Morgunblaðið - 11.04.1985, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1985
47
VELVAKANDI ^
SVARAR f SÍMA
10100 KL 11-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
nri/MBrxK’gjj'/nr
Sýnt og sannað að óperur njóta
sín mjög vel í sjónvarpinu
Hafi íslenzka sjónvarpið kærar
þakkir fyrir sýningu þess á óper-
unni Rigoletto sunnudagskvöldið
31. marz. Þessi uppfærsla English
National Opera er þegar orðin
mjög fræg og nokkuð umdeild
vegna nýtízkulegs búnings, þar
sem sögusviðinu er breytt úr her-
togahöll á sautjándu öld í bar
mafíuforingja í New York. Sýning
sjónvarpsins sýndi þó að mínu
mati, að þessi uppfærsla átti full-
an rétt á sér og skilaði hún efni og
tónlist óperunnar mjög vel. Hjálp-
aðist allt að, ágætur söngur og
tónlistarflutningur og frábær
leikur, leikstjórn, kvikmyndataka
og sviðsmynd. Sem sagt, alveg
stórkostleg sýning, sem sannaði
enn einu sinni hve hentugur miðill
sjónvarpið er fyrir óperuflutning.
Má raunar segja, að ópera sé eina
klassíska tónlistin, sem virkilega
nýtur sín í sjónvarpi, en það gerir
hún líka þeim mun betur og hjálp-
ar þá textinn á skerminum og ná-
lægð við leikara/söngvara áhorf-
endum mjög við að njóta flutn-
ingsins.
Rigoletto er þriðja óperan sem
sjónvarpið hefur sýnt það sem af
er þessu ári. Væri það vel, ef sjón-
varpið myndi halda áfram að sýna
óperur mánaðarlega. Það er alveg
víst, að áhugi almennings á óper-
um hefur farið mjög vaxandi víða
um heim síðustu árin og hér á
landi ekki sízt eftir tilkomu fs-
lenzku óperunnar. Það væri því
óskandi, að sjónvarpið hjálpaði til
við að glæða og viðhalda þessum
áhuga með reglulegum óperusýn-
ingum. Nú mun auvelt að fá til
sýninga óperuuppfærslur frá
frægustu óperusviðum heims, þar
sem sjónvarpsupptökur af óperu-
uppfærslum hafa farið mjög í vöxt
erlendis samfara auknum áhuga
Athygli vakin
á góðu viðtali
Jónas Pétursson skrifar:
Margt birtist í Morgunblaðinu.
Það er nú orðið talsvert fyrirtæki
að fletta í gegnum það, en ennþá
legg ég það á mig, þar eð margt í
því höfðar til lífssýnar þeirrar er í
vitund minni vakir.
í gær, 21. marz, stanzaði ég við á
bls. 16 og 17 þar sem var mynd og
viðtal við Valgarð Egilsson, lækni.
En um langa hríð hefur hann vak-
ið sérstakan áhuga minn fyrir
mennska vitsmuni. í síðari hluta
viðtalsins segir svo: „Hvað ertu að
skrifa um þessar mundir?" „Ég er
að skrifa nýtt leikrit. Það fjallar
um manninn í tæknivæddu þjóð-
félagi og um ofurvald akadem-
ískra stétta. Það er ætlun mín að
akademískur hugsunarháttur sé
bundinn í klafa. ímyndunaraflið
kemur þar ekki nema að mjög litl-
um notum. Það er algengast að
menn sjái það sem þeir eiga að sjá,
— það sem þeir vita fyrir og lítið
annað. Líka hefur það vakið
spurningar hjá mér hvort nútima-
þjóðfélagið sé að fara þannig með
manninn að hann gangi sífellt
verr að njóta nokkurs hlutar. Ef
grunur minn reynist réttur þá er
það stóralvarlegur hlutur. Þar
með er forsendan fyrir því að fólk
geti lifað góðu lífi brostin, þrátt
fyrir það að líkamlegum þörfum
þess sé fullnægt. Þó held ég að
unnt sé að hafa á það töluverð
áhrif með uppeldi barns og ungl-
ings hvort hann getur er fram líða
stundir notið einhvers."
Ég má til með að vekja athygli á
þessu ef verða mætti til þess að
fleiri lesi með athygli.
Bréfritari segir að sjónvarpið gæti gegnt mjög þýðingarmiklu hlutverki í
íslenzku óperu- og menningarlífi með því að taka upp sýningar íslenzku
óperunnar og jafnframt óperusýningar Þjóðleikhússins.
almennings á óperum, bæði vestan
hafs og austan.
Ég hef orðið þeirrar ánægju að-
njótandi að sjá hina frægu upp-
færslu á Niflungahring Wagners
(frá Bayeruth 1980) í sjónvarpi,
bæði i Bandaríkjunum og í Svi-
þjóð. Þessi uppfærsla hefur verið
sýnd i sjónvarpi viða um heim og
m.a. í flestum löndum Évrópu.
Sýningar hafa þótt takast mjög
vel og hafa þær vakið mikla at-
hygli sjónvarpsáhorfenda i við-
komandi löndum og orðið tónlist-
arunnendum til mikillar ánægju.
Heyrst hefur, að islenzka sjón-
varpinu hafi staðið til boða sýn-
ingarréttur á þessari uppfærslu,
og vil ég skora á sjónvarpið að
notfæra sér það. Hér er um meiri-
háttar menningarviðburð að ræða
og þýðing þess að sýna Niflunga-
hringinn í sjónvarpi hér á landi
þeim mun meiri, þar sem útilokað
má teljast, að hægt verði að setja
þetta stórvirki upp á islenzku
óperusviði. Því er eina tækifæri
þorra íslendinga til að fá að kynn-
ast þessu verki, bundin við það, að
sjónvarpið taki það til sýninga.
Aður en til þess kæmi þyrfti þó að
kynna rækilega óperuna og höf-
und hennar i sjónvarpi og öðrum
fjölmiðlum. Við sjónvarpssend-
ingar væri líklega bezt að hafa
hátt Svía á, þ.e. að skipta hverjum
hluta í tvennt og sýna fyrri hluta
á sunnudögum kl. 16—18 og siðari
hlutann kl. 22—24 sama kvöld.
Sjónvarpið gæti einnig gegnt
öðru mjög þýðingarmiklu hlut-
verki í íslenzku óperu- og menn-
ingarlifi. Þar á ég við upptökur á
sýningum íslenzku óperunnar,
sem hafa verið mjög vel heppnað-
ar. Reyndar er tilvist íslenzku
óperunnar eitt allsherjar krafta-
verk, sem er aðstandendum henn-
ar og islenzku þjóðinni til mikils
sóma. Það hlýtur því að teljast
mjög mikilvægt út frá menning-
arsögulegum sjónarhóli að eiga til
heimildir um þetta stórvirki, auk
hins mikla skemmtanalega gildis
sem sýningar á óperunum hefðu
fyrir sjónvarpsáhorfendur. Að
sjálfsögðu á svipað við um óperus-
ýningar Þjóðleikhússins.
Að lokum; sýningar íslenzka
sjónvarpsins á óperuflutningi nú i
ár hafa sýnt og sannað, að óperur
njóta sín mjög vel i sjónvarpi og
það er augljóst að islenzka sjón-
varpið getur þjónað islenzkri
menningarstarfsemi á stórkost-
legan hátt með sýningum á óperu-
flutningi og upptökum á íslenzk-
um óperum. Eg segi þvi aftur
Kærar þakkir, en mætti ég biðja
um svolítið meira?
íslendingur
Hvaðan komu
peningarnir?
K.G. skrifar:
Ég var að fá reikning frá inn-
heimtudeild Rfkisútvarpsins
sem ég þakka fyrir og mun
greiða strax eftir mánaðamót.
Én með þessum reikningi var
miði sem ég hélt að væri upplýs-
ingar frá Ríkisútvarpinu um þær
8.000 krónur sem starfsfólki
þeirrar stofnunar voru greiddar
aukalega eftir verkfall. En svo
var nú ekki. Eins og fjarmála-
stjóra útvarps er kunnugt um
„eiga“ allir landsmenn Ríkisút-
varpið og því ætti öllum að vera
heimilt að fá upplýsingar um
ýmis atriði varðandi rekstur
stofnunarinnar. Því spyr ég:
l.Cr hvaða sjóði voru þessir pen-
ingar fengnir?
2. Hver veitti þetta leyfi?
3. Fyrir hvað var þessum starfs-
mönnum greitt þetta fé?
Þó að 8.000 krónur séu ekki há
upphæð þá eru þær það á mæli-
kvarða láglaunafólks þegar þess
er gætt að t.d. starfsfólk í versl-
unum er með rúmar 16.000 krón-
ur á mánuði. Þetta eru hálf
mánaðarlaun þeirra!
Það er oft talað um það að
Rikisútvarpið sé i fjársvelti, það
geti ekki komið upp dreifikerfi
um landið sökum þess o.s.frv.
Því kemur þetta manni nokkuð
spánskt fyrir sjónir.
Vænti ég svara við þessum
spurningum mínum.
Eínstakt
tsgkífeeri.
PC Staðaltölva fyiir mínna.
(Keyrir sömu fonit og IBM PC)
, coronci
öoto systcms, inc.
CORONA PPC 22
256k minni, tvö 360k drif, 640 X325 punkta
grafík, vandaður skjár og lyklaborð. Innifalið í
verði er MS-DOS, stýrikerfi, Basic túlkur,
kennsluforrit og eitt vandaðasta ritvinnsluforrit á
markaðnum (Multímate). Verð aðeins
kr. 79.900 - (stgr.) Til afgreiðslu strax.
MICROTÖimN
SÍDUMULI 8. SIMAR 83040 oa 83319.
BOKFÆRSLA
Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem hafa
litla eða enga bókhaldsmenntun. Námskeiðið
ætti að geta komið að góðu gagni fyrir þá sem
stunda eða hafa í hyggju að stunda einhvers-
konar rekstur og þá sem hafa hug á skrif-
stofustörfum í framtíðinni.
Á námskeiðinu verður farið yfir meginreglur
tvíhliða bókhalds með færslum í sjóðbók,
dagbók, viðskiptamannabækur og aðalbækur.
Farið verður yfir gerð rekstraryfirlita og upp-
gjörs smárra fyrirtækja.
Stefnt er að því að þátttakandi geti fært al-
mennt bókhald eftir námskeiðið og hafi
nokkra innsýn í gerð rekstraryfirlita og árs-
uppgjörs.
Leiöbeinandi:
Þorvaldur Ingi Jónsson viðskiptafræðingur
frá viðskiptadeild Háskóla íslands. Hann hef-
ur starfað sem bókfærslukennari við Verzlun-
arskóla íslands. Starfar nú sem deildarstjóri í
ríkisbókhaldi.
Tími: 15.—19. apríl.
Verslunarmannafélag Reykjavíkur og Starfs-
menntunarsjóður Starfsmannafélags Ríkis-
stofnana styrkja félagsmenn sína til þátttöku
á þessu námskeiði. Upplýsingar gefa viðkom-
andi skrifstofur.
TILKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU
í SÍMA 82930
STJÓRNUNARFÉLNG
ÍSLANDS tí»o23