Morgunblaðið - 11.04.1985, Page 17
MORGUNBLADID, FIMMTUDAGUR 11. APRÍL1985
17
Horgunblaðið/JAhaanes Long
Á skrifstofu Jafnréttisráðs á Laugavegi 116 við undirritun samnings um gerð
fræðsluefnis um jafnréttismál. Frá vinstri talið: Hjálmdís Hafsteinsdóttir,
formaður Jafnréttisnefndar Kópavogs, Valgerður Sigurðardóttir, formaður
Jafnréttisnefndar Hafnarfjarðar, og Ásthildur Ólafsdóttir fulltrúi þeirra,
nefndar, Björg Einarsdóttir, formaður Jafnréttisnefndar Reykjavíkur, Sigríður
Jónsdóttir og Gerður G. Óskarsdóttir, höfundar fræðsluefnisins.
Fræðsluefni um
jafnréttismál
Jafnréttisnefndir Reykjavíkur,
Kópavogs og Hafnarfjarðar vinna
sameiginlega að gerð fræðsluefnis
um jafnréttismál fyrir grunnskóla í
tilefni loka Kvennaáratugarins.
Nefndirnar gangast fyrir gerð
fræðsluefnis um náms- og starfs-
val fyrir nemendur á grunnskóla-
stigi með tilliti til jafnréttis kynj-
anna. Höfundar texta eru Gerður
G. Óskarsdóttir, æfingastjóri í
uppeldis- og kennslufræðum í Fé-
lagsvísindadeild Háskóla tslands,
og Sigríður Jónsdóttir, námsstjóri
i yngri barnakennslu i Skóla-
þróunardeild Menntamálaráðu-
neytisins.
Af hálfu jafnréttisnefndanna
sjá um undirbúning að tillögum
um gerð fræðsluefnisins Guðrún
Sigríður Vilhjálmsdóttir, þjóðfé-
lagsfræðingur, og Kristín H.
Tryggvadóttir, námsstjóri á
Fræðsluskrifstofu Reykjanesum-
dæmis.
Flugmenn Arnarflugs
fá 37 % launahækkun
Sömdu á sömu nótum og f lugmenn Flugleiða
FLUGMENN Arnarflugs og Arnar-
flug hafa nú gert með sér kjara-
samning sem byggist á kjarasamn-
ingi þeim sem tókst á railli Flugleiða
og flugmanna Flugleiða. Fá flug-
menn Arnarflugs því um 37 % kaup-
hækkun nú, sem er að hluta til aft-
urvirk.
Samkvæmt upplýsingum Stef-
áns Halldórssonar, starfsmanna-
stjóra Arnarflugs, er kjarasamn-
ingur þessi á sömu nótum og hjá
flugmönnum Flugleiða, að svo
miklu leyti sem um sambærilega
hluti er að ræða. „Samningarnir
eru þeir sömu hvað varðar kaup-
liðina, eins og áður, en starfsemi
Arnarflugs er í veigamiklum at-
riðum ólík starfsemi Flugleiða, og
að þvi leytinu eru samningarnir
ekki þeir sömu. Við erum með
önnur ákvæði í okkar samningum
•um erlend verkefni, þar sem við
erum miklu meira í erlendum
verkefnum en Flugleiðir,“ sagði
Stefán, „og sömuleiðis erum við
með annað dagpeningakerfi en
Flugleiðir og því ekki heldur hægt
að bera það saman við kerfið hjá
Flugleiðum."
Brautarholti 4
GSAL