Morgunblaðið - 11.04.1985, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1986
fólk í
fréttum
Gluggað í furðuheim
Aarons og Candy Spelling
Nafnið Aaron Spelling hljóm-
ar kunnuglega og það ekki að
ástæðulausu, maðurinn er fram-
leiðandi flestra vinsælustu sjón-
varpsþátta i Bandaríkjunum og
víðar. Nægir að nefna Dynasty,
sem er sýnt i 79 löndum, einnig
Hart to Hart, Charlies Angels,
Love Boat, T.J. Hooker, Fantasy
Island og Hotel svo það helsta sé
nefnt. Hann er ekki aðeins fram-
leiðandi, heldur helsti handrita-
höfundur og hugmyndasmiður
allra þáttanna. Maðurinn er vell-
auðugur, mánaðarlaunin nema
milljónum dollara og hann er si-
fellt á þönum að kaupa lóðir, lista-
verk og gimsteina, yfirleitt handa
eiginkonu sinni, Candy, en þau eru
óaðskiljanleg og samrýnd svo af
ber. Það væri ekki úr vegi að
kynnast þessum milljónamæring-
um sem snöggvast, enda sérkenni-
legt fólk á ferðinni.
Aaron hefur orðið: „Foreldrar
minir voru fátækir, pabbi var
skraddari sem fór á höfuðið og við
bjuggum í allt of litlu húsnæði i
Dallas. Við vorum þrír bræðurnir
í sama litla herberginu. Á þessum
árum dreymdi mig um að verða
ríkur og með timanum ásetti ég
mér það. Ég kom svo til Holly-
wood frá Dallas i rútu og hugsaði
stíft um það, að ef ég yrði ekki
auðugur hér yrði ég það ekki. Ég
byrjaði sem leikari, en gerði mér
fljótt grein fyrir þvi að ég myndi
ekki ná frama á þeirri braut, ég er
svo ljótur! Ég var hins vegar alltaf
að velta handritunum fyrir mér og
þegar ég lék eitthvert hlutverk gat
ég ekki hugsað um annað en
hversu illa unnin handritin voru,
mér fannst að ég myndi geta gert
betur svo ég lét slag standa og
reyndi fyrir mér. Um leið freistaði
ég gæfunnar sem framleiðandi og
það gekk allt upp.“
Aaron hefur auðvitað um sig
hirð handritahöfunda sem vinna
langa vinnudag en hann leggur
línuna og er sískrifandi sjálfur.
Flesta daga er eiginkona hans,
Candy, fer á fætur er Aaron karl-
inn löngu sestur við skrifborðið og
byrjaður að hamra á ritvélina.
Hugmyndirnar streyma frá hon-
um, á náttborðinu eru blokk og
penni til að punkta niður þær
hugmyndir sem kunna að leita á
hann að nóttu til. Stundum eru
mörg blöð þéttskrifuð og einn
morguninn var þar að finna beina-
grind að þáttaröð og fyrsta þátt-
inn í Charlies Angels.
Um eiginkonu sína, Candy, segir
Aaron. „í draumum mínum var
þessi kona til, ég ásetti mér að
eignast góða og jafn fallega konu
og Candy er og er ég sá hana fyrst
var engum blöðum um það að
fletta að þetta væri sú sem ég vildi
eignast." Candi segir: „Hann var
og er geysilega rómantískur, sendi
mér blóm í hverri viku með ein-
hverjum fáránlegum skilaboðum.
Eftir að við fórum að hittast
reglulega fékk ég blóm á hverjum
degi. Ég gerði gys að honum fyrst,
ríki framleiðandinn að reyna við
unga og framagjarna leikkonu. En
áður en ég áttaöi mig var ég orðin
ástfangin af honum.“
Þau Aaron og Candy eru mikið
samkvæmisfólk, sjást hér með
þessum, þar með hinum og alls
staöar með öllum. Þau vekja mikla
athygli, sérstaklega Candy sem
þykir fögur og þokkafull og jafnan
svo ríkmannlega skrýdd gimstein-
um og dýrum fötum, að enginn
kemst með tærnar þar sem hún
hefur hælana. En þau segja samt
bæði það sama: „Við förum lítið út
að skemmta okkur, kunnum betur
við okkur I rólegheitum heima
fyrir með börnunum." Aaron bæt-
ir við: „Ég var fátæklingur, nú hef
ég allt sem hugurinn girntist, auð,
dásamlega konu, tvö falleg börn,
stóra villu, lúxusbila, nóg af
hrossum, þjónustufólk til að
stjana við mig, listaverk og margt
fleira. Þetta er eins og í lélegri
skáldsögu. Samt hugsa ég stund-
um: Getur þetta verið satt? Á ég
virkilega heima í þessari höll?
Tekur þetta allt enda einhvern
daginn? Ef til vill á morgun?"
Eins og annað ríkt fólk fá
Spellings-hjónin sinn skammt af
glósum frá öfundarfólki, en þau
segjast hafa vanist slíku svo mjög
að þau taki það ekki nærri sér. Að
vísu segir Candy að hún „taki
hraustlega á móti ef einhver tali
illa um mann hennar og börn“, en
glósur um lífernið leiði hún hjá
sér. Lífernið já, hvað með það?
Þau lifa vissulega hátt, Aaron er
síausandi skartgripum og fötum I
Candy og ræðst ekki á garðinn þar
sem hann er lægstur. feigu frúar-
innar er m.a. „hringurinn", sem
svo er nefndur, 40 karata gripur
sem Aaron reiddi fram óheyrilega
summu fyrir á uppboði. „Hringur-
inn“ var í eignasafni fyrrum ír-
anskeisara. Og eins og margt ríkt
fólk eru Spelling-shjónin kenjótt.
Lítum á nokkur bæði skemmtileg
og jafn framt talandi dæmi:
Þegar Aaron og Candy fara til
Las Vegas til að lyfta sér upp fá
þau „Rauða Kross-kassana" senda
upp í herbergi til sín. Á hverjum
Þeir sem til þekkja þykjast oft sjá að Aaron sæki fyrirmyndir fyrir ýmsu í fari
Blake og Crystle Carrington til Candy og sín.
degi láta þau senda sér súkkulaði,
styrjuhrogn (ekki grásleppu-
hrogn) og kampavín með einka-
þotu. „Það er ekki sama bragðið af
þessu í eyðimerkurhitanum," út-
skýrir Candy án þess að blikna.
Um jólin lætur Candy vörubíla
aka snjó ofan úr fjöllunum og
sturta honum allt í kringum um
heimilið til þess að börnin Randy
og Victoria geti upplifað hvft jól.
Og þegar fjölskyldan fer niður á
strönd er það „þeirra eigin strönd"
og Candy lætur barnfóstruna
grafa dýrmætar skeljar og steina í
sandinn til þess að börnin geti
fundið gripina. Einu sinni var ver-
ið að taka upp samkvæmisatriði f
einni af sjónvarpsmyndum Aar-
ons. Einhver mistök urðu með
búningana og tfminn var naumur,
það vantaði pelsa á næstum þrjá
tugi kvenna sem áttu að spóka sig
í veislunni. Ekkert mál, Candy fór
í fataskápinn og þar með var það
leyst. Við látum þessu senn lokið
og ljúkum því með eftirfarandi:
Aaron, Candy og börn eru senn
að flytja í nýtt hús (ef nota má
slíkt orð yfir hátt í 2000 fermetra).
Candy sér um skipulagningu
svæðisins og gerir það í samvinnu
við (dýrustu) innanhússarkitekta
sem fáanlegir eru. „Þarna verður
dýragarður með mörgum dýrum,
Aaron hefur svo gaman af dýrum.
Svo verður skautasvell, keilusalur,
kvikmyndasalur, sundlaugar,
tennisvellir og golfsvæði," segir
Candy og það er engu líkara en að
hún sé að lýsa einhverri sumar-
leyfisparadfs.
Samkvæmisfólkið Aaron og Candy Spelling í Dynasty-veislu þar sem
þekkja má auk þeirra hjóna Lindu Evans, Diahann Carrol og John
Forsyth. Á hinni myndinni eru þau í góðum félagsskap Stephanie
Powers úr Hart to Hart.
COSPER
— Skrifaðu það bara á reikninginn, skrifaðu það bara á reikninginn.
Spelling-hjónin ásamt börnum sínum Randy og Victoriu.