Morgunblaðið - 11.04.1985, Síða 20
MÖRéUNÍUiADlD. FlMMTUPÁGtift 19áð
>20
Á að meina óflokksbundnum stuðn-
ingsmönnum Sjálfstæðisflokks-
ins þátttöku í prófkjöri?
— eftir Ólaf
Kristjánsson
Allt frá því að prófkjör vegna
framboðs Sjálfstæðisflokksins
voru samþykkt á landsfundi árið
1969, hafa farið fram miklar og
gagnlegar umræður um kosti og
galla þess að viðhafa prófkjör. Er
ekki ástæða til þess hér, að endur-
taka helstu þætti þeirrar umræðu
svo vel sem ágreiningsatriði eru
þekkt?
Þrátt fyrir ýmis vandkvæði við
framkvæmd prófkjörs og hugsan-
legar eftirstöðvar eru flestir nú
um það sammála, að prófkjörs-
leiðin sé besti kosturinn, þótt
menn greini á um framkvæmd og
leiðir.
Umræöa um breyttar
prófkjörsreglur
Á síðarihluta ársins 1984 hafa
hugmyndir um breytt fyrirkomu-
lag að reglum um framkvæmd
prófkjörs vegna framboðs Sjálf-
stæðisflokksins verið mjög til um-
ræðu innan kjördæmisráða
flokksins. Miðstjórn skipaði þann
9. desember 1983 sérstaka nefnd
til að yfirfara og gera tillögur til
breytinga þar að lútandi, og ber að
fagna þeim skilningi miðstjórnar
að vanda vel til tillagna samfara
því að leitað er álits manna heima
í héraði áður en lokaákvörðun er
tekin á landsfundi.
Hefur umræða m.a. snúist um
þörf þess að tryggja réttláta fram-
kvæmd prófkjörs, forðast mis-
sætti og sundrung að afstöðnum
kosningum, samhliða því að sam-
ræma reglur er gildi um val fram-
bjóðenda, kjörnefndir, kjörfundi
og kosningafyrirkomulag.
Nú virðist sem tekist hafi að ná
samstöðu um flest tilgreind atriði
utan eins — sem er mjög þýð-
ingarmikið grundvallaratriði —
en það er: Hverjir skulu hafa þátt-
tökurétt í prófkjöri.
Prófkjör þrengt
og lokað
Fyrir síðustu alþingiskosningar
höfðu kjördæmisráðin val milli
þriggja reglna samkvæmt 2. grein,
er hljóðar svo: Þátttaka í prófkjöri
fer eftir einhverri af þremur eftir-
greindum reglum samkvæmt
ákvörðun kjördæmisráðs:
a) Þátttaka í prófkjöri er heimil
öllum meðlimum sjálfstæðisfé-
laganna í kjördæminu, sem þar
eru búsettir og náð hafa 16 ára
aldri prófkjörsdagana. Auk
þeirra haía atkvæðisrétt þeir
stuðningsmenn Sjálfstæðis-
flokksins sem eiga munu kosn-
ingarétt í kjördæminu við
kosningarnar og undirritað
hafa inntökubeiðni í sjálfstæð-
isfélag f kjördæminu.
b) Þátttaka i prófkjöri er heimil
öllum stuðningsmönnum Sjálf-
stæðisflokksins, sem búsettir
eru í viðkomandi kjördæmi og
kosningarétt munu hafa í þeim
kosningum til Alþingis, sem í
hönd fara. Auk þeirra hafa at-
kvæðisrétt þeir flokksbundnir
sjálfstæðismenn er náð hafa 16
ára aldri prófkjörsdagana og
búsettir eru í kjördæminu.
c) Þátttaka í prófkjöri er heimil
öllum meðlimum sjálfstæðisfé-
laganna í kjördæminu, sem þar
eru búsettir og náð hafa 16 ára
aldri prófkjörsdagana. Auk
þeirra hafa atkvæðisrétt þeir
stuðningsmenn Sjálfstæðis-
flokksins, sem eiga munu kosn-
ingarétt í kjördæminu fyrir lok
kjörfundar eða hafa skráð sig
til þátttöku í prófkjörinu innan
tveggja sólarhringa áður en
kjörfundur hefst. Nú þegar
þetta er ritað er ljóst, að
þrengja á mjög hverjir hafi
rétt til þátttöku svo sem eftir-
farandi breytingartillaga 9.
desember nefndarinnar ber
með sér. (Breytt önnur grein.)
En hún hljóðar svo:
Þátttaka í prófkjöri er heim-
il:
a) ÖUum fullgildum meðlimum
sjálfstæðisfélaganna í kjör-
dæminu sem þar eru búsettir
og náð hafa 16 ára aldri próf-
kjörsdagana.
b) Þeim stuðningsmönnum
Sjálfstæðisflokksins, sem eiga
munu kosningarétt í kjördæm-
inu við kosningarnar og undir-
ritað hafa inntökubeiðni og
greitt félagsgjald í sjálfstæðis-
félag í kjördæminu fyrir upp-
haf kjörfundar.
Þúsundir stuðnings-
manna Sjálfstæðis-
flokksins sviptir rétti
Nái þessi breyting fram að
ganga verða þúsundir óflokks-
Áður herskáli nú listamiöstöð
AÐALBÍYGGING Norrænu listamiðstöðvarinnar á Sveaborg í Helsinki
verður tekin í notkun í sumar, þ.e.as. 10. ágúst næstkomandi. Þá mun
Sonja krónprinsessa Noregs opna húsnæðið hátíðlega og í tengslum við
það verður gert ýmislegt til hátíðabrigða.
Aðalbyggingin, sem áður var herskáli { virkinu Svíavígi, er aflangt
hús frá rússneska keisaratímabilinu byggt 1868. Það hefur nú verið
endurbyggt á vegum flnnsku húsnæðismálastjórnarinnar og tekist hef-
ur að varðveita sérkenni hússins. Þetta er eina menningarstofnunin af
þeim 40 sem Norðurlandaráð rekur sem eingöngu fjallar um sjónlist.
Ölafur Kristjánsson
bundinna stuðningsmanna Sjálf-
stæðisflokksins sviptir rétti til
þátttöku í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins samanber b lið 2. greinar
er áður gilti.
Hér bið ég menn að staldra við
og horfa fram um veg með fram-
sýni. Að afstöðnum alþingiskosn-
ingum 23. apríl 1983 kom í ljós að
um 30.000 þús. einstaklingar höfðu
tekið þátt í prófkjöri á vegum
Sj álf stæðisflokksins.
Að sögn flokksskrifstofunnar
munu vera u.þ.b. 23—24.000
flokksbundnir félagsmenn í hinum
ýmsu flokksfélögum.
Dreg ég þessa tölu nokkuð i efa
vegna ófullnægjandi gagna er
skrifstofan hefur yfir að ráða.
Margir eru tvítaldir, þ.e. brott-
fluttir og á skrá í fleiru en einu
félagi. Þá er mikill misbrestur á,
að látnir séu strikaðir út af fé-
lagatali o.s.frv. En hvað um það,
við skulum halda okkur við töluna
24.000 mínus þá Vestfirðinga
flokksbundna í Sjálfstæðisflokkn-
um sem ekki áttu þess kost að
segja sitt álit í prófkjöri, en þeir
munu vera um 1.000 Þá má ætla,
að flokksbundnir sjálfstæðismenn
hafi ekki allir getað tekið þátt 1
prófkjöri ýmissa hluta vegna. Ég
leyfi mér því að áætla, að 20.000
einstaklingar flokksbundnir hafi
tekið þátt í prófkjöri fyrir alþing-
iskosningarnar 1983.
10.000 hafa þá tekið þátt i
prófkjöri án þess að vera flokks-
bundnir. Samkvæmt breytingar-
tillögu nefndarinnar skulu þessir
aðilar sem og fjölmargir aðrir því
aðeins fá rétt til þátttöku í próf-
kjöri, að þeir innriti inntökubeiðni
í sjálfstæðisfélag og greiði árs-
gjald. Með öðrum orðum: Kaupi
þátttökurétt í prófkjöri. (?)
Farið inn á ranga braut
Ég er sannfærður um það, að
hér er verið að fara inn á ranga
braut, sem síðar meir — ef sam-
þykkt verður — á eftir að hafa
afdrifaríkar afleiðingar í för með
sér, m.a. minnkandi kjörfylgi.
Sé meirihluti fyrir þessari
breytingu innan kjördæmisráð-
anna og landsfundar er ég og
sannfærður um að ekki hafi verið
nægjanlega hlustað eftir hjart-
slætti þeirra fjölmörgu góðu og
einlægu stuðningsmanna Sjálf-
stæðisflokksins, sjálfstæðismanna
sem hafa af ýmsum ástæðum kos-
ið að standa utan við flokksstarf-
ið.
Vissulega er æskilegt að sem
flestir séu flokksbundnir og taki
þannig þátt í starfi og stefnumót-
un síns flokks.
Því miður er tiðarandinn annar,
og fram hjá því verður ekki horft.
Ungt fólk hefur þá er það öðlast
kosningarétt í fyrsta sinn ekki
fullmótað sína pólitísku skoðun,
og telur eðlilega ekki tímabært að
skipa sér í sveit hinna ýmsu
stjórnmálaflokka fyrr en það hef-
ur öðlast meiri þroska, skilning og
yfirsýn yfir hið almenna stjórn-
málasvið.
Þessu fólki höfnum við að mikl-
um hluta til verði um þröngt eða
lokað prófkjör að ræða. Hefur
flokkurinn efni á því?
Eru allir óflokks-
bundnir einstakl-
ingar andstæðingar
Sjálfstæðisflokksins?
Aðaliökin fyrir því að útiloka
óflokksbundna menn frá prófkjöri
eru þau, að aðeins flokksbundnir
sjálfstæðismenn skuli hafa rétt til
að velja menn á framboðslista
flokksins.
Þar eigi andstæðingarnir hvergi
nærri að koma. Rétt er það, en
hver er kominn til með að stað-
hæfa, að óflokksbundið fólk —
ungt sem aldið — sé yfir höfuð
andstæðingar Sjálfstæðisflokks-
ins, eða á að telja þá fjölmörgu
einstaklinga óflokksbundna, sem
tóku þátt í prófkjöri 1983 sem
andstæðinga? Ég segi NEI.
Á hverju byggist at-
kvæðaaukning flokka?
Atkvæði og stuðningur hins al-
menna kjósanda er það afl sem til
þarf eigi okkur að auðnast að
hrinda í framkvæmd mikilvægum
áformum um leið og við eflum
flokkinn til ábyrgðar og valda, og
sjáum þannig hugsjónir verða að
veruleika.
En hvernig náum við til fjöld-
ans? Með þröngu og lokuðu
prófkjöri? Með „gömlu góðu
Vegna umræðu um
sjónvarpsþátt
— eftir Maríu
Markan
Ég hefi orðið þess vör að nokk-
urs misskilnings gætir varðandi
sjónvarpsþátt er var endursýndur
sl. miðvikudag eftir 13 ár.
Ýmsir hafa talað við mig um að
Pétur Pétursson þulur hafi hraðað
sér að ljúka samtalsþætti okkar.
Að mínum dómi er Pétur mjög til-
litssamur og hæverskur. Hins veg-
ar gætti misskilnings milli upp-
tökumanna sjónvarpsins og okkar,
einkum mín. Er það skiljanlegt, í
spennu augnabliksins, þegar mað-
ur opnar hug sinn fyrir alþjóð um
sinn eigin lffsferil.
Okkur Pétri hafði víst verið sagt
hve langan tíma við hefðum, en
einhvern veginn fór það framhjá
mér og lét Pétur mig ráða ferð-
inni, en var stöðugt áminntur af
tímaverði, sem var okkar vinsæli
söngvari Guðmundur Guðjónsson.
Þegar fór að líða á seinni hluta
þáttarins áttaði ég mig ekki á
hvað tímanum leið, en sá að Pétri
brá er tímavörður lyfti upp spjaldi
og á því stóð 0. Þá sagði ég: Hvað.
Er tíminn búinn? Þar af leiddi
sem sjálfsagðan hlut, að Pétur
vildi ekki hætta þættinum í miðri
frásögn minni, en þurfti náttúr-
lega að hraða sér mjög til þess að
ljúka efninu, áður en filman væri
búin og slökkt yrði á upptökutækj-
um.
vinnubrögðunum" þar sem fáir út-
valdir ráða framboðslista?
Verður það gert með fámennum
fundum innan flokksfélaganna?
Með fundum þingmanna og leið-
arþinga? Eða með útgáfu mál-
gangs? Hver er reynsla okkar af
ofangreindu?
Það er því miður sorgleg stað-
reynd, að fáir sækja pólitíska
fundi, málgögn hinna ýmsu kjör-
dæma eru máttlítil og koma
óreglulega út, lítt lesin og gegna
þar af leiðandi ekki því hlutverki
að vera tengiliður milli þing-
manna, kjörinna sveitarstjórn-
armanna og flokksforystu við hinn
almenna kjósanda. Fjölmargar
ástæður liggja að baki þeirrar
deyfðar sem ríkir á milli kosninga
og verða ekki raktar hér að sinni.
Ég tel hiklaust, að opið prófkjör
þar sem við sýnum kjósendum til-
trú verði til þess að fjölmargir
komi til liðs við Sjálfstæðisflokk-
inn með þátttöku sinni í prófkjöri,
og það spor verði fyrsta sporið til
áframhaldandi stuðnings við
Sjálfstæðisflokkinn sem eigi eftir
að efla flokksstarfið, skapa liflegri
umiæðu um margvísleg pólitisk
málefni en hefur verið til þessa.
Þvi er stundum haldið fram, að
sé óflokksbundnum mönnum gert
kleyft að taka þátt í prófkjöri sé
réttur flokksbundinna manna
fyrir borð borinn. Þetta er rangt.
Sá sem er flokksbundinn mótar
starf og stefnu sins félags, hefur
áhrif á kjör trúnaðarmanna innan
flokksins, á ég hér við kjör stjórna
féiaga, fulltrúa á kjördæmisþing
og landsfund og vonandi neitar þvi
enginn, að i þessu felast ákveðin
og afgerandi völd. Þá eru almennt
flokksbundnir félagar valdir til
trúnaðar í nefndum á vegum
sveitarstjórna og við kjör sem
þingmenn hafa yfir að ráða svo
eitthvað sé nefnt.
Lokaorð:
Sjálfstæðisflokkurinn fékk við
siðustu alþingiskosningar 50.892
atkvæði. Þennan stóra hóp kjós-
enda þurfum við áfram að fá til
liðs við okkur ásamt þeim þúsund-
um nýrra kjósenda er öðlast kosn-
ingarétt í fyrsta sinn.
Með því að útiloka svo stóran
hóp góðra og væntanlegra stuðn-
ingsmanna og ég hefi verið að lýsa
hér að framan erum við að kasta
frá okkur stuðningi fjölmargra
um aldur og ævi.
Slikt má ekki gerast.
Ég hvet sjálfstæðismenn um
land allt til að íhuga vel afleið-
ingar þess að þrengja prófkjörs-
reglur frá því sem nú er. óflokks-
bundnir sjálfstæðismenn og aðrir
stuðningsmenn ættu að láta meira
í sér heyra um leið og þeir reyni að
hafa áhrif á frammámenn Sjálf-
stæðisflokksins hver í sínu heima-
héraði til frjálsræðis í þessum
efnum. Þá er ég þess fullviss að
vilji meirihlutans kemur i ljós, þ.e.
andstaða við jafn fráleita hug-
mynd og lokað og þröngt prófkjör
er.
Ólafur Kristjínssott er skólastjóri
og forseti bæjarstjórnar í Bolung-
airft.
María Markan
Vonandi veit fólk nú hvernig á
þessu stóð.
María Markan er óperusöngkona.