Morgunblaðið - 05.05.1985, Side 29

Morgunblaðið - 05.05.1985, Side 29
Er fræg fyrir staf- setning- arvillur — segir Halldór Halldórsson um ís- lenzk-latnesku orða- bókina, sem fram kom í Ungverjalandi EITT eintak hinnar íslenzk-latn- esku orðabókar Guðmundar And- réssonar kom fram í vetur í ung- versku bókasafni. Orðabókin er prentuð 1683 en samin um 30 ár- um áður. Talið er að minnsta kosti tugur eintaka orðabókarinnar sé til í bókasöfnum um víða veröld. Morgunblaðið skýrði frá þessu síðastliðinn þriðjudag, en til að leita nánari upplýsinga um orðabókina leitaði blaðið til Halldórs Halldórssonar, próf- essors. Hann sagði bókina vel þekkta meðal íslenzkra mál- fræðinga og þeirra, sem fjölluðu um norræn mál. Hann hefði meðal annars notað hana sjálfur frá því um 1951 og því væri varla rétt að segja að hún hefði fundizt. Að minnsta kosti tugur eintaka væri til í helztu háskól- um heims. Elzta íslenzka orða- bókin, sem vitað væri um, væri eftir Magnús ólafsson í Laufási, Specimen Lexici Runici, frá 1650. Talið væri að Guðmundur Andrésson hafi komizt yfir hana og síðar ritað sina orðabók um 1654. Hún hefði ekki verið gefin út fyrr en mörgum árum eftir dauða hans og væri meðal annars fræg fyrir að vera prentvilluríkust íslenzkra bóka. Bókin væri meðal annars til bæði 1 Háskólabókasafni og á Orðabók Háskólans, en þangað hefði hún verið keypt upp úr 1970 af innlendum aðila. Þá gat Halldór þess, að til hefði staðið að Rannsóknar- stofnun í norrænum málvísind- um gæfi orðabók Guðmundar Andréssonar út með tilheyrandi leiðréttingum. Yrði þá tekið mið af handriti bókarinnar, sem væri í Bodelain Library í Öxna- furðu og skráð væri undir heit- inu Junius 120. ——— V^terkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiöill! MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1985 29 20 stykkja snyrtivörusett frá Miss Mary of Sweden; 8 augnskuggar, 4 kinnalitir, 4 varalitir, augnháralitur, kinnalitapensill, varalitapensill og augnskuggapensill. GRATTAN-VÖRULISTAUMBOÐIÐ Pósthólf 205 - 222 Hafnarfjöröur Simi (91) 651100 FRAM ppTöI vu-sumar búðir u á ári æskunnar A flnmiÁ^ Innritun í „Tölvu-sumarbúöir“ skólans á AinUQIUá Varmalandi í Borgarfirði, hefst á morgun 9 mánudaginn 6. maí, klukkan 10:00 stundvíslega, á skrifstofu skólans á Síðumúla 27. — — —‘ ‘ ZZ Við innritun þarf að greiða 2.500 króna TOLVUSKOLI staðfestingargjald. Verið framsýn - tryggið frmtíð barna ykkar á tölvuöld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.