Morgunblaðið - 11.04.1985, Síða 46
46
MORGUfíBLAÐIÐ, f'IMMTUDAOÍJR lí. APRfL 1985'
„ verb c&> firwa töb tíl þtts ab Roma.
í \jeg íyrir oÁ þcÁ d&tti hwb'ina. þegar
pab slö&vast."
Ast er...
... aö játa ágæta
matargerð hans.
TM Reg. U.S. P«1. Off.-all rlghts reserved
©1985 Los Angeles Tlmes Syndieate
HÖGNI HREKKVÍSI
z/MA bjópa vkicur reÁBÆgA kATr/uóepor’"
Reykskynjarar hafa bjargað mörgum mannslífum og afstýrt þrí að stórtjón yrði af völdum eldsvoða. Bréfrítarí brýnir
fyrír fólki að kanna reghilega reykskynjara sína og tryggja að þeir séu í fullkomnu lagi.
Af reykskynjurum
Slökkviliðsstjóri utan af landi
hringdi:
Mig langar að koma á framfæri
ábendingu varðandi reykskynjara,
sem fólk kemur fyrir i húsum sín-
um í æ rikari mæli. Sem kunnugt
er gefa reykskynjarar frá sér
skerandi hljóð þegar rafhlaðan er
að verða búin, en hún á að endast
í 8 til 14 mánuði.
Nú vill svo til að fólk tekur sér
að venju sumarfrí og er þá frá
heimili sínu í einhvern tíma. Ein-
mitt á þeim tfma gæti rafhlaðan
klárast og reykskynjarinn gefið
merki, en án árangurs þar sem
enginn er heima til að veita því
athygli. Svo kemur heimilisfólkið
heim aftur og grunar auðvitað
ekkert, sérstaklega þar sem end-
ingartimi rafhlaðanna er mjög
sveigjanlegur.
Einmitt þetta henti vin minn
sem tók sér sumarfrí, en til allrar
hamingju komst hann að þvf er
hann kom heim, að rafhlaðan var
búin. Hann prófaði nefnilega
reykskynjarann með því að ýta á
„test“-hnappinn utan á honum og
slíkt hið sama ættu allir, sem eru
með reykskynjara í húsum sínum,
að gera með vissu millibili. Þannig
er fyllsta öryggis gætt og skora ég
nú á fólk að gefa orðum mínum
gaum. Það er nefnilega of seint að
byrgja brunninn þá barnið er
dottið ofan í hann!
Þessir hringdu .
„Fermingartæki“
Jónas Pétursson hringdi:
Mánudagskvöldið 1. apríl,
klukkan 18.30, heyrði ég lesið f út-
varpi: „Fermingartækin fást líka
meó afborgunum.“
Mér leikur forvitni á að vita
hvers lags tæki þetta eru og tel ég
víst að svo sé um fleiri. Varla hef-
ur þetta átt að vera aprílgabb?
Smekkleysa
í útvarpi
B.B. hringdi:
Mér fannst þátturinn „Ertu
hamingjusamur“, sem var í út-
varpi á laugardagskvöldið þegar
leitin að þremenningunum á
Vatnajökli stóð sem hæst, mjög
ósmekklegur og óviðeigandi á
þessum tíma, jafnvel þó að ekkert
slys hafi orðið á mönnum.
Mér finnst ekki hægt að hafa
slíka hluti að gamanmáli og þvf
hefði átt að fresta þættinum.
Leyfilegt að
aka á bfla?
Guðmundur Gíslason, Kópavogi,
hringdi:
Ég er með eina fyrirspum til
lögreglunnar og hún hljóðar
þannig:
Telur hún eðlilegt að menn séu
ekki sviftir ökuleyfinu sem haga
sér eins og Ieigubílstjórar bæjar-
ins hafa gert að undanförnu? Ef
ekki, er mér þá heimilt að keyra
á bíla á götum úti og stofna veg-
farendum i stóra hættu líkt og
leigubilstjórarnir hafa gert? Eru
þeir kannski einhver sér þjóð-
flokkur hér sem má meira en
aðrir?
Verða með tón-
leika í sumar
tlelga, Brynja og Fanney
hringdu:
Við viljum skora á einhverja
af ferðaskrifstofunum hér á
landi að efna til hópferðar á
hljómleika með Duran Duran.
Við viljum endilega koma þvf
á framfæri að Duran Duran er
með marga bókaða tónleika á
þessu ári, eða réttara sagt fara
þeir f svokallaða Evrópuferð i
sumar og leiðréttum við hér með
það sem maður lét frá sér fara f
dálkum Velvakanda fyrir nokkru
síðan, um að Duran Duran héldi
enga tónleika þetta árið.
Við lásum viðtal við tvo af
hljómsveitarmeðlimunum og
sögðust þeir þá ætla að verða i
Kaupmannahöfn þann 7. júlí.
Svo vitum við einnig um að þeir
verða með tónleika í Ameríku f
sumar. Þær upplýsingar fengum
við frá vinkonu okkar þar úti,
sem tjáði okkur alveg í skýjun-
um að hún væri að fara á Duran
Duran-tónleika í sumar!
Því ítrekum við hvort ekki sé
hægt að boða til hópferðar á
tónleika með þessari frábæru
hljómsveit, Duran Duran?
Þrjir vinkonur telja sig hafa vissu
fyrír því að hljómsveitin Duran
Duran verði með fjölda tónleika f
Evrópu og Ameríku í sumar.