Morgunblaðið - 11.04.1985, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1985
37
Snjóblás-
ari ók á bíl
ÓH> PP varð á Breiðadalsheiði
síðasta föstudag í marzmánuði, er
bifreið varð fyrir snjóblásara. At-
burðurinn gerðist í svokallaðri
Kinn í blindbyl og slæma skyggni.
Stjórnandi snjóblásarans varð
ekki bifreiðarinnar var, en öku-
maður hennar gerði ítrekaðar til-
raunir til þess að forða sér frá
árekstri við blásarann með því að
bakka undan honum. Allt kom þó
fyrir ekki og fór blásarinn á bílinn
og skemmdi hann mikið svo sem á
meðfylgjandi mynd má sjá. Eig-
inkona ökumanns, sem sat í fram-
sæti, marðist á fótum, en að öðru
leyti varð fólki ekki meint af.
Morgunblaðit/BIH
Símon (varsson og Siegfried Kobilza.
Halda tónleika víða um land
f VIKUNNi er væntanlegur tii fs-
lands austurríski gítarleikarinn Sieg-
fried Kobilza. Hann hefur ásamt gít-
arleikaranum Símoni H. fvarssyni
farið í tvær tónleikaferðir um fsland,
fyrst árið 1979 og síðan aftur árið
1982.
í vor er ætlun þeirra félaga að
halda í eina tónleikaferðina enn
um landið. Þeir Símon og Siegfried
spiluðu á meira en 20 tónleikum í
síðustu ferð sinni á tæpum mán-
uði, og er ætlunin að bæta nú um
betur og fara á fleiri staði úti á
landi, og einnig er I bígerð að fara
til Færeyja.
Siegfried Kobilza hefur farið
viða síðan hann var hér siðast
haustið 1982. Héðan fór hann beint
til New York, en þar spilaði hann
við góðar undirtektir í Carnegie
Hall.
Siegfried hefur haldið marga
tónleika að undanförnu, bæði i
Austurriki og víðar í Evrópu, og
einnig hefur hann nýlega lokið við
að leika inn á sina aöra hljóm-
plötu.
Ráðgert er að Siegfried komi
hingað aftur i haust og haldi þá
viku námskeið í gftarleik á vegum
Tónskóla Sigursveins D. Kristins-
sonar. Einnig stendur þá til að þeir
Siegfried og Simon H. fvarsson
leiki saman inn á hljómplötu.
(FréttoUlk;MÍB()
13iodroqa f
Nýtt
2000
snyrtivörur
skrúbbkrem frá Biodroga
2000 hreinsar stíflaöa fitukirtla og yfir-|
borösfitu á andliti, bringu og baki.
Bankastræti 3.
S. 13635.
~3iodmqa i
2000 J
snyrtivörur. ^ y
Síðasta vaxtatímabil gaf ársávöxtun
sem svarar48,9%
Ávöxtun fyrir síðasta vaxtatímabil KASKÓ-reikningsins (janúar mars)
var 10,4%.
Það þýðir miðað við sömu
verðlagsþróun fyrir heilt ár 48,9% ársávöxtun.
KASKÓ - öryggislykill Sparifjáreigenda.
VKRZUJNflRBfiNKINN
-vúuuct vneð þ&i (