Morgunblaðið - 05.05.1985, Side 58

Morgunblaðið - 05.05.1985, Side 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. MAl 1985 Minning: María Rebekka Sigfúsdóttir Fædd 21. ágúst 1922 Dáin 18. apríl 1985 Á flughröðum vængjum tfmans fljúga ár og dagar. Hver þekkir skilin milli fortíðar og nútíðar, hver eru mörkin milli svefns og vöku, drauma og veruleika. Mæja frænka mín er dáin. Þessi fallega lífsglaða frænka min og vinkona frá æskuárunum. Hún var björt yfirlitum, ljóshærð og bláeygð. Hún hafði mikla persónutöfra, var dugnaðarforkur, kjarkmikil og áræðin. Feður okkar Einar og Sigfús Guðfinnssynir, Einarssonar á Hvítanesi við Skötufjörð, voru bræður og auk þess traustir og einlægir vinir alla tíð. Það voru mæður okkar líka. Móðir hennar var María Anna Kristjánsdóttir, Sveinssonar frá Hlíðarhúsum á Snæfjallaströnd. Sigfús var skip- stjóri á Póstbátnum, sem hélt uppi ferðum um Vestfirði. María var alin upp á ísafirði, ég í Bolungar- vík. Hún kom oft með föður sínum til okkar. Hún var aldrei sjóveik, 'jr. þótti bara skemmtilegt þegar öld- urnar braut á bátnum. Halldóra föðuramma okkar átti heima í Bolungarvík. Ekkert tengdi okkur frænkurnar eins saman og stundirnar með þessari glæsilegu, stórbrotnu skagfirsku konu, sem við unnum svo heitt. Hún talaði aldrei við okkur sem bðrn, alltaf sem fullorðnar vær- um. Sagði okkur frá lífi sínu og starfi, gleði og sorgum. Hún var lífsreynd og æðrulaus, og hafði mikil áhrif á okkur. Ég horfi glöð í huga á myndir minninganna líða hjá, margar eru sem ómur af gömlu lagi. Æskuheimili Maríu á tsafirði var traust og gott. Sigfús virtur skipstjóri, rólegur, athugull og mikill drengskaparmaður. María móðir hennar höfðingleg kona í sjón og raun. Hún hafði sterka skapgerð en hlýtt viðmót. Árið 1941 flyst fjölskyldan til Reykja- víkur og stofnar Sigfús þar mat- vöruverslun, sem hann starfaði við meðan heilsa og kraftar leyfðu. Heimilið var alltaf mannmargt og fjölskylda og vinir áttu þar jafnan athvarf. Fjöl- skylda mín naut þess þó sérstak- lega. Þau hjónin eignuðust 8 börn, sveinbarn sem dó skömmu eftir fæðingu, þá Guðfinn Halldór, Kristján Pál, Mariu Rebekku, sem nú er látin, Þorgerði sem lést 1957, Garðar, Halldóru og Jenný Sig- rúnu. Þau sem eftir lifa eru öll gift og búsett í Reykjavík. Eftir unglingaskóla stundaði María nám í húsmæðraskólanum ósk á ísafirði. Einnig lærði hún kjólasaum í eitt ár. Hún var sér- staklega verklagin, útsjónarsöm og hagsýn húsmóðir og skemmti- leg heim að sækja. María giftist 18 ára sæmdar- manninum Guðjóni Halldórssyni skipstjóra, Sigurðssonar og Svanfríðar Albertsdóttur. Heimili þeirra stóð á ísafirði. Þau eignuð- ust 3 börn, Svanfríði Maríu, Gylfa og Selmu. Svanfríður María giftist Reyni Gísla Karlssyni og eiga þau 2 börn, Gylfi og kona hans Elfa Sonja Guðmundsdóttir eiga 3 syni, Selma og maður hennar Vilmar Hafsteinn Pedersen eiga 4 börn. María og Guðjón slitu samvistum, en giftust bæði aftur. Makar þeirra reyndust stjúpbörnum sín- um einstaklega vel. Guðjón giftist Karlottu Einarsdóttur og búa þau í Hafnarfirði. Eftir skilnaðinn fór elsta barnið í fóstur til móðurfor- eldra sinna, drengurinn var á veg- um föður síns, en ólst að mestu upp hjá þeim Lónseyrarsystkinum Ólavíu og Engilbert Guðmunds- syni, á Hallsstöðum í Nauteyrar- hreppi. Yngri dóttirin fylgdi móð- ur sinni. María giftist aftur mætum manni, Gylfa Gunnarssyni skrif- stofumanni, lengst hjá Eimskip, Sigurðssonar frá Selalæk og Sig- ríðar Sigurgeirsdóttur. Þau byrj- uðu búskap í Reykjavík, en byggðu sér fljótlea hús í Holtagerði 1, Kópavogi. Síðustu árin stóð þó heimili þeirra í Reykjavík. Sumar- hús áttu þau fyrst á Snæfellsnesi, seinna á Stokkseyri, þar sem fjöl- skyldan átti margar góðar stund- ir. María og Gylfi eignuðust 4 börn. Þeirra elst er Sigríður, hennar maður var Þórir Guðmundsson. Þau eignuðust 4 börn en skildu. önnur dóttir er Helga gift Hann- esi Guðmundssyni, þeirra synir eru 2, Þorgerður, sem lifði aðeins Vi ár, en yngst er Þorgerður maría gift Stefáni Vfglundssyni og eiga þau 3 börn. Maria átti því 18 barnabörn. Hún bar vakandi um- hyggju fyrir öllum sínum ástvin- um og miðlaði þeim af gjöfulum höndum og heitu hjarta. María vann oft utan heimilis. Hún fór nokkur sumur í síld til Siglufjarðar með stálpaðar dætur sínar. Einnig vann hún oft verk- smiðjustörf, en síðustu árin í snyrtivöruverslun og Gjafavöru- húsinu á Skólavörðustíg. Alls staðar var hún rómuð fyrir dugn- að sinn og starfsgleði. Sporin sfn taldi hún aldrei. Þau hjónin áttu þess kost að ferðast mikið erlend- is. Það jók þeim víðsýni og veitti mikla ánægju. lífið henni frænku minni ekki allt- af auðvelt. Hún fór á mis við ým- islegt, sem hugur hennar stóð til, því síðustu 10 árin tókst hún á við mikið heilsuleysi. Viljinn og lífs- löngunin fleyttu henni þó yfir þessi ár, og Gylfi og börnin reynd- ust henni einstaklega vel. Nú var sem skipt hefði um hlutverk. Þau önnuðust hana af umhyggju og kærleika. Af heilsufarsástæðum dvöldu þau hjónin tvo siðastliðna vetur erlendis. Hún andaðist úr hjartaslagi á Mallorka. „Allt er að þakka þér það gott sem hljótum vér um allar aldaraðir eilífi Ijóssins faðir (H. Andr.) Fjölskylda mín saknar Maju frænku og sendir ástvinum henn- ar samúðarkveðjur. Halldóra Einarsdóttir Þau sorgartíðindi bárust okkur sunnan frá Spáni, að systir okkar María væri látin, en hún og eigin- maður hennar, Gylfi Gunnarsson, höfðu dvalið þar í vetur sér til heilsubótar. Við eigum öll ljúfar minningar um Mæju, úr æsku okkar og upp- vexti, en hún var þriðja elst af okkur systkinum, sem upp kom- umst. Hún var mörgum góðum kostum búin og snemma fór að koma í ljós, hve dugleg, hjálpsöm og úrræðagóð hún var, enda komu þessir kostir hennar sér vel við uppeldi barna hennar, sem öll eru einstaklega mannvænleg og vel af guði gerð. Hún sýndi mikið æðruleysi í lífi sínu, því þrátt fyrir mikil veikindi á seinni árum og ýmislegt and- streymi, heyrðum við hana ekki kvarta, hún var alltaf jákvæð, gerði gott úr öllum hlutum og vildi öllum vel. Við vottum eiginmanni hennar, börnum og fjölskyldum þeirra, innilega samúð okkar og henni þökkum við ástríka samfylgd og biðjum henni blessunar guðs á nýjum leiðum. Garðar, Haddý og Jenný. í dag verður kvödd hinstu kveðju María Rebekka Sigfúsdótt- ir. Foreldrar hennar voru heiðurs- hjónin María Kristjánsdóttir og Sigfús Guðfinnsson kaupmaður, bæði ættuð frá Vestfjörðum og bjuggu lengst af á ísafirði. Þeim hjónum varð sjö barna auðið, dæt- urnar voru fjórar og þrír synir. María var sú þriðja í röðinni. Ein dóttirin, Þorgerður, lést árið 1957, aðeins 32ja ára gömul. Var hún fjölskyldunni mikill harmdauði. María giftist ung að árum Guð- jóni Halldórssyni skipstjóra og bjuggu þau á ísafirði. Þau eignuð- ust þrjú börn, tvær stúlkur og einn dreng. Þau slitu samvistir. Fluttist María þá til Reykjavíkur. Árið 1947 giftist María eftirlif- andi manni sínum, Gylfa Gunn- arssyni Sigurðssonar frá Selalæk og Sigríðar Siggeirsdóttur Torfa- sonar. Með Gylfa eignaðist María fjórar dætur. Þau urðu fyrir þeirri þungu sorg að missa Þorgerði, næstyngstu dóttur sína, í bernsku. Kynni okkar Maríu hófust fyrir rúmum þrjátfu árum, þá báðar nýfluttar til Kópavogs. Dætur okkar urðu fljótlega leikfélagar og vinskapur myndaðist milli heimil- anna. Þegar ég sá Maríu í fyrsta sinn var ég á göngu með dóttur minni Jónínu og benti hún mér á konu sem hún sagði vera móður telpn- anna, sem hún hafði nýlega kynnst. Mér varð starsýnt á Maríu, hún var svo falleg, björt og þokkafull. Mér flaug I hug að svona hefðu kvenkostir verið til forna. Við nánari kynni kom einn- ig í ljós að hún var ákaflega elsku- leg kona, sérlega skapgóð, og tók því sem að höndum bar með still- ingu. Það var gott að búa í Kópavogi með ung börn á þessum árum. Áhyggjulaust, og gott leiksvæði fyrir börnin og góð tengsl við ná- grannana. Dætur okkar Maríu bundust vináttuböndum á þessum árum sem verða ekki rofin. Fyrir nokkrum árum bauð Helga, dóttir Maríu, nágranna- konum móður sinnar og dætrum t Eiginmaöur minn. SVEINN EINARSSON, Bergþórugötu 14, andaöist i Landspítalanum þann 2. mai. Fyrir hönd barna og annarra vandamanna, Sigriöur Söebech. t Ástkær eiginkona min, móöir okkar, tengdamóöir, amma og lang- amma, HELGA RAGNHEIÐUR HJÁLMARSDÓTTIR frá fsafiröi, Skipholti 47, Reykiavfk, veröur jarösungin frá Háteigskirkju mánudaginn 6. maí kl. 15.00. Helgi Hólm Halldórsson, Svandfs Helgadóttir, Siguröur Gunnarsson, Filippfa Helgadóttir, Magnús Danfelsson, Geira Helgadóttir, Guömundur Gunnarsson, Ásgeir Helgason, Guörún Jóhannsdóttir, Arndfs Helgadóttir, Pétur Veturliöason. t Móöir min, tengdamóöir og amma, ÞÓRANNA MAGNÚSDÓTTIR fyrrverandi húsvaröarfrú, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni þriöjudaginn 7. maí kl. 10.30. Blóm afþökkuö, en þeir sem vildu minnast hinnar látnu vinsamlega láti Landspítalann njóta þess. Jónas Hallgrfmsson, Anna Margrét Lárusdóttir og börn. t Móöir mín, fósturmóöir, tengdamóöir, amma og langamma, HALLDÓRA LÁRUSDÓTTIR, Barónsstfg 20a, Reykjavfk, veröur jarösungin mánudaginn 6. maí kl. 13.30 frá nýju kapellunni í Fossvogi. Emilfa og Hinrfk Thorarensen, Hulda og Óthar Smith, barnabörn og barnabarnabarn. t ÁSTGEIR ÓLAFSSON Ási f Bss, sem lést aö heimlli sínu aöfaranótt 1. maí sl., veröur Jarösunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 7. mai kl. 15.00. Friómey Eyjólfsdóttir, Gunnlaugur Ástgeirsson, Ósk Magnúsdóttir, Krlstfn Ástgeirsdóttir, Kári Gunnlaugsson, Ólafur Ástgeirsson, Freyja Gunnlaugsdóttir. Þrátt fyrir eðliskosti sína var t Innilegar þakkir færum viö öllum þeim er sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, DANÍELS SIGURÐSSONAR, Hamrabergi 24. Martfna Siegfriedsdóttir, Jónína G.H. Danielsdóttir, Jóhann Ingólfsson, Siguröur M. Danfelsson, Þórunn Björk Einarsdóttir, Þröstur S. Danfelsson, Helga Bára Magnúsdóttir, Hanna G. Danfelsdóttir, Ámundi Ingi Ámundason, Kristján G.H. Danfelsson, Daníel Danfelsson og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför móöur okkar og tengdamóöur, SÆUNNAR E. KLEMENSDÓTTUR frá Klettstfu. Sórstakar þakkir eru færöar til forstööukonu og starfsstúlkna Dvalarheimilis aldraöra ( Borgarnesi. Karl M. Jónsson, Klemenz Jónsson, Jóhannes Jónsson, Elis Jónsson, Lára Benediktsdóttir, Guórún Guömundsdóttir, Erna Jónsdóttir, Brynhildur Benediktsdóttir. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför, PÁLS PÁLMASONAR, fyrrverandi ráóuneytisstjóra,. Fyrir hönd aöstandenda. Birna Hjaltested, Erlingur Hjaltested, Ása Hjaltested, Guöríöur B. Hjaltested, Anna Lfsa Hjaltested, Svavar Hjaltested. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, ÞORGRÍMS G. GUDJÓNSSONAR, Rofabæ 29. Ragnheióur Þ. Anderson, Ragnheiöur Þ. Anderson, Mats Anderson, Hrafnhildur Þorgrímsdóttir, Rafn Kristjánsson, Björn Ingi Þorgrímsson, Jóhanna Jósefsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.