Taylor í heimsókn hjá systkinum Richard Burtons í Mynd tekin þegar leikkonan steig
Summer áriö 1959. Pontrhydyfen f Wales. upp úr alvarlegum veikindum.
fylgt henni. Hún var alltaf að leita
að stóru ástinni sinni.
Fyrsti eiginmaður hennar hét
Nick Hilton, en hann er sonur þess
Hilton, sem öll hótelin eru kennd
við. Mönnum er ekki grunlaust um,
að eftir vonbrigðin með Montgom-
ery Clift, hafi hún flýtt sér um of í
hjónaband, óhugsað. Þau höfðu að-
eins þekkst í mjög stuttan tíma,
hjónabandið stóð stutt og endaði
með skilnaði.
Annar eiginmaðurinn var Micha-
el Wilding, breskur leikari, og eign-
uðust þau tvo syni, þau skildu.
Þriðji eiginmaðurinn var svo
Mike Todd. Þau eignuðust eina
dóttur, en hann fórst í flugslysi.
Fjórði eiginmaðurinn var söngv-
arinn Eddie Fisher, en hann og eig-
inkona hans, Debbie Reynolds, voru
mikið vinafólk Elizabeth og Mike
Todd.
Þegar kvikmyndataka hófst á
myndinni Cleopatra voru þau valin
í aðalhlutverk Elizabeth Taylor og
Richard Burton, en þau voru þá
bæði gift. Það er skemmst frá því
að segja, að þau felldu hugi saman,
samband þeirra varð forsiðuefni
blaða víða um heim og fylgst var
með kvikmyndatökunni og þeim
átökum sem urðu í einkalífi leikar-
anna, af mikilli forvitni.
Þegar þau svo gengu í hjónaband
Elizabeth og Richard Burton, var
ekki alltaf dúnalogn í kringum þau,
enda þau bæði von því að vera
stjörnur. Richard Burton átti það
til að drekka sig fullan. Þá slóst
stundum upp á vinskapinn hjá þeim
hjónum. Það kom fyrir á almanna-
færi og vitnaðist, þau hlupu að
heiman til skiptis og fleira í þeim
dúr. Þegar erfiðleikar steðjuðu að
þeim hjónum vegna drykkju eig-
inmannsins, tók Elizabeth sig til á
tímabili, þar sem þau voru stödd
innan um annað fólk, að drekka
jafnmarga sjússa og hann fékk sér.
Þau eignuðust ekki börn en tóku að
sér kjördóttur, sem nú er orðin full-
orðin. Elizabeth og Richard Burton
fengu lögskilnað, tóku svo saman
aftur og gengu aftur í hjónaband.
Seinni hveitibrauðsdögunum eyddu
þau í heimabyggð Richards i Wales,
í þorpinu Pontrhydfen. Eftir seinni
skilnað þeirra giftist Elizabeth
þingmanninum John Warner, en
það hjónaband stóð ekki lengi og
endaði með skilnaði.
Haldið upp á
fimmtugsafmæli
Eftir þennan síðasta skilnað er
sagt að Elizabeth hafi sannarlega
ætlað að taka Iff sitt taki, stokka
upp á nýtt. Hún fékk hlutverk í
leikritinu „The Little Foxes“, sem
sýnt var á sviði á Broadway og I
London, og fékk góða dóma fyrir
leik sinn.
í febrúarmánuði 1982 var Eliza-
beth í London og var að undirbúa að
halda upp á fimmtugsafmæli sitt,
27. febrúar. Hún veit þá ekki fyrri
til en Richard Burton stendur við
útidyrnar og segist vera kominn til
áð halda upp á afmælið með henni.
{ veislunni voru þau eins og ást-
fangnir unglingar, dönsuðu, kysst-
ust og föðmuðust. Það álitu allir að
allt væri fallið í ljúfa löð. Það virð-
ist Elizabeth líka hafa haldið.
Nokkrum dögum siðar gekk hún öll-
um að óvörum út á sviðið þar sem
Richard var að leika, ávarpaði hann
á welsku og sagði honum fyrir
framan áhorfendur að hún elskaði
hann.
Það mun hafa verið hennar uppá-
stunga að þau kæmu fram saman á
sviði og fyrir valinu varð leikrit eft-
ir Noel Coward, Private Lives. En
þegar þau hittust í New York, þegar
æfingar áttu að byrja, var ung
stúlka, Sally Hay, fastur fylgi-
nautur Richards Burton og jafn-
framt var uppi orðrómur um að El-
Elizabeth Taylor og Montgomery CLift í
kvikmyndinni Raintree Country — áriö
1956.
Mynd, sem tekin var á
meöan aö Elizabeth
dvaldi á Botty Ford-deild
Eisenhower sjúkrahúss-
ins.
izabeth væri komin með mexík-
anskan lögfræðing, Victor Luna,
upp á arminn.
Leikritið fékk ekki góða dóma.
Það var ekki nóg að fundið væri að
leik hennar, heldur einnig útliti
hennar, klæðnaði og greiðslu. Á
meðan á æfingum stóð, og einnig
eftir að sýningar hófust, varð Eliza-
beth veik hvað eftir annað, svo fella
varð niður æfingar og sýningar.
Eitt sinn þegar sýningu hafði verið
aflýst, flaug Richard Burton til Las
Vegas með Sally, og þar voru þau
gefin saman i hjónaband. Það varð
einhver ókunnur fréttamaður til að
bera Elizabeth tiðindin. Hún
sagðist vera glöð fyrir þeirra hönd
og óska þeim alls góðs. Sfðar sagð-
ist Richard hafa ætlað að segja
henni þetta sjálfur f sfma, en sér
hefði ekki tekist að ná f hana. Sýn-
ingum var haldið áfram. Eftir
Broadway var farið í sýningaferða-
lag. Um það leyti var kunngerð trú-
lofun Elizabeth og lögfræðingsins
og brúðkaup ákveðið um jól 1983.
Við það tækifæri birtust myndir
af báðum pörunum, þar sem kon-
urnar virtust vera að bera saman
demantana f hringum sfnum,
steinninn f hring Elizabeth reyndist
stærri!
En það varð ekkert úr brúðkaupi
hjá leikkonunni og lögfræðingnum.
{ staðinn fór hún inn á stofnun og
fékk þar meðferð sem hver annar
sjúklingur. Hún var þar alls ekki í
stjörnuhlutverki. Allt gekk það vel,
að sögn, enda leikkonan þekkt að
því að rísa upp tvíefld eftir hverja
raun.
í heimsókn sinni til Pontrhydfen
f Wales fyrir nokkru, vegna láts
Richards Burton, lét hún svo um
mælt, að hún væri staðráðin í þvf að
halda fast við fyrri ákvörðun þeirra
hjóna, að þau hvfldu hlið við hlið í
kirkjugarðinum, þegar dagur þeirra
væri að kveldi kominn.
Texti: BERGUÓT
INGÓLFSDÓTTIR
Vinnustöðvun-
ardagar 301
þúsund sl. ár
VINNUSTÖÐVUNARDAGAR á síð-
astliðnu ári voru samtals liðlega 301
þúsund, en frá því 1970 hafa þeir
aðeins tvisvar sinnum verið fleiri —
árið 1970 voru þeir tæp 304 þúsund
og árið 1976 voru þeir tæp 310 þús-
und. Þetta kcmur fram í febrúar-
hefti fréttabréfs Kjararannsókna-
nefndar.
Síðastliðið ár voru vinnustöðv-
unardagar 301.099, sem 12.036
launþegar tóku þátt í. Vinnustöðv-
unardagar hjá landfólki í ASÍ
voru 6.278, hjá sjómönnum 14, en
hjá öðrum 294.807. Þar vegur
þyngst verkfall BSRB og verkfall
bókagerðarmanna. -
Skólastjórar á Vesturlandi:
Betur verði
búið að kenn-
urum í launum
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun: „Fundur
skólastjóra í grunnskólum í sveit-
um Vesturlands, haldinn að
Varmalandi 12. febrúar 1985,
skorar á Alþingi að hlutast til um
að þannig verði búið að kennurum
gagnvart launum að komist verði
hjá flótta hæfustu manna úr
starfi. Fundurinn leggur einnig
áherslu á að Alþingi leysi fjár-
hagsvanda Námsgagnastofnunar,
þannig að framvegis komi hún
nauðsynlegum námsgögnum út í
upphafi hvers skólaárs."
Hækkun launa
23,9 % vegna
kjarasamninga
í nóvember
Kjararannsóknsrnefnd telur að
laun hækki samtals um 23.9% vegna
kjarasamnings frá 6. nóvember, og
eru þá reiknaðar með hækkanir frá
1. september sl. 6. nóvember, 1.
janúar, 1. mars nk. og 1. maí nk.
Telur nenfdin samkvæmt sér-
stöku mati að verkamenn hækki
um 23,8%, verkakonur um 22,9%,
iðnaðarmenn um 24,9% og verzl-
unar- og skrfistofufólk um 23,%.
Þetta kemur fram í febrúarhefti
fréttabréfs Kjararannsókna-
nefndar.
í Kaupmannahöfn
FÆST
I BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI