Morgunblaðið - 25.05.1985, Blaðsíða 4
4
MORGtJNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. MAÍ1985
Hvað segja launþegar um tilboð vinnuveitenda?
„Erum á móti
verkföllum"
TILBOÐ vinnuveitenda til ASÍ hefur vakið athygli. Tillagan
felur það m.a í sér að fólk í lægstu launaflokkum fær 23%
launahækkun á næstu 13 mánuðum, en aðrir 18%, þar af 5%
fyrsta júní. Morgunblaðið ræddi við verkafólk í ASÍ á förnum
vegi í gær og leitaöi álits á tilboði vinnuveitenda. Fara svörin
hér á eftir.
Rannveig Oddsdóttir og Þuríður Oddsdóttir
Maður hefur ekki heyrt
svona tilboð áður
Það var lítið um að vera í
Sundahöfn þegar við komum þar
að, aðeins örfá skip í höfninni.
Jóhann Guðmundsson verkamað-
ur stóð á tali við félaga sina inn í
búningsklefa starfsmanna, en
umræðuefnið var þó ekki staða
samningamála. „Maður er aðeins
búinn að líta á þetta. í fljótu
bragði finnst mér þetta vera at-
hyglisvert. Þetta er vissulega al-
veg nýtt — maður kannast ekki
við að hafa heyrt svona tilboð áð-
ur,“ sagði Jóhann. Hann er ekk-
ert að biðja um meiri kauphækk-
un? „Nei, ekki ef við fáum trygg-
ingu fyrir því sem samið er um.
Ekki ef það verður ekki strax
tekin sneið af þessu. Það er alltaf
verið að semja uppá krónur —
svo eru þær teknar jafnóðum aft-
ur.“ Hvernig myndi hann semja
ef hann sæti við samningaborð-
ið? „Það er erfitt að segja. Mér
finnst allavega að það eigi ekki
að byrja á því að segja nei,“ sagði
Jóhann að lokum.
Förum ekki út í harða
kjarabaráttu
Birgir Jónsson var við vinnu
sína í Kassagerðinni. „Ég hafði
auðvitað lítinn tíma til þess að
lesa blaðið í morgun. En mér
leist vel á þetta. Það kveður
þarna við annan tón en maður
hefur átt að venjast," sagði Birg-
ir. Félagar hans taka undir. „Við
erum ekkert spenntir að fara út í
harða kjarabaráttu. Það hefur
reyndar staðið styrr hérna und-
anfarið og það er verið að reyna
að leiðrétta okkar laun.“ Birgir
bætir við: „Við vorum í 7 vikna
verkfalli hér í haust og menn eru
ekkert spenntir að fara út í svona
aftur. Mér finnst að menn eigi
núna að setjast niður og ræða
málin.“
Þetta er ekki nóg, þetta
eru engin laun
Steinar Jónsson vinnur við
bylgjupappagerð í öðrum hluta
verksmiðjunnar. Hann er í Iðju.
Hann svarar dræmt. „Jú, manni
líst svo sem ágætlega á þetta. En
þetta er ekki nóg. Þetta eru engin
laun.“ En ber þjóðfélagið meiri
hækkun? „Auðvitað, þjóðfélagið
ber þetta. Það er líka enginn sem
fær borgað lengur eftir taxta.
Þetta fyrirtæki varð að hækka
launin til þess að halda í fólkið."
Eru yfirborganir þá ráðið? „Nei,
svoleiðis gengur ekki. Fólk á að
fá borguð sömu laun fyrir sama
starf,“ sagði Steinar að lokum.
Aðalmálið að maður fái
eitthvað fyrir peningana
„Maður hefur eitthvað heyrt á
þetta minnst," sögðu þær Rann-
veig og Þuríður Oddsdætur, syst-
ur sem vinna hlið við hlið í
Kassagerðinni við framleiðslu
plastpoka til útflutnings. „Við
Jóhann Guðmundsson
Birgir Jónsson
Leiðtogar stjómarandstöðuflokkanna um tilboð VSÍ:
Telja að kaupmáttar-
tryggingu sé ábótavant
TILLAGA VSÍ um nýjan kjara-
samning sem sett var fram á
fundi forystumanna VSÍ og ASÍ í
fyrradag hefur vakið allnokkra
athygli, einkum fyrir þær sakir
að boðið er upp á meiri prósentu-
hækkanir en gert hafði verið ráð
fyrir, eða 18 til 24%. Morgun-
blaðið snéri sér til fulltrúa
stjórnarandstöðuflokkanna á Al-
þingi og spurði þá álits á þessari
tillögu.
Tilboð VSÍ nokkur tíðlndi
„í fyrsta lagi, þá eru það nokk-
ur tíðindi að vinnuveitendur
bjóði endurskoðun á kjarasamn-
ingum á samningstímabili. Ég
lít svo á að það sé viðurkenning á
því að kjör eru orðin óbærileg,"
sagði Jón Baldvin Hannibalsson
formaður Alþýðuflokksins í
samtali við blm. Mbl.
„1 annan stað hlýtur verka-
lýðshreyfingin að minnast þess
að 24% kauphækkun yfir línuna
á sl. hausti, er fyrir löngu aftur
tekin. Niðurstaðan er sem sagt
sú að auðvitað á verkalýðshreyf-
ingin að setjast að samninga-
borði. Henni ber skylda til að
reyna hvað hún getur til þess að
koma í veg fyrir kaupmáttar-
hrun, sem fyrirsjáanlegt er í
sumar, a.m.k. upp á 4—5%. Það
er því sjálfsagt að ræða tilboðið
og að það megi nota sem um-
ræðugrundvöll," sagði Jón Bald-
vin.
Jón Baldvin sagði að augljósir
gallar væru á þessu tilboði. Þar
skipti mestu að kaupmáttar-
tryggingin væri sýnd veiði en
ekki gefin. Þar væri hægt að
fara aðrar leiðir. Vakti Jón Bald-
vin sérstaklega athygli á því að
endurskoðunarákvæðið væri
skilyrt. Sagði Jón Baldvin að
skilyrðið um að fólk afsalaði sér
kauphækkun á samningstíman-
um, ef forsendur breyttust væri
fráleitt.
„Launajöfnunarbæturnar í
þessu tilboði eru ónógar,“ sagði
Jón Baldvin, „því það er ekki
hægt að bjóða fiskvinnslufólki
lengur þau kjör sem það býr við.
Þar verður að koma til meiri
hækkun.“
Loks sagði Jón Baldvin að
pólitíkin í þessu máli af hálfu
Vinnuveitendasambandsins, sem
setti þetta tilboð fram i náinni
samvinnu við Þorstein Pálsson,
væri að lengja líf ríkisstjórnar-
innar og jafnframt sagöi hann:
„Þegar Guðmundur J. Guð-
mundsson álpast til þess að
segja að hann þurfi að tala við
sitt fólk í sumar, þá er hann auð-
vitað líka að tala pólitík. Þetta
er hins vegar pólitík sem kemur
málinu ekkert við. Sú pólitík sem
kemur málinu við er sú að
stærstu kjarabætur fyrir fólk
eru auðvitað í höndum ríkis-
stjórnarinnar, því það er ekki
nema hluti af kjörunum uppi á
samningaborði atvinnurekenda
og launþega. Stærstu kjarabæt-
urnar eru stóraukin framlög til
húsnæðismála og veruleg lækk-
un á skattbyrði launþega. Gegn-
um þetta má ná verulegri kaup-
máttaraukningu og þetta á ekki
að draga frá þessu tilboði."
Heilbrigt að ætla að
halda 100% kaupmætti
„Ég tel að þetta tilboð sé þess
eðlis að samningsaðilar hljóti að
verða að skoða það sín í milli,“
sagði Stefán Benediktsson, þing-
maður Bandalags jafnaðar-
manna, í samtali við Morgun-
blaðið, er hann var spurður álits
á tilboði því sem VSI hefur gert
launþegahreyfingunni.
Stefán sagði að sér sýndist það
nokkuð heilbrigt sjónarmið að
ætla að halda 100% kaupmætti
út samningstímann, en hann
bætti við að slíkt markmið hlyti
að verða sett sem lágmarks-
markmið. „Auðvitað hlýtur
verkalýðshreyfingin að reyna að
sækja aukinn kaupmátt, til þess
að fá til baka eitthvað af því sem
hefur tapast,“ sagði Stefán, „en í
upphafi samningaviðræðna
finnst mér þetta vera afskaplega
eðlilegt tilboð. Það eina, sem ég
hjó svolítið eftir í þessu tilboði,
er að vinnuveitendur gáfu það
svolítið i skyn að þeir ætlast til
þess að þetta verði það sem sam-
ið verður um.“
Áhyggjur VSÍ koma á óvart
„Það kemur á óvart að Vinnu-
veitendasamband íslands skuli
hafa áhyggjur af kjörum al-
mennings í landinu," sagði Svav-
ar Gestsson, formaður Alþýðu-
bandalagsins, i samtali við
Morgunblaðið. „Það má segja að
það sé ekki seinna vænna að þeir
átti sig á þvi hvers konar lifskjör
þeirra stefna og stjórnarinnar
hefur búið almenningi og þetta
tilboð bendir líka til þess að þeir
viðurkenna að þeir hafi fjár-
muni, sem staðfestir það sem við
höfum haldið fram, að það eru
til fjármunir í landinu til þess að
hækka kaup. Það eru reyndar til
svo miklir fjármunir að vinnu-
veitendur bjóða kauphækkanir
að fyrra bragði. Aðalatriðið í
sambandi við þetta tilboð finnst
mér ekki vera kauptölurnar,
heldur það að það er engin kaup-
trygging, en ég hef skilið það svo
að það væri höfuðviðfangsefni
verkalýðshreyfingarinnar að
berjast fyrir kaupmáttartrygg-
ingu, og að kauptryggingin væri
meira mál fyrir verkalýðshreyf-
inguna en kauptölurnar sjálfar."
Svavar sagði að kjarasamn-
ingur sem gerður yrði núna hlyti
að snúast i meginatriðum um
tryggingu kaupmáttarins. Hann
sagði að tilboð þetta gerði ráð
fyrir sama kaupmætti og var
síðasta ársfjórðung ársins 1983,
sem hefði verið mjög lágur. Þá
væri ekki gert ráð fyrir því að
aukning þjóðarframleiðslunnar
kæmi fram í auknum kaupmætti
kauptaxta. Loks sagöist hann
vilja benda á að verulegum hluta
þessara hugsanlegu samninga
væri vísað á ríkissjóð, en þar
sagði hann að vafalaust væri um
að ræða upphæðir upp á mörg
hundruð milljónir króna. Því
sagði hann að fróðlegt væri að
vita hvernig ríkisstjórnin ætlaði
sér að bregðast við þessu tilboði.
Samningar án verkfalla
markmið allra
„Samningar án verkfalla hlýt-
ur að vera sameiginlegt mark-
mið allra og það er út af fyrir sig
ánægjulegt ef menn telja að
kominn sé umræðugrundvöllur,"
sagði Kristín Halldórsdóttir,
þingmaður Samtaka um kvenna-
listan, í samtali við blm. Mbl.
„Ég hef hins vegar ekki trú á
að launafólki finnist þetta
rausnarlegt tilboð, miðað við þá
kjaraskerðingu sem það hefur
orðið að taka á sig,“ sagði Krist-
ín. Hún sagði að það jákvæðasta
í tilboði VSÍ væri sérstök hækk-
un til fólks í lægstu launaflokk-
unum, það væri alltént viðleitni,
þótt í smáu væri. „Mér finnst
einkennilegt, að ég ekki segi
grunsamlegt, hvað þetta tilboð
virðist koma verkalýðsforingjum
á óvart. Ég hélt að menn hefðu
verið á stöðugum fundum og þá
væntanlega með það að mark-
miði að komast að einhverri
niðurstöðu. Vonandi er ekki til-
gangur VSl sá fyrst og fremst að
kljúfa verkalýðshreyfinguna,"
sagði Kristín Halldórsdóttir.