Morgunblaðið - 17.02.1985, Page 34
34 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 1985
fc'IK í
fréttum
SIGURBJÖRN
MAGNÚSSON
Ungur í
ábyrgðarstarfí
„Ungt fólk á uppleið" nefndist eitt sinn þáttur nokkur og manni
dettur ósjálfrátt slík nafngift í hug þegar maður heyrir nefndan
nýjan framkvæmdastjóra þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Sigur-
björn Magnússon, sem er aðeins 25 ára gamall, og tekur nú við
starfi sem telja verður að krefjist yfirsýnar og ábyrgðar, ekki síst
þar sem um er að ræða framkvæmdastjóra stærsta þingflokks
landsins. Blm. lék forvitni á að eiga orðastað við hann og spurði
hvernig honum litist á sig í nýja starfinu.
„Það er nú lítið farið að reyna á þetta ailt saman ennþá, en
þetta virðist vera fjölbreytt og töluvert erilsamt starf„en sveiflu-
kennt. Fundir eru haldnir daglega sem ég þarf að vera viðloðandi,
en þar fyrir utan hef ég nokkuð frjálsar hendur við verkefni og
vinnubrögð og það á vel við mig.“
— í hverju er starf þitt aðallega fólgið?
„í stuttu máli má segja að það sé að sinna erindum stjórnar
þingflokksins og einstakra þingmanna og öðru tengdu sem til
fellur. Ég fylgist með gangi mála og þarf að hafa yfirsýn yfir það
sem er að gerast fyrir þá sem vilja spyrja og fyrir þá sem eru að
vinna í Sjálfstæðisflokknum í hinum ýmsu málaflokkum. Það er
veigamikið að tengja Sjálfstæðisflokkinn og þingflokkinn saman,
þ.e. að hafa umsjón með starfi málefnanefnda flokksins sem eru
17 talsins, íþróttanefnd, landbúnaðarnefnd o.s.frv. og koma á
tengslum við þingflokkinn. Það er einnig mikilvægt að hafa sam-
band við félögin úti á landi og ég býst við að stunda erindrekstur
fyrir þingflokkinn úti á landi og vinna þá einnig fyrir flokkinn
sjálfan, þ.e.a.s. reyna að nýta starfskraftinn í þágu beggja aðila."
— Nú ert þú formaður Heimdallar og stundar einnig nám í lög-
fræði. Er ekki erfitt að samræma þetta allt saman?
„Starfið í Heimdalli og fyrir þingflokkinn samræmist að mörgu
leyti ágætlega og í raun eru þessi störf tengd, bæði pólitísk, mikið
um fundahöld og maður fæst oft við svipuð viðfangsefni á báðum
stöðum. Lögfræðinni er ég síðan að ljúka í vor og á einungis eftir
að skija ritgerð."
— Áhugamál fyrir utan pólitíkina?
„Tja, ég á nokkur hross og ríð út á milli funda. Þau hafa verið
mitt áhugamál í nokkuð mörg ár og á meðan ég get samræmt það
að ríða út öðru hverju og komast yfir allt annað, þá er ég fyllilega
ánægður með lífið."
SIGURÐUR STEFANSSON
RITSTJÓRI
„Verð allavega
mæringur af
ÚTKALLS"
ekki milljóna-
þessu strax“
„Útkall“ nefnist unglingablað sem nýlega var
byrjað að gefa út. Það er ungur piltur, 17 ára
gamall, Sigurður Stefánsson, sem ber allan hita
og þunga af útgáfunni. Blm. rabbaði aðeins við
hann á dögunum um útgáfumálin:
„Ég er einn með þetta bla >, þ.e.a.s. að mestu
leyti, þó hef ég notið aðstoðar Guðna Björnsson-
ar lítilsháttar. Það má segja, að ég hafi byrjað á
þessu svona í fikti til að prófa eitthvað og blað
allt í einu orðið til upp úr því. Ég reyni að hafa
stuttar greinar og fá viðtöl við einhverja tengda
hljómlist, fjölmiðlun eða öðru slíku.
— Hvað kom blaðið út í mörgum eintökum?
„Nálægt þúsund eintökum í bæði skiptin og
fyrra eintakið er uppselt.
— Er þetta ekki dýrt fyrir þig?
„Ég geri allt sjálfur að heita má, nema
offsetprenta það, svo kostnaðurinn í sjálfu sér
liggur einungis þar og í minni vinnu. Maður
verður allavega ekki milljónamæringur af
þessu strax. Eg dreifi blaðinu í verslanir á
Stór-Reykjavíkursvæðinu, en hef ekki enn sem
komið er farið með það út á land.
— Ætlarðu að halda áfram í blaðamcnnsk-
unni?
„Ég held allavega áfram með þetta blað
eitthvað. Hugurinn stefnir síðan í nám tengt
blaðaútgáfu, hvort sem það verður útlitshönn-
un eða blaðamennska. Þetta er a.m.k. hlutur
sem ég vil vinna að í framtíðinni."
500 BÖRN
SÓTTU SÝNINGARNAR
í VESTMANNAEYJUM
„Þau púa á
mann ef eitthvað
fer úrskeiðis"
Börnin í Vestmannaeyjum
fengu kærkomna gesti í heim-
sókn um síöustu helgi er þar voru
á ferð Helga Steffensen og Sigríð-
ur Hannesdottir með Brúðubílinn.
Þær höfðu fjórar sýningar í Bæj-
arleikhúsinu í samvinnu við
Tómstundaráð Vestmannaeyja og
var þetta liður í dagskrá vegna árs
æskunnar.
Geysileg og innileg gleði bland-
in eftirvæntingu var ríkjandi með-
al barnanna að hitta þarna augliti
til auglitis gamla kunningja, en
brúður og brúðuleikhús er talinn
einhver ákjósanlegasti fjölmiðill
fyrir yngstu leikhúsgestina. Og
það sýndi sig og sannaðist með að-
sókninni á sýningarnar um helg-
ina, því rúmlega 500 börn á ýms-
um aldri sóttu sýningarnar.
Á sunnudaginn var Helga Steff-
ensen með sýningu á brúðunum og
útskýrði gerð þeirra fyrir starfs-
konum á barnaheimilum og
gæsluvöllum bæjarins. Sóttu þá
kynningu 14 fóstrur og kennarar
og ríkti mikil ánægja með þetta
námskeið Helgu og fram kom mik-
ill vilji að fá hana aftur til Eyja til
þess að leiðbeina frekar og kenna
handbrögð við brúðugerð, efnis-
notkun og stjórnun brúða.
Helga Steffensen sagði í viðtali
að þær stöllur væru í sjöunda
himni yfir móttökunum í Éyjum,
aðsóknin hefði verið stórkostleg
og börnin yndislegir leikhúsgestir
eins og reyndar alls staðar. „Það
er mjög krefjandi að sýna fyrir
börn, þau púa á mann ef eitthvað
fer úrskeiðis, en eru líka á hinn
veginn jafn einlæg í gleði sinni.
Sem sagt miklu opnari leikhús-
gestir en fullorðna fólkið," sagði
Helga Steffensen. Þær Helga og
Sigríður vildu koma á framfæri
góðum kveðjum til allra Vest-
manneyinga og þakklæti til þeirra
Guðmundar Þ.B. Ólafssonar
tómstundafulltrúa og Magnúsar
Magnússonar og Hjálmars Brynj-
ólfssonar hjá Leikfélagi Vest-
mannaeyja.
Þessu má svo ljúka með stöku
sem einn af öfunum gaukaði að
Mbl., að aflokinni sýningu:
Furðuverurnar fóru á kreik,
fingranettum hjá stýrimeyjum.
Brosandi tóku þeim brúðuleik,
börnin okkar í Vestmannaeyjum.
Hann kom þeim
á framfæri...
Ein vísasta leiðin til frægðar í Hollywood fyrir ungar stúlkur er að
komast fram fyrir linsuna hjá Alan Houghton sem hér hallar sér
makindalega fram á vélina. Houghton er vel þekktur í glimmerborginni
frægu og þær eru orðnar æðimargar frægu leikkonurnar í dag sem vöktu
fyrst athygli eftir að myndir hans af þeim höfðu birst. Má þar nefna þær
sem hér fylgja honum á síðu Mbl., Lindu Evans úr Dynasty, Heather
Locklear, einnig úr Dynasty, Victoriu Principal og Audrey Landers úr
Dallas, svo einhverjar séu nefndar. Myndirnar sem hér birtast af leik-
konunum eru allar úr safni Alans Houghton, mannsins sem uppgötvaði
stúlkurnar.