Morgunblaðið - 29.03.1985, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. MARZ 1985
25
Noröurlandahúsið í Þórshöfn í Færeyjum.
Jóhannes Dalsgaard og Erlendur
Patursson, fram fyrirspurn til í
menntamálaráðherra, um það
hvort hann vildi svara á þingi
hvaða ástæður lægju að baki upp-
sögninni hjá mér. Þingið greiddi
atkvæði um það hvort henni yrði
inni margir smámunir, sem gera
eitt stórt. Því miður getur þetta
fólk ekki unnið saman. Mér skilst
að þessir samstarfsörðugleikar
séu aðallega á milli Hjartar og
Ásu Jústínussen, aðstoðarfor-
stjóra hússins. Mér hefur virst
þetta allt vera hið besta fólk og er
erfitt að átta sig á því hvers vegna
það getur ekki unnið saman.
Því er stungið upp á því við
Hjört að hann hætti fyrr heldur
en þessir þrír mánuðir eru liðnir.
Ekki var ákveðinn einn ákveðinn
dagur, heldur getur hann farið
þegar það hentar. Þetta var gert
til þess að hafa þetta sem þægi-
legast fyrir hann. En úr því að
Hjörtur ætlaði að fara hvort sem
var, var talið að það væri besta
lausnin að vera ekki að binda
hann þarna í þrjá mánuði í þess-
um erfiðleikum.
Stjórnin gerir ráð fyrir að
Hjörtur komi á stjórnarfundinn 3.
maí nk. þar sem fjallað verður um
málið,“ sagði Birgir Thorlacius.
svarað eða ekki og felldi það.“
— Hvað liggur að baki uppsögn
þinni?
„Það má segja að í stórum
dráttum séu það samstarfsörðug-
leikar, en þeir skapast af ýmsu.
Samstarfsörðugleikar eru það
vissulega og þeir hafa farið vax-
andi. Á bak við þá er margt smátt
sem gerir eitt stórt."
— Munt þú skila greinargerð
um málið?
„Hugmyndin var sú að skila
stjórninni greinargerð um málið.
Mér fannst það allt svo flólkið og
þurfa ýmissa skýringa við. Ég
taldi mig hafa nægan tíma til þess
að semja slíka greinargerð. Ég
þóttist sjá að samningur hennar
tæki sinn tíma, en að henni yrði
lokið fyrir stjórnarfund þann 3.
maí nk. og helst nokkru áður.
Stórnarformaðurinn sagði f morg-
un að ég væri velkominn á þennan
fund. Én þegar ég er beðinn að
láta af störfum með þessum hætti
er mér ekki Ijóst hvort stjórnin
vill fá þessa greinargerð frá mér
eða ekki.
En auðvitað sögðu fjölmiðlar
frá uppsögn minni. Það vekur að
sjálfsögðu athygli þegar maður í
svona stofnun segir upp eftir til-
tölulega skamman tíma. Fjölmiðl-
ar spurðu mig um málið og ég tók
þann kostinn að neita ekki með
öllu ákveðnum staðreyndum. Hins
vegar er ekki allt frá mér komið,
sem staðið hefur um málið í fjöl-
miðlum. Sum blöð hafa slegið
þessu upp og það virðist hafa orðið
til þess að stjórnin hefur misst
þolinmæðina og telur að ég hafi
sagt of mikið.
Stjórnarformaðurinn hefur
spurt mig undanfarna dag hvort
ég væri fús til þess að bera til
baka eitthvað af því sem staðið
hefur í blöðunum. Þó ég neiti að
bera ábyrgð á öllu, sem hefur
staðið í blöðunum, er sitthvað af
því sem þar hefur komið fram
sannleikanum samkvæmt. Ég
neitaði því að draga nokkuð til
baka, þar sem ég taldi ekkert stór-
vægilegt bera á milli. Þetta virðist
vera kjarni málsins. Mér er gefið
að sök að vera of opinskár við fjöl-
miðlana. En það sem þar hefur
komið fram er í raun og veru lítið
brot af því sem þarna er á bak við
og því sem ég hafði hugsað mér að
gera stjórninni grein fyrir.
Mér þykir ólíklegt að síðasta
orðið hafi verið sagt í þessu máli.
Eins og málin hafa þróast í dag
þykir mér hart ef málið verður
ekki rannsakað betur.
Ég hef fengið góðan stuðning
frá nokkrum Færeyingum og sam-
tökum listamanna og mikiil áhugi
er á því hér að fá þetta mál upp-
lýst. Þetta er því ekki mitt einka-
mál,“ sagði Hjörtur að lokum.
Yfirlýsing
stjórnar Norður-
landahússins
Hér fer á eftir yfirlýsing sú, sem
stjórn Norðurlandahússins í Fær-
eyjum sendi frá sér í fyrradag:
Þegar Hjörtur Pálsson sagði
skriflega upp starfi sínu sem
forstjóri Norðurlandahússins,
kunngerði hann samtimis einnig
þá ætlan sína að gera stjórn
hússins grein fyrir ákvörðun
sinni. Sú greinargerð hefur enn
ekki borizt til stjórnarinnar.
Þess í stað hefur Hjörtur Páls-
son valið þá leið að bera fram
ásakanir í erlendum blöðum,
annars vegar á hendur starfs-
mönnum hússins, hins vegar á
stjórn þess. Við teljum okkur af
þessum sökum ekki geta beðið
lengur eftir skýringu Hjartar
Pálssonar án þess að skýra frá
því sem hér fer á eftir:
Stjórnin hefur einróma sam-
þykkt uppsagnarbeiðni Hjartar
Pálssonar og jafnframt óskað
eftir því við hann, að hann láti
þegar af störfum sem forstjóri
hússins og hafi ekki fremur af-
skipti af húsinu og starfsemi
þess. Að sjalfsögðu mun Hjörtur
Pálsson fá laun sín og aðrar
greiðslur til þess tíma að upp-
sagnarfrestur hans sjálfs tekur
gildi.
Þar að auki vill stjórnin taka
fram eftirfarandi:
1. Hjörtur Pálsson hefur ekki
viljað sætta sig við þá stjórnar-
háttu fyrir rekstur hússins og
um starfsmanna og ráðgjafa-
starfsemi, sem var á sínum tíma
ákveðin af ráðherranefndinni og
landstjórninni. Við teljum að
þetta hljóti að vera frumfor-
senda þess meðal annars að
kostnaður við húsið og búnað
þess nýtist og skili sér á fag-
mannlegan hátt. Við höfum
margsinnis reynt að útskýra
þessi grundvallaratriði og án ár-
angurs hvatt hann til að hafa
samvinnu við starfslið og ráð-
gjafa.
2. Ásakanir Hjartar Pálssonar á
hendur starfsliði og stjórn, þess
efnis að farið hafi verið á bak við
hann eru rangar. Eina samband-
ið sem hefur verið milli starfs-
liðs og fyrrverandi forstjóra hef-
ur verið varðandi upplýsingar
um málefni sem voru afráðin af
honum í hans forstjóratíð. Þar
fyrir utan hefur formaður
stjórnarinnar hvatt hann til að
standa við þau tvö erindi sem
rekja má til tíma hans sem
stjórnanda á byggingartíma
hússins.
Stjórnin hefur aldrei haft af-
skipti af verkefnaskránni, en lét
á síðasta fundi í Ijós kvíða vegna
þess að áætlanir um sjálfstæða
starfsemi vorið og sumarið 1985
vantaði nánast alveg. Við óskuð-
um einnig eftir undirbúnings-
áætlun fyrir haustið 1985.
3. Ivan Edeling hefur árum
saman starfað sem ráðgjafi
hússins hvað varðar vinnustofu
fyrir grafík. Það er ekki sök
Edelings, að þessa vinnustofu
verður ekki unnt að taka i notk-
un fyrr en í maí í ár, heldur staf-
ar það af seinkun byggingarað-
ila.
Á síðasta fundi sínum í Fær-
eyjum taldi formaður stjórnar-
innar að ákjósanlegt tilefni
stjórnar hússins til að heiðra
William Heinsen vegna 85 ára
afmælis hans, ætti að vera i
tengslum við að hann sendi frá
sér þrjú nýjustu grafíkverk sín.
Formaðurinn bað því um mót-
tökuathöfn af þessu tilefni.
Þetta er sú afstaða sem Norður-
landahúsið hefur tekið varðandi
grafíkmyndamöppur Heinesens
og Edelings, sem er reyndar í
hvívetna mál milli þessara
tveggja manna.
Jan Stiernstedt,
Steen Cold,
Danjal Pauli Danielsen,
Kolv Egeland,
Magnus Kull,
Flemming Samuelsen,
Birgir Thorlacius,
Elisabeth Zachariasen.
í efri
Guðmundur L. Friðfinnsson,
Guðmundur Frímann,
Guðmundur Jónsson,
Guðmundur Ingi Kristjánsson,
Guðrún Á. Símonar,
Gunnar Dal,
Gunnar Eyjólfsson,
Gunnar M. Magnúss,
Hallgrímur Helgason,
Hannes Sigfússon,
Heiðrekur Guðmundsson,
Helgi Sæmundsson,
Herdís Þorvaldsdóttir
Hringur Jóhannesson,
Ingimar Erlendur Sigurðsson,
Jakobína Sigurðardóttir,
Jóhann Hjálmarsson,
Jóhannes Geir,
Jóhannes Helgi,
Jóhannes Jóhannesson,
Jón Ásgeirsson,
Jón Björnsson,
Jón Dan,
Jón Óskar,
Jón Þórarinsson,
Jón úr Vör,
Jónas Árnason,
Jónas Guðmundsson,
Jórunn Viðar,
Karen Agnete Þórarinsson,
flokki
•
Karl Kvaran,
Kjartan Guðjónsson,
Kristinn Hallsson,
Kristinn Reyr,
Kristján Albertsson,
Kristján Davíðsson,
Kristján frá Djúpalæk,
Leifur Þórarinsson,
Oddur Björnsson,
Ólöf Pálsdóttir,
óskar Aðalsteinn,
Pétur Friðrik,
Ragnar Kjartansson,
Ragnheiður Jónsdóttir,
Róbert Arnfinnsson,
Rúrik Haraldsson,
Rögnvaldur Sigurjónsson,
Sigfús Daðason,
Sigfús Halldórsson,
Sigurður A. Magnússon,
Sigurður Sigurðsson,
Skúli Halldórsson,
Stefán Hörður Grímsson,
Stefán Júlíusson,
Steinþór Sigurðsson,
Svava Jakobsdóttir,
Sveinn Björnsson,
Thor Vilhjálmsson,
Tryggvi Emilsson,
Valtýr Pétursson,
Horgunblaðið/Ól.K.M.
Úthlutunarnefnd listmannalauna á fundi með fréttamönnum, þar sem úthlutun fyrir árið 1985 var kynnt, f.v.: Soffía
Guðmundsdóttir, séra Bolli Gústavsson, Bessí Jóhannssdóttir, Magnús Þórðarson, formaður, Jón R. Hjálmarsson,
Halldór Blöndal og Gunnar Stefánsson.
Veturliði Gunnarsson,
Vésteinn Lúðvíksson,
Vilborg Dagbjartsdóttir,
Þorkell Sigurbjörnsson,
Þorsteinn frá Hamri,
Þorsteinn ö. Stephensen,
Þuríður Pálsdóttir,
Örlygur Sigurðsson,
15.000 krónur hver (21 maður)
Álfrún Gunnlaugsdóttir,
Árni Bergmann,
Eyjólfur Einarsson,
Isak Harðarson,
Jóhanna Kristín Yngvadóttir,
Jón Bjamason frá Garðsvík,
Jón Ingi Sigurmundsson,
Páll Guðmundsson,
Pétur Jónasson,
Pétur Már Pétursson,
Sigurður I. Snorrason,
Sigurlaug Jónasdóttir frá öxney,
Sigvaldi Hjálmarsson,
Sunna Borg,
Sveinbjörn I. Baldvinsson,
Tinna Gunnlaugsdóttir,
Valgerður Bergsdóttir,
Viðar Eggertsson,
Þorsteinn Gauti Sigurðsson,
Þorsteinn Thorarensen,
Örn Guðmundsson.