Morgunblaðið - 05.03.1985, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1985
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sigurvegararnir í Edlisfræðikeppni framhaldsskólanema. F.v. Ingveldur Jónsdóttir, Sigurbjörn Þorkelsson, Ásgeir B.
Ægisson, Reynir Kristbjörnsson og Sigurður Áss Grétarsson.
Urslit í Eðlisfræðikeppni framhaldsskólanema:
Ingveldur Jónsdóttir
og Sigurður Áss Grét-
arsson í efstu sætum
Úrslit í Eðlisfræðikeppni fram-
haldsskólanemenda, sem Eðlisfræði-
félagið og Kélag raungreinakennara
standa að með stuðningi Morgun-
blaðsins, voru kunngerð á sunnudag.
Fyrsta og annað sæti hrepptu Ingveld-
ur Jónsdóttir Menntaskólanum við
Hamrahlíð og Sigurður Áss Grétars-
son Menntaskólanum í Keykjavík.
Þau hlutu fyrstu og önnur verðlaun,
7.500 kr. hvort.
í þriðja og fjórða sæti lentu Ás-
geir B. Ægisson MK og Sigurbjörn
Þorkelsson MH. Þeir hlutu þriðju og
fjórðu verðlaun, 2.000 kr. hver, en í
fimmta sæti varð Reynir Krist-
björnsson MS sem hlaut 1.000 kr. í
verðlaun. Vilmundur Pálmason MK,
sem var efstur í undankeppninni,
forfallaðist vegna veikinda og gat
því ekki tekið þátt í úrslitakeppn-
inni. Auk peningaverðlaunanna
fengu allri þessir keppendur bóka-
verðlaun og viðurkenningarskjöl
fyrir góða frammistöðu í Eðlis-
fræðikeppninni. Nánar verður sagt
frá síðari hluta Eðlisfræðikeppnin-
ar og birt viðtöl við sigurvegarana í
Morgunblaðsgrein síðar í vikunni.
fslensk hönnun.
í samráði við aðila í sjávarútvegi höfum við hannað nýtt og
sérlega fjölhæft fiskiker ásamt nýrri gerð „togarabrettis".
Fiskiker, 660 lítra, á aðeins kr. 8300.-, einangrað
Af nýjungum, ásamt öðrum kostum, má nefna:
• Gólflyftari getur gengið inn undir kerið frá öllum hliðum þess.
• Gaffallyftari getur snúið kerinu um 180°
• Hífibúnaður er efst á kerinu, sem jafnframt er handfang.
• 30 ker komast fyrir í 20 feta flutningagám, bæði einangraða
óeinangraða.
• Kerin eru einangruð með Polyurethane
• Efnið í kerunum er viðurkennt undir matvæli (US FDA)
• Viðgerðarþjónusta.
Við minnum einnig á önnur ker sem við framleiðum:
580 lítra ker „óeinangruð" á aðeins kr. 6000.-
760 lítra ker bæði „óeinangruð" og einangruð.
„Togarabretti" 89X108,5 cm á aðeins kr. 1800.-
Ný athyglisverð hönnun á vörubretti, sérstaklega ætluðu
undir 70 og 90 lítra fiskikassa.
Af helstu nýjungum og kostum má nefna:
• Ekkert Polyurethane er í brettunum og þess vegna eru þau
viðgerðarhæf.
• Burðarmikil og gerð úr grimmsterku Polyethylene, viðurkennt undir
matvæli.
• Upphleypt yfirborð neðan á þekju og fótum brettisins sem stóreykur allt
öryggi við notkun með gaffallyftara.
• Fyrirstaða er á brúnum brettisins þannig að kassarnir renna ekki út af.
Við minnum á aðra framleiðslu okkar á vörubrettum í
stærðunum 80x120 og 100x120 cm.
íslensk gæðavara á góðu verði.
u
z/1
e
MEMBER
VESTURVÖR 27 — KÓPAVOGI SÍMI: (91) 46966.
„Gífurlegur húsnæðis-
skortur Hótel- og
veitingaskólans"
MORGUNBLAÐINU hefur borist
svohljóðandi yfirlýsing frá iðn-
fræðslunefnd Iðnnemasambands
íslands:
Iðnfræðslunefnd INSf vill
vekja athygli á þeim gífurlega
húsnæðisskorti sem Hótel- og
veitingaskóli íslands á við að
glíma. Þetta vandamál er
margra ára gamalt og hefur oft
verið vakin á því athygli. Það er
óhæft með öllu að á meðan veit-
ingahúsum og matsölustöðum
fjölgar svo mikið sem raun ber
vitni skulu yfirvöld menntamála
algjörlega hundsa þá auknu
menntaþörf sem þessi þróun
hlýtur að hafa í för með sér.
Iðnnemar sætta sig ekki við að
iðnmenntun á íslandi sé sett á
lægri stall en aðrar mennta-
brautir. Iðnnemar vilja ekki
sætta sig við að verða jafnvel að
þola seinkun á fyrirhuguðum
námslokum vegna húsnæðis-
skorts. INSÍ kallar mennta-
málaráðuneytið til ábyrgðar og
hvetur um leið til að iðnnemum
í landinu verði skipaður sá sess
Mörgblöó meö einni áskrift'.
sem eðlilegt er, þ.a.s. til jafns
við bóknámsbrautir.
Erindi um ævi
og störf Jónas-
ar frá Hriflu
ÞESS veröur minnst þann 1. maí nk.
að þá verða hundrað ár liðin frá fæð-
ingu Jónasar Jónssonar frá Hriflu. í
tilefni af þessum tímamótum stendur
nú yfír röð erinda um ævi og störf
Jónasar í félagsheimili samvinnu-
manna, Hamragörðum, Hávallagötu
24. Fyrirlestrarnir hefjast klukkan
20.00 og er aðgangur öllum heimill.
Nokkur erindi hafa þegar verið
haldin, en röð þeirra, sem eftir eru,
verður sem hér segir:
6. mars. Jónas og Samvinnuhreyf-
ingin: Erlendur Einarsson forstjóri.
Jónas og unga fólkið: Halldór E.
Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra.
13. mars. Jónas og Tíminn: Þórar-
inn Þórarinsson, fyrrverandi rit-
stjóri. Þingmaðurinn Jónas Jónsson:
Haraldur Matthíasson, kennari.
20. mars. Áhrif og átök í menn-
ingarmálum: Andrés Kristjánsson,
rithöfundur. Jónas og fslensk utan-
ríkismál: Þór Whitehead, sagnfræð-
ingur.
27. mars. Jónas Jónsson og heima-
menn: Finnur Kristjánsson, fyrr-
verandi kaupfélagsstjóri. Heimili
Jónasar og Guðrúnar: Auður Jón-
asdóttir, kennari.
:shannon:
:datastor:
SKJALASI<APAR
NÚ EINNIG HIRSLA FYRIR TÖLVUGÖGN
Sem áöur er hægt
aö fá skápana
útbúna meö föstum
hillum, hillustoöum,
útdregnum hillum,
upphengjum bæöi
Aö stafla tölvumöppum í hillur er nú ekki föstum og útdregnum fyrir skjalapoka,
lengur nauösyn. útdregnum spjaldskrárhillum og
Möppunum er einfaldlega rennt i þar til útdregnu vinnuboröi til aö leggja á þá
geröar brautir. hluti sem er unniö viö hverju sinni.
ALLT Á SI'NUM STAÐ
AirtuisL <s
SUNDABORG 22 104 REYKJAVÍK SÍMI 84800
BflF.