Morgunblaðið - 11.04.1985, Síða 19
MORGUNBLAÓIÐ, FtMMTÚDAGURl’l. APRfL 1985
19
HorgunblaAið/Árni Snberg
Stjórn MS-félagsins skipa Ulið í efri r»ð frá yinstri: Elín Herdís Þorkelsdóttir
riUri, Edda Erlendsdóttir ejaldkeri og Signrbjörg Ármannsdóttir riUri. 1 neéri
röó eru þan Gyða Jónína Olafsdóttir fonnaður og John Ernest Gabriel Bene-
diktsson læknir og varaformaður. Á myndina vantar Margréti Olafsdóttur
gjaldkera.
MS-félag íslands opnar skrifstofu
MS-félag íslands (Multiple Scler-
osis) opnaði skrifstofu í húsi Krabba-
meinsfélags fslands i Skógarhlíð 8,
Reykjavík, fyrir nokkru.
MS er sjúkdómur í miðtauga-
kerfinu sem veldur lömun á ýmissi
starfsemi líkamans og orsakir hans
eru ókunnar.
Opnun skrifstofunnar mun að-
eins vera fyrsta skrefið hjá félag-
inu í að aðstoða þá 200 sjúldinga er
stríða við þennan sjúkdóm hérlend-
is og aðstandendur þeirra, því i
sjónmáli er nú einnig opnun dag-
deildar fyrir MS-sjúklinga.
Hrólfur Sveinsson:
Hvunndagshugvekja
„Vísindin efla alla dáð“ sagöi
eitt sinn maður nokkur norðan
úr Óxnadal. Þetta var skarplega
athugað, enda varð hann frægur
fyrir. Því hvar væru volaðir
Adams niðjar á vegi staddir án
vísindanna? Þá væri jörðin enn-
þá flöt og á henni væri gat i
gegnum Heklu, þar sem sálum
vorum yrði sópað niður í annan
og enn lakari staö. Hvorki væri
til vasatölva né fjarstýrður
bílskúrshurðaropnari, ekki einu
sinni eldspýta eða atómsprengja.
Og með anda sínum og krafti
hafa vísindin hreinsað oss af öll-
um hindurvitnum, svo sem að fú-
ið rifbein úr þjóf sé gott til reið-
ar handa kvenfólki, eða að hver
klöpp sé full af álfakroppum,
sem narri til sín sveitamenn
undir svefninn. Enda hafa vís-
indin grafið upp náttúrulög-
málin öll með tölu, og sýnt fram
á að orsök veldur afleiðingu, og
að tvisvar tveir eru fjórir, og að
orku þarf til að bera kvenmann
upp stiga, þó ekki sé meira. Þvi
er ljóst, að ekki verður framar
gengið á vatni, né heldur verður
því breytt í vín; það hlyti að
stranda á náttúrulögmálum.
Einnig er sú hlálega uppákoma í
efninu, sem kölluð er lff, öndverð
grundvallar-lögmálum efnis og
orku, og þess vegna frá vísinda-
legu sjónarmiði óhugsandi; svo
að hver sem væri svo heimskur
að viðurkenna sjálfan sig sem
staðreynd, hefði afneitað visind-
unum. En vísindin láta ekki að
sér hæða, heldur taka á hverju
ári stærra framfara-skref en á
heilli öld á undan. Ef gert væri
línurit, þar sem tíminn labbaði
sig jafnt og þétt eftir láásnum,
en vísindin klifruðu upp lóðás-
inn, þá er ljóst að hnit, sem
fylgdi vísindunum gegnum ald-
irnar, hefði lengst af verið næst-
um lárétt, þangað til hún fór að
reigja sig upp á við með hrað-
vaxandi derringi, og stefnir nú
óðfluga á að verða lóðrétt, hvað
sem þá tæki við, ef timinn yrði
svo frakkur að halda áfram að
líða, eins og ekkert væri, í stað
þess að nema staðar við svo búið
og biðjast afsökunar á sjálfum
sér. Einhverjum datt í hug, að
þar hlyti askur Yggdrasils að
steypast ofan i Urðarbrunn með
„ braki og bomsi i krafti vísind-
anna, enda ekki vonum fyrr, að
leiðrétt yrði slík kórvilla, sem
fræðilega fær ekki staðizt. En
hver veit nema sveiglínan góða
taki bara kúrsinn rakleitt út i
óendanleikann, svo að hversu
hratt sem hún svignaði upp á
við, næði hún aldrei að verða
lóðrétt fremur en Akkilles næði
skjaldbökunni á sprettinum.
SEM BREYTTIST
Á EINNINÓTTU
Þú getur skemmt þér
stórkostlega í Glasgow, borg-
inni sem breyttist á einni nóttu.
Þótt þér dauðleiðist
sekkjapípumúsík,
finnist skotapils hallærisleg og gamlir kastalar óspennandi, þá
er fjölmargt annað í Glasgow sem gæti heillað þig upp úr
skónum og gert þig að aldavini skoskrar menningar og
lífshátta.
Glasgow er nútímaborg á gömlum grunni. Þangað er aðeins
um 2 klukkustunda flug með Flugleiðum frá íslandi. Þessi
nágrannaborg okkar á sér vaxandi aödáendahóp hérlendis. Þökk
sé viðmóti Skotanna, kránum, veitingahúsunum, næturklúbbunum,
diskótekunum, verslununum, ágætum söfnum og skemmtilegri
menningu.
- Skoski ballettinn, Skoska óperan, Skoska sinfónían og Skoska
þjóðleikhúsið hafa aðsetur í Glasgow!
- I Glasgow eru 16 fyrsta flokks diskótek, og auðvitað tugir af verri
gerðinni!
- Glasgow státar af 36 veitingahúsum, þar sem matur og þjónusta
eru f hæsta gæðaflokki!
- Glasgow er draumastaður sælkera og lífsnautnamanna. í
borginni eru hvorki fleiri né færri en 80 vínstúkur, ölkrár og litlir
matsölustaðir sem hægt er að mæla sérstaklega með. En þá
eru ótaldir staðir sem heiðarlegir Skotar geta ekki mælt með!
Þú átt varla kost á ódýrara sumarleyfi en ef þú flýgur með
Flugleiðum til Glasgow. Þar býðst gisting á vönduðum hótelum fyrir
hlægilegt verð og í verslunum borgarinnar eru vörurnar á mun
lægra verði en í London.
Gleymdu öllu sem þú hélst að þú vissir um Glasgow! Skemmtileg borg med lágan aógangseyri
GLASGOW
LfclTIÐ FREKARI UPPLYSINGA
A SOLUSKRIFSTOFUM FLUGLEtOA
HjÁ UMBOÐSMONNUM OG FERÐA
SKRIFSTOFUM