Morgunblaðið - 25.05.1985, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 25.05.1985, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 25. MAÍ1985 Tekst Kiel aö sigra Gummersbach í bikarkeppninni í dag? „Þeir eru óhemju erfiöir andstæðingar á útivelli“ — segir Pólverjinn Panas í einkaviðtali við Mbl. • Marek Panas íhugull á svipinn þar sam hann Mtar að maöharja og skoðar vöm andstsaðinganna. Panas sam nú ar 33 ára gamall leikur gífurlaga val og á stóran þátt í valgengni Kiel. „íslanskur handknattleikur hef- 'ur alltaf verið starkur og ég par- sónulega haf mikla trú á þvl að landslið fslands komi á óvart í næstu HM-kappni undir stjórn Bogdans þjálfara. Landsliðin I Evrópu aru jafnari an áður og lið Rússa, A-Þjóðverja, Júgóslava og Rúmana hafa akki iafn mikla yfir- burði og oft áður. Islanskir hand- knattleiksmenn eru líkamlega starkir og skormann miklir an þá hafur oft vantað nokkuö uppá gott leikskipulag. En þair aru miklir kappnismann og gata var- ið mjög haröskeyttir. Hinsvagar gata þair líka varið nokkuð mis- jafnír í leikjum sínum. Átt mjög k góöa leiki an svo afar slakir. Ég hugsa aö það sé kominn meiri stöðugleiki f landsliðiö núna an oft áður.“ Viðmælandi minn er Marek Panas, einn leikreyndasti og þekktasti handknattleiksmaöur I heiminum í dag. Panas, sem er Pólverji og hefur leikiö marga landsleiki gegn íslandi, hefur leikiö meö liöi Kiel síöastliöinn þrjú og hálft ár og ég átti viö hann víötal skömmu eftir aö Kiel lék síöasta leik sinn í „Bundesligunni“. Panas er afar rólegur maöur og yfirveg- aöur. Og þaö kemur honum vel i keppni. Hann hefur alltaf veriö hinn röggsami og útsjónarsami stjórnandi. Hefur ótrúlega næmt auga fyrir því aö leika félaga sína uppi og koma leikfléttum af staö. Panas hefur leikiö eitt hundraö og tuttugu landsleiki fyrir Pólland. Hann lék um fimm hundruð leiki í 1. deildinni í Póllandi og hefur leik- iö rúmlega eitt hundruö og tuttugu leiki fyrir Kiel. Hann er orðinn 33 ára gamall. Eftir aö hafa opnaö viöræöur okkar á þvi aö inna hann eftir áliti á íslenskum handknattleik spuröi ég hann hvort hann væri ánægöur með árangurinn í deild- inni í vetur og hvaöa möguleika hann teldi á sigri gegn Þýska- landsmeisturum Gummersbach í úrslitaleik bikarsins. Gummersbachliöið er óhemju erfiðir mótherjar „Það voru nú viss vonbrigði í kvöld aö Dússeldorf skyldi ekki halda fengnum hlut í leiknum og ná aö sigra. Þeir voru yfir allan leikinn þar til alveg undir lokinn en þá loks tókst Gummersbach aö síga fram- úr. Þannig eru íþróttirnar. Þaö þýöir ekkert aö vera aö svekkja sig á þessu. Gummersbach er meö gífurlega sterkt liö og þaö er ekki auðvelt aö sigra þá. Þeir eru búnir aö vinna okkur tvívegis í vetur og nú veröum viö aö reyna aö flnna einhverja leikaöferö til aö stööva þá. Þaö yröi gaman aö geta unniö bikarinn. En ég er ekki sérlega bjartsýnn. Gummersbach tapar aldrei á heimavelli. Auövitaö á ég ekki aö segja þetta. Maöur á aldrei aö segja aldrei. Viö munum gera okkar besta. Berjast eins og Ijón. Ég held aö ég geti fullyrt aö Gummersbach tapaöi bara einum leik á útivelli ,í allan vetur Erum meö ungt liö „Viö erum meö ungt liö hjá Kiel. Viö erum meö yngsta meöalaldur- inn í deildinni, 22 ár. Ég er aldurs- forsetinn, 33 ára. Viö getum vel viö unað meö árangur okkar eftir aö Jóhann Ingi tók viö liöinu. Viö höf- um aöeins tapaö tveimur leikjum á heimvelli. Uröum í ööru sæti I deildinni í ár og unnum okkur rétt til aö taka þátt í Evrópukeppninni. í fyrra uröum viö í fjóröa sæti og áriö þar áöur náöum viö ööru sæti. En nú eigum viö möguleika á bik- armeistaratitli og vonandi gengur hann okkur ekki úr greipum. Þaö sem gerir gæfumuninn á liöunum tveimur er aö Gummersbach hefur besta markvörö heims, Thiele. Hann hefur variö 40 vítaköst í deildinni í vetur og fjöldann allan af dauöafærum. Markvöröur meö staösetningar og snerpu eins og hún gerist best. Þá hefur liöiö tvær afburöagóöar skyttur. Viö hjá Kiel byggjum hinsvegar mest uppá leikkerfum svo til allan leikinn út í gegn. En ungu mennirnir í liöinu eru aö eflast og Kiel þarf ekki aö kvíöa framtíöinni. Þaö heyrir til undantekninga ef þaö er keyptur þýskur leikmaöur til Kiel þrátt fyrir aö liöiö standi mjög vel peninga- lega.“ Spáir Pólverjum 6. sæti Hvernig heldur þú að löndum þínum gangi í heimsmeistara- keppninni í Sviss? „Ég spái þeim 6. sæti. Þeir eru aö byggja upp sterkt og gott landsliö en samt held ég aö þá skorti herslumuninn á aö veröa á meöal fimm efstu. Þaö eru efnilegir leikmenn á uppleiö í Póllandi og ég spái því aö innan 5 ára veröum viö á meöal fimm bestu þjóöa heims.“ Hvaö ætlar þú aö halda lengi áfram aö leika handknattleik? „Ég kem til meö aö leika eitt keppnistímabil til viöbótar meö Kiel. Þaö er ákveöiö. Hvaö ég geri þá er óvíst. En ég get hugsaö mér aö taka aö mér þjálfun. Þaö hefur veriö rætt um mig sem hugsanleg- an eftirmann Jóhanns Inga og þaö gæti vel fariö svo aö ég tæki viö af honum." Alfreð og Sig- urður bestir Nú leika í Þýskalandi nokkrir ís- lenskir leikmenn, hverjir hafa staö- iö sig best aö þínu mati? „Þeir Alfreð Gíslason og Sigurö- ur Sveinsson. Alfreð er hörku varnarmaöur og góö skytta. Sig- uröur er ein mesta skyttan í deild- inni, afar skotfastur og skýtur nokkuö einkennilega þannig aö markveröir eiga oft erfitt með aö reikna hann út. Árangur Siguröar, 190 mörk skoruö, segir sitt um hæfileika hans. Hinsvegar er nokk- uö einkennandi fyrir íslenska handknattleiksmenn hversu ein- hæfir þeir eru. Þaö vantar ávallt leikmann, sem getur stjórnaö spili og leikkerfum. Lætur boltann ganga, gefur á línu og byggir upp. Þaö vilja allir skora og vera stjörn- ur. Ég lít á hlutverk mitt hjá Kiel sem leikstjórnanda númer eitt, tvö og þrjú. Og aö sjálfsögöu verö ég aö skila varnarleiknum eins vel og ég get. Þaö er einn stærsti hlutur- inn í íþróttinni aö hafa skilning og yfirsýn á því, sem er aö gerast hverju sinni,” sagöi Panas. Og eftir aö hafa horft á hann leika þá skildi ég vel hvaö hann átti viö. Hann var snillingur í þvi aö stjórna hraöabreytingum á leik liösins. Gaf sendingar sem gáfu mörk. Hann virtist alltaf vita hvaöa leikmaöur var í opnu dauöafæri. Sendingar hans voru meö ólíkind- um nákvæmar og snöggar. Og þegar þess þurfti meö lyfti hann sér og skoraöi mörk. Panas skor- aöi 62 mörk í deildinni í vetur. Þar af aöeins þrjú úr vítaköstum. Þaö er óborganlegt fyrir íþróttaliö aö hafa slíka snillinga í sínum rööum. Enda er góöur árangur Kiel mikið Panas aö þakka. Hann er einn af þeim bestu, sem ég het séð leika handknattleik, segir Jóhann Ingi þjálfari Kiel. Þýsk blöö hafa oftar en einu sinni sagt: Þaö breyttist allt til hins betra hjá Kiel þegar Panas og Jóhann Ingi komu þang- aö. — ÞR • Snðgg bolvinda og síöan er Panas kominn f gegn um vörn andstæðinganna og skorar. Panas gerir ekki mikið af því að reyna að skora mörk. En þegar hann fer af staö ar akki gott að stööva hann. Hér ar hann kominn í gagn og þaö var akki að sökum að spyrja, skömmu síðar lé boltinn í netinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.